Morgunblaðið - 11.04.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKVÆMT nýjum úrskurði
Mannréttindadómstóls Evrópu ber
íslenska ríkinu að greiða Pétri Þór
Sigurðssyni lögmanni 25 þúsund evr-
ur í bætur, eða rúmar tvær milljónir
króna, og 15 þúsund evrur í máls-
kostnað, eða 1,3 milljónir króna, þar
sem brotið hafi verið gegn rétti Pét-
urs um að fá að flytja mál sitt fyrir
óháðum og hlutlausum dómstóli.
Snerist málið um meint vanhæfi
Guðrúnar Erlendsdóttur hæstarétt-
ardómara og telur dómstóllinn að
Pétur Þór hafi með réttu getað efast
um hlutleysi Hæstaréttar í máli sem
hann höfðaði gegn Landsbankanum.
Sjö dómarar Mannréttindadóm-
stólsins dæmdu í málinu og voru þeir
allir sammála um að brotið hefði verið
gegn rétti lögmannsins. Sex dómarar
voru sammála um að lögmaðurinn
ætti rétt á bótum. Meðal dómara var
Davíð Þór Björgvinsson.
Forsaga málsins nær aftur til árs-
ins 1985 er Pétur Þór höfðaði skaða-
bótamál á hendur Landsbankanum
þar sem starfsmaður bankans hefði
gefið ranga yfirlýsingu sem leiddi til
þess að í Hæstarétti varð niðurstaða
honum í óhag í fjárkröfumáli. Í maí
árið 1994 óskaði Pétur Þór eftir end-
urupptöku málsins í Hæstarétti og
var á það fallist fimm mánuðum síðar.
Var hinn fyrri dómur felldur úr gildi
með hæstaréttardómi í mars árið
1995.
Í kjölfarið stefndi Pétur Þór
Landsbankanum til greiðslu skaða-
bóta þar sem hann taldi sig hafa orðið
fyrir tjóni vegna athafna starfsmanns
bankans. Var bankinn sýknaður af
þeirri kröfu og skaut Pétur Þór mál-
inu til Hæstaréttar.
Klofnaði rétturinn í afstöðu sinni
en meirihlutinn, þrír dómarar, taldi
að Pétur Þór hefði ekki sýnt fram á
að hann væri eigandi umræddrar
kröfu. Tveir dómarar komust að ann-
arri niðurstöðu og töldu að bankinn
hefði átt að greiða lögmanninum bæt-
ur.
Meirihlutann í þessu máli skipuðu
Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur
Henrysson og Pétur Kr. Hafstein en í
minnihluta voru Markús Sigur-
björnsson og Gunnlaugur Claessen.
Skömmu eftir hæstaréttardóminn
fékk Pétur Þór að vita um fjárhags-
leg samskipti maka Guðrúnar Er-
lendsdóttur við Landsbankann og fór
hann fram á endurupptöku skaða-
bótamálsins í Hæstarétti á þeirri for-
sendu að Guðrún hefði verið vanhæf.
Varðar hlutleysisreglur Mann-
réttindasáttmála Evrópu
Eftir að þeirri beiðni hafði verið
hafnað í tvígang skaut Pétur Þór mál-
inu til Mannréttindadómstóls Evrópu
sem komst að þeirri niðurstöðu fyrir
tveimur árum að það væri tækt til
frekari efnismeðferðar.
Í úrskurði dómstólsins segir að
engin gögn hafi bent til þess að Guð-
rún hafi verið hlutdræg í málinu gegn
Landsbankanum. Hins vegar geti
þrennskonar kringumstæður leitt til
þess að málið varðaði við hlutleysis-
reglur Mannréttindasáttmála Evr-
ópu. Dómstóllinn telur ekki neina
ástæðu til að ætla að Guðrún og henn-
ar maður hefðu haft beina hagsmuni
af niðurstöðu máls Péturs Þórs gegn
Landsbankanum. Þar sem málin hafi
hins vegar verið í gangi á svipuðum
tíma hafi Pétur Þór með réttu getað
efast um hlutleysi Hæstaréttar.
