Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 44

Morgunblaðið - 15.04.2003, Page 44
DAGBÓK 44 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Arnarfell kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Olshana kemur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, er lokuð vegna flutninga, hún verður opnuð aftur 6. maí í Fannborg 8, áður húsnæði Bókasafns Kópavogs, lesstofa á jarðhæð. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, leirlist og jóga, kl. 10 og kl. 11 enska, kl. 11 dans, kl. 13 vinnustofa og postulínsmálun, kl. 14 söngstund. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leikfimi, kl. 13–16.30 opnar handavinnu- og smíðastofur. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10– 11.30 sund, kl. 13–16 leirlist, kl. 14–15 dans. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 versl- unarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bókabíll- inn, kl. 9–14 hár- greiðsla. Korpúlfar, Graf- arvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Grafarvogslaug á þriðjudögum kl. 9.45. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 11 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids og biljard kl. 13 saum- ur og pútt kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Þriðjudagur: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Glæsibæ kl. 10. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnnustofur opnar, m.a. glerskurður, kl. 13. boccia. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leikfimi, kl. 9.30 silki- málun, handa- vinnustofan opin, kl. 14 boccia og ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 opin handa- vinnustofan, kl. 19 gömlu dansarnir, kl. 17 línudans. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun og glerskurður,kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 13.30 helgi- stund, kl. 14.30 spænska. Fótaaðgerð- ir, hárgreiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10– 11 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur og postu- línsmálun. kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 10.15–11.45 enska. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerð, kl. 13 handmennt og postu- línsmálning, kl. 13–14 félagsráðgjafi, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjábakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 20 Páskabingó. Kívanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Félagsvist spiluð í Kív- anishúsinu í Mos- fellsbæ í kvöld kl. 20.30. Minningarkort Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Minningarkort eru afgreidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrifstofutíma. Gíró- og kreditkortaþjón- usta. Í dag er þriðjudagur 15. apríl, 105. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. (Jóh. 15, 13.)     Heimasíða ÖgmundarJónassonar, þing- manns VG, er ein lífleg- asta pólitíska síðan á Net- inu. Í gær birtist þar eftirfarandi pistill Ög- mundar, undir fyrirsögn- inni Kim Il Ásgrímsson:     Mörgum brá í brúnþegar þeir óku Suð- urlandsbrautina fyrir fá- einum dögum. Hús eitt of- arlega við brautina hafði nánast verið betrekt með risastórum myndum af Halldóri Ásgrímssyni for- manni Framsókn- arflokksins og Jónínu Bjartmarz frambjóðanda flokksins hér í Reykjavík. Ég sá fyrst þessar myndir kvöldið sem Sjónvarpið sýndi styttuna af Saddam Hussein fellda af stalli í Bagdad. Ef til vill voru hughrifin sterkari fyrir bragðið. Ekki veit ég hvaðan Framsókn- arflokkurinn fékk þá hugmynd að flenna for- ystumenn sína yfir heila húsveggi. Helst kemur mér Norður-Kórea í hug en þar í landi eru menn mjög útfarnir í að koma foringjamyndum af þess- ari stærðargráðu fyrir á almannafæri. Sá hængur var á þarna við Suðurlandsbrautina að nokkuð vindasamt var fyrstu dagana eftir að þau Halldór og Jónína voru hengd upp þannig að þau fuku eitthvað til og um skeið var Halldór aðeins hálfur á hús- veggnum. Ekki hef ég þekkingu á veðurfari í Norður-Kóreu en þó kæmi mér ekki á óvart að þar gæti verið óveðra- samt. Sennilega væri ráð að Halldór og félagar horfðu til Norður- Kóreumanna um ráðlegg- ingar varðandi pólitísk leiktjöld og hvernig bæri að bregðast við þegar á móti blési. Mér er sagt að Norður-Kóreumenn bregðist helst við með því að stækka myndirnar. En það kallar líka á góðar festingar.