Morgunblaðið - 04.03.2003, Blaðsíða 55
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 55
! "#$ %
#" & #'
(
)
)
)
!"
(
( (
( !"
( !#$%%&
!'(&#
)*+ ! *$
,$-+'
$" ( ( (
( (
( ( ( ( (
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
*+" " ## " ,,-#" !" #'" ."
#/ . 0
(& 0##,,-#" !" #')
-#"!" (
%&./011')++ 1 #'#! #2%#! #.'")
#2.3'(4## . 2(5.0#! #)3-
3 #)# "##" 6'' # #'## " '"(
* ")#. " !#! #.3'(*- #'# (
./011'+2"''
76"",,-#" + !& #'(
34 *"$ 34 *"$ 34 *"$
*5. 6'.
78$-+6'.
.$*5 +" . $92
-:5*-
;$$.
;$<
=!(> 7*+*-
? $%--(
2
2
2
2
03-
8!3 ." ##'
3-
3-
3/ .(3(
"##"!"/'
03-
3/ .(3(
/'
#3!
8!3
8..(!$
@*-.
$9 +8A
8-)8-
'
*)
-. @98 7*'-
'-
+6*
2
2
2
#3!
"##".(3(
3-
3-
3.
3-
8!3 .(3(
"##".(3(
"##"
03-
:+
7B*8-
:8B
!
*-*5
C--%*+
:8-*
@D
;*A 4(B+8
-)8
2 2
2 2 03-
3-
3-
3-
8!3
3/ .(3(
03-
3-
3-
$)+$
9! # 2%!"0)#3-
3 #' # (
*.3 #" ! 3(
>$)+$8+$+)+$
4 "!"'.0 6'' )#
3- 3 # #'(* "
-# #' (
:"6.$)+$
9! ") 2%)# #'#! # (
#2
3! 6'' )#8
#(*.3 #" ! 3)
- #'# (
!
LJÓSVAKINN hafði mikið gaman
af gáskafullri heimildarmynd um
íslensku rokksveitina Ham, sem
sýnd var í Sjónvarpinu á sunnu-
dag. Og tveimur kvöldum fyrr
hafði Ljósvaki drukkið oftar sem
áður í sig upplýsandi og stór-
skemmtilegar samræður Jóns
Ólafssonar og okkar fremsta dæg-
urtónlistarfólks, sem að þessu
sinni var söngkonan magnaða Ell-
en Kristjánsdóttir. Í liðnum mán-
uði stóð Sjónvarpið svo fyrir veg-
legri og að mestu vel lánaðri
söngvakeppni sem fangaði huga
þjóðarinnar. En gjarnan er það nú
svo að mikið vill meira.
Ljósvakinn hefur nefnilega lengi
verið þeirrar skoðunar að íslensk-
ar sjónvarpstöðvar sinni íslenskri
tónlist skammarlega lítið. Ef horft
er framhjá annars frábærum
spjallþætti Jóns Ólafssonar – sem
vel að merkja er miklu fremur
spjallþáttur en tónlistarþáttur,
þótt um tónlistina sé rætt – hafa
sárafáir ómengaðir tónlistarþættir
verið á boðstólum til lengri tíma.
Eina íslenska tónlistin sem sést í
sjónvarpi hefur verið tónlistar-
myndböndin – sem PoppTíví og
SkjárEinn hafa sýnt fremur stop-
ult og með ómarkvissum hætti –
og einstaka tækifærisuppákomur í
magasín- og menningarþáttum
(reyndar á Jónatan Garðarsson
Mósaík-ritstjóri lof skilið fyrir að
hafa komið dægurtónlistinni að í
menningarþætti hjá Sjónvarpinu).
Það sem vantað hefur eru al-
íslenskir tónlistarþættir, þar sem í
boði er íslenskt tónlist, flutt af
atorkusömum íslenskum tónlistar-
mönnum, gjarnan lifandi. Vissuleg
virðist þörfin fyrir slíka þætti
meiri í kringum stóru jólavertíðina
en merkilegt nokk þá eru tónlist-
armenn á Íslandi einnig að á öðr-
um árstímum og gott ef landinn
hefur ekki einnig gaman af að
hlýða á góða íslenska tónlist allt
árið um kring, en ekki bara í des-
ember.
Þeir eru Ljósvaka í fersku minni
þessir fáu tónlistarþættir sem
Sjónvarpið hefur ráðist í að gera.
