Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÚNAR Kristinsson, landsliðsfyrirliði í knatt- spyrnu, var valinn maður leiksins af dagblaðinu Het Nieuwsblad í sigri Lokeren á Lommel, 5:0, í belgísku 1. deildinni á laugardagskvöldið. Rún- ar, sem skoraði þrennu í leiknum, var jafnframt valinn í lið vikunnar í deildinni af blaðinu. Hann fékk 3 af 4 mögu- legum í einkunn hjá blaðinu. Hinir íslensku leikmennirnir hjá Lokeren, Arnar Grétarsson, Arnar Þór Viðarsson og Marel Baldvinsson fengu allir tvo í einkunn. Rúnar var jafnframt kjörinn maður leiksins í dagblaðinu Het Laaste Nieuws, og þar var skrifað um hann. „Hinir tryggu aðdáendur Lokeren vita að Rúnar Kristinsson töfrar alltaf fram eitt- hvað sem gleður augað. Það er Íslendingarnir sem vísa veginn fyrir Lokeren í átt að Evrópu- keppninni.“ Allt stefnir í einvígi milli Anderlecht og Lokeren um annað sætið í belgísku 1. deildinni, sem gefur þátttökurétt í lokaumferðinni fyrir Meistaradeild Evrópu næsta haust. Þegar sex umferðum er ólokið er Anderlecht stigi á undan, 11 stigum á eftir toppliðinu Club Brugge, sem á meistaratitilinn vísan. Lokeren er síðan sex stigum á undan Lierse sem er í fjórða sæti deildarinnar. Rúnar í liði vikunnar Rúnar ARNAR Þór Viðarsson, fyrirliði og miðjumaður Lokeren, á möguleika á að verða kjörinn besti knatt- spyrnumaður Belgíu tímabilið 2002–2003 af dagblaðinu Het Niuewsblad. Þegar sex umferðum er ólokið er Arnar Þór í 3.–4. sæti yfir stigahæstu leikmenn 1. deildar- innar í einkunnagjöf blaðsins. Danny Boffin, þrautreyndur landsliðsmaður Belga sem leikur með St. Truiden, er efstur í ein- kunnagjöfinni með 68 stig. Timmy Simons, miðjumaður Club Brugge og belgíska landsliðsins, er annar með 66 stig og síðan koma þeir Arnar Þór og franski miðjumaður- inn Eric Joly sem leikur með Mons- Bergen, báðir með 65 stig. Arnar Grétarsson er skammt undan í einkunnagjöfinni með 62 stig en Rúnar Kristinsson hefur misst af of mörgum leikjum til að eiga möguleika í þessari baráttu. Hann er með 55 stig en hefur misst úr fimm leiki í vetur. Arnar Grét- arsson hefur misst af tveimur leikj- um en Arnar Þór hefur leikið alla leiki Lokeren. Arnór Guðjohnsen var besti leik- maður belgísku 1. deildarinnar tímabilið 1986–1987, þá leikmaður með Anderlecht, samkvæmt ein- kunnagjöf Het Nieuwsblad, og það skýrist á næstu vikum hvort Arnari Þór takist að feta í fótspor Arnórs, sem var markahæsti leikmaður deildarinnar 1987. Arnar Þór einn sá besti í Belgíu Arnar Þór Níu þjóðir vilja halda EM 2006 NÍU þjóðir hafa lýst yfir áhuga á að fá að halda úr- slitakeppni Evrópumóts landsliða í handknattleik karla árið 2006. Þetta er Austurríki, Tékkland, Dan- mörk, Þýskaland, Grikkland, Makedónía, Noregur, Sviss og Tyrkland en mótið á að fara fram 26. janúar til 5. febrúar. Á þingi evrópska hand- knattleikssambandsins sem fram fer í Nicosiu í Kýpur í maí verður tekin ákvörðun um hvar keppnishaldið fer fram. Næsta Evrópumót fer fram í Slóveníu 2004 og þar verða Íslendingar á meðal keppenda en fjórða sætið sem Ísland hafnaði í á Evrópumótinu í Svíþjóð í fyrra gaf farseðilinn til Slóveníu.  ROY Keane, fyrirliði Manchester United, verður næsta örugglega með félögum sínum þegar þeir sækja Arsenal heim í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu á morgun. Keane fór meiddur af leikvelli undir lok viðureignarinnar við Newcastle á laugardaginn og var óttast að það kynni að koma í veg fyrir þátttöku hans í leiknum mikilvæga á High- bury.  