Morgunblaðið - 11.04.2003, Side 11

Morgunblaðið - 11.04.2003, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 11 „AÐ FLYTJA að heiman er stórt skref fyrir ein- staklinga með þroskahömlun ekki síður en aðra. Það er líka stórt skref fyrir foreldra þeirra og að- standendur,“ segir María Jónsdóttir félagsráðgjafi hjá Styrktarfélagi vangefinna en hún ritstýrir handbókinni Að flytja að heiman sem er ætlað að veita upplýsingar og ráðgjöf til þroskahamlaðra og foreldra þeirra. Bókin er sú fyrsta í ritröð sem Styrktarfélagið hyggst gefa út. „Það vantar tilfinnanlega efni fyrir þroskahaml- aða á auðlesnu máli og einnig fyrir foreldra þeirra sem fjallar um ýmsar breytingar sem verða í lífi fólks. Nú þegar eru komnar hugmyndir að næstu bók á auðlesnu máli,“ segir María. Árið 2001 bauð María ásamt Sigrúnu Brodda- dóttur forstöðuþroskaþjálfa nemum hjá Kenn- araháskóla Íslands úr þroskaþjálfaskor að skrifa sögu á auðlesnu máli um aðila sem er að flytja að heiman og þær breytingar sem fylgja í kjölfarið. Þrír nemar, Lilja Guðjónsdóttir, Ósk Unnarsdóttir og Silja Árnadóttir, unnu þrjá fyrstu kafla bók- arinnar sem eru á auðlesnu máli og ætlaðir þroska- hömluðum. „Í þessum köflum er í máli og myndum sett upp saga ungrar þroskahamlaðrar konu sem flytur að heiman og fjallað um þær breytingar sem fylgja í kjölfarið,“ útskýrir María. Í bókinni skrifar fagfólk einnig kafla fyrir foreldra þar sem finna má reynslusögur þeirra. Þá deila tvær þroskahaml- aðar konur reynslu sinni með lesendum og hvernig þær upplifðu það að flytja að heiman. Þá er einnig að finna kafla með ýmsum hagnýtum upplýs- ingum. „Foreldrar gegna mjög stóru hlutverki í lífi fatl- aðra barna sinna og hafa stundum mótað lífsskil- yrði þeirra meira en annarra barna sinna,“ segir María. „Það er stórt skref að flytja að heiman og getur verið erfitt fyrir foreldra að sleppa takinu og láta aðra sjá um að sinna þeim verkefnum sem börn þeirra þurfa aðstoð með. En fólk með þroska- hömlun nýtur sama sjálfræðis og jafnaldrar þeirra. Það er líka eðlilegur hlutur að þau flytji að heiman eins og aðrir. Þetta á að vera eðlilegt ferli og það er mjög mikilvægt að þau flytji á sama aldursskeiði og aðrir, þ.e. oft á milli tvítugs og þrítugs. Þegar komið er fram á fertugsaldurinn er allt orðið í fast- ari skorðum og erfiðara og stundum vand- meðfarnara að fara í gegnum þessar breytingar.“ María segir að ekki sé talað um það úrræðaleysi sem er í búsetumálum fatlaðra í bókinni. Hún seg- ist vonast til að úr þeim vanda leysist fljótlega. „Biðlistar eru langir, aðallega á stór-Reykjavík- ursvæðinu. Það er sorglegt þegar ekki er hægt að verða við óskum fjölmargra fjölskyldna.“ Búnaðarbankinn styrkti útgáfu bókarinnar að hluta en hún er fáanleg hjá Styrktarfélaginu í Skipholti. Einnig má panta hana í gegnum Netið. Styrktarfélag vangefinna gefur út bókina Að flytja að heiman Stórt skref en eðlilegt ferli að þroskahamlaðir flytji að heiman Morgunblaðið/Árni Sæberg María Jónsdóttir félagsráðgjafi. SJÓMAÐUR úr áhöfn norska selveiðiskipsins Polarfangst fótbrotnaði er hann féll á milli jaka í hafíshröngli 160 sjómílur vestnorðvestur af Ísafjarðardjúpi í fyrradag. Var hann fluttur með TF-LÍF þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann sem sótti hann um borð í varð- skipið Ægi. Sjómaðurinn hafði ásamt félögum sínum ný- lokið við að losa annað selveiðiskip, Polarsyssel, úr hafís þegar slysið varð. Varðskipið Ægir var þá komið á staðinn til að taka Polarsyssel í tog vegna bilunar og hóf Polarfangst þá veiðar að nýju. Sjómaðurinn mun hafa verið að hlaupa um á ísnum við veiðarnar þegar hann slasaðist og var hann þá fluttur um borð í Ægi. Læknir í þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var í sam- bandi við varðskipið og kom þá í ljós að nauð- synlegt var að sækja hinn slasaða með þyrlunni. Hún fór í loftið klukkan 21:19 á miðvikudags- kvöld og átti fyrir höndum 260 sjómílna leið að varðskipinu. Varð þyrlan að lenda á Rifi til að taka eldsneyti áður en haldið var áfram. Um miðnættið var búið að hífa hinn slasaða um borð og lenti þyrlan við Landspítalann í Foss- vogi um kl. hálfþrjú í fyrrinótt. Gert var ráð fyrir að Ægir kæmi með Pol- arsyssel til íslenskrar hafnar á hádegi í dag, föstudag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Varðskipsmenn fara á léttabát með dælur yfir í selveiðiskipið í Polarsyssel. Nær er Polarfangst. Fótbrotnaði í hafís við selveiðar EFTIRTALIN skipa framboðslista Nýs afls í Reykjavíkurkjördæmi norður við alþingiskosningar 10. maí nk.: 1. Guðm. G. Þórarinsson verk- fræðingur, 2. Höskuldur Höskulds- son framkvæmdastjóri, 3. Mjöll Helgadóttir, MSc félagsvísindi, 4. Inga Lúthersdóttir hjúkrunar- fræðinemi, 5. Guðrún Þóra Hjalta- dóttir næringarráðgjafi, 6. Sigrún Ármanns Reynisdóttir rithöfundur, 7. Gunnur Petra Þórsdóttir hjúkr- unarfræðingur, 8. Dagrún Jóns- dóttir öryrki, 9. Óttar M. Norðfjörð heimspekingur, 10. Árni Friðbjarn- arson pípulagningarmeistari, 11. Kolbrún Metúsalemsdóttir tann- smiður, 12. Þór Saari hagfræðing- ur, 13. Bergsteinn Gizurarson verkfræðingur, 14. Harvey Georgsson, starfsm. við lyfjaframl., 15. Ólafur Hrólfsson markaðs- fulltrúi, 16. Einar Guðmundsson prentari, 17. Ásta Árný Einars- dóttir öryrki, 18. Ingvar Ásmunds- son, fyrrv. skólameistari, 19. Krist- jana Guðrún Arinbjarnardóttir öryggisfulltrúi, 20. Ásdís Ámunda- dóttir skrifstofumaður, 21. Geir Sigurðsson húsamíðameistari, 22. Magnús Jónsson, fyrrv. skólastjóri. Listi Nýs afls í Reykjavíkurkjör- dæmi norður LANGFLESTAR hinna meintu fals- ana í stóra málverkafölsunarmálinu eru eignaðar Svavari Guðnasyni, tæp- lega 70 myndir, og er Pétur Þór Gunnarsson sakaður um flestar fals- anirnar en Jónas Freydal Þorsteins- son er ákærður fyrir tvær þeirra. Sonur Svavars, Svavar Guðni Svav- arsson, skoðaði allar þessar myndir fyrir dómi í gær og veitti ekki af þremur mönnum til að sjá um að bera myndir inn í salinn. Mátti samt heyra á honum að þetta gengi einum of hægt en hafa verður í huga að hann hafði áður gaumgæft myndirnar hjá ríkislögreglustjóra. Svavar fullyrti hiklaust að ekki ein einasta mynd væri eftir föður sinn. Hann hefði fyrst séð þær í tengslum við rannsókn þessa máls auk þess sem hin slöku gæði myndanna, s.s. daufleg litanotk- un, væri ótvírætt merki um að ein- hver annar hefði málað þær. „Ég svara afdráttarlaust: Nei,“ sagði Svavar þegar Jón H. Snorrason saksóknari spurði hann hvort mögu- legt væri að föður hans hefði tekist illa til við gerð þessara mynda. Svavar greindi einnig frá því að faðir hans hefði notað dýra olíuliti sem hann hefði á tímabili pantað frá Englandi. Í málinu er einmitt talsvert deilt um litategundir, forverðir hafa borið að alkíð hafi verið í litum í myndum Svavars en slíkt efni ekki verið í máln- ingu sem notuð var við listsköpun þegar myndirnar voru gerðar. Vörnin hefur á hinn bóginn sagt að alkíð hafi verði í ódýrum tómstundalitum frá 3. áratug síðustu aldar. „Ofan í svartadjúpið“ Thor Vilhjálmsson, rithöfundur og vinur bæði Kjarvals og Svavars Guðnasonar, kom einnig fyrir dóminn sem vitni. Hjá ríkislögreglustjóra hafði hann borið um að margar mynd- ir listmálaranna sem ákært er fyrir væru ekki