Morgunblaðið - 15.04.2003, Side 50

Morgunblaðið - 15.04.2003, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 8. Sýnd kl.6. 400 kr. Sýnd kl. 10. 400 kr Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 14.  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8 og 10.20.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. 400 kr kl. 6.30 og 9.30. Sjónvarps- framleiðandi á daginn, leigumorðingi fyrir CIA á kvöldin - ótrúleg sönn saga! George Clooney og Steven Soderbergh (Traffic) kynna svölustu mynd ársins! DREW BARRYMORE GEORGE CLOONEY JULIA ROERTS AND SAM ROCKWELL CONFESSIONS OF A DANGEROUS MIND I I  Kvikmyndir.com  X-97,7 áfram Ísland Daví› Oddsson Geir H. Haarde Geir H. Haarde Til fundar vi› flig Húsavík firi›judagur 15. apríl Hótel Húsavík kl. 20.00 Ólafsfjör›ur firi›judagur 15. apríl Glaumbær kl. 12.00 Siglufjör›ur firi›judagur 15. apríl N‡ja bíó kl. 20.30 Á næstu dögum og vikum munu Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H. Haarde, fjármálará›herra og varaforma›ur Sjálfstæ›isflokksins, ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum Sjálfstæ›isflokksins halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i. Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi› Íslendingar höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›. GLEÐISVEITIN Tequila Jazzz frá Sankti Pétursborg heldur tónleika á Gauki á Stöng næstkomandi laug- ardag. Hr. Örlygur og Einar Bárð- arson standa fyrir komu þessarar rússnesku hljómsveitar til landsins en möguleiki er á því að sveitin taki þátt í tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í haust. Tequila Jazzz er með vinsælli hljómsveitum í Rússlandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá skipu- leggjendum. „Sveitin á að baki 12 plötur og hefur á síðustu árum ver- ið á tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin. Eins og nafnið gef- ur til kynna leikur hljómsveitin blöndu af partýmúsík og rokki. Í nokkrum lögum þeirra má meira að segja heyra smá hipp hopp-áhrif,“ segir ennfremur í tilkynningunni en þeim til halds og trausts á Gauknum verður Buff, önnur gleði- sveit, auk plötusnúða. Hljómsveitina Tequila Jazzz skipa Eugene „Ay-Ay-Ay“ Fedorov, sem leikur á bassa, gítarleikarinn Konstantin „Balbes“ Fedorov og trommuleikarinn Konstantin „Dus- er“ Voronov. Aðstandendur tónleikanna vilja hvetja alla, sem hafa gaman af því að heyra eitthvað nýtt og vilja kynna sér strauma og stefnur í tón- listarheiminum, að mæta. Vegna þess að Tequila Jazzz er enn sem komið er óskrifað blað hér á landi verður miðaverði stillt í hóf en aðgangseyrir er 1.000 krónur. Stuðhljómsveit frá Rússlandi Hljómsveitina Tequila Jazzz skipa Eugene „Ay-Ay-Ay“ Fedorov, sem leik- ur á bassa, gítarleikarinn Konstantin „Balbes“ Fedorov og trommuleik- arinn Konstantin „Duser“ Voronov. Rússneska sveitin Tequila Jazzz spilar á Gauki á Stöng lau. 19. apríl. Hljómsveitin Tequila Jazzz heimsækir landið ÞAÐ má öllum vera ljóst að þegar skemmtun á borð við „Don’t try this at home“ er haldin klukkan 23:00 á föstudagskvöldi er þess ekki að vænta að áhorfendur séu settlegir eldri borgarar í bingóhugleiðingum. Með- alaldur gesta var þó örugglega ekki langt yfir tilskildum 16 ára lágmarks- aldri og menn og konur greinilega búnir nota kvöldið vel til að „koma sér í fíling“. Það var því hálfgerð versl- unarmannahelgarstemning í Há- skólabíói þetta kvöld, bæði á sviði og utan. Það er ekki óalgengt að fólk drekki frá sér allt vit og fari sjálfu sér og öðr- um að voða. En að gera það að lífsvið- urværi sínu er nokkuð sem fáum hef- ur dottið í hug og ábyggilega engum öðrum á þann hátt sem Jackass-hóp- urinn gerir. Það er eiginlega útilokað annað en að forsprakkinn, Steve-O, sé annaðhvort með skaddað taugakerfi og nær ónæmur fyrir sársauka eða hreinlega haldinn sjálfspíningarhvöt. Eftir örstutta og lítt fyndna kynn- ingu „Þjóðartittlingsins“ var Steve-O mættur á sviðið og hafði meðferðis kassa af bjór- dósum sem hann ýmist sprengdi með því að berja í hausinn á sér eða dreifði til áhorfenda. Þetta gaf tóninn fyrir sýninguna þar sem hann og þó einkum félagar hans drukku nær sleitu- laust alla sýninguna. Fyrsta eiginlega atriðið var einmitt þannig að fyrst tóku þeir salt í nef- ið, drukku síðan gúlsopa af tequila og kreistu síð- an sítrónusafa í augun á sér. Og ældu svo á sviðið í u.þ.b. 10 mínútur! Annars var Steve-O allt í öllu og misþyrmdi sér nær stanslaust alla sýninguna. Þeir Ryan Dunn og Bam Margera sátu hjá mestallan tímann og horfðu á, áttu aðeins eitt sólómis- þyrmingaratriði hvor og voru þau bæði frekar bragðdauf miðað við flest það sem Steve-O tók sér fyrir hendur. Dunn hjólaði á barnahjóli á fullri ferð á snæri sem hinir strengdu á milli sín (þannig að hálsinn lenti á snærinu og hann skall aftur fyrir sig) og Margera fór á hjólabretti niður nær lóðréttan stiga (og skall auðvitað harkalega í gólfið). Steve-O aftur á móti skar sjálfan sig í tunguna með glerbroti, kveikti í hausnum á sér, lék jafnvægislistir með búrhníf og stóran á stiga og fleira í þeim dúr. Hápunkturinn var svo heftibyssuatriðið þar sem hann heftaði fyrst brjósta- haldara við bringuna á sér og svo punginn á sér við lærið á sér! Er hægt að gera eitthvað kjánalegra? Sýningin var kvikmynd- uð og henni varpað upp á sýningartjald svo alltaf sást hvað var á seyði, jafn- vel fyrir þá sem sátu á öft- ustu bekkjum. Hins vegar var hljóðblöndun afar slök og illmögulegt að skilja hvað þeir félagar sögðu í hljóðnema utan orð á stangli. Vafalaust hefur áfengisneysla þeirra ekki hjálpað upp á skýrmælg- ið. Inn í sýninguna var svo skotið at- riðum sem þeir hafa tekið upp á ferða- lagi sínu og var eitt þeirra ógeðslegra en svo að hægt sé að lýsa í virðulegu dagblaði. Sýningunni lauk svo afar skyndilega og var greinilegt að marg- ir áhorfendur höfðu átt von á meiru. Það fer ekki hjá því, eftir að hafa setið í stærsta sal Háskólabíós, troðfullum af fólki sem borgaði dágóða summu fyrir herlegheitin, og horft á fyllerí og sjálfsmisþyrmingar þeirra fífla, að maður spyrji sig hverjir hafi verið hin raunverulegu fífl; við eða þeir? Skemmtun Háskólabíó Háskólabíó, salur 1, föstudaginn 11. apr- íl kl. 23.00. Fram komu Þjóðartittling- urinn Pétur „Ding Dong“ Sigfússon og liðsmenn úr Jackass-flokknum banda- ríska, þ.á m. Steve-O, Bam Margera og Ryan Dunn. JACKASS – DON’T TRY THIS AT HOME Svona gera bara kjána- prik, er það ekki? Ármann Guðmundsson Hverjir eru fíflin? Morgunblaðið/Jón Svavarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.