Morgunblaðið - 11.04.2003, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
FRAMUNDAN eru gríðarmiklar
framkvæmdir, fjárfestingar og um-
svif, sem munu að öllu óbreyttu hafa
áhrif til aukinna umsvifa á vöru- og
vinnumarkaði og væntingum um
betri tíð.
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stöðumaður Hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands, hefur tekið saman þær
framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru
á tímabilinu 2003–2009. Að því er
fram kom í erindi Tryggva á fundi á
vegum Landsbankans í gær er áætl-
aður kostnaður við þær 315,5 millj-
arðar króna.
„Á næstu þremur til fjórum árum
verða framkvæmdir upp á rúma 315
milljarða sem slær hátt í 40% af
landsframleiðslu sem er svo hátt
hlutfall að það er nánast óþekkt í
heiminum,“ að sögn Tryggva.
Hann segir að hagvöxtur muni
verða mjög mikill á næstu árum, eða
allt að 6% árið 2006.
Útlit fyrir vaxtahækkun
Tryggvi segir að mjög sennilega
séu stýrivextir Seðlabankans lægri
nú en þeir munu verða næstu árin.
Vextir séu nú lægri en þeir hafi verið
frá því í maí 1997 og þriggja mánaða
ríkisvíxlar hafi ekki borið lægri vexti
síðan 1994. „Ég sé ekki rúm fyrir
frekari vaxtalækkanir hjá Seðla-
bankanum á næstunni. Reyndar hef
ég trú á því að næsta ákvörðun Seðla-
bankans verði hækkun stýrivaxta.“
Að sögn Tryggva munu hækkandi
vextir leiða til styrkingar krónunnar
vegna vaxandi vaxtamunur við út-
lönd, en útlit er fyrir að vextir muni
einnig hækka erlendis þannig að ekki
er víst að vaxtamunurinn muni
aukast mikið við útlönd á næstunni.
„Því meiri sem ríkisútgöldin verða
því hærri verða vextir að vera, jafn-
vel gengi. Mikilvægt er því að boð-
uðum skattalækkunum fylgi niður-
skurður á ríkisútgjöldum. Jafnframt
legg ég mikla áherslu á að stefnu-
blöndun verði hér, það er að segja:
nauðsynlegt er að beita fjármálum
hins opinbera þannig að þau styðji
við peningamálastefnuna,“ segir
Tryggvi.
Í ræðu Tryggva kom fram að raun-
gengið er 4,6% yfir 10 ára meðaltali
um þessar mundir sem gerir útflutn-
ingsgreinum erfiðara um vik. Þetta
háa raungengi mun sennilega flýta
hagræðingu í sjávarútvegi. En hátt
gengi mun, ásamt miklum óvissutím-
um, kreppa að ferðamannaiðnaði og
þjónustugreinum tengdum ferða-
mennsku.
„Núverandi peningamálastefna,
það er mjög mikilvægt að gera sér
grein fyrir því, að hún ræður ekki við
gengið. Ekki nema skammtímasveifl-
ur, og þá er ég að tala um innan dags.
Þannig að það er mjög líklegt að
gengið muni haldast hátt núna næstu
árin vegna mikilla umsvifa nema ef
samdráttur verður í opinberum út-
gjöldum. Hið opinbera skuldbreyti,
það er að segja að það breyti skuld-
um sínum erlendis í innlendar skuldir
eða einfaldlega að það verði breytt
um peningamálastefnu á Íslandi. Það
er mjög mikilvægt að gera sér grein
fyrir því að það eru engar aðrar leiðir
færar. Alveg sama hvað hver segir,“
segir Tryggvi.
Hann segir að hafa verði í huga að
þótt sumir tapi á háu gengi þá hagn-
ast aðrir og í frjálsu markaðshagkerfi
á hið opinbera ekki að hafa áhrif á
hvor hópurinn verði ofan á. Hann
segist spá því að gengi krónunar
verði á svipuðu róli á næstunni og það
er nú.
Tryggvi segist telja líklegt að vext-
ir muni hækka á næstunni og haldast
háir næstu árin. Þó sé sennilegt að
hagræðing í bankakerfinu muni slá
eitthvað á þá þróun með minnkandi
vaxtamun í bankakerfinu.
Langtímavextir muni lækka til
langs tíma litið vegna breyttrar ald-
urssamsetningar þjóðarinnar en
uppsveiflan mun þó seinka þeirri þró-
un.
Mikilvægt sé að hafa í huga að
munurinn á tilvonandi uppsveiflu og
þeirri sem er nýliðin liggur í að hún
byggist á gríðarlegri uppbyggingu
fjármagnsstofnsins en ekki vænting-
um og kerfisbreytingum. Ekki sé lík-
legt að henni fylgi útlánaþensla líkt
og uppsveiflunni á tíunda áratugn-
um.
!
"
#
$ %
&' (
)
!
"
#
$$
$
"
" & $*
$*
+ $*
!
"
') ,
#)-!" !
"
.//-!
,
/"/
"#
" &' (
$ &+0&12 ((
!#
$
"
#
#
#
"
,
Framkvæmdir fyrir 315,5 milljarða – Hagvöxtur verður mjög mikill á næstu árum
Kostnaður um 40%
af landsframleiðslu
Skammtímalánshæfiseinkunn Bún-
aðarbankans hefur verið hækkuð úr
P-2 í P-1, en það er alþjóðlega
matsfyrirtækið Moody’s Investors
Service sem gefur einkunnina eftir
nákvæmt mat sitt á bankanum.
Skammtímaeinkunnin P-1 er hæsta
einkunn sem Moody’s gefur.
Ingvi Örn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfasviðs bank-
ans, segir að Búnaðarbankinn sé
ákaflega ánægður með einkunnina
frá Moody’s og hún komi til með að
efla aðgang bankans að hagstæðari
skammtímalánum. „Þetta kemur sér
vel fyrir okkur þar sem við höfum
verið að íhuga að stofna til svokallaðs
ECP-prógramms, European Com-
mercial Paper Program, til að efla
okkar aðgang að skammtímalánsfé á
hagstæðum kjörum. Búnaðarbank-
inn hefur vaxið hratt á undanförnum
árum og hefur því vaxandi þörf fyrir
erlent lánsfé. ECP er þó ekki óþekkt
hér á landi því ríkissjóður, Lands-
virkun og Íslandsbanki hafa verið á
þessum markaði. Þetta eru markaðs-
hæfir staðlaðir skammtímavíxlar,
sem eru rafrænt skráðir í Lúxem-
borg og útgáfa þeirra byggist á
skráningarlýsingu nánast eins og á
íslenskum skuldabréfaflokkum,“
sagði Yngvi Örn í samtali við Morg-
unblaðið.
Langtímaeinkunn bankans var
staðfest af Moody’s og er A3, fjár-
hagslegur styrkleiki er C og útlit já-
kvætt.
Í fréttatilkynningu frá bankanum
segir að hingað til hafi það almennt
ekki samræmst matsreglum
Moody’s að fjármálafyrirtæki með
langtímaeinkunn undir A2 geti upp-
fyllt sett skilyrði fyrir skammtíma-
einkunn P-1. „Moody’s hefur í dag
séð ástæðu til þess að endurskoða
áður settar matsreglur þar sem
nokkur fyrirtæki uppfylli skilyrði
um hækkun. Einkenni þessara fjár-
málafyrirtækja er stöðugleiki í
rekstri, viðskiptabankastarfsemi,
sterk markaðsstaða og mikil við-
skiptamannatryggð.“
Bjartsýnn á hækkun eftir
viðræður við Kaupþing
Nýlega fékk Íslandsbanki hækk-
aða langtímaeinkunn sína upp í A1.
Hver er ástæða þess að Búnaðar-
bankinn fær lakari langtímaeinkunn
hjá Moody’s en Íslandsbanki fær?
„Við áttum jafnvel von á að fá hækk-
un á okkar langtímaeinkunn núna,
en okkur sýnist að þessar samruna-
viðræður við Kaupþing banka hf.
hafi gert það að verkum að Moody’s
hafi viljað doka við. Þegar ljóst verð-
ur hvað kemur út úr þeim viðræðum
verður matið tekið til endurskoðunar
og við erum bjartsýnir á að bankinn
eða sameinaður banki, muni fá
hækkun á sinni langtímaeinkunn.“
Moody’s endurskoðar lánshæfis-
einkunn banka árlega samkvæmt
samningi við bankana, auk þess sem
mat er endurskoðað þegar eitthvað
sérstakt gerist sem gefur tilefni til
endurskoðunar.
Skammtímaeinkunn
Búnaðarbankans hækkar
Langtímamat
lægra vegna sam-
einingarviðræðna
MOODY’S hefur hækkað lánshæfis-
matseinkunn Landsbankans til
skamms tíma úr Prime-2 í Prime-1
sem er hæsta mögulega lánshæfis-
matseinkunn sem völ er á til skamms
tíma. „Þessi breyting endurspeglar
m.a. mjög sterka lausafjárstöðu
Landsbankans, góðan aðgang að er-
lendu lánsfé í gegnum fjölbreyttar
fjármögnunarleiðir. Jafnframt end-
urspeglar þetta sterka stöðu bank-
ans á innlendum markaði,“ segir í til-
kynningu frá Landsbankanum.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að ein-
kunnin sé ánægjuleg tíðindi fyrir
bankann og hún komi á góðum tíma.
„Við erum að fara út í nýtt form á al-
þjóðlegri skuldabréfaútgáfu til
skamms tíma, ECP, og höfum verið
að skipuleggja það. Hærra mat á
skammtímaskuldbindingum kemur
til með að lækka okkar fjármögnun-
arkostnað og það kemur vonandi við-
skiptavinum okkar til góða einnig,“
sagði Halldór í samtali við Morgun-
blaðið.
Jákvæð viðhorf til
breytinganna á bankanum
Halldór segir að Landsbankinn sé
nýlega búinn að ganga frá láni til
lengri tíma og þar hafi verið um-
frameftirspurn eftir þátttöku og
kjörin hafi verið þau bestu sem
bankinn hafi fengið í langan tíma.
„Jákvæð viðhorf til breytinganna á
bankanum að undanförnu hafa aukið
áhuga erlendra banka á að vinna
með okkur. Það er jákvæð viðbót-
arstaðfesting á þeim umbreytingum
sem við höfum verið að vinna að í
bankanum.“
Moody’s staðfestir langtímaláns-
hæfismatseinkunnina A-3 og segir
horfur jákvæðar. Halldór segir að
helsta ástæða þess að ekki fáist
hærri langtímaeinkunn sé bæði að
aðstæður á erlendum mörkuðum
hafi verið erfiðar á síðustu misserum
auk þess sem breytingarnar sem
orðið hafa hjá Landsbanknaum valdi
því að matsfyrirtækið hinkri með að
gefa bankanum hærra langtímamat.
„Við teljum hinsvegar allar forsend-
ur fyrir því að það komi bráðlega að
hækkun á því mati líka.“
Landsbankinn
fær hærri einkunn
HLUTABRÉF í breska versl-
unarfyrirtækinu Selfridges hækk-
uðu um 22% í gær, í kjölfar hás
yfirtökutilboðs sem talið er að
skoski athafnamaðurinn Tom
Hunter standi að. Vangaveltur
hafa einnig verið um að Baugur
hafi með tilboðið að gera, en tals-
maður Baugs í Bretlandi segir svo
ekki vera. Baugur á 0,5% hlut í
Selfridges.
Selfridges staðfesti, í yfirlýsingu
eftir lokun markaða á miðviku-
daginn, að lagt hefði verið fram
tilboð sem væri umtalsvert hærra
en lokaverð bréfa í fyrirtækinu á
miðvikudaginn, 244,5 pens á hlut.
Lokaverðið í gær var 316 pens.
Sérfræðingar á fjármálamarkaði
í London spá því að þetta tilboð
geti verið upphaf baráttu um fyr-
irtækið. Þeir sem taldir eru hafa
áhuga á Selfridges eru Hunter,
Baugur og eignarhaldsfyrirtækið
British Land, sem áður átti hlut í
fyrirtækinu. Eins og komið hefur
fram í Morgunblaðinu hefur Hunt-
er farið mikinn að undanförnu;
gerði m.a. yfirtökutilboð í House
of Fraser með stuðningi Baugs, en
samanlagt eiga Baugur og Hunter
um 15% í því fyrirtæki. Talið er
mögulegt að Hunter vilji sameina
Selfridges og House of Fraser.
Reuters
Selfridges-verslanir má meðal ann-
ars finna á Oxford-stræti í London.
Baugur
ekki á bak
við tilboð í
Selfridges
PRENTSMIÐJAN Oddi hefur sam-
ið við verkfræðifyrirtækið AGR um
innleiðingu á innkaupakerfinu AGR
Innkaup. AGR Innkaup tengist Con-
corde viðskiptakerfi Odda og sækir
þangað söguleg gögn. Hugbúnaður-
inn framkvæmir söluspár og kemur
með innkaupatillögur sem lágmarka
birgðahaldskostnað og vöntun.
Markmið innleiðingarinnar er að
lækka birgðir, skapa vinnuhagræði
við innkaupaferlið og bæta þjónustu-
stig Odda.
Oddi og
AGR semja
LANDSPÍTALI – háskóla-
sjúkrahús hefur gert samning
við Nýherja um kaup á IBM
gagnavistunarkerfi og þjón-
ustu. Heildargagnarýmd kerf-
isins er til að byrja með 4 tera-
bæti og byggist lausnin á IBM
FAStT900 gagnageymslumiðl-
ara ásamt IBM Tivoli öryggis-
hugbúnaðarlausn.
Landspítal-
inn semur
við Nýherja