Morgunblaðið - 15.04.2003, Side 51

Morgunblaðið - 15.04.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2003 51 Tvö sóltjöld fylgja öllum bílstólum til páska. Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i 12. Ísl. texti. Sýnd kl. 8. B.i 12 HK DV Kvikmyndir.com SV MBL HJ MBLHK DV Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 10. B.i 14. Síðasta sýning GAMLE MÆND I NYE BILER sýnd kl. 6. ísl. texti. 28 DAYS LATER Sýnd kl. 6. enskt tal. RABBIT PROOF FENCE Sýnd kl. 6. enskt tal. ELSKER DIG FOR EVIGT Sýnd kl. 6. ísl. texti. EL CRIMEN DEL PADRE AMARO sýnd kl. 8. enskur texti. COMEDIAN Sýnd kl. 10.20. enskt. tal. GOOD GIRL sýnd kl. 10.20. ísl. texti. Sýnd kl. 8. B.i 12. ÓHT Rás 2 BESTA HEIMILDARMYNDIN ÓSKARSVERÐLAUN HK DV X-97,7  HJ MBL  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Tilboð 700 kr. Sýnd kl. 5.45. Tilboð 700 kr. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Tilboð 700 kr. Sýnd kl. 8 og 10. Tilboð 700 kr. 400 kr PÁSKATILBOÐ: 700 KR Í ALLA SALI KRISTÍN Atladóttir hjá Ísfilm er í hópi rúmlega tuttugu framleiðenda sem hafa verið valdir til þess að taka þátt í „Producers On The Move“, kynningu á nýrri kynslóð framleið- enda, á hinni þekktu kvikmyndahá- tíð í Cannes í Frakklandi í maí. Kristín framleiddi m.a. myndina Mávahlátur eftir Ágúst Guðmunds- son, sem naut vinsælda hérlendis og velgengni á erlendri grundu. Samtökin European Film Promo- tion, EFP, völdu framleiðendurna til þátttökunnar en til þess að koma til greina þurftu þeir að hafa framleitt að minnsta kosti eina mynd sem hef- ur notið vinsælda í heimalandinu, verið seld utan eða boðið á stóra kvikmyndahátíð. „Þetta er frekar tækifæri en við- urkenning að því leyti að þarna gefst manni tækifæri til að ná beint til þess fólks, sem maður er annars að reyna að nálgast. Það er óskaplega mannmargt á svona hátíðum og mörkuðum og þú veist ekki hverjir eru hvað og erfitt er að nálgast ein- staklingana. Þarna er valið úr og fólki komið saman. Í því felst tæki- færið,“ segir Kristín, sem finnst gaman að vera í þessum hópi. „Starf framleiðandans felst að miklu leyti í því að koma upp sam- böndum og tengslum. Framleið- endur eru að því allt árið um kring. Þarna geturðu verið nokkuð viss um að þú hittir réttu aðilana,“ segir hún. Áhersla á alþjóðlegt verkefni Kristín ætlar að leggja áherslu á kynningu á alþjóðlegu verkefni úti í Cannes en nokkur stefnubreyting er framundan hjá Ísfilm. „Við erum alltaf með nokkur verkefni á okkar könnu í þróun og undirbúningi. Ég legg að sjálfsögðu áherslu á verkefni sem er alþjóðlegt og krefst þess að það þurfi að fara út fyrir landstein- ana til að leita fjármagns. Annars væri ég ekki að nýta þetta tæki- færi,“ segir hún. Hún útskýrir að framundan hjá Ísfilm sé „ekki íslenskt verkefni sem vantar erlent fjármagn inn í heldur alþjóðlegt verkefni þar sem Ísland verði sjálfsagt í minnihluta“. Um er að ræða kvikmynd í fullri lengd, framleidda fyrir alþjóðlegan markað í samvinnu við alþjóðleg fyrirtæki. „Við erum núna búin að fara í gegnum tvö íslensk-alþjóðleg verk- efni, þar sem verkin eru á íslenskri tungu og slíkt. Að okkar mati er kominn tími á að hvíla sig á því og fara annars vegar algjörlega í ís- lensk verkefni og hins vegar í stærri alþjóðleg verkefni þar sem við erum ekki með Ísland sem okkar að- almarkaðssvæði,“ segir Kristín og útskýrir að hún sé að vinna að tveim- ur verkefnum af þessum toga. Stríð og ástarþríhyrningur Bæði verkefnin eru tilbúin til kynningar í Cannes en hún er ekki búin að gera upp við sig hvort verk- efnið hún ætlar að leggja meg- ináherslu á. „Það fer dálítið mikið eftir tíðarandanum. Annað verkefnið er stríðsmynd. Stríð í heiminum hafa áhrif á framleiðslu slíkra mynda. Þau geta haft þau áhrif að það getur verið áhugi fyrir þeim, sérstaklega myndum sem segja mannlegar sög- ur af stríðum. Síðan geta þau líka haft þau áhrif að áhuginn verður enginn,“ útskýrir hún. „Hitt verkefnið er saga frá París á öðrum og þriðja áratugnum. Sagan fjallar um hjón og er ástarþríhyrn- ingur á milli tveggja persóna,“ segir Kristín og bætir við að þetta sé eró- tísk og persónuleg frásaga af hjóna- bandi ungra málarahjóna. Bæði handritin eru eftir Kristínu og helsta samstarfsmann hennar og eiginmann, Ágúst Guðmundsson. „Þetta er nokkuð sem við erum búin að vera að þróa í nokkur ár. Að öðru leyti erum við búin að vera að vinna að íslenskum verkefnum, sem eru al- gjörlega íslensk og ekki er leitað að erlendu fjármagni.“ Hún hefur áhuga á að reyna þessa alþjóðlegu leið í framleiðslu kvik- mynda. „Við höfum í raun og veru ekki aðgang að fjármagni til að leggja í enskumælandi myndir. Okk- ar framlag yrði að vera lítið en við getum hugsanlega verið með ákveð- ið listrænt forræði og annað slíkt. Það má prófa þessa leið eins og aðr- ar.“ Þess má geta að Mávahlátur er á dagskrá Sjónvarpsins klukkan 20.10 að kvöldi páskadags. Kristín Atladóttir í hópi framleiðenda sem kynntir verða í Cannes Frekar tækifæri en viðurkenning ingarun@mbl.is Kristín Atladóttir, framleiðandi Mávahláturs, er í hópi útvalinna framleiðenda, sem fá aukið tækifæri til að kynna ný verkefni í Cannes. GRANDROKK Jagúar heldur tón- leika. Sveitin er nýkomin heim úr vel heppnaðri Lundúnareisu þar sem hún hélt m.a. tón- leika á hinu margfræga Jazz Café fyr- ir fullu húsi. Sveitin heldur svo til Belgíu í enn eina tónleikareis- una. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.