Morgunblaðið - 15.04.2003, Síða 1
Stríð í Írak: Öll meiriháttar hernaðarátök sögð
að baki Fundu „ástarhreiður“ Saddams 14/17
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
DAVÍÐ Oddsson, forsætis-
ráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að
hægt verði að auka þorskafl-
ann á Íslandsmiðum um 30
þúsund tonn við næstu
kvótaákvörðun í vor og að út-
flutningstekjur muni aukast
um sjö til átta milljarða
króna vegna þessa. Þetta
kom fram í máli hans á fundi
í Sjallanum á Akureyri í gær-
kvöldi, þar sem þeir Geir H.
Haarde fjármálaráðherra
hófu fundaferð um landið.
Davíð sagði að við síðustu
spá hefðu menn gert því skóna að við næstu
kvótaákvörðun, nú í vor, yrði hægt að auka þorsk-
aflann um 30 þúsund tonn. „Nú er í mínum huga
algjörlega augljóst, eftir togararall og aðrar mæl-
ingar, að þessi spá mun standast og það verður
hægt, með ákvörðun í vor sem tekur gildi í haust,
að auka þorskaflann um 30 þúsund tonn. Það er
mjög þýðingarmikið að það takist.“
Davíð sagði að þessi aukning myndi þýða að
aflaverðmæti upp úr sjó ykist um 3–4 milljarða.
„Það mun þýða auknar útflutningstekjur um 7–8
milljarða,“ sagði hann. Forsætisráðherra sagði
þetta myndu þýða hagvaxtaraukningu um hálft
prósent á heilu ári „og það mun bæta hag mjög
margra byggða allt í kringum landið“, sagði Davíð.
Fyrningarleiðin rothögg á landsbyggðina
Forsætisráðherra ræddi á fundinum um fyrn-
ingarleiðina, sem svo er kölluð. „Mér skilst að
sumir séu ginnkeyptir fyrir þeirri hugmynd, jafn-
vel úti á landi, en ég tel þá hugmynd vera rothögg
á landsbyggðina,“ sagði Davíð. „Ég tel það myndi
ekki gerast þegar allur kvótinn yrði fyrndur held-
ur strax við fyrsta hanagal í þeim efnum. Um leið
og fyrstu 10% yrðu fyrnd myndi veðhæfni sjáv-
arútvegsins hrynja og allt skipulag fara úr skorð-
um.“
Hann sagði að í fyrstu hefðu sér fundist þessar
tillögur svo fjarstæðukenndar að þeim yrði ekki
fylgt fram og kvaðst telja þær verstu tillögur sem
fram hefðu komið gagnvart byggðunum í landinu.
„Það virðist einhvern veginn hafa komist inn sú
hugmynd í sumum byggðarlögum að fyrning um
10% á ári myndi gefa litlum byggðarlögum færi.
Það er auðvitað alveg fráleitt að ímynda sér að það
mundi koma þeim til góða þegar samkeppnin um
hinar fyrndu aflaheimildir færi af stað. Þá yrðu
það auðvitað þeir sem mest fjármagnið hefðu sem
færu með sigur af hólmi,“ sagði Davíð.
Þorskkvótinn aukinn
um 30.000 tonn í haust
Akureyri. Morgunblaðið.
Forsætisráðherra segir
útflutningstekjur vaxa
um 7–8 milljarða
Öll skilyrði/2
AHMAD Chalabi, leiðtogi
Íraska þjóðarráðsins, sem tal-
inn hafði verið líklegur til að
verða næsti leiðtogi landsins,
lýsti yfir því í viðtali í gær að
hann hygðist ekki gefa kost á
sér til pólitískra starfa.
Í viðtali við dagblaðið Le
Monde kvaðst hann vilja taka
þátt í uppbyggingu borgaralegs
samfélags í Írak en hann myndi
ekki sækjast eftir pólitísku
embætti. Deilt hafði verið um
það innan bandaríska stjórn-
kerfisins hvort Chalabi teldist
heppilegur framtíðarleiðtogi.
Fulltrúar hinna ýmsu hópa
innan Íraks munu í dag koma
saman til fundar í borginni Ur
við Íraka, sem verið hafa í út-
legð frá landinu árum saman, til
að ræða framtíð landsins.
Chalabi
skerst
úr leik
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að til
greina kæmi að beita Sýrlendinga
pólitískum og efnahagslegum refsi-
aðgerðum. Spenna í samskiptum
ríkjanna hefur aukist snögglega í
kjölfar þess að Bandaríkjamenn sök-
uðu sýrlensk stjórnvöld um að ráða
yfir gereyðingarvopnum og að hafa
heimilað háttsettum Írökum á flótta
að fara um landið.