Mannréttindadómstóllinn um meint vanhæfi hæstaréttardómara
Dæmir íslenskum lög-
manni 2 milljónir í bætur
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, Páll Skúlason, rektor Há-
skóla Íslands, og Árni Magnússon,
stjórnarformaður Þróunarsam-
vinnustofnunar (ÞSS), undirrituðu í
gær samstarfssamning sem markar
upphaf að víðtæku samstarfi ÞSS og
Háskólans um kennslu, rannsóknir
og stúdentaskipti á sviði þróunar-
mála. Samstarfssamningurinn tekur
til þriggja ára og kveður meðal ann-
ars á um að Háskóli Íslands leitist
við að efla rannsóknir og kennslu á
sviði þróunarsamstarfs og stuðli að
því að haldin verði námskeið um mál-
efni og aðstæður þróunarlanda.
Jafnframt voru undirritaðir tveir
sértækir samningar um fyrstu verk-
efnin sem stofnað verður til á grund-
velli samstarfssamningsins. Þar er
annars vegar um að ræða samning
um stofnun lektorsstöðu í mann-
fræði þróunar við félagsvísindadeild
Háskólans og hins vegar samningur
við læknadeild Háskólans um rann-
sóknarverkefni tveggja læknanema í
Malaví, en ÞSS hóf árið 2000 sam-
starf við þarlend heilbrigðisyfirvöld
um byggingu héraðssjúkrahúss og
heilbrigðisþjónustu á Monkey Bay
svæðinu.
Það voru Sighvatur Björgvinsson,
forstöðumaður Þróunarsamvinnu-
stofnunar, Páll Skúlason rektor,
Reynir Tómas Geirsson, deildarfor-
seti læknadeildar, Ólafur Þ. Harð-
arson, deildarforseti félagsvísinda-
deildar, og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, varadeildarfor-
seti félagsvísinda og skorarfor-
manns mannfræði- og þjóðfræði-
skorar, sem undirrituðu samningana
Skylda okkar að sýna samstöðu
með alþjóðasamfélaginu
Páll Skúlason sagði við þetta tæki-
færi að það ætti að vera sjálfsagður
hluti af starfi auðugra ríkja í vest-
urheimi að byggja upp þróunarstarf
með fátækari þjóðum í þriðja heim-
inum í miklu ríkari mæli en gert hafi
verið. „Við búum á þessari jörð sam-
an og við sem erum efnaðari eigum
að deila okkar auðæfum í miklu rík-
ari mæli og hjálpa öðrum til að þróa
sitt mannlíf með sínum hætti. Þetta á
að vera sjálfsagður hlutur og Há-
skóli Íslands á að leggja miklu meira
af mörkum en hann hefur gert og ég
treysti því að á næstu árum verði hér
um mikið og jákvætt starf að ræða.
Við erum ekki aðeins að gera þetta
fyrir aðra heldur líka fyrir sjálf okk-
ur, við erum að auðgast af því að
tengjast þessum löndum sem eru
fjarri okkur og þetta er liður í því að
þroskast sem manneskjur,“ sagði
Páll.
Halldór Ásgrímsson lýsti ánægju
sinni með samningana og sagði að
málefni þróunaraðstoðar og friðar-
gæslu væri vaxandi þáttur í starfi ut-
anríkisráðuneytisins en framlög til
þróunaraðstoðar hefðu tvöfaldast á
síðastliðnum 8 árum. Hann sagðist
vilja spá því að hlutskipti þeirra sem
yrðu í ríkisstjórn á næstu misserum
yrði að auka framlög til þessara mála
en ekki að minnka þau.
„Það er skylda okkar að auka þró-
unaraðstoð og sýna samstöðu okkar
með alþjóðasamfélaginu, sýna skiln-
ing og samúð á hlutskipti annarra
þjóða og þar er ekkert þjóðfélag sem
ég gæti hugsað mér í meiri þörf fyrir
slíkt en Malaví, þar sem maður sér
ekki gamalt fólk, það er ekki til, mað-
ur sér aðeins ungt fólk og miðaldra
fólk, og börnin eru fjölmennust eins-
og allir vita sem þangað hafa komið,“
sagði Halldór.
