Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 41

Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 41 HÁSKÓLINN í Reykjavík útskrif- aði nýlega 15 manns úr versl- unarstjóranámi Hagkaupa. Námið byggðist á sérsniðinni lausn fyrir stjórnendur í verslunum Hag- kaupa með tilliti til þess bak- grunns sem einkenndi hópinn. Námið stunduðu verslunarstjórar Hagkaupa ásamt nokkrum að- stoðarverslunarstjórum og inn- kaupamönnum á matvörusviði. Námið hefur staðið yfir í rúmt ár og hefur verið unnið í sam- starfi Háskólans í Reykjavík og Hagkaupa, en þessir aðilar hafa skipt með sér kennslunni. Kennt hefur verið 16 klukkustundir í hverjum mánuði eða samtals um 130 klst. Markmiðið er að efla þekkingu nemenda á grundvallargreinum í viðskiptafræðum og verslun og gera þá betur í stakk búna til þess að sinna því krefjandi starfi sem verslunarstjórnun er og um leið opna fyrir nýjar hugmyndir um hvernig best megi koma til móts við þarfir viðskiptavina, segir í fréttatilkynningu. Náminu var skipt niður í 6 hluta, kaupmennsku, verslun, kostnaðarstýringu, upplýs- ingakerfi, innkaup og stjórnun og starfsmannamál. Aðaláherslan í náminu var á verslunar- og kostn- aðarstýringarhlutann. Meðal þess sem kennt var í verslunarhlut- anum var markaðsstefna, sala í smásölu, vörumerkið, þjónusta, hreinlæti. Í kostnaðarstjórnun var lögð áhersla á stærðfræði, rekstrarhagfræði, tölfræði, fjár- hagsbókhald, rekstrarreikninga verslana, áætlanagerð, laun, rýrnun og hlutföll í versl- unarrekstri. Einnig fór drjúgur tími námsins í stjórnun og starfs- mannamál. Morgunblaðið/Golli Útskrifa nemendur úr verslunarstjóranámi MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Hag- stofu Íslands vegna samanburðar á útgjöldum Íslendinga og annarra OECD-ríkja til fræðslumála: „Í riti OECD, Education at a Glance 2001, koma fram eftirfarandi tölur um útgjöld Íslendinga til fræðslumála árið 1998 sem hlutföll af landsframleiðslu:  Útgjöld hins opinbera til fræðslu- mála 6,55.  Útgjöld einstaklinga (meðtalin í einkaneyslu 0,32.  Útgjöld til fræðslumála, alls 6,87. Þessar tölur eru byggðar á sund- urliðuðu efni sem Þjóðhagsstofnun lét OECD í té á árinu 2000, en OECD hefur dregið saman heildartölur og reiknað hlutföll af landsframleiðslu. Tölur OECD eru hærri en samrýmist efni Þjóðhagsstofnunar og að svo stöddu er ekki unnt að skýra hvers vegna svo er. Hagstofan hefur nýlega uppfært þetta efni og kemur það meðal annars fram á vefsíðum hennar undir liðnum fjármál hins opinbera. Um leið hefur eldra efni verið yfirfarið. Endurskoð- un útgjaldatalna fyrir árið 1998 hefur leitt til smávægilegrar breytingar, eða sem nemur innan við 0,1% af landsframleiðslu. Niðurstöður fyrir árin 1998–2000 eru sem hér segir: Útgjöld hins opinbera til fræðslu- mála voru 5,59 árið 1998, 5,74 árið 1999 og 5, 75 árið 2000. Útgjöld ein- staklinga (meðtalin í einkaneyslu) voru 0,53 árið 1998, 0,55 árið 1999 og 0,56 árið 2000. Útgjöld til fræðslu- mála alls voru því 6,12 árið 1998, 6,29 árið 1999 og 6,31 árið 2000. Ítrekað skal að birt efni OECD sýnir hærri tölur en samrýmast því efni sem Þjóð- hagsstofnun vann upphaflega og lét frá sér. Munurinn á útgjöldum hins opinbera til fræðslumála er 0,96% af landsframleiðslu. Mögulegt er að OECD hafi meðaltalið útgjöld vegna Lánasjóðs ísl. námsmanna sem skv. skilgreiningu OECD eiga ekki að telj- ast með í samanburðartölum á milli landa. Þessi útgjöld hafa numið u.þ.b. 0,3% af landsframleiðslu undanfarin ár. Sé þetta rétt til getið stendur eftir munur á birtum tölum OECD og töl- um Hagstofunnar (og áður Þjóðhags- stofnunar) sem nemur um 0,6%. Sem fyrr segir kann Hagstofan ekki skýr- ingu á þessu mun. Síðustu birtar tölur OECD um út- gjöld til fræðslumála sem hlutfall af landsframleiðslu, eru frá árinu 2000. Séu fyrrnefndar tölur Hagstofunnar bornar saman við tölur OECD kemur eftirfarandi í ljós meðal annars:  Heildarútgjöld Íslendinga til fræðslumála (einkaneysluútgjöld meðtalin) námu 6,3% af landsfram- leiðslu árið 2000.  Sambærileg tala fyrir meðaltal allra OECD ríkja var 5,4%.  Af einstökum ríkjum eru Kanada, Danmörk, Svíþjóð og Bandaríkin með hærra hlutfall en Ísland, önn- ur ríki jafnhá eða lægri.  