málaðar af þeim. Thor baðst undan því að þurfa að skoða myndirnar á nýjan leik í dómssalnum, sagði að framburður sinn hjá lögreglu hefði verið eftir fullri sannfæringu. Vitnisburðurinn hefði jafnframt kraf- ist gríðarlegrar einbeitingar og valdið honum mikilli vanlíðan og óaði honum við að þurfa að fara aftur „ofan í svartadjúpið“. Vildi hann fyrir alla muni komast hjá því að upplifa þetta aftur og fá þess í stað að halda einbeitingu sinni og sálarró. Thor tók skýrt fram að hann vildi leggja sitt af mörkum í þágu málsins, ekki gæti hann unað því að allt sem honum þætti kærast væri lítilsvirt. Allir málsaðilar féllust á að það nægði að hann staðfesti lög- regluskýrslu sína sem hann og gerði. Gamall vinur Svavars, Karl Ómar Jónsson, bar á sömu lund. Hann þekkti enga af þeim myndum sem ákært er fyrir. Thor var síðasta vitni dagsins. Lungann úr deginum höfðu verjend- urnir, þau Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl. og Karl Georg Sigurbjörnsson hrl., beint spurningum að Viktori Smára Sæmundssyni, forverði á Listasafni Íslands. Hann hefur rann- sakað flest ef ekki öll þau olíumálverk sem ákært er fyrir og komist að þeirri niðurstöðu að þau væru fölsuð. Verj- endurnir spurðu hann í þaula út í að- ferðir sem beitt var, hvers vegna lita- sýni hafi ekki verið aldursgreind, hví rannsókn sumra verka hefði tekið allt að þremur árum og báðu um frekari útskýringar á ýmsum niðurstöðum. Viktor svaraði spurningunum skil- merkilega en búast má við að veru- lega verði tekist á um skýrslu hans í málflutningsræðum. Aðalmeðferð málsins hefur dregist á langinn en gert hafði verið ráð fyrir að henni lyki í dag. Þess í stað verður henni frestað fram yfir páska. Sonur Svavars Guðnasonar í framburði sínum í stóra málverkafölsunarmálinu Fullyrðir að engin mynd- anna sé eftir föður sinn MEÐAL aðferða sem forverðir hafa beitt við rannsóknir sínar á málverkum, sem ákært er fyrir í stóra málverkafölsunarmálinu, er að lýsa þær með útfjólubláu ljósi. Með því sést ef eldri málning er undir yfirborði myndanna. Á einu verkanna er höfund- armerki sem eignað hefur verið Þorvaldi Skúlasyni. Viktor Smári Sæmundsson forvörður telur að undir yfirborðinu sé eldri merk- ing, stafirnir Poul og S. Verjandi Péturs Þórs Gunnarssonar, Sigríð- ur Rut Júlíusdóttir hæstarétt- arlögmaður, dró í gær verulega í efa að Viktor hefði rannsakað svæðið fyrir ofan P-ið. Bókstaf- urinn gæti því í raun verið Þ og því gæti þetta hafa verið mis- heppnuð höfundarmerking en hún sagði þekkt að hann merkti mynd- ir sínar með Þorv S. Eftir nokkurt þjark stakk Pétur Guðgeirsson dómsformaður upp á því að annar sérfræðingur yrði fenginn til að rannsaka merk- inguna og féllust málsaðilar á það. Niðurstaðan verður kynnt eftir páska. Poul S eða Þorv S? FIMM aðilar löggðu inn tilboð í byggingu snjóflóðavarnar- garða á Seyðisfirði en tilboð í verkin voru opnuð hjá Ríkis- kaupum í dag. Þeir sem skiluðu tilboðum voru Ístak hf., Hér- aðsverk hf., Suðurverk hf., Sandblástur ehf. og Íslenskir aðalverktakar hf. sem voru með lægsta tilboðið. Nam það 147 milljónum króna eða rúmum helmingi af kostnaðaráætlun verkkaupa sem eru Fram- kvæmdasýsla ríkisins og Seyð- isfjarðarkaupstaður. Kostnað- aráætlun hljóðaði upp á 264 milljónir. Á Seyðisfirði er gert ráð fyrir að byggja tvo garða, 200 metra langan leiðigarð og og 400 metra þvergarð. Verða þeir um 20 metra háir og liggja uppi á brún undir Bjólfinum en svæð- ið er í um 650 metra hæð. Nú tekur við vinna við yfirferð til- boða. Öll tilboð undir kostn- aðaráætlun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.