“     Ögmundur svarar í öðr-um pistli svohljóð- andi spurningu Magnúsar Skarphéðinssonar: „Steingrímur J. Sigfússon sagði í þætti sem ég horfði á, að VG ætti sér engan höfuðandstæðing. Hann endurtók þetta svo aftur. Ég hafði hins vegar alltaf litið svo á að höf- uðandstæðingur VG væri Sjálfstæðisflokkurinn. Er það ekki rétt munað hjá mér að þú hefur oftar en einu sinni sagt op- inberlega að Sjálfstæð- isflokkurinn væri höf- uðandstæðingur þíns ágæta flokks?“ Þannig svarar Ög- mundur: „Ekki sá ég um- ræddan þátt. Ég held að við séum alveg sammála um það við Steingrímur J. Sigfússon að við lítum svo á að pólarnir í ís- lenskri pólitík séu Sjálf- stæðisflokkur og VG. Þar svíkur minni þitt ekki og get ég alveg fullvissað þig um að ég er enn við sama heygarðshornið varðandi stjórnarmynd- unarhugmyndir og ég hef verið.“ STAKSTEINAR Ögmundur, Norður- Kórea og pólar í pólitík Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur yndi af tónlist ogbíður því, eins og svo margir Ís- lendingar, í ofvæni eftir því að hér rísi tónlistarhús. Það var stór áfangi þegar ríki og borg lýstu í ársbyrjun 1999 vilja til að beita sér fyrir bygg- ingu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík og í apríl í fyrra var annað stórt skref tekið þegar sömu aðilar undirrituðu samning um byggingu húss af þessu tagi. En hvað svo? Ekkert bólar á framkvæmdum og, að því er Víkverji best veit, hefur húsið ekki ennþá verið hannað. Hvað þá meira. Af orðum borgarstjóra að dæma nýverið hefjast framkvæmdir ekki fyrr en 2007 eða 2008 í fyrsta lagi. Þetta er óheppilegt. Nóg er að horfa til tveggja máttarstólpa í ís- lensku tónlistarlífi, Sinfóníu- hljómsveitar Íslands og Íslensku óp- erunnar, því til rökstuðnings. Hljómsveitin, sem um árabil hefur staðist samanburð við það besta sem gerist úti í heimi, leikur og starfar í kvikmyndahúsi. Húsi sem þjónar illa þörfum hennar. Sama er að segja um Óperuna, ört vaxandi söngstofnun með mikinn metnað. Hún hefur að- setur í gömlu kvikmyndahúsi. Húsi sem hentar starfseminni hreint ekki vel. Þetta eru svo sem ekki nýjar staðreyndir en á þær er aldrei of oft minnt. x x x SINFÓNÍAN fær samastað í tón-listarhúsinu þegar þar að kem- ur. Svo mikið er víst. Hins vegar bendir fátt til þess að Óperan deili þar með henni lyklum. Margir furða sig á þessu, einkum eftir að farið var að ræða um þrjá sali í húsinu, þar af einn af millistærð, fyrir sjö til átta hundruð gesti. Salur af því tagi myndi falla vel að þörfum Óper- unnar en það er sætafjöldinn sem húsbændur þar á bæ telja sig þurfa til að standa undir kostnaði við sýn- ingar. Bjarni Daníelsson óperustjóri hef- ur ítrekað vakið athygli á þessu, nú síðast í samtali í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Færir hann þar fyrir því skynsamleg rök að Óperan eigi er- indi í tónlistarhúsið, meðal annars á þeim forsendum að hagræði skap- aðist vegna náinna tengsla Óp- erunnar við Sinfóníuna. En hljóm- sveit Óperunnar er að mestu skipuð liðsmönnum úr Sinfóníunni. Víkverji sér ekki annað en sambúð Sinfóníunnar og Óperunnar gæti orðið báðum aðilum til framdráttar. Stofnanirnar myndu styðja við bakið hvor á annarri og veita gagnkvæman innblástur. Samt hafa opinberir að- ilar sýnt þessu lítinn áhuga. Áformað er að óperuflutningur verði „mögu- legur“ í húsinu. Kannski verður kall- að á Íslensku óperuna á tyllidögum? Það hefur tekið hundrað ár að leggja drög að byggingu sérhannaðs tónlistarhúss. Ætli annað hús af því tagi rísi í bráð? Það er kannski nóg fyrir Íslensku