Morgunblaðið - 11.04.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Litlum matvöruverslunum hefur fækkað mikið á und-
anförnum árum og nú er svo komið að þær eru innan
við 20 á höfuðborgarsvæðinu.
Ópera og tónlistarhús
Bjarni Daníelsson óperustjóri segir að það sé for-
gangsatriði að fá úr því skorið hvort Óperan fái inni í
fyrirhuguðu tónlistarhúsi.
Skapari furðufugla
Rowan Atkinson kveðst í samtali við Morgunblaðið
ekki fyndinn, en er það nú samt. Nú leikur hann
skrumskælingu af Bond á hvíta tjaldinu.
Kaupmaðurinn á horninu
á sunnudaginn
EKKI SAMIÐ STRAX
Ekki var gengið endanlega frá
samkomulagi EFTA-ríkjanna og
Evrópusambandsins um aðlögun
EES-samningsins að stækkun ESB
á samningafundi í Brussel í gær-
morgun vegna óvæntra mótmæla Ír-
lands og Póllands. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra segist þó viss
um að ekkert geti komið í veg fyrir
að samningum verði lokið.
Stjórnleysi í Bagdad
Stjórnleysi ríkti í Bagdad í gær og
til átaka kom í nokkrum hverfum
írösku borgarinnar milli banda-
rískra hersveita og vopnaðra stuðn-
ingsmanna Saddams Husseins. Þús-
undir manna streymdu inn í
miðborgina, kveiktu í opinberum
byggingum og létu greipar sópa um
heimili, sjúkrahús, sendiráð og fleiri
byggingar. Bandarískar og kúrd-
ískar hersveitir réðust inn í borgina
Mosul í Norður-Írak í gærkvöldi og
áður höfðu hersveitir Kúrda náð
olíuborginni Kirkuk á sitt vald.
SH sterkara í Bretlandi
Samanlögð velta dótturfyrirtækja
SH í Bretlandi fór í fyrra í fyrsta
sinn fram úr veltu Coldwater í
Bandaríkjunum, en bæði löndin voru
hvort um sig með um 28% af heild-
arsölu samstæðunnar, sem nam 54,5
milljörðum króna.
Fjöldi barna of þungur
Tæplega fjórðungur 9 ára barna í
Reykjavík telst of þungur og af þeim
eru 5,5% sem teljast eiga við offitu-
vandamál að stríða. Börnum sem
teljast of feit hefur fjölgað um 13% á
fjórum árum og vandinn á fyrst og
fremst rætur að rekja til hreyfing-
arleysis.
Keflavík Íslandsmeistari
Keflavík vann Grindavík 102:97 í
gærkvöldi og tryggði sér þar með
Íslandsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik karla í sjötta sinn, en fjögur ár
eru síðan Keflavík varð síðast Ís-
landsmeistari í karlaflokki. Kvenna-
lið félagsins varð einnig Íslands-
meistari með glæsibrag fyrir
skömmu.
F Ö S T U D A G U R 1 1 . A P R Í L 2 0 0 3 B L A Ð B
3 TVÍBURAMÆÐUR OG 6 UPPRENNANDI BOLTADÍSIR/2 MYNDAR-
LEG KLÆÐI/2 HÚS MEÐ STÓRT HJARTA/4 KROSSFERÐ GEGN
SMEKKLEYSU/6 AÐ SAUMA PÁSKAEGG/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
K
ONUR í hvítum kjólum
hafa vakið athygli
vegfarenda á göngum
Landspítalans að und-
anförnu. Þær sjást
helst á hátíðisdögum, hinum svo-
nefndu rauðum dögum, og ekki er
ofmælt að þær sinni þá störfum sín-
um af meiri reisn en endranær.
Þarna eru á ferðinni hjúkr-
unarfræðingar og sjúkraliðar á
gæsludeild A2 og göngudeild háls-,
nef og eyrna, en þær
vilja með kjólunum gera
sér dagamun á hátíð-
isdögum og gleðja um
leið samstarfsmenn,
sjúklinga og gesti.