Hér á árdögum Sjónvarps var
hlutsfalllega mikið af tónlistarefni
í boði er höfðingjar á borð við Ólaf
Gauk fengu heila þætti til umráða
og nýttu þá vel, með því að bjóða
upp á íslenskan tónlist, af ýmsu
tagi. Ljósvaka eru þó efst í huga
hreint frábærir þættir – í minning-
unni – sem Jón Gústafsson, þá
tölvupoppari og fjölmiðlamaður en
nú kvikmyndagerðarmaður og
vesturfari, stjórnaði af rómaðri
snilld. Þættirnir báru hið ógleym-
anlega nafn Rokkarnir geta ekki
þagnað og voru á dagskrá um mið-
bik níunda áratugarins. Hver þátt-
ur – sem var hálftíma langur að
Ljósvaka minnir – var helgaður
vinsælli íslenskri dægurhljómsveit
á þeim árum, jafnt efnilegum sem
reyndari sveitum. Þar fengu sveit-
irnar kannski betra tækifæri en
nokkrar aðrar fyrr eða síðar, að fá
leika 5-6 laga sinna fyrir þjóðina.
Mikið væri gaman að Rokkarnir
fengju að hljóma á ný.
Með tilkomu fleiri sjónvarps-
stöðva hefur ástandið svo sem lítið
skánað. Framboðið af íslenskri
tónlist hefur vissulega aukist eitt-
hvað en yfir höfuð virðist sem
einkareknu stöðvarnar – auglýs-
ingatekjum háðar – telji að ekki sé
hægt að gera sér mat úr íslenskri
tónlist. Einstaka sinnum hafa þær
þó lagt sitt af mörkum og fagna
ber útsendingum eins og frá
Hlustendaverðlaunum FM957 á
PoppTíví, þar sem boðið var upp á
lifandi íslenska tónlist, og þáttum
á SkjáEinum eins og Popppunkt-
inum, sem fjallaði meira og minna
um íslenska tónlist, og nýjasta
þætti stöðvarinnar Popp og kók,
sem helgaður er íslenskri tónlist
(þar mætti reyndar vera meira um
tónlistarflutning og minna um eitt-
hvað baksviðs-partí-blaður).
Þegar allt kemur til alls er bolt-
inn þó hjá ríkisstöðinni okkar.
Hún hefur ákveðnum skyldum að
gegna og ein af þeim er að bjóða
upp á fjölbreytta íslenska menn-
ingu. Ríkisútvarpið sinnir af kost-
gæfni sígildri listsköpun íslenskri
og menningu tengdri þjóðlegum
hefðum, stjórnendur Rásar 2 hafa
undanfarið sýnt íslenskri dægur-
tónlist stóraukinn áhuga en þeir
hjá Sjónvarpinu mættu gera betur.
Vitanlega er um fjárfrekt dag-
skrárefni að ræða en ekki skal
vanmeta hversu þakklátt það er og
þýðingarmikið. Hvernig væri t.d.
að Sjónvarpið léti gera viðlíka
þætti og slegið hafa í gegn í
breska ríkissjónvarpinu og kennd-
ir eru við tónlistarmanninn Jools
Holland (hægt að sjá þá á BBC
Prime). Þar fær Holland í heim-
sókn til sín sex gerólíkar hljóm-
sveitir og listamenn í þætti hverj-
um. Er þeim raðað upp í góðan
hring í sjónvarpssal og gengur
Holland síðan á milli þeirra, eða
situr við píanó sitt, og gefur tón-
inn. Svo greinilega má merkja á
flutningi listamannanna að
frammistaðan í þættinum er orðið
mikið metnaðarmál fyrir þá alla.
Spilagleðin ræður ríkjum og oftar
en ekki er brugðið út af vananum,
ólíkustu listamenn leiddir saman
af Holland og lög leikin sem alla
jafna fá ekki inn í síbyljunni.
Hvernig væri að Jón Ólafsson
fengi næst að stjórna slíkum þætti
af fingrum fram?
Hjónin Ólafur Gaukur og Svanhildur Jakobsdóttir voru tíðir gestir á skján-
um á árdögum Sjónvarpsins fyrir einum 35 árum.
Rokkarnir eru
löngu þagnaðir
Skarphéðinn Guðmundsson
LJÓSVAKINN...
ÚTVARP/SJÓNVARP
www.nowfoods.com
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.