Morgunblaðið - 11.04.2003, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 45
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, opnaði
nýja heimasíðu Byggðastofnunar á
Sauðárkróki nýlega. Með nýrri
heimasíðu er ætlunin að bæta upp-
lýsingaflæði um starfsemi stofnun-
arinnar og þau verkefni sem hún
vinnur að. Á síðunni er að finna
eyðublöð vegna lána og styrkja,
reiknilíkan fyrir lán sem veitt eru hjá
Byggðastofnun og einnig er ætlunin
að á síðunni byggist upp rafrænn
upplýsingabanki með skýrslum og
öðrum gögnum sem snerta byggða-
mál og byggðaþróun á Íslandi.
Á síðu Byggðastofnunar er gerð
grein fyrir verkefnum stofnunarinn-
ar og verða birtar fréttir af fram-
gangi þeirra þannig að í raun má
segja að almenningur geti á komandi
árum fylgst á beinan hátt með fram-
vindu einstakra verkefna byggða-
áætlunar. Þetta er nýmæli frá því
sem verið hefur.
Vefslóð nýrrar heimasíðu Byggða-
stofnunar er http://byggdastofnun.is
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ásamt Aðalsteini
Þorsteinssyni, forstjóra Byggðastofnunar.
Ný heimasíða opnuð
hjá Byggðastofnun
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Tilboð
Uppgræðslusamtökin Gróður fyrir fólk í Land-
námi Ingólfs (GFF) vilja ráða verktaka til að sjá
um dreifingu á allt að 2.000 m³ af hrossataði
á Bolaöldu og Sandskeiði, við rætur Vífilsfells.
Verkið þarf að vinna á tímabilinu 19. maí til
27. júní 2003.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu samtak-
anna Laugavegi 13, 101 Reykjavík, og í síma
511 1930 eða 861 9639. Tölvupóstur gff@gff.is
Kópavogsbúar
Fundur með frambjóðendum í kosninga-
miðstöðinni á Dalvegi 18, Kópavogi
Fundur með
frambjóðendum
Sjálfstæðis-
flokksins í Suð-
vesturkjördæmi
verður haldinn á
morgun, laugar-
daginn 12. apríl,
kl. 10.30 í kosningamiðstöðinni á Dalvegi 18.
Framsöguerindi flytja Gunnar I. Birgisson og
Sigurrós Þorgrímsdóttir.
Fundurinn er öllum opinn.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 1834118½ Bi.
I.O.O.F. 1 1834118 Dd.
Verslun Bláa Geislans:
Spjallþræðir á www.geislinn.is/
spjall um andleg og dulræn mál-
efni. Opið föstudaga frá kl. 13-19
og eftir pöntun. Sími 552 4433.
Í kvöld kl. 20.00
Bæn og lofgjörð í umsjón
Elsabetar og Miriam.
Allir hjartanlega velkomnir.
Í kvöld kl. 21 heldur Magnús
Skúlason erindi, „Hugleiðingar
um fordóma“, í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Evu S. Einars-
dóttur: „Koma mansins á svið
jarðar“ Í þriðju víddina.
Á sunnudögum kl. 17-18 er hug-
leiðingarstund með leiðbeining-
um fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30-18.30
er bókaþjónustan opin með
miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
SPRENGJUDEILD Landhelgis-
gæslunnar var kölluð út vegna tor-
kennilegs hlutar í fjörunni vestan við
Skjálfandafljótsós í síðustu viku.
Hluturinn reyndist vera 1200 kg
þungt hlustunardufl frá gömlu Sov-
étríkjunum, ríflega 3 metra langt og
76 cm í þvermál. Er það hluti úr
keðju slíkra dufla sem notuð voru af
Rússum til að nema hljóð frá kafbát-
um og skipum sem nálguðust strend-
ur þeirra á kaldastríðsárunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni hefur duflið trú-
lega slitnað frá festingum sínum og
verið á reki mánuðum saman. Það
var ekki talið hættulegt að öðru leyti
en því að það getur skapað siglinga-
hættu fyrir minni skip og báta.
Fjölda slíkra dufla hefur áður rek-
ið á fjörur hér við land og þar á meðal
á svipuðum slóðum t.d. á Tjörnesi
fyrir tveimur árum. Á síðustu 30 ár-
um hefur slík dufl rekið á fjörur um
allt land.
Gæslan segir að varast beri að
snerta eða koma nálægt torkennileg-
um hlutum og nauðsynlegt er að til-
kynna Landhelgisgæslunni eða lög-
reglu strax ef þau finnast og gefa eins
greinargóðar upplýsingar um stað-
setningu og útlit þeirra og unnt er.
Hlustunardufl frá
gömlu Sovétríkjun-
um rak að landi
SAMBAND dýraverndunarfélaga Ís-
lands hefur sent Heilbrigðiseftirliti
Norðurlands bréf þar sem lýst er
furðu á aðförum heilbrigðiseftirlitsins
á Akureyri.
Tilefni athugasemdanna er frétt í
Morgunblaðinu 9. apríl sl. um að
„vargfuglar“ valdi ónæði á lóð einni
við Goðabyggð á Akureyri. Í fréttinni
segir að húseigandinn þar hafi borið
æti fyrir fugla á húsalóð sinni og að
íbúar í nágrenninu hafi orðið fyrir
miklu ónæði, og þá ekki síst á nótt-
unni, þar sem bæði hrafnar og mávar
hafi sótt í ætið og einnig smáfuglar.
Síðan segir að Heilbrigðiseftirlitið
hafi rætt við húseigandann og hann
lofað úrbótum en minna hefði verið
um efndir. Heilbrigðiseftirlitið hefði
því sent bréf þar sem farið var fram á
hreinsun lóðarinnar en að öðrum
kosti yrði farið í einhverjar „aðgerð-
ir“.
„Hvergi í íslenskri löggjöf er bann-
að að gefa fuglunum að borða, þvert á
móti er það lagaskylda allra lands-
manna að sjá til þess að dýrin svelti
ekki. Þaðan af síður eru til nokkur
viðurlög við því að gefa fuglunum eða
lagaheimild til að fara í einhverjar
„aðgerðir“ þess vegna og verður því
að telja að slíkar hótanir af hendi heil-
brigðiseftirlits Norðurlands eystra á
Akureyri séu óheimilar með öllu og
settar fram í þeim tilgangi einum að
hræða fugla- og dýravini frá því að
gera skyldu sína og gefa dýrunum
æti,“ segir í bréfi sambandsins.
Samband dýraverndunarfélaga
Mótmæla afskiptum
Heilbrigðiseftirlitsins
SONGKRAN-há-
tíð Taílensk-ís-
lenska félagsins
verður haldin á
Broadway, Hótel
Íslandi, í dag,
föstudaginn 11.
apríl, og hefst kl.
19. Boðið er uppá
fimm rétta taí-
lenska máltíð og skemmtiatriði frá
Taílandi þar sem taílenskur dans og
söngur verður í fyrirrúmi. Meðal vinn-
inga í happdrætti er m.a. ferð fyrir tvo
til áfangastaðar Flugleiða að eigin vali
í Evrópu og ferð fyrir tvo til London
eða Kaupmannahafnar með Iceland
Express. Verð á miða er kr. 2.500.
Upplýsingar í miðasölu Broadway.
Songkran-
hátíð á
Broadway