CNN-sjónvarpsstöðin kvaðst í
gærkvöldi hafa heimildir fyrir því að
„fjölskyldumeðlimir fyrrverandi
ráðamanna í Írak og leiðtogar
Baath-flokksins“ reyndu nú að flýja
yfir landamærin til Sýrlands og
hugsanlega þaðan til Líbýu. CNN
hafði einnig eftir heimildarmönnum í
Sýrlandi að ekki væri vitað til þess
að fyrrverandi ráðamenn í Írak
hefðu leitað hælis þar.
Ari Fleischer, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, jók í gær þrýstinginn á
Sýrlendinga en Bandaríkjamenn
hafa á umliðnum dögum sagt að
stjórnvöld þar ráði yfir gereyðing-
arvopnum, hafi aðstoðað Íraka á
flótta og styðji hryðjuverkamenn.
„Þeir skjóta skjólshúsi yfir hryðju-
verkamenn. Sýrland er hryðjuverka-
ríki,“ sagði Fleischer. ´
Sýrland er á lista bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins yfir ríki sem
sögð eru „styðja hryðjuverkamenn“.
Stjórnvöld í Sýrlandi hafa ítrekað
lýst yfir því að ásakanir Bandaríkja-
manna eigi ekki við rök að styðjast.
Írakar á flótta hafi ekki fengið að
fara um sýrlenskt land og ríkið ráði
ekki yfir gereyðingarvopnum. Ísrael
sé eina ríkið í þessum heimshluta
sem eigi slík vopn.
Þessu andmælti Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, í gær. Sagði hann efna-
vopnatilraunir hafa farið fram í
Sýrlandi á síðustu 12 til 15 mánuð-
um. Vopnaðir menn hefðu farið frá
Sýrlandi til að taka þátt í bardögum í
Írak og Írakar á flótta hefðu farið
um Sýrland. Sumir væru þar enn,
aðrir hefðu haldið þaðan til annarra
landa.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, upplýsti í gær að hann
hefði rætt við Bashar al-Assad Sýr-
landsforseta um liðna helgi. Forset-
inn hefði heitið því að háttsettir
Írakar á flótta undan Bretum og
Bandaríkjamönnum yrðu stöðvaðir á
landamærum Sýrlands og Íraks.
Talsmaður Bandaríkjaforseta
hvatti hinn „unga og óreynda leið-
toga landsins“ til að horfast í augu
við breytt ástand mála. Vísaði
Fleischer þar til Assads forseta, sem
er rúmlega þrítugur.
AP
Sýrlending-
um hótað
refsingum
Fjölskyldur fyrrv. ráðamanna í Írak
sagðar reyna að komast til Sýrlands
ÍRASKIR lögreglumenn og banda-
rískir landgönguliðar hófu í gær að
fara sameiginlegar eftirlitsferðir
um Bagdad. Reiði og ótti hefur
gripið um sig vegna ástandsins í
borginni og Bandaríkjamenn hafa
verið undir miklum þrýstingi um að
koma á lögum og reglu eftir rán og
gripdeildir undanfarinna daga.
Tókst þó ekki að koma í veg fyrir
bankarán í miðborg Bagdad síð-
degis í gær.
Um 2000 íraskir lögreglumenn
hafa gefið sig fram til að taka þátt í
löggæslu, en alls voru 40 þúsund
manns í lögregluliði höfuðborg-
arinnar. Margir lögregluþjónar
gengu hins vegar vasklegar fram í
gær í að eyðileggja styttur af Sadd-
am Hussein en vernda borgarana. Í
gærmorgun voru 200 lögreglu-
þjónar mættir til vinnu í lögreglu-
skóla borgarinnar. Ekki var ljóst
hvort írösku lögregluþjónarnir
myndu fá að bera vopn. Ætlunin er
að kanna bakgrunn yfirmanna, sem
hærra eru settir.
Á efri myndinni sjást bandarískir
hermenn handtaka hóp manna á
götu í Bagdad í gær. Mönnunum
var gefið að sök að hafa geymt
vopn í farartæki sínu og ætlað að
sitja fyrir bandarískum hermönn-
um. Því var haldið fram að menn-
irnir væru arabískir vígamenn frá
grannríkjum Íraks.
Til hliðar sést hópur Íraka, sem
kom saman til að hrópa slagorð
gegn Bandaríkjamönnum. Fyrir
aftan þá er verið að steypa af stalli
styttu af Saddam Hussein með
krana.
Öryggi aukið í Bagdad
AP
Washington. Lundúnum. AFP.