Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Áttuð þér nokkuð von á óvinveittri kveðju frá bin Laden, hershöfðingi?
Stefnumót við frambjóðendur
Stefnir allt í
góða mætingu
UpplýsingamiðstöðHins hússins ogJC á Íslandi
standa fyrir stefnumóti
ungs fólks við frambjóð-
endur stjórnmálaflokk-
anna í tilefni þingkosninga
á næstunni. Stefnumótið
verður á Loftinu í Hinu
húsinu í dag og hefst
klukkan 15. Áætlað er að
það standi yfir í þrjár
klukkustundir. Sigfús Þór
Sigmundsson er starfs-
maður Upplýsingamið-
stöðvar og Vinnumiðlunar
Hins hússins.
– Að hvers frumkvæði er
stefnumótið?
„Okkur í Hinu húsinu
langaði til að gefa okkar
markhóp, 16 til 25 ára,
tækifæri til þess að hitta
frambjóðendur sína, hlýða á mál-
flutning þeirra og koma sínum
hjartans málum á framfæri við þá.
Við vissum að JC á Íslandi hafði
verið með slíkan fund fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar sem
lukkaðist afar vel. Þau hjá JC hafa
mikla reynslu í slíku fundarhaldi
og því lá beinast við að leita til
þeirra. Þau tóku mjög vel í þessa
hugmynd og það er búið að vera
sérstaklega ánægjulegt að vinna
með þeim í undirbúningnum. Ég
er sannfærður um að þessi sam-
vinna gagnist báðum aðilum mjög
vel.“
– Liggur fyrir hvaða frambjóð-
endur mæta til stefnumótsins?
„Við gáfum flokkunum nokkuð
frjálsar hendur varðandi hvaða
frambjóðendur þeir senda, en lögð
var áhersla á að frambjóðendurnir
hefðu reynslu af pólitískri um-
ræðu. Þeir sem mæta eru Sigurð-
ur Kári Kristjánsson D-lista, Ög-
mundur Jónasson VG, Gunnar
Örlygsson F-lista, Sæunn Stefáns-
dóttir B-lista, Katrín Júlíusdóttir
og Björgvin G. Sigurðsson S-
lista.“
– Er talið að unga fólkið hafi
áhuga á því að hitta frambjóðend-
ur á þennan hátt?
„Þetta er í fyrsta skipti sem við í
Hinu húsinu stöndum að svona
fundi en áhuginn á fundinum sem
JC stóð fyrir fyrir síðustu sveit-
arstjórnarkosningar var mikill.
Við í Hinu húsinu höfum líka ágæt-
is tengsl við nemendur í fram-
haldsskólunum og nýtum okkur
þau til að koma stefnumótinu á
framfæri. Viðbrögðin hjá nemend-
um hafa verið mjög góð og það
stefnir allt í góða mætingu.“
– Eruð þið að þessu vegna þess
að þið óttist minnkandi áhuga
ungs fólks á pólitík?
„Nei, þvert á móti. Hingað í Hitt
húsið kemur mikið af ungu fólki og
mín tilfinning er sú, að áhuginn á
stjórnmálum sé vaxandi hjá þess-
um hópi. Það er hins vegar um-
hugsunarefni hvort ungt fólki hafi
tækifæri til þess að koma sínum
skoðunum á framfæri og hvort til-
lit sé tekið til skoðana ungs fólks
við ákvarðanatöku á Alþingi. Kjós-
endur á aldrinum 18 til
30 ára eru um 26%
kjósenda, bæði árin
meðtalin, en það er
enginn á þingi sem til-
heyrir þessum aldurs-
hópi. Yngsti þingmaðurinn er Þór-
unn Sveinbjarnardóttir en hún er
37 ára og meðalaldur á þingi eftir
kosningarnar 1999 var 49,9 ár. Ef
gengið er út frá þeirri hugmynda-
fræði að Alþingi eigi að endur-
spegla þjóðina þá ættu 15 alþing-
ismenn að vera á aldrinum 18 til 30
ára. Afstaða ungs fólks er oft allt
önnur en afstaða eldra fólks í
veigamiklum málum. Það hefur
komið fram í mörgum skoðana-
könnunum. Á stefnumótinu gefst
ungu fólki gott tækifæri til þess að
koma sínum hjartans málum á
framfæri við frambjóðendur og
frambjóðendum gefst sömuleiðis
tækifæri til þess að heyra sjónar-
mið ungs fólks.“
– Hvernig fer þetta fram?
„Frambjóðendur fá tækifæri til
að halda tvær ræður, með og á
móti efni að eigin vali. Ræður
frambjóðendanna verða að vera
innan ákveðinna tímamarka og
ekkert málþóf er leyft. Þau þurfa
því að vera mjög vel undirbúin til
þess að vel sé. Svo gefst unga fólk-
inu færi á að spyrja þá út úr og
kynnast þeim jafnvel betur í eigin
persónu í hléi.
Við verðum með umræðustjóra
frá JC á Íslandi sem mun stýra
funginum og halda öllu í röð og
reglu þannig að allir komast að
sem vilja. Þetta er í raun frábært
tækifæri fyrir ungt fólk til að koma
skoðunum sínum á framfæri og
jafnframt hlusta á frambjóðendur
flokkanna.“
– Hverjum er boðið á þetta
stefnumót?
„Það eru allir velkomnir á
stefnumótið en við viljum auðvitað
fyrst og fremst fylla salinn af ungu
fólki á aldrinum 16 til 30 ára. Þó
svo að aldurinn 16 til 18 ára sé ekki
kominn með kosningarétt ákváð-
um við að höfða líka til þeirra þar
sem hann tilheyrir markhópi Hins
hússins.“
– Verður eitthvað
fleira á líkum nótum á
ykkar vegum fram að
kosningum?