„Þetta eru í raun hjúkkukjólar,
svipað og í gamla daga, en bara
miklu fallegri,“ segir Þorgerður
Þráinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
á A2. „Þeir eru aðsniðnir með klauf
og mjög sætir – þeir vöktu að
minnsta kosti gífurlega athygli
þegar við mættum í þeim um jólin.“
Þorgerður segir hjúkrunarkon-
urnar á A2 hafa fengið hugmynd-
ina frá starfssystrum sínum á fyrr-
nefndri göngudeild háls- nef og
eyrna. „Þær byrjuðu á þessu en að
vísu vinna þær ekki á stórhátíðum –
göngudeildin er aðeins opin á virk-
um dögum. En þær klæddust kjól-
unum meðal annars á föstudögum í
desember og vöktu lukku.“
Starfsfólkið á A2 fer meira um og
út af deild sinni en starfsfólk
göngudeildarinnar og hafa því kjól-
ar þeirra að sögn vakið víðtækari
athygli. „Sjúklingunum finnst þetta
huggulegt og aðstandendurnir hafa
einnig tekið þessu mjög vel,“ segir
Þorgerður. Kjólarnir eru pantaðir
eftir lista frá heildversluninni Hexa
í Kópavogi og greiddu konurnar
fyrir þá úr eigin vasa – enda spari-
kjólar hjúkrunarfræðinga ekki á
fjárlögum!
„Það eru eingöngu
konur í þessum hópi. Að
vísu er ungur maður hjá
okkur á deildinni núna,
sjúkraliði, hann var ekki
byrjaður um jólin og
slapp því fyrir horn,“ segir Þor-
gerður og hlær. Hún segir kjólana
næst verða tekna fram um páska í
því skyni að laða fram hátíðleika
innan veggja sjúkrahússins. Ef
gustar um gangana klæðast kon-
urnar að auki látlausum, einlitum
flíspeysum sem fara fallega við
kjólana.
„Þetta lífgar óneitanlega upp á.
Venjulega erum við í hefðbundnum
buxum og jakka. Örfáar okkar hafa
tekið í notkun nýju litina, bleika og
græna, og svo er slysadeildin í
bláum búningum. En þorri starfs-
fólksins er í þessum vanabundnu,
hvítu göllum. Þeir eru kannski ekki
beint smart og það var í raun
kveikjan að þessu með kjólana.
Okkur fannst við ekki nógu flott-
ar,“ segir Þorgerður sem sjálf var á
vakt á jóladag í nýja kjólnum. Hún
bætir við brosandi að hátíðarklæðin
kalli vissulega á hátíðlegri vinnu-
brögð, en þegar nauðsyn krefji
komi búningarnir að sjálfsögðu
ekki í veg fyrir skyldur starfsins
gagnvart sjúklingum og samstarfs-
fólki.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þrjár af stelpunum á deild A2 í sparikjólunum: Elín Bára Birkisdóttir
sjúkraliði, Sólveig Traustadóttir Wiium sjúkraliði og Þorgerður Þráins-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
Sparikjólar
ekki á
fjárlögum
Hvítir
kjólar
á rauðum
dögum
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 36
Viðskipti 12/14 Minningar 36/43
Erlent 16/21 Staksteinar 54
Höfuðborgin 22 Bréf 48/49
Akureyri 23 Dagbók 50/51
Suðurnes 24 Íþróttir 52/55
Landið 25 Leikhús 56
Listir 26/38 Fólk 58/61
Menntun 29 Bíó 58/61
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 62
Umræðan 30/31 Veður 63
* * *
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
endanlegar tillögur Jóns Kristjáns-
sonar heilbrigðisráðherra um að stór-
auka geðheilbrigðisþjónustu við börn
og unglinga. Eru tillögurnar afrakst-
ur starfshóps sem skipaður var af
forstjóra Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss og gerði ráðherra tvær
tillagnanna strax að sínum.
Annars vegar verður unglinga-
deild BUGL (Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans) stækkuð með
6–8 viðbótarrýmum og hins vegar
gerðar breytingar á vinnufyrirkomu-
lagi göngudeildar þannig að hún geti
betur sinnt börnum og unglingum
með geðraskanir, utan sjúkrahúss-
ins.
Mikilvægur áfangi
Jón Kristjánsson segir við Morg-
unblaðið að tillögurnar séu nánari út-
færsla á samþykkt ríkisstjórnarinnar
frá 11. mars sl. um málefni BUGL.
Hann segir mikilvægan áfanga hafa
náðst og að tillögurnar muni skipta
miklu fyrir starfsemi deildarinnar og
spítalans. Brugðist sé með markviss-
um hætti við vanda sem hafi verið að
aukast undanfarin ár og tillögurnar
hafi verið lagðar fram í góðu sam-
starfi við stjórnendur BUGL og spít-
alans. Það hafi verið mat starfshóps-
ins, undir stjórn Eydísar Svein-
bjarnardóttur, sviðsstjóra geðsviðs,
að þessar aðgerðir dugi til að mæta
vandanum sem hafi verið til staðar
við umönnun ungmenna með geð-
raskanir.
