Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 2
FRÉTTIR
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
minna en vænst var í apríl eða um
0,13%, þrátt fyrir áframhaldandi
hækkun á markaðsverði húsnæðis,
að því er fram kemur í Hagvísum
Seðlabanka Íslands, sem komu út í
gær. Bent er á í ritinu að markaðs-
verð húsnæðis hafi hækkað um 1½%
milli mánaða. „Verð íbúðarhúsnæðis
hækkar án afláts,“ segir í Hagvís-
um.
„Í mars var íbúðaverð á höfuð-
borgarsvæðinu 9,5% hærra en fyrir
ári. Raunverð íbúðarhúsnæðis er nú
orðið hærra en þegar það var hæst
árið 2001,“ segir þar ennfremur. Þar
segir einnig að markaðsverð hús-
næðis hafi hækkað samfleytt í fimm
mánuði um u.þ.b. 1% eða meira á
milli mánaða. „Óvenjulegt er hversu
stöðug hækkunin hefur verið að
undanförnu,“ segir í Hagvísum.
Greiðslukortavelta í seinasta
mánuði var 10,5% meiri að raungildi
en fyrir ári og 8,3% meiri fyrstu
þrjá mánuði ársins. Hefur notkun
greiðslukorta ekki aukist jafnört í
tvö ár. Hins vegar var ársvöxtur
dagvöruveltu öllu dræmari en mán-
uðina á undan, að því er fram kemur
í Hagvísum Seðlabankans.
Þar kemur einnig fram að inn-
flutningur varanlegrar neysluvöru
fyrstu tvo mánuði ársins jókst á
föstu gengi um 57% milli ára, sem er
að mati Seðlabankans í takt við aðr-
ar vísbendingar um vaxandi einka-
neyslu í þjóðfélaginu.
Tekjur af sölu Búnaðarbanka
stórbættu afkomu ríkissjóðs
„Tekjur af sölu Búnaðarbankans
stórbættu afkomu ríkissjóðs til
marsloka og uppsveifla heldur
áfram í tekjum af óbeinum sköttum.
Raunvöxtur tekna af virðisauka-
skatti um 10% og auknar tekjur af
innflutningsgjöldum bera vitni um
aukin þjóðarútgjöld. Gjöld ríkis-
sjóðs hækka enn umfram tekjur án
eignasölu, einkum vegna mikilla út-
gjalda til félags- og menntamála.
Tekjur voru nær 11 [milljarðar kr.]
umfram gjöld fyrstu 3 mánuði árs-
ins samanborið við 0,5 [milljarða
kr.] halla á sama tíma 2002. Sé horft
framhjá eignasölu versnaði hins
vegar afkoma ríkisins í 4½ [millj-
arða kr.] halla á fyrstu 3 mánuðum
2003 samanborið við 0,5 [milljarða
kr.] halla á sama tíma 2002,“ segir í
Hagvísum.
Atvinnuleysi á landinu mældist
4% í seinasta mánuði. Launavísitala
Hagstofunnar hækkaði um 0,1%
milli febrúar- og marsmánaða og
undanfarna 12 mánuði hefur kaup-
máttur launa aukist um 3,4%, skv.
Hagvísum Seðlabanka Íslands.
Minni verðbólga en búist var við samkvæmt Hagvísum
„Verð íbúðarhúsnæðis
hækkar án afláts“
Klemmdist
milli bíls og
járnplatna
VINNUSLYS varð á Svalbarðseyri
um klukkan 20.30 í gærkvöldi þegar
maður klemmdist á milli vörubíls og
þungra járnplatna sem verið var að
hífa upp á bílinn.
Slysið olli því að maðurinn átti erf-
itt um andardrátt og að sögn lögregl-
unnar á Akureyri virtist hann illa
haldinn. Hann var því fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til
aðhlynningar.
Samkvæmt upplýsingum frá
lækni á slysadeild sjúkrahússins var
líðan mannsins þokkaleg í gærkvöldi
og ekki útlit fyrir að meiðsl hans
væru mjög alvarleg. Það átti þó eftir
að rannsaka hann nánar.
Einkavæðingarnefnd um Íslenska aðalverktaka
Rætt við AV ehf. um
kaup á hlut ríkisins
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu hefur ákveðið að
ganga til viðræðna við stjórnendur
og starfsmenn Íslenskra aðalverk-
taka hf. um kaup þeirra á 39,86%
hlut ríkisins í fyrirtækinu. Hópurinn
myndar eignarhaldsfélagið AV ehf.
sem skilaði inn tilboði í hlutinn.
Einkavæðingarnefnd auglýsti eft-
ir kaupendum í mars sl. en auk AV
ehf. sendu Jarðboranir hf., Joco ehf.
og JB byggingafélag ehf. og Tré-
smiðja Snorra Hjaltasonar ehf. inn
tilboð. Segir í fréttatilkynningu frá
nefndinni að ákvörðunin sé í sam-
ræmi við mat Verðbréfastofunnar á
þeim tilboðum sem bárust. Segir í
tilkynningunni að ákveðið hafi verið
að leita til Verðbréfastofunnar um
mat á tilboðunum út frá þeim for-
sendum sem skilgreindar voru í skil-
málum sölunnar og mat hennar hafi
verið að ganga ætti fyrst til viðræðna
við AV ehf. Þessi niðurstaða hafi ver-
ið lögð fyrir ráðherranefnd um
einkavæðingu, sem staðfesti hana.
Að sögn Stefáns Friðfinnssonar,
forstjóra Íslenskra aðalverktaka, er
gert ráð fyrir að hefja viðræður
strax eftir helgi. Hann segist bjart-
sýnn á að kaup AV ehf. á hlutnum
muni ganga eftir. „Við sem stöndum
að þessu félagi erum afskaplega
fegnir að þetta hafi verið niðurstað-
an og ég að auki fyrir hönd fyrirtæk-
isins að ljúka þessari óvissu sem hef-
ur verið óþægileg,“ segir hann.
Búist er við að niðurstaða fáist í
viðræðurnar innan tveggja vikna.
KARLMAÐUR sem slasaðist 30.
mars sl. á Vatnsleysuströnd, þegar
300 kg heybaggi féll á hann, lést af
völdum áverka sinna á Landspítal-
anum í Fossvogi á fimmtudag.
Hinn látni hét Þorkell Krist-
mundsson til heimilis að Efri-
Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd.
Hann fæddist 12. september árið
1925 og var ókvæntur og barnlaus.
Slysið varð með þeim hætti að
heybagginn féll á hann af vörubíls-
palli úr þriggja metra hæð með fyrr-
greindum afleiðingum.
Lést af
slysförum
Kynna
nýja með-
ferð við
ónæmis-
göllum
LIND, félag um meðfædda ónæm-
isgalla, mun kynna nýja tegund
heimameðferðar fyrir sjúklinga með
ónæmisgalla á aðalfundi félagsins
næstkomandi þriðjudag.
Nýjungin felst í því að sjúklingar
og aðstandendur þeirra geti sjálfir
stjórnað meðferð í heimahúsum eftir
ítarlegt nám og leiðsögn en nú þegar
hefur einn sjúklingur hér á landi haf-
ið slíka meðferð með góðum árangri.
Þekktir gallar 100 talsins
Þekktir gallar innan ónæmiskerf-
isins eru um 100 og eru sumir þeirra
nánast einkennalausir en öðrum
fylgja alvarlegri einkenni. Einstak-
lingar sem eru með meðfædda
ónæmisgalla eiga fremur á hættu að
fá sýkingar en heilbrigðir einstak-
lingar og erfiðara er að ráða við sýk-
ingarnar. Einkenni sem bent gætu
til ónæmisgalla eru meðal annars
tíðar eyrnabólgur, endurtekin graft-
arkýli í húð eða á innri líffærum og
viðvarandi sveppasýking í munnholi.
Framsögumenn á aðalfundinum
verða Sigurveig Þ. Sigurðardóttir,
læknir og sérfræðingur í barnalækn-
ingum og klínískri ónæmisfræði, og
Sigrún Þóroddsdóttir hjúkrunar-
fræðingur.
RAKEL McMahon, 19 ára, var
kjörin ungfrú Ísland.is í gær-
kvöldi í höfuðstöðvum B&L sem
hýstu fegurðarsamkeppnina. Rak-
el er nemandi í Menntaskólanum í
Kópavogi og starfar með náminu
í versluninni Mango í Smáralind.
Í öðru sæti varð Jónína Björk
Vilhjálmsdóttir, 22 ára við-
skiptanemi í Háskólanum í
Reykjavík, og í þriðja sæti varð
hin tvítuga Svetlana Akoulova,
nemi í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Fjöldi manns fylgdist
með keppninni.
Morgunblaðið/Golli
Rakel McMahon er fyrir miðju, Jónína Björk Vilhjálmsdóttir til vinstri og Svetlana Akoulova til hægri.
Rakel McMahon ungfrú Ísland.is
♦ ♦ ♦
22 HÆTTA HJÁ BÍ
Ríflega fjórðungur helstu stjórn-
enda Búnaðarbanka Íslands hefur
sagt upp störfum og hyggst færa sig
yfir til Landsbanka Íslands en af 40
stjórnendum hafa 12 sagt upp. Sam-
tals hafa 22 lykilstarfsmenn Bún-
aðarbankans ákveðið að færa sig um
set að undanförnu.
Kuldakast næstu daga
Kólna á á landinu öllu næstu daga
en því veldur heimskautaloft sem
streymir hingað úr norðri. Búist er
við snjókomu og miklum vindi um
norðan- og austanvert landið og er
gert ráð fyrir að kuldinn verði mest-
ur á þriðjudag.
Óku á 190 km hraða
Tveir 17 ára piltar voru teknir í
Ártúnsbrekkunni í fyrrakvöld þar
sem þeir óku samsíða á tveimur
sportbílum á 190 kílómetra hraða.
Prófessor í véla- og iðnverkfræði
segir að banaslys hefði verið óhjá-
kvæmilegt hefðu piltarnir lent í
árekstri.
Fullfermi af úthafskarfa
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þor-
steinsson EA kom í morgunsárið
með fullfermi af úthafskarfa til hafn-
ar í Reykjavík eftir 14 daga veiðiferð
á Reykjaneshrygg. Verðmæti aflans
er áætlað um 50 milljónir króna.
Menningarhús endurbyggð
Samkomulag um endurbyggingu
þriggja menningarhúsa á Ísafirði
var undirritað í gær en um er að
ræða gamla sjúkrahúsið, Edinborg-
arhúsið og sal tónlistarskólans. Rík-
isstjórnin ákvað á fundi sínum sl.
þriðjudag að verja 251 milljón króna
til verkefnisins.
Menem með forystu
Carlos Menem, fyrrverandi for-
seti Argentínu, nýtur mests fylgis
fyrir forsetakosningarnar sem fram
fara í landinu á morgun. Ólíklegt er
þó að nokkur frambjóðandi fái næg-
an stuðning í fyrstu umferð og því
verður væntanlega kosið aftur milli
tveggja efstu manna.
Óvíst að vopnin finnist
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur gefið í skyn í fyrsta
sinn að óvíst sé hvort gereyðing-
arvopn finnist í Írak. Vera kunni að
Írakar hafi eytt þeim öllum áður en
stríðið hófst.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 36
Viðskipti 12/13 Viðhorf 40
Erlent 14/16 Kirkjustarf 44/47
Höfuðborgin 20 Minningar 48/53
Akureyri 22 Myndasögur 56
Suðurnes 24 Bréf 56/57
Árborg 25 Dagbók 58/59
Landið 26 Íþróttir 60/63
Neytendur 27 Leikhús 64
Heilsa 28 Fólk 64/69
Listir 32/34 Bíó 66/69
Úr Vesturheimi 34 Ljósvakamiðlar 70
Umræðan 35/42 Veður 71
* * *
L a u g a r d a g u r
26.
a p r í l ˜ 2 0 0 3