„Það eru ekki fleiri
fundir á dagskrá, en við hvetjum
ungt fólk til þess að senda okkur
fyrirspurnir til frambjóðenda á
netfangið hitthusid@hitthusid.is
er varða alþingiskosningarnar
2003. Við munum svo senda þær til
frambjóðenda og birta svörin á
heimasíðu okkar, sem er www.hitt-
husid.is. Við hvetjum jafnframt þá
sem ekki komast á stefnumótið til
að nýta sér þessa leið í staðinn.“
Sigfús Þór Sigmundsson
Sigfús Þór Sigmundsson er
fæddur í Reykjavík 9. september
1973. Stúdent frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1994 og BA í
stjórnmálafræði frá HÍ haustið
2000. Hóf í janúar undirbúnings-
nám fyrir MS í viðskiptafræði við
Háskóla Íslands. Nóvember 2000
– janúar 2002: Verkefnastjóri
upplýsinga- og menningarmála í
Miðgarði, fjölskylduþjónustunni
í Grafarvogi, og frá febrúar 2002
starfsmaður Upplýsingamið-
stöðvar og vinnumiðlunar í Hinu
húsinu. Maki er Erna Hjaltested,
lögfræðingur í fjármálaráðu-
neytinu.
Ekkert mál-
þóf verður
leyft
FRAM kemur í nýjasta Fréttapósti
Samtaka verslunar og þjónustu, að
allir stjórnmálaflokkar sem nú eru
á þingi vilji að ríkið hætti versl-
unarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar.
Í Fréttapóstinum segir: „Allir
flokkar sem nú eru á þingi hafa
staðfest við SVÞ að þeir vilji að rík-
ið dragi sig úr verslunarrekstri í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar og við
álíka aðstæður annars staðar. Í síð-
asta Fréttapósti SVÞ sagði frá
svörum stjórnmálaflokkanna við
nokkrum spurningum SVÞ um mál-
efni sem varða verslun og þjónustu.
Þar kom fram að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri eini flokkurinn sem
ekki vildi gera breytingu á núver-
andi verslunarrekstri ríkisins í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nú
hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
óskað eftir leiðréttingu á fyrra
svari sínu í samræmi við ályktun á
landsfundi flokksins nýlega, þar
sem segir að mikilvægt sé að ríkið
dragi sig úr verslunarrekstri í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar
með er ljóst að allir þingflokkarnir
lýsa því yfir að ríkið eigi að hætta
verslunarrekstri í Flugstöðinni og
væntanlega á öðrum flugvöllum
jafnframt.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
hefur staðfest úrskurð samkeppn-
isráðs um að Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar hf. hafi misbeitt markaðs-
ráðandi stöðu sinni gagnvart
einkareknum verslunum í flugstöð-
inni þegar fór fram forval um að-
gang og afnot af verslunar- og
þjónusturými. Nú er tækifæri fyrir
stjórnvöld að grípa í taumana og
breyta rekstrarforminu á þann
hátt, að jöfn samkeppnisstaða verði
meðal allra þeirra sem stunda
verslunar- og þjónusturekstur í
flugstöðinni. Allir stjórnmálaflokk-
arnir eru sammála um að þessu
þurfi að breyta!“
Þeir flokkar sem nú eru á þingi hafa að sögn SVÞ staðfest að þeir vilji að
ríkið dragi sig úr verslunarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flokkarnir vilja
að ríkið hætti
verslun í Leifsstöð
EINAR K. Guðfinnsson, alþingis-
maður og formaður Íslandsdeildar
Alþjóðaþingmannasambandsins,
var einróma kjörinn formaður
nefndar um sjálfbæra þróun og
efnahags- og við-
skiptamál til eins
árs á nýafstöðnu
þingi Alþjóða-
þingmannasam-
bandsins, sem
haldið var í San-
tíagó í Chile dag-
ana 5.–12. apríl.
Einar hefur átt
sæti í Alþjóða-
þingmannasam-
bandinu síðan
1991. Hann harfði ekki tök á að
sækja þingið að þessu sinni vegna
anna en var samt kjörinn formaður
nefndarinnar.
Alþjóðaþingmannasambandið var
stofnað árið 1889 og er hlutverk
þess að stuðla að skoðanaskiptum
þingmanna frá öllum heimshornum,
hlúa að samstarfi þeirra og auka
skilning á milli þjóða. 145 þjóðþing
eiga aðild að Alþjóðaþingmanna-
sambandinu og þar að auki eiga
fimm svæðisbundin þingmanna-
samtök aukaaðild að sambandinu.
Allir þjóðkjörnir þingmenn aðildar-
ríkjanna eru í raun aðilar að Al-
þjóðaþingmannasambandinu, en Al-
þingi hefur átt aðild að
Alþjóðaþingmannasambandinu frá
árinu 1951.
Á þingum IPU er fjallað um al-
þjóðamál og er þar stefnt að fram-
gangi mannréttindamála sem eins
grundvallarþáttar lýðræðis og þing-
ræðis. Alþjóðaþingmannasamband-
ið styður starfsemi Sameinuðu
þjóðanna og á margvíslegt samstarf
við stofnanir þeirra. Höfuðstöðvar
IPU eru í Genf en sambandið hefur
jafnframt skrifstofu í New York.
Þing Alþjóðaþing-
mannasambandsins
Einar K.
Guðfinns-
son kjörinn
formaður
nefndar
Einar K.
Guðfinnsson