Röð Norðurlandanna er eftirfar- andi: Danmörk 6,7%, Svíþjóð 6,5%, Ísland 6,3%, Noregur 5,9% og Finnland 5,6%. Tölur um útgjöld hins opinbera til fræðslumála eru tiltæk í samanburði fyrir árið 1999 og sýna meðal annars eftirfarandi:  Ísland hefur hlutfallið 5,7%.  Meðaltal OECD ríkja er 4,9%.  Ríki OECD ofar Íslandi eru Aust- urríki, Danmörk, Frakkland, Nýja Sjáland, Noregur og Svíþjóð.  Tölur fyrir Norðurlöndin eru eft- irfarandi: Noregur og Svíþjóð 6,5%, Danmörk 6,4%, Ísland og Finnland 5,7%. Ótal álitamál koma upp við saman- burð af þessu tagi, ekki síst vegna mismunandi skipulags menntamála í einstökum ríkjum. Tölur einstakra ríkja ættu hins vegar að gefa góða vís- bendingu um þróun hvers ríkis yfir tímann. Í því ljósi má nefna að hér á landi hafa útgjöld hins opinbera til fræðslumála aukist úr u.þ.b. 4% af landsframleiðslu á fyrri hluta 9. ára- tugarins í 4,2–4,4% um og eftir 1990. Þau fóru í fyrsta sinn yfir 5% 1996 og voru komin í 5,75% árið 2000 eins og fyrr segir. Athugasemdir frá Hagstofu Íslands Samanburður á út- gjöldum OECD-ríkja til fræðslumála „ÉG varð alveg steinhissa þegar ég sá hvað margir mættu á kynning- arfundinn en um leið mjög ánægð,“ segir Elísabet Jónsdóttir sem hefur átt frumkvæði að stofnun félags fyr- ir fólk sem býr eitt. Um 250 manns mættu á kynningarfund um félagið fyrir stuttu en stofnfundur þess verður haldinn í kvöld, þriðjudag, kl. 20 á Grand hóteli. Hún segir að á kynningarfundinn hafi komið fólk á öllum aldri og margir boðið sig fram til starfa fyrir félagið. Sérstaklega hafi verið ánægjulegt að sjá hversu margir karlmenn mættu á kynningarfund- inn. „Konurnar hafa hingað til oft verið duglegri í félagsmálunum en það var frábært að sjá hvað margir karlar komu líka. Það myndast nefnilega skemmtilegasta stemning- in í blönduðum hópi.“ Hún bætir við að hjá félaginu sé ætlunin að búa til hópa eftir áhuga- málum stofna t.d. bíóhóp, leikhús- hóp, ferðahóp eða hvað sem fólk kunni að hafa áhuga á. Hún segir viðtökurnar sýna að greinilega sé þörf fyrir félag af þessu tagi hér á landi enda sé fjórð- ungur þjóðarinnar fólk sem býr eitt. Fólk sé mun einangraðra en áður, samfélagið lokað og erfitt að kynn- ast nýju fólki. „Þú getur ekkert far- ið að spjalla við bláókunna mann- eskju nema ef til vill á stöðum þar sem áfengi er haft um hönd. Hér er ýmislegt sem hefur breyst, sjón- varpið gerir það ef til vill að verkum að fólk heimsækir ekki lengur hvað annað og svo ferðast allir um í bíl- um, en hérna áður fyrr gekk fólk meira og hitti þá hvað annað á förn- um vegi.“ Stofnfundur félags einstæðs fólks haldinn á Grand hóteli í kvöld Viðtökurnar komu á óvart MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá stjórn Skólafélags Menntaskólans við Sund: „Stjórn Skólafélags Menntaskól- ans við Sund harmar þá leiðu at- burði sem ákveðnir nemendur skól- ans urðu valdir að í miðbæ Reykjavíkur hinn 11. apríl. Dimm- isjónir menntskælinga hafa sett og eiga að setja skemmtilegan vorblæ á mannlífið í borginni. Því miður sneru nokkrir nemendur því í and- hverfu sína. Stjórnin hefur tekið málið til um- fjöllunar og biður alla hlutaðeigandi afsökunar á þessum atburðum. Framferði nokkura nemanda var skólanum og öllum nemendum hans til skammar. Stjórnin vill hins vegar árétta að einungis örfáir einstak- lingar innan skólans voru að verki og þessi atvik lýsa á engan hátt al- mennum nemendum Menntaskólans við Sund. Okkur þykir leitt að ímynd skólans hafi beðið hnekki. Stjórnin hefur ákveðið að leita leiða með skólayfirvöldum til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig. Hún mun og styðja allar ákvarðanir skólayfirvalda hvað varðar þá sem hlut áttu að máli. Að lokum vill stjórnin biðja alla sem urðu fyrir ónæði eða eignatjóni inni- legrar afsökunar fyrir hönd allra nemenda skólans.“ Skólafélag MS harmar atburði á dimmisjón BÚIÐ er að endurútgefa og bæta krossgátu- og þrautablaðið Hrafna- spark nr. 1, 2 og 3. Í blaðinu eru um 50 þrautir af öllum stærðum og gerðum fyrir alla aldurshópa. Hrafnasparki hefur verið deift um allt land. Svör við þrautunum eru aftast í hverju blaði. Útgefandi: KRASS ehf – Sandgerði. Ábyrgðarmaður er Hrafnhildur Val- garðsdóttir, segir í fréttatilkynningu. Krossgátur og þrautir Hrafnaspark ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.