óperuna að eignast almennilegt heimili árið 2103? Verður Gamla bíó heimili Íslensku óperunnar næstu hundrað árin? Sturtur sundlauganna VIÐ lifum við endalausar tæknibyltingar nema í sundlaugum höfuðborgar- svæðisins, þar eru því mið- ur flestar sturtur þannig útbúnar að það tekur lengri tíma að stilla hita- stigið en að baða sig og myndast við þetta óþarfa biðraðir fyrir utan sóun á vatni. Áður fyrr þótti ekkert sjálfsagðara en að hafa megnið af sturtunum með einum krana eða sveif og nokkrar aðrar með stilli- möguleikum, t.d. í Laug- ardal fyrir breytingar. Ég legg eindregið til að það verði prufað að hafa þetta minnst til helminga eða að sett verði upp blöndunartæki sem stilla mætti með skrúfjárni (ein ríkisstilling). Þetta myndi í það minnsta hjálpa krökk- um. Virðingarfyllst, Kristján. Úrtökuliðið INNAN heilbrigðiskerfis- ins þarf að ráða í stöður sem losna. „Við ráðum ekki þær gömlu,“ sagði gamli maðurinn, ívið eldri en þær gömlu. Hann hlýtur auðvit- að að þurfa bráðum að segja af sér vegna aldurs! Það gengur náttúrulega ekki að vera að meta hann eitthvað sérstaklega fyrir reynslu og þekkingu ef hann kann ekki að meta það hjá öðrum. Þetta með þessar gömlu á reyndar við ekki bara hjá heilbrigðis- kerfinu, heldur í öllu þjóð- félaginu. Það er ekki nóg með að karlmenn þessa lands vaði uppi með sjálf- tökuliðinu, heldur eru þeir sjálfskipaðir í úrtökuliðið við að blása þær gömlu út af, – sem eru stundum miklu yngri en þeir. Vinnusálfræðingar ættu að rannsaka hverju sætir mismunun kynjanna vegna aldurs. Hvað veldur því að úrtökuliðið starfar á þenn- an hátt? Eru menn ekki meðvitaðir um að kennitala er tala á pappír sem hefur ekkert að gera með hæfni einstaklingsins? Bæði hjá konum og körlum! Ég segi skamm. Ein 40+ og ánægð með það. Peningaplokk FJÖLSKYLDAN leigði fellihýsi hjá Tjaldvagna- leigu Sunnevu á Selfossi fyrir síðustu verslunar- mannahelgi og stóð til að hafa það í viku. Ekki var það nú ódýrt, rúmar 40.000 kr. greitt fyrir fram. Maður skilur nú hvers- vegna var krafist fyrir- framgreiðslu því fellihýsið hélt hvorki vatni né vind- um og var sem sofið væri undir berum himni í guðs- grænni náttúrunni. Á þriðja degi gáfumst við upp og skiluðum fellihýs- inu. Lauk þar langþráðri útilegu fjölskyldunnar. Þegar krafist var endur- greiðslu á hluta leigunnar þar sem verið var að leigja gallaða vöru var okkur svarað að éta það sem úti frysi og síðan skellt á. Við viljum vara fólk við óvönduðum aðilum eins og þessum sem standa að þessari tjaldvagnaleigu þannig að aðrir lendi ekki í því sama. Ingibjörg Guðmundsdóttir. Tapað/fundið Ljósblátt hjól týndist LJÓSBLÁTT Bronco telpnahjól (24"), glænýtt, týndist frá Lerkihlíð í Reykjavík 11. apríl sl. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hjólið vinsamlega hafi samband í síma 568 2868 eða 660 1040. Dýrahald Hvítur fress fæst gefins 8 mánaða fallegur fress, hvítur með svart skott og annað eyrað svart, fæst gefins. Þetta er mjög sér- stakur köttur og gæfur. Upplýsingar í síma 823 9398 og 587 2474. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Sólveig málar Maríönnu Rún og Thelma fylgist með. Morgunblaðið/Ómar LÁRÉTT 1 matgráðugur maður, 4 skjall, 7 korns, 8 vatns- fall, 9 járnkrókur, 11 dýrs, 13 höfuðfat, 14 lóð, 15 mölbrjótur, 17 bæli, 20 stór geymir, 22 vinn- ingur, 23 horskur, 24 stelur, 25 komast áfram. LÓÐRÉTT 1 torvelda, 2 mylla, 3 ötul, 4 höfuðborg, 5 ginna, 6 gamalt, 10 há- setaklefi, 12 flýtir, 13 sjór, 15 hamagangur, 16 undirokun, 18 sjáum, 19 kaka, 20 tölustafur, 21 yfirlið. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 strekking, 8 allar, 9 funar, 10 ill, 11 apann, 13 ilina, 15 þröng, 18 sadda, 21 aum, 22 afrit, 23 Iðunn, 24 friðsamar. Lóðrétt: 2 telja, 3 eyrin, 4 kefli, 5 nenni, 6 haga, 7 fróa, 12 nón, 14 lóa, 15 þras, 16 ögrar, 17 gatið, 18 smita, 19 dauða, 20 Anna. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.