MEIRI vafi leikur hins vegar á að David Beckham, Ryan Giggs, Wes Brown og John O’Shea geti tekið þátt í leiknum. Þrír þeir fyrrnefndu eru meiddir í lærvöðva en O’Shea meiddist á ökkla snemma í síðari hálfleik gegn Newcastle.  KEVIN Keegan knattspyrnu- stjóri Manchester City er afar óhress með miðherjapar sitt þá Robbie Fowler og Nicolas Anelka en þeir hafa engan veginn staðið undir væntinum á tímabilinu. Keeg- an, sem greiddi 19 milljónir punda fyrir leikmennina, hefur varað leik- mennina við og sagt að hann kunni jafnvel að kaupa nýja framherja í sumar en Anelka og Fowler hefur aðeins tekist að skora eitt mark hvorum í síðustu átta leikjum City.  SPÆNSKA 1. deildarliðið Rayo Vallecano sparkaði þjálfara sínum, Paragvæanum Gustavo Benitez, í gær í kjölfar slaks gengis liðsins á leiktíðinni en Vallecano situr á botni deildarinnar eftir 1:1 jafntefli við Athletico Bilbao á heimavelli sínum í gær.  ANTONIO Iriondu, þjálfari ung- lingaliðsins, mun stýra liðinu til loka keppnistímabilsins og verður hann þriðji þjálfari liðsins á leiktíð- inni en Benitez tók við stjórn liðsins í janúar af Fernando Vazguez þeg- ar liðið var í 18. sæti deildarinnar af 20 liðum. Benitez er sjöundi þjálf- arinn á Spáni sem fær að taka poka sinn á yfirstandandi tímabili.  ALAN Shearer, leikmaður New- castle, hefur verið valinn besti enski leikmaðurinn á fyrstu tíu ár- um ensku úrvalsdeildarinnar, en alls tóku um 750.000 manns frá 183 þjóðum þátt í valinu sem fram fór á Netinu.  ERIC Cantona, fyrrverandi leik- maður Manchester United og Leeds, var kjörinn besti erlendi leikmaðurinn á tíu fyrstu árum úr- valsdeildarinnar.  SIR Alex Ferguson varð fyrir valinu í kjörinu á knattspyrnustjóra deildarinnar fyrstu tíu árin, en und- ir hans stjórn hefur Manchester United unnið deildarkeppnina sjö sinnum.  AFTURELDING og ÍA leika á grasvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ kl. 18 í kvöld. Leikurinn er liður í deildabikarkeppni KSÍ og átti að fara fram í Fífunni á skírdag. FÓLK TEITUR Þórðarson hefur breyst geysilega mikið sem þjálfari á tíu árum, að sögn aðstoðarþjálfara hans hjá norska knattspyrnu- félaginu Lyn. Fyrir tíu árum var Sture Fladmark, leikmaður Lyn, undir stjórn Teits, í fyrra stýrði Fladmark liðinu með frábærum árangri, en nú er hann hægri hönd Teits Þórðarsonar sem sneri aftur til Oslóarfélagsins frá Brann að loknu síðasta tímabili. Fladmark sagði í samtali við Verdens Gang að sér hefði tekist að ná miklu út úr leikmannahópi Lyn á síðasta ári með því að vera á lágu nótunum og reyna að fá sem mest út úr hverjum ein- staklingi og nýta persónuleika hvers og eins þeirra, liðinu í hag. Þegar Fladmark var spurður hvort Teitur gæti unnið á slíkum nótum svaraði hann því játandi. „Þjálfunarstíll Teits hefur breyst geysilega mikið frá því ég spilaði undir hans stjórn árin 1992 og 1993. Þá stýrði hann öllu með harðri hendi en nú er hann mikið jákvæðari og opnari, og hefur spurt mig mikið um hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á síðasta ári.