Morgunblaðið - 11.04.2003, Síða 23
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 23
FJÓRIR Akureyr-
ingar halda til Dan-
merkur í dag en
um helgina taka
þeir þátt, sem gest-
ir, í ópinberri
landskeppni Dana
og Svía í krullu
(curling). Hér-
lendis er þessi
íþróttagrein ein-
ungis stunduð á
Akureyri og er æft
í Skautahöllinni.
Tveir þeirra sem
halda utan, Gísli
Kristinsson og Jón
Hansen, eru ný-
krýndir Íslands-
meistarar í krullu
en keppni á mótinu
lauk í vikunni. Gísli
og Jón tilheyra liði
Víkinga en með
þeim til Danmerk-
ur fara tveir fé-
lagar úr Görp-
unum, þeir
Hallgrímur Vals-
son og Ágúst Hilm-
arsson og saman
mynda þeir lið um helgina.
Þeir félagar sögðu að lengi hefði
staðið til að halda í keppnisferð og
að nú væri langþráður draumur að
verða að veruleika. Ýmsir mögu-
leikar hefðu verið til skoðunar en
að þessi ferð til Danmerkur hefði
komið upp í hendurnar á þeim.
Keppendurnir frá Danmörku og
Svíþjóð eru áhugamenn eins og Ak-
ureyringarnir og þeir bíða spenntir
eftir því að sjá hvar þeir standa
gagnvart keppinautum sínum.
Keppnin fer fram í „alvöru curling-
höll“ eins og þeir félagar orðuðu
það, í Taarnby í útjaðri Kaup-
mannahafnar.
Krulla hefur verið stunduð á Ak-
ureyri til fjölda ára en eftir að
Skautahöllin reis fóru menn að æfa
íþróttina af alvöru. Þeir félagar
sögðu að töluverð ferðamennska
væri í tengslum við þessa íþrótt og
að helgarmót væru haldin víða um
heim. Sjálfir hafa þeir orðið varir
við áhuga fólks á að koma til Ak-
ureyrar og spila. Þó spili að-
stöðuleysi þar inn í, því ekki sé það
sama að spila í Skautahöll og sér-
hönnuðu húsi fyrir þessa íþrótta-
grein.
Gísli sagði að íþróttin væri á upp-
leið alls staðar í Evrópu. Tvívegis
hefur verið keppt í íþróttinni á
vetrarólympíuleikum og þá var hún
sýningargrein á leikunum í Lille-
hammer í Noregi. Ísland varð aðili
að alþjóðlega curling-sambandinu
árið 1993, þá sem 25. þjóð. Gísli
sagði að Ísland hefði átt stóran þátt
í að íþróttin komst inn á Ólympíu-
leikana, því til þess að eiga mögu-
leika á því á sínum tíma þurftu að
vera 25 þjóðir í alþjóðasambandinu.
Fimm lið frá Akureyri tóku þátt í
Íslandsmótinu að þessu sinni en
Gísli sagði að Reykvíkingar ætluðu
að hefja æfingar næsta haust og því
gæti liðunum átt eftir að fjölga í
kjölfarið.
Akureyringar keppa
í krullu í Danmörku
Ágúst Hilmarsson, Jón Hansen, Gísli Kristinsson og
Hallgrímur Valsson á æfingu í Skautahöllinni.
Morgunblaðið/Kristján
KEPPNI á Skíðamóti Íslands hófst
í Hlíðarfjalli í gær með sprettgöngu
og setning mótsins fór fram í Ket-
ilhúsinu í gærkvöld. Tæplega 100
keppendur eru skráðir til leiks, sem
er svipaður fjöldi keppenda og á
landsmótinu á Dalvík í fyrra. Mótið
er haldið við mjög erfiðar aðstæður
að þessu sinni, vegna snjóleysis og
hefur þegar þurft að gera smávægi-
legar breytingar á áður boðaðri dag-
skrá. Hermann Sigtryggsson, fyrr-
um íþróttafulltrúi á Akureyri og
leikstjóri göngukeppninnar, hefur
verið viðloðandi mótahald á Akur-
eyri frá árinu 1947 og hann sagðist á
blaðamannafundi í gær, aldrei hafa
upplifað jafnerfiðar aðstæður og nú.
Keppni í alpagreinum fer fram í
Strýtu og keppni í göngu ofan Stór-
hæðar. Keppni í stórsvigi kvenna
hefst kl. 10 í dag en keppni í karla-
flokki kl. 11.15. Keppni í göngu
hefst kl. 16 og verður gengið með
frjálsi aðferð í kvennaflokki, karla-
flokki og í flokki pilta 17–19 ára.
Mótshaldarar áskilja sér þó rétt til
breytinga vegna aðstæðna í fjallinu.
Ráðgert er að keppni í svigi kvenna
hefjist kl. 10 á morgun, laugardag
og í karlaflokki kl. 11. Keppni í
göngu með hefðbundinni aðferð
hefst einnig kl. 10 í fyrramálið. Á
sunnudag hefst keppni í stórsvigi
karla og kvenna kl. 10 og keppni í
boðgöngu karla og kvenna kl. 11.
Keppni í alpagreinum er jafnframt
liður í FIS-mótum og samhliða Ís-
landsmótinu verður keppt í göngu í
flokkum 35–49 og 50 ára eldri.
Eins og að vera með
hitablásara á snjóinn
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður skíðastaða í Hlíðarfjalli,
sagði að snjólaust væri neðan við
Strýtu en að hægt væri að skíða á
mjög afmörkuðu svæði þar fyrir of-
an. Hann sagði að á þriðjudag hefði
verið tæplega 15 stiga hiti í fjallinu,
12 stiga hiti á miðvikudag og um 10
stiga í gær. „Með tilheyrandi hvass-
viðri er þetta eins og vera með hita-
blásara á snjóinn,“ sagði Guðmund-
ur Karl. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
hefur þrátt fyrir allt verið opið í 43
daga í vetur en Guðmundur Karl
sagði að þar hefði nánast ekkert
snjóað frá því í byrjun febrúar.
Morgunblaðið/Kristján
Harpa Rut Heimisdóttir frá Dalvík verður í eldlínunni á Skíðamóti Íslands.
Hún sigraði í svigi á landsmótinu í Hlíðarfjalli fyrir tveimur árum en náði
ekki að verja titilinn á heimavelli á Dalvík í fyrra. Þar stal Dagný Linda Krist-
jánsdóttir frá Akureyri senunni og hún er einnig mætt til leiks að þessu sinni.
Skíðalandsmót haldið
við erfiðar aðstæður
Kristján Pétur Sigurðsson opnar
myndlistarsýningu á Café Karól-
ínu á morgun, laugardaginn 12.
apríl, kl. 15.30. Sýningin ber yf-
irskriftina: Tónfræði fyrir byrj-
endur og samanstendur af lág-
myndum unnum í tré og á striga
með blandaðri tækni. Þetta er
fjórða myndlistarsýning Kristjáns
Péturs á Karólínu og oftar en ekki
hefur viðfangsefnið haft eitthvað
með tónlist að gera enda Kristjáni
hugleikin. Örlítið húllumhæ verður
á slaginu 15.30 þar sem Kristján
Pétur mun flytja nokkur tóndæmi
af innlendum og erlendum toga og
svara spurningum um myndverkin.
Samfylkingin í Norðaust-
urkjördæmi boðar til umræðu-
fundar um íþrótta- og æskulýðs-
mál á kosningaskrifstofu flokksins,
Brekkugötu 1, á morgun, laug-
ardaginn 12. apríl, frá kl. 10–12.
Gestir fundarins eru Ellert B.
Schram, Kristján L. Möller alþing-
ismaður, Þorgerður Jóna Þorgils-
dóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í
áfengis- og vímuvarnanefnd Ak-
ureyrarbæjar, og Sigrún Stef-
ánsdóttir, fulltrúi Samfylking-
arinnar í íþrótta- og tómstunda-
ráði.
Tólf listamenn, félagar í Samlag-
inu, listhúsi Listagilinu Akureyri,
munu sýna á kaffihúsum víða um
land í sumar. Fyrsta sýningin
verður opnuð í kaffihúsinu Bláu
könnunni á Akureyri á morgun,
laugardaginn 12 apríl. Félagar í
Samlaginu eru allir búsettir á
Norðurlandi og vinna þau í leir,
tré, textíl og myndlist.
Stefán Tryggvason, bóndi er
gestur á laugardagsfundi hjá
Vinstrihreyfingunni – grænu fram-
boði á Akureyri á morgun, 12. apr-
íl. Stefán ræðir vítt og breitt um
stöðu íslensks landbúnaðar, mögu-
leika og framtíðarsýn. Fundurinn
hefst kl. 11 í kosningamiðstöðin í
Hafnarstræti 94.
Á MORGUN
Skákfélag Akureyrar heldur 15
mínútna mót í kvöld, föstu-
dagskvöldið 11. apríl, kl. 20. Að
venju er teflt í Íþróttahöllinni og
eru allir velkomnir.
Í DAG
Skákfélag Akureyrar heldur þrjú
mót nú um helgina og segja má að
þar verði eitthvað fyrir alla. Á föstu-
dagskvöld kl. 20 heldur félagið 15
mínútna mót og er það opið öllum.
Daginn eftir, á laugardag, heldur fé-
lagið svo Hraðskákmót Akureyrar í
yngri flokkum. Taflmennskan hefst
kl. 13.30 og er mótið opið öllum 15
ára og yngri. Helginni lýkur svo með
10 mínútna móti fyrir 45 ára og eldri
á sunnudagskvöldið kl. 20.
Að venju er teflt í Íþróttahöllinni.
Á NÆSTUNNI
DEILDARSTJÓRN Akureyr-
ardeildar Kaupfélags Eyfirð-
inga svf. tilkynnti á deildar-
fundi nýlega þá ákvörðun
stjórnarinnar að leggja þremur
félagasamtökum lið með fjár-
stuðningi.
Lionsklúbbnum Vitaðsgjafa í
Eyjafjarðarsveit, vegna gerðar
púttvallar við Kristnesspítala.
Foreldrafélagi langveikra
barna, vegna verkefna á fé-
lagssvæðinu og Stígamótum,
vegna opnunar þjónustu á Ak-
ureyri. Til ráðstöfunar voru 700
þúsund krónur, sem skiptast
jafnt á þessi félagasamtök.
Þetta kemur fram á heimasíðu
KEA.
Styrkir
til
félaga-
samtaka
www.islandia.is/~heilsuhorn
Yucca
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Bætir ristilstarfsemi
Minnkar eymsli í liðamótum
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889.
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Kynnum OROBLU vorvörurnar
í dag frá kl. 13-17 í Lyf og heilsu Austurveri,
á morgun frá kl. 12-16 í Lyf og heilsu Kringlu.
Glæsilegur kaupauki ef keypt er tvennt frá Oroblu.
Kaupauki einnig í Lyf og heilsu Hamraborg
og Fjarðarkaupum í dag.
Ný sending
Kápur Jakkar
Hörfatnaður Bolir
Jakkapeysur Buxur
Samkvæmisfatnaður
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050