Samningur milli Háskóla Íslands og Þróunarsamvinnustofnunar
Kennsla og rannsóknir á
sviði þróunarmála efldar
Morgunblaðið/Golli
Árni Magnússon, stjórnarformaður Þróunarsamvinnustofnunar, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Páll
Skúlason, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindastofnunar, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, varaforseti félagsvísindadeildar HÍ, og Geir Gunnlaugsson, yfirlæknir hjá Miðstöð heilsuverndar
barna, kynna samstarfið um kennslu og rannsóknir á sviði þróunarmála.
KARLMAÐUR var fluttur með
reykeitrun á Heilsugæslustöð Akra-
ness á miðvikudagskvöld eftir bruna
í bílskúr á Hellissandi. Bílskúrinn er
nýlega byggður og er talið að kvikn-
að hafi í út frá rafmagni. Nokkur
reykur barst inni í eitt herbergi
íbúðarhúss við skúrinn.
Að sögn lögreglunnar á Ólafsvík
var ekki um mikinn eld að ræða en
skemmdir í skúrnum vegna sóts og
reyks eru töluverðar. Þá brunnu
hjólbarðar og glæný útidyrahurð
m.a. Tilkynnt var um eldinn á tíunda
tímanum á miðvikudagskvöld.
Sá sem fluttur var á sjúkrahúss
hafði komið húseiganda til aðstoðar
áður en Slökkvilið Snæfellsbæjar
kom á vettvang, en varð frá að
hverfa. Samkvæmt upplýsingum frá
heilsugæslustöðinni reyndist reyk-
eitrun mannsins ekki alvarleg.
Fékk reyk-
eitrun í bíl-
skúrsbruna
MAÐUR varð undir jarðvegi sem
hrundi úr bakka skurðar við Rofabæ
sem verið var að vinna ofan í um tvö-
leytið í fyrradag. Að sögn Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins, sem var kall-
að á vettvang, stóð nánast höfuð
mannsins eitt upp úr. Mokað var nið-
ur á manninn og hann fluttur með
sjúkrabíl á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús til aðhlynningar.
Að sögn læknis á slysadeild Land-
spítalans var maðurinn lurkum lam-
inn eftir atvikið en að öðru leyti
ómeiddur og fékk að fara heim að
lokinni skoðun.
Grófst í mold
upp að hálsi
ÞRÍR piltar um tvítugt voru hand-
teknir og færðir í fangageymslu lög-
reglunnar í Reykjavík seint á mið-
vikudagskvöld vegna líkamsárásar í
Mosfellsbæ þá um kvöldið.
Eru piltarnir grunaðir um að hafa
ráðist á jafnaldra sinn og barið hann
í höfuð með þeim afleiðingum að
flytja varð hann á sjúkrahús. Ekki
mun hann þó vera alvarlega slasaður
að sögn lögreglu.
Árásarmennirnr flúðu af vettvangi
á bíl eftir árásina, en voru stöðvaðir
af lögreglumönnum á Grensásvegi.
Handteknir eftir
líkamsárás
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Í JÚNÍ halda tveir læknanemar,
þau Sigríður Bára Fjalldal og Þórð-
ur Þórarinn Þórðarson, til Malaví
og vinna þar að rannsóknarverk-
efnum sínum. Að sögn Sigríðar
munu þau dvelja hjá íslenskum
lækni, Halldóri Jónssyni, og starfa
þar við mæðravernd og ungbarna-
eftirlit.
„Þarna er nýbyggð heilsugæslu-
stöð sem við munum starfa við en
við munum einnig fara út í þorpin
og kanna aðstæður þar,“ segir Sig-
ríður. Hún segir að verkefnið legg-
ist vel í hana.
„Við eigum eftir að fá undirbún-
ing á næstu vikum og svo er bara að
skella sér í lestur. Ég er búin að lesa
mér aðeins til um Malaví og kynna
mér mæðraverndina. Maður veit
svo lítið um hvernig ástandið er en
þetta á allt eftir að koma í ljós þeg-
ar við komum út og þá verður bara
að taka á því. Þetta er auðvitað
mikið ævintýri og og góð reynsla og
ég hlakka mikið til,“ segir Sigríður.
Mæðravernd í Malaví