Morgunblaðið - 11.04.2003, Síða 26
KOLBEINN Bjarnason flautuleik-
ari og Valgerður Andrésdóttir píanó-
leikari halda tónleika í Egilsstaða-
kirkju á laugar-
dag kl. 16, og eru
þeir hluti dag-
skrárinnar
„Menningardag-
ar að vori“. Þá
eru tónleikar á
Vopnafirði,
Miklagarði, kl. 17
á sunnudag og
mánudagskvöldið
í Dalvíkurkirkju
kl. 20. Kolbeinn
mun auk þess
halda námskeið
fyrir nemendur
tónlistarskóla
Dalvíkur.
Kolbeinn og
Valgerður hafa
starfað saman í
nokkur ár og m.a.
hljóðritað tónlist
Brian Ferney-
houghs fyrir Bridge-útgáfuna í New
York en á efnisskránni nú er tónlist
ýmissa meistara 19. og 20. aldar: Ro-
berts Schumann, Gabriels Fauré,
Kasuo Fukushima, Þorkels Sigur-
björnssonar og Sergej Prokofievs.
Kolbeinn og
Valgerður á
tónleikaferð
Valgerður
Andrésdóttir
Kolbeinn
Bjarnason
LISTIR
26 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LISTAKONAN Ingunn Jensdóttir
sýnir vatnslita- og silkimynir fram
til 21. apríl í Eden í Hveragerði.
Myndlistarsýningar Ingunnar í
Eden um páska má segja að sé fast-
ur liður í starfsemi gróður- og
ferðamannamiðstöðvarinnar enda
hefur listakonan sýnt verk sín þar
undanfarin tíu ár á þessum árstíma.
Öll verkin á sýningunni eru til sölu.
Eitt verka Ingunnar Jensdóttur í Eden.
Ingunn sýnir í Eden
um páskana
Garðar Jökulsson listmálari opnar
málverkasýningu í göngugötu
Smáralindar, en hann er þeirrar
skoðunar að færa beri listina til al-
mennings. Myndirnar eru stórar,
flestar málaðar á þessu og síðasta
ári og eru til sölu. Sýningin stendur
fram að páskum.
Ennfremur sýnir Garðar smærri
verk í í Gallery Formlist við Dalveg
2 í Kópavogi.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
ÁHEYRNARPRÓF fyrir óp-
eruna Krýning Poppeu, sem
Sumarópera Reykjavíkur set-
ur upp í samvinnu við Borg-
arleikhúsið, verður haldið í
Borgarleikhúsinu á morgun
og á sunnudag. Leitað er að
öllum röddum, bæði í aðalhlut-
verk, smærri hlutverk og kór.
Í óperunni eru 17 hlutverk.
Óperan verður sýnd í sumar
en hún fjallar um hinn sið-
spillta Rómarkeisara, Neró,
og tilraunir hans til að gera
ástkonu sína að keisaraynju,
en til þess þarf hann að koma
eiginkonu sinni frá. Verkið
einkennist af dramatík og
beittum húmor.
Velski stjórnandinn Ed-
ward Jones stjórnar hljóm-
sveitinni og leikstjóri er
Magnús Geir Þórðarson.
Framkvæmdastjóri Sumar-
óperunnar er Hrólfur Sæ-
mundsson og hægt er að skrá
sig í áheyrnarpróf hjá honum í
síma 897-1271.
Áheyrnar-
próf Sum-
aróperu
KAMMERSVEIT Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar efnir til hátíðartón-
leika í Hásölum kl. 20 í kvöld en til-
efnið er 10 ára afmæli hljómsveitar-
innar. Flutt verður m.a. verk eftir
Händel, einleikarar eru Hulda Haf-
steinsdóttir og Baldur Páll Magnús-
son; Trauermusik eftir Hindemith,
einleikari á víólu er Þórunn Harð-
ardóttir og Exsultate, jubilate eftir
Mozart, fyrir sópran og hljómsveit
og syngur Hildigunnur Rúnarsdóttir
þar með sveitinni. Stjórnandi er
Óliver Kentish.
Tíu ára afmælistónleikar
haldnir í Hafnarfirði
NILS-ASLAK Valkeapää er öll-
um minnisstæður sem kynntust hon-
um. Ég hlustaði á hann jojka, fyrst í
Færeyjum, og spjallaði við hann um
dag og veg. Hann var hugljúfur mað-
ur, góður vinur en líka
baráttumaður sem þó
fór sér hægt. Hann náði
undraverðum árangri á
alþjóðavettvangi sem
talsmaður Sama.
Valkeapää er nú lát-
inn. Hann varð ekki
gamall.
Einar Bragi sem þýtt
hefur Samaskáld svo að
heill bókaflokkur hefur
myndast hefur nú þýtt
bók eftir Valkeapää og
nefnir hana Víðernin í
brjósti mér. Bækur
Einars Braga með ljóð-
um Sama eru góð kynn-
ing og vekja áhuga. Þessi er að von-
um þeirra ekki síst.
Í formála um höfundinn segir Ein-
ar Bragi frá Valkeapää og áhuga-
málum hans og leggur ríka áherslu á
baráttu hans. Það gerir Einar Bragi
líka í ljóðunum, en segja má að þau
séu að stærstum hluta baráttuglöð
ljóð en líka er lögð rækt við hið ljóð-
ræna hjá skáldinu.
Það er líklega smekksatriði að
undirritaður kann best að meta hið
ljóðræna hjá Valkeapää, oft smálegt
en stendur fyrir sínu. Einari Braga
tekst vel að laða fram það athygl-
isverðasta í þessum ljóðum:
Smástund leita ég skjóls hjá þér
smástund opna ég hjarta mitt
hjúfra mig í hlýjum faðmi hugsana þinna
smástund
veittu mér öryggi
breiddu út vængina
Friður sé með þér nefnist þetta
ljóð. Í næsta ljóði er ort um mark-
verðustu viðburði mannsævinnar
sem eru dauði og fæðing. Í framhald-
inu verður Valkeapää kaldhæðinn
sem er óvanalegt hjá honum.
Lengri ljóðin aftar í bókinni eru
sum mælsk og fara ekki alltaf skáld-
inu vel. Hann á það jafnvel á hættu
að gera úr þeim blaðagreinar, góðar
sem slíkar.
Til dæmis ljóðið sem byrjar á eft-
irfarandi orðum: „En hvað þá um
mig / ég er einfaldur maður / elska
frið og gleði / En segi ég sem svo / að
sælla sé að drekka vínið / en skvetta
því á steina / að fórnarsteinninn sé
betra altari / seiðtrumban hreinni
kirkjuklukka / hvað gerist þá“
Syndin að jojka (þessi skemmti-
lega kveðandi eða söngur) var einu
sinni vítaverð eins og Valkeapää
bendir á, en þetta verður honum eig-
inlega of tíðrætt um enda margir
hrifnir af jojkinu (svo framarlega
sem það dregst ekki
um of á langinn eins og
rappið að dómi undir-
ritaðs).
Á bls. 73 og víðar
verður höfundurinn
svo mælskur eða mikið
niðri fyrir að ljóðrænir
kostir eru vandfundnir.
Þetta er til ama og
hefði átt að hyggja bet-
ur að.
Það var ekki til
einskis að Valkeapää
hlaut Bókmmennta-
verðlaun Norðurlanda-
ráðs en það var fyrir
bók þar sem ljóð hans,
myndir eftir hann, ljósmyndir og
teikningar nutu sín vel. Faðir minn,
sólin nefnist bókin og verðlaunin
fékk hann fyrir hana 1991 en hafði þá
áður verið tilnefndur til verðlauna.
Það er fengur í því að eiga þessi
ljóð Samaskáldsins í góðri og vand-
aðri þýðingu.
Mál Einars Braga er á köflum
vandað sveitamál eins og það gerist
best á Íslandi. Það angrar að
minnsta kosti ekki mig.
Smástund
í skjóli
BÆKUR
Ljóðaþýðingar
eftir Nils-Aslak Valkeapää. Einar Bragi
þýddi. Steinholt prentaði. Ljóðbylgja
Reykjavík 23.3. 2003 – 80 síður.
VÍÐERNIN Í BRJÓSTI MÉR
Nils-Aslak Valkeapää
Jóhann Hjálmarsson
Barnahjálmar
Mikið úrval af barnahjálmum,
mismunandi myndir og litir.
Auðvelt að stilla höfuðstærð.
CE merktir. Verð frá kr. 2.400
GIANT 20" fjallahjól
Vönduð hjól fyrir 6-7 ára
á frábæru verði. 5 gíra með
V-bremsum.
Verð kr. 18.900, stgr. 17.955
Með dempara
kr. 21.900, stgr. 20.805
Tveir demparar
kr. 24.900, stgr. 23.655
GIANT barnahjól
Vönduð barnahjól frá þessum
þekkta framleiðanda
með hjálpardekkjum og fótbremsu.
CE öryggisstaðal.
12,5 “ svart kr. 12.500
16” svart eða bleikt kr. 13.900
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
04
. 2
00
3
Hjólin eru afhent tilbúin til
notkunar. Árs ábyrgð og frí
upphersla eftir einn mánuð
Vandið valið og verslið
í sérverslun.
5% staðgreiðslu afsláttur. Kreditkortasamningar,
upplýsingar veittar í versluninni
Moto Cross fjallahjól
12,5” kr. 12.900
14” kr. 13.900
16” kr. 14.900 TRANSPORTERverð kr. 6.100
ITALTRIKE þríhjól
Vönduð og endingar-
góð, létt og sterk.
CE öryggisstaðall.
LUCY,
blátt, rautt eða bleikt,
verð frá kr.5.200
VIVI barnahjól
Fyrir 3 - 6 ára. Létt, sterk
og meðfærileg barnahjól
með hjálpardekkjum
og fótbremsu.
CE öryggisstaðal.
Sunny Girl 12,5” kr. 11.400
Pretty Girl 14” kr. 12.900
Flutt verður
nýtt tónverk eftir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson,
auk þess blönduð efnisskrá með
þjóðlögum, napólítönskum
söngvum og klezmer-tónlist.
Einsöngvari:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran.
Einleikari á fiðlu:
Sigrún Eðvaldsdóttir.
Miðaverð kr. 2.000
Rússíbanar og
kammerkórinn
Vox academica
undir stjórn Hákonar Leifssonar
á tónleikum í Salnum í Kópavogi
sunnudaginn 13. apríl kl. 20:00