“ Fladmark kveðst hafa lært mik- ið af Teiti. „Sérstaklega um upp- byggingu sóknarleiks, skipulag æfinga og fjölbreytni á þeim, hvernig komið er fram við leik- menn – fjölmörg lítil en mikilvæg atriði. Í stuttu máli sagt, þá veit Teitur allt um hvernig gera eigi gott lið betra,“ segir Sture Flad- mark. Teitur hefur breyst mikið Ég hef kennt þeim öllum,“ sagðiRaj um mótherja sína á mótinu. Hann lagði Andra Jónsson í úrslitum með sigri í tveimur settum en það kom ekki á óvart að þeir tveir skyldu berjast í úrslitum því þeir eru stigahæstir tennismanna á Íslandi í dag og Raj hefur unnið öll mótin í ár. „Það er alveg í lagi að keppa við þá en þarf að brjóta niður ákveðinn múr til þess, setja upp keppnisgrímurnar og vonandi gleymist að þjálfari sé að mæta nemanda,“ bætti Raj við en hann hefur búið hér á landi í 10 ár og stuðlað að uppgangi íþróttarinnar. „Við erum með mikið af góðum krökkum, fleiri en áður og þar liggur framtíðin í tennis á Íslandi. Okkar markmið er að fjölga mótum því þessir krakkar eiga að verða góðir í tennis þegar þeir eru í yngri flokk- unum.“ Í kvennaflokki lék Sigurlaug til úrslita við Rakel Pétursdóttir og vann 6:3 og 6:2. „Við þekkjumst mjög vel og því eru leikirnir erfiðari en þó að úrslitaleikurinn hafi verið mjög erfiður var mjög gaman að keppa – ætli ég hafi ekki haft sigur með einbeitinguna í lagi,“ sagði Sig- urlaug eftir mótið. Hún þekkir verð- launapallinn ágætlega því hún var oft Íslandsmeistari í yngri flokkun- um en það var ekki fyrr en í fyrra að hún vann í meistaraflokki utanhúss og varði titil sinn innanhúss. „Það hefur gengið vel í ár og ég vona að það haldi áfram.“ Enn vinna Raj og Sigurborg Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Raj Bonifacius og Sigurlaug Sigurðardóttir urðu Íslandsmeist- arar í tennis innanhúss á sunnudaginn. KLUKKUSTUNDAR leik þurfti til að knýja fram úrslit á Íslands- mótinu í tennis sem fram fór í Sporthúsinu í Kópavogi um helgina. Þegar upp var staðið tókst Sigurlaugu Sigurðardóttur að verja titil sinn og Raj Boni- facius hafði sigur í karlaflokki en hann hefur einnig þjálfað flesta mótherja sína. Það var samt ekki annað að sjá en hann hefði miðlað einhverju til þeirra því þeir létu hann oft hafa mikið fyrir stigunum sínum. Stefán Stefánsson skrifar KNATTSPYRNA Svíþjóð Djurgården - Halmstad ............................2:0 Gautaborg - Malmö ...................................3:0 Örebro - Hammarby .................................2:3 Staðan efstu liða: Djurgården 2 2 0 0 6:0 6 Hammarby 2 2 0 0 6:2 6 Gautaborg 2 1 0 1 4:2 3 AIK 2 1 0 1 4:2 3 Landskrona 1 1 0 0 2:1 3 Helsingborg 2 1 0 1 4:4 3 Halmstad 2 1 0 1 2:2 3 Öster 2 1 0 1 3:4 3 Elfsborg 2 1 0 1 3:4 3 Noregur Lyn - Brann ...............................................0:0 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Milwaukee – Indiana...........................107:98 Minnesota – Chicago...........................119:95 Portland – LA Lakers.........................101:99 Memphis – Detroit ............................107:110 Philadelphia – New Orleans.................89:94 Miami – Boston......................................86:94 Phoenix – San Antonio..........................92:85  Phoenix tryggði sér áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildar með sigrinum og þar með er endanlega ljóst hvaða 16 liða leika til úrslita um meistara- titilinn. SKOTFIMI Íslandsmeistaramót, frjáls skammbyssa – 50 metrar: Carl J. Eiríksson, SÍB .............................464 Steindór Grímsson, SFK .........................376 Bikarmeistaramót, 60 skot liggjandi riff- ill, 50 metrar: Carl J. Eiríksson, SÍB .............................593 (98, 99, 100, 98, 98, 100) Arnfinnur Jónsson, SFK .........................580 Eyjólfur Óskarsson..................................576 Viðar Finnsson .........................................572  Carl J. varð bikarmeistari 2003. ÚRSLIT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.