Forgangsmál
Málið var lagt fyrir ríkisstjórnar-
fund í vikunni og hefur verið til skoð-
unar síðan. Í tilkynningu frá heil-
brigðisráðuneytinu segir að með
samþykktinni sé geðheilbrigðisþjón-
usta við börn og unglinga sett sem
forgangsmál á þessu sviði. Áætlaður
stofnkostnaður við stækkun ung-
lingadeildar BUGL er um 45 millj-
ónir króna. Rekstrarkostnaður vegna
aukinnar þjónustu er á ársgrundvelli
um 55 milljónir króna en hefjist
reksturinn í september, sem stefnt er
að, er rekstrarkostnaður ársins um
20 milljónir. Reiknað er með að
göngudeildin fái annað húsnæði í ná-
grenni við BUGL eða nærri geðsviði
sjúkrahússins. Segir ráðuneytið auk-
inn kostnað verða af þessu sem ekki
sé hægt að segja til um að svo stöddu.
Breytingar á vinnufyrirkomulagi
göngudeildar BUGL varða börn sem
búa utan höfuðborgarsvæðisins. Er
þar horft til góðrar reynslu af til-
raunaverkefni um þjónustu barna-
lækna á þremur heilsugæslustöðvum
á landsbyggðinni. Verkefnið er talið
kosta árlega um 8 milljónir. Annar
meginþáttur í þjónustu við börn og
ungmenni með geðraskanir er aukin
þjónusta við börn og ungmenni í
heimahúsum á höfuðborgarsvæðinu.
Gert er ráð fyrir að þetta viðfangsefni
verði tilraunaverkefni fyrst í stað.
Heildarkostnaður á meðan svo er
gæti verið um 5 milljónir á ári, að
mati heilbrigðisráðuneytisins.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir
að miðað við gefnar forsendur verði
kostnaður vegna aukinnar geðheil-
brigðisþjónustu við börn og unglinga
rúmar 70 milljónir króna í ár og um
76 milljónir á næsta ári, eða alls um
150 milljónir á næstu 20 mánuðum.
Víðtæk samstaða er sögð um tillög-
urnar innan Landspítalans, en meðal
þeirra sem lögðu þær til eru stjórn-
endur BUGL, geðsviðs og barnasviðs
spítalans.
Til samræmis við fyrri ákvarðanir
ríkisstjórnarinnar hefur heilbrigðis-
ráðherra lagt drög að stjórnsýslu-
endurskoðun á starfsemi BUGL.
Niðurstöður þeirrar skoðunar verða
nýttar til að skipuleggja starfsemi
deildarinnar með það í huga að
tryggja skynsamlega nýtingu
mannafla og freista þess að skapa
meiri frið um starfsemina en verið
hefur um nokkurt skeið, að því er
segir í tilkynningunni.
Geðheilbrigðisþjónusta við börn og unglinga
Ríkisstjórnin sam-
þykkir aukin framlög
SJÚKRABIFREIÐ í forgangsakstri
með sjúkling innanborðs lenti í
hörðum árekstri við fólksbifreið á
Bústaðabrú síðdegis í gær. Flytja
varð ökumenn beggja bifreiða á
slysadeild með sjúkrabifreið, en
sjúklingurinn var fluttur á Land-
spítalann með annarri sjúkrabifreið
og hlaut hann ekki teljandi meiðsli.
Tildrög slyssins voru þau að
sjúkrabifreiðinni var ekið vestur
Bústaðaveg þegar hún lenti í
árekstrinum og kastaðist á nálæg-
an umferðarvita. Í sjúkrabifreið-
inni var auk sjúklingsins og öku-
manns einn sjúkraflutningamaður,
en í fólksbifreiðinni var ökumaður
og farþegi hans.
Loka varð Bústaðavegi í um
klukkustund á meðan björgunarlið
vann á vettvangi.
Morgunblaðið/Júlíus
Björgunarlið á vettvangi á Bústaðabrú í gær þegar sjúkrabifreið frá Grindavík og fólksbifreið skullu saman.
Sjúkrabifreið
í forgangs-
akstri í hörð-
um árekstri