Morgunblaðið - 26.04.2003, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í SEINASTA útdrætti happdrætt-
isársins hjá Happdrætti DAS í vik-
unni kom 10 milljóna króna vinn-
ingur á miða í eigu sjómannsekkju
sem býr í þjónustuíbúðum Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
Í frétt frá Happdrætti DAS segir
að vinningshafinn hafi jafnan átt
fjóra til fimm miða en haldið eftir
einum þegar hún fór á eftirlaun.
Hún hefði keypt miða í upphafi til
að styðja við málefnið. Vinningur-
inn tryggði henni fjárhagslegt ör-
yggi í ellinni sem væri afar þægileg
tilfinning.
Nýtt happdrættisár er nú að
hefjast og verður fyrsti útdráttur 8.
maí. Vinningum verður fjölgað um
20% og verður heildarfjöldi þeirra
51 þúsund. Verðmæti þeirra verður
626 milljónir króna og verður dreg-
ið vikulega á fimmtudögum. Í
hverri viku er aðalvinningur fjög-
urra milljóna króna íbúðar- eða
bílavinningur á tvöfaldan miða en
tvær milljónir á einfaldan miða.
Einfaldur miði kostar áfram 800
krónur.
Þá segir í frétt frá happdrættinu
að það hafi lengi verið fjárhags-
legur bakhjarl við uppbyggingu
dvalarheimila. Á næsta ári verða 50
ár liðin frá stofnun þess. Þörf sé á
frekari uppbyggingu og nú sé unnið
að byggingu 60 rúma hjúkrunar-
álmu við Hrafnistu í Reykjavík.
Nýtt happdrættis-
ár hjá DAS
HELMINGUR þeirra 22 sem sagt
hafa upp störfum hjá Búnaðar-
banka Íslands og ráðið sig hjá
Landsbanka Íslands á undanförn-
um dögum var í stöðu fram-
kvæmdastjóra eða forstöðumanna
hjá Búnaðarbanka. Þrír af fimm
framkvæmdastjórum hafa sagt
upp hjá Búnaðarbanka og þriðj-
ungur forstöðumanna. Flestir
þeirra sem sagt hafa upp störfuðu
á verðbréfasviði.
Að sögn Sólons R. Sigurðssonar,
bankastjóra Búnaðarbanka Ís-
lands, hafa viðræður átt sér stað
milli Búnaðarbanka og Lands-
banka um að reyna að ná saman
um lok á þessu áhlaupi. Segist
hann vonast til þess að því sé nú
lokið. Jafnframt er unnið að sam-
komulagi um hvenær þeir, sem eru
bundnir samkvæmt ráðningar-
samningum, geti hafið störf hjá
Landsbankanum. Sólon segir að
þar sé verið að tala um dagsetn-
ingarnar 1. júní og 10. júní. „Átta
af þeim starfsmönnum sem sagt
hafa upp munu starfa hjá Bún-
aðarbankanum út maí vegna
þeirra verkefna sem þeir eru í en
aðrir eru hættir hjá Búnaðarbank-
anum,“ segir Sólon.
„Það er mikil eftirsjá að þessu
fólki enda allt hæft og gott starfs-
fólk,“ segir Sólon.
Samið við 20 manns nú þegar
Hjá Landsbankanum fékkst
staðfest að gengið hefