Morgunblaðið - 11.04.2003, Side 49
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 49
FÖSTUDAGSKVÖLDIN 11. og 18.
apríl klukkan 20.30 verður frið-
arsamvera í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Þema þessara samverustunda
er „Friður á jörðu“.
Hver samvera hefur undirþema
og þema fyrir hinn 11. apríl er
„Friður við náttúruna og friður á
milli þjóða“.
Samveran í kvöld hefst kl. 20.30
en tónlistarflutningur hefst kl.
20.00. Eftirtaldir tónlistarmenn
taka þátt í samverunni:
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú),
Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Jónas Þórir, organisti og píanisti,
og Matthías Nardeau óbóleikari
ásamt níu manna kór.
Flutt verður dagskrá í bundnu
og töluðu máli:
Njörður P. Njarðvík, prófessor,
Vilborg Dagbjartsdóttir, rithöf-
undur, Grétar Þorsteinsson, for-
seti ASÍ, Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB, og Hjörtur Magni
Jóhannsson fríkirkjuprestur.
Kveikt verður á reykelsum og
friðarkertum og bænir fluttar.
ASÍ og BSRB standa að frið-
arsamverunni ásamt Fríkirkjunni
í Reykjavík.
Á föstudaginn langa, hinn 18.
apríl, er undirþemað „Friður við
náungann og friður við Guð“.
Sálfræði og
fyrirgefning
EFNI laugardagsfræðslu Íslensku
Kristskirkjunnar á morgun verður
„Ferli fyrirgefningar í ljósi sál-
fræðinnar“. Kennsluna annast
Marteinn Steinar Jónsson, en hann
er klíniskur sálfræðingur, með
sérmenntun á sviði vinnustaða- og
fyrirtækjasálfræði. Kennslan fer
fram í húsnæði safnaðarins, Bílds-
höfða 10. Fyrirlesturinn hefst kl.
10 f.h. og stendur í u.þ.b. eina
klukkustund, eftir það er kaffihlé
og síðan fyrirspurnir leyfðar.
Fræðslustundinni lýkur kl. 12 á
hádegi.
Allir velkomnir.
Tónlist í þágu
friðar í Neskirkju
Í DAG, föstudaginn 11. apríl, verð-
ur flutt Aría fyrir sópran og þver-
flautu eftir G.F. Händel og verk
eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir
þverflautu. Tónlistina flytja: Sig-
ríður Ósk Kristjánsdóttir, sópran,
Emilía Rós Sigfúsdóttir og Pamela
Di Sensi, þverflauta og Stein-
grímur Þórhallsson, orgel. Prest-
ar safnaðarins skiptast á um að
leiða stundirnar.
Friðarstundir verða haldnar í
hádeginu á þriðjudögum og föstu-
dögum í Neskirkju um óákveðinn
tíma. Klukkan 12.15 er flutt tónlist
en kirkjan er opin í hádeginu og
getur fólk notið kyrrðar í kirkj-
unni, tendrað bænaljós og beðist
fyrir.
Friðarsamvera
í Fríkirkjunni
í Reykjavík
Morgunblaðið/JúlíusFríkirkjan í Reykjavík.
Hallgrímskirkja. Lestur Passíusálma kl.
12.15. Eldriborgarastarf í dag kl. 13.
Leikfimi, æfingar við allra hæfi, undir
stjórn Jóhönnu Sigríðar. Súpa, kaffi og
spjall. Allir velkomnir.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í
anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun
fyrir börn. Gönguhópurinn Sólarmegin.
Lagt af stað frá kirkjunni kl. 10.30. Allir
velkomnir. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Seltjarnarneskirkja. Friðarstund kl. 12–
12.30. Hljóð bænastund.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgnar kl.
10–12. Fræðsla um páskahátíðina. Sr.
Gísli Jónasson lítur við.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10 ára
drengi á laugardögum kl. 11. Starf fyrir
11–12 ára drengi á laugardögum kl.
12.30.
Grafarvogskirkja. Á leiðinni heim. Þekktir
leikarar og skáld lesa Passíusálmana kl.
18.15–18.30.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 LLL –
KFUM&K í safnaðarheimilinu, Uppsölum
3.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla
alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Fríkirkjan Kefas. Í dag er 11–13 ára starf
kl. 19.30. Allir 11–13 ára eru hjartanlega
velkomnir.
Akureyrarkirkja. Æfing kl. 16 hjá þeim
börnum sem fermast eiga á pálmasunnu-
dag.
Hvítasunnukirkjann á Akureyri. Unglinga-
samkoma kl. 21.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Flóamark-
aður frá kl. 10–18 í dag.
Kirkja sjöunda dags aðventista.
Samkomur laugardag:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19. Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði.
Biblíufræðsla/guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason. Biblíu-
rannsókn og bænastund á fimmtudögum
kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut
2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Einar
Valgeir Arason. Biblíurannsókn og bæna-
stund á föstudögum kl. 20.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Brynjar
Ólafsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Biblíufræðsla kl. 10.30.
Ræðumaður Guðný Kristjánsdóttir.
Safnaðarstarf
ÞAKKA þér skelegga grein í
Morgunblaðinu fimmtudaginn 3.
apríl. Það er augljóst að þú ert
vonsvikin og líður illa, ég er líka
sammála þér um fyrrihluta grein-
arinnar í stórum dráttum. En ég
verða að segja að seinni hlutinn um
sægreifana og hlut þeirra í velmeg-
un fólks er ekki alveg réttur, það
er að segja frá mínum bæjardyrum
séð. Spurðu fólkið í hinum fyrrver-
andi velsældarstöðum úti á landi,
sem höfðu allt sitt undir sjávar-
fangi.
Á Ísafirði voru tvö mjög stór og
öflug fiskverkunarhús. Norður-
tanginn og Íshúsfélagið. Nú er þar
ekkert, húsin standa auð, sumir
voru heppnir og fengu vinnu í
næsta þorpi, en sumir eru farnir.
Þeir höfðu um ekkert að velja, og
þurftu að selja húsin sín verðlítil
því enginn vildi kaupa, en það er
ekki bara fólkið í frystihúsunum
sem missti lífsviðurværið, heldur
fækkaði þjónustufyrirtækjum sem
unnu fyrir þessar verksmiðjur. Það
hefur komið fram að á Ísafirði hef-
ur landaður afli minnkað um 40%
bara síðan 1998, þegar þeir kvóta-
settu smábátana líka.
Geturðu ímyndað þér áhrifin á
fólkið sem hér býr, sem hafði fyrir
tíma gjafakvótans átt allt sitt undir
fiskinum í sjónum. Nú eiga nokkrir
menn allan kvótann, og verja hann
með oddi og egg. Þar komast engir
nýir aðilar inn, engir ungir dugandi
menn sem myndu að öðru leyti
skapa vinnu fyrir fólkið í landi, ef
þeir ætla að róa þurfa þeir að byrja
á því að leigja kvóta okurverði af
mönnum sem aldrei fara á sjó.
Þetta er argasta lénsherraveldi, og
hagræðingin, útgerð á Íslandi er í
bullandi tapi. Menn taka stórar
fjárhæðir út úr sjávarútveginum
og setja í eitthvað annað; kaup-
hallir í Reykjavík, einbýlishús á
Miami og bankareikninga á Jóm-
frúreyjum.
Fiskurinn á að vera eins og allar
okkar auðlindir sameign þjóðarinn-
ar. Það er ekkert „kommúnistiskt“
við það í þeirri meiningu sem þú
setur við það orð. Það á að vera
réttur allra þeirra sem vilja að
nýta sér auðlindirnar sjálfum sér
og öðrum til heilla. Mig langar til
að biðja þig þegar þér rennur reið-
in, að fara inn á www.xf.is og
kynna þér sjávarútvegsstefnu okk-
ar, reyndar kynna þér öll okkar
góðu málefni. Ég er viss um að þú
munt finna einhvern samhljóm með
Frjálslynda flokknum. Og veistu að
þú ert bara velkomin til okkar.
ÁSTHILDUR CESIL
ÞÓRÐARDÓTTIR,
Seljalandsvegi 100,
Ísafirði.
Svar til
Signýjar
Sigurðar-
dóttur
Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur
KIRKJUSTARF
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Verkstæði
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Áratuga reynsla tryggir gæðin
Allar viðgerðir á fjarskiptabúnaði
Setjum öll tæki í bílinn þinn
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
Sig
ur
ðu
rH
ar
ða
rso
n,
ra
fe
in
da
vir
ki
fást í flestum apótekum
t.d. í Lyfju, Lyf og heilsu,
og í Iljaskinn Háaleitis-
braut.
Fyrir
ferðalagið
Gilofa
2000
Upplagðir fyrir flugið
Fyrstaflokks ferðatilboð!
www.nordur.is
PÁSKAR FYRIR NORÐAN!
Útivist! Skíði Sundlaugarfjör! Huggulegheit! Rómantík!Vélsleðaferðir!
ógleymanlegt!
Ármúla 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins minnir á aðalfund
sjóðsins í dag, föstudaginn 11. apríl, að Nordica
Hótel (áður Hótel Esju), Suðurlandsbraut 2,
Reykjavík. Fundurinn hefst kl 17.15.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Kynning ársreiknings
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins
5. Kosning stjórnar og varamanna
6. Breytingartillögur á samþykktum sjóðsins
7. Laun stjórnarmanna
8. Kjör endurskoðanda
9. Önnur mál
Sjóðfélagar og rétthafar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Aðalfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
– fyrir þína hönd
A
B
X
9
0
3
0
2
9
2
Breiðholt
Kosningaskrifstofa sjálfstæðismanna í Breiðholti
verður opnuð í dag, föstudaginn 11. apríl, kl. 19.30.
Skrifstofan er til húsa í Álfabakka 14a.
Söngur, harmonikuleikur, ávarp,
veitingar, glens og gaman.
Allir velkomnir. Stjórnin