Morgunblaðið - 11.04.2003, Side 25
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 25
FJÖLSKYLDUR frá 9 heimilum í
Hvítársíðuhreppi í Borgarfirði héldu
kynningarfund um nýjasta áhuga-
mál sitt, „Vistvernd í verki“, um síð-
ustu helgi og buðu til sín íbúum í ná-
grenninu. Fjölskyldurnar hafa
myndað visthópinn „Grænu síðuna“
sem starfað hefur frá því í janúar sl.
Verkefnið er alþjóðlegt umhverf-
isverkefni undir umsjá Landverndar
og hafa um 300 fjölskyldur á Íslandi
tekið þátt í því. Heimilin vinna sam-
an að því að verða meðvitaðri um
hvernig hægt er að gera umgengni
við umhverfi sitt vistvænni og nýta
náttúruauðlindir betur. Fjölskyld-
urnar unnu með stuðningi leiðbein-
enda og með hliðsjón af handbók þar
sem tekin eru fyrir viðfangsefnin
sorp, orka, samgöngur, innkaup og
vatn. Þetta er gert með einföldum og
átakalitlum breytingum sem þó
draga ekki úr lífsgæðum. Hópurinn
hittist reglulega til að bera saman
bækur sínar.
Grunnhugmyndin er sú að með
smáum skrefum sé hægt að koma
miklu áleiðis. Engin formúla er til að
fara eftir, en hver og einn endur-
skoðar sinn lífsstíl með hliðsjón af
uppástungum í handbókinni. Ávinn-
ingurinn fyrir heimilið verður þá
bæði sparnaður í vinnu og pening-
um, auk þess sem félagsleg ánægja
fæst með samvinnu. Fólk sagðist
vera almennt meðvitaðra um þessa
hluti eftir hópstarfið, en sú athuga-
semd kom þó að e.t.v. væru það þeir
meðvituðu sem frekar færu í svona
hópa. Hugmyndin felst jafnframt í
því að breiða boðskapinn út eins og
gert var á þessum lokafundi verkefn-
isins.
Athuga umbúðir og
orkunotkun
Fólk sagðist vera farið að taka
meira eftir óhóflegum matvöruum-
búðum í verslunum, átta sig á óþarfa
orkunotkun, takmarka notkun
þvottaefnis og jafnvel nota trefja-
klúta. Tvær fjölskyldur eru t.d. farn-
ar að sameinast um dagblöðin. Sum
heimilin eru með safnkassa fyrir líf-
rænan úrgang, en aðrir töldu það
ekki nauðsynlegt í dreifbýlinu, að
það gæti verið nóg að grafa holu.
Víða eru einnig dýr sem éta afganga.
Með því að flokka sorp og endurnýta
minnkar sorpflutningur talsvert sem
sést strax þegar fjölskyldurnar
mæla magnið. Sparnaður við breytt
aksturslag og samnýtingu ferða er
einnig mældur. Fram kom að fólk
hefði e.t.v. verið meðvitaðra um
þetta í dreifbýlinu vegna langra
vegalengda með ruslið.
Við innkaup eru umhverfismerki á
vörum höfð í huga og keyptar stærri
einingar og fjölnota fram yfir ein-
nota. Umgengni við vatnið er einnig
orðin að umhugsunarefni. Sums
staðar er of mikið af því en annars
staðar of lítið. Komið var inn á að
verja þyrfti vatnsbólin fyrir mengun,
en mávur og svartbakur eru farnir
að sjást í uppsveitum nú til dags.
Þessi stefna virðist einnig ná athygli
barnanna, þau yngri hafa t.d. gaman
af að flokka rusl í mislitar fötur.
Tillaga um þetta samstarf kom
fram á kvenfélagsfundi og var síðan
leitað til hreppsnefndar um stuðn-
ing. Í þessu litla sveitarfélagi telst
þetta vera yfir helmingur íbúanna
sem að öllum líkindum er heimsmet.
Í sveitarfélaginu er ekki Staðar-
dagskrárfulltrúi en Ólöf Guðmunds-
dóttir leiðbeindi þeim og kom hópn-
um af stað. Frá Landvernd kom
einnig á fundinn Þóra Bryndís Þór-
isdóttir. Tengiliður í sveitarfélaginu
er Kristín Þ. Halldórsdóttir í Fljóts-
tungu.
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Rögnvaldur og Hrefna Þorbjarnarbörn á bænum Háafelli hella kaffikorgi í safnkassa heimilisins.
„Græna síðan“ vist-
væn í Hvítársíðu
Reykholt
EGILL Freysteinsson bóndi í Vagn-
brekku er hér að gangsetja bát
sinn. Hann er að fara á netin. Með í
för eruhundar hans tveir. Þeir láta
sig ekki vanta í nokkra veiðiferð
segir Egill. Kalsamt var á vatninu
þennan dag en fjóra fiska fékk
hann í netin. Um þetta hafði Friðrik
á Grímsstöðum vísu:
Út á vatni er bóndi í brasi
baslar þar við mótorinn.
Yfir þessu argaþrasi
öllu vakir hundurinn
Báturinn fór á flot hjá Agli 20.
mars sem er einstakt. Venjulegra
væri, miðað við árstíma að sjá á eft-
ir bónda fara á vélsleða út á ís.
Morgunblaðið/BFH
Egill Freysteinsson, bóndi í Vagnbrekku, er hér að gangsetja bát sinn.
Lagt í veiðiför
FYRIR nokkrum dögum færði að-
fallið með sér hræ af smáhveli upp
í fjöruna á Hellnum. Var þar um
að ræða kvendýr sem var nokkuð
heillegt að sjá. Í miklum brimum
að vorlagi hefur slík smáhveli
stundum rekið á fjörur á Hellnum,
en þetta var það stærsta sem
fréttaritara rekur minni til að hafa
séð.
Ekki dagaði hræið þó uppi í
fjörunni og varð að mat fyrir
hrafna og máva, eins og áður hefur
gerst með smáhveli sem hafa rekið
hér á land. Í þetta sinn skolaði því
í burtu á næsta flóði, en í vestan-
og suðvestanáttinni undanfarið
hefur brimað mikið við Hellnar.
Smáhveli í Hellnafjöru
Hellnar
FÉLAGSHEIMILI Fljótsdælinga,
Végarður, hefur verið leigt til
Landsvirkjunar í sumar og einnig,
samkvæmt öðrum samningi til
næstu tíu ára.
Landsvirkjun hyggst í vor setja
upp fjölþætta sýningu í tengslum
við Kárahnjúkavirkjun, þar sem
líkön og teikningar skýra m.a.
virkjanaframkvæmdirnar.
Í haust mun Fljótsdalshreppur
standa fyrir endurbótum á Vé-
garði, sem byggður var árið 1954
og þarfnast orðið viðhalds.
Rífa á hluta hússins og byggja
við sal og efri hæð, þar sem skrif-
stofa sveitarfélagsins verður
framvegis til húsa. Lagður verður
ljósleiðari að húsinu og mun
Landsvirkjun koma upp fjar-
fundabúnaði sem nýttur verður til
samskipta á framkvæmdatíma
virkjunarinnar.
Landsvirkj-
un leigir Vé-
garð í tíu ár
Egilsstaðir
ⓦ
Hafið samband
við umboðsmann,
Pál Pétursson
í síma 471 1348
og 471 1350
Blaðbera vantar
á Egilsstöðum
Blaðbera vantar í nokkur
hverfi á Egilsstöðum og
í Fellabæ. Þurfa að geta
sinnt starfinu fyrir há-
degi og byrjað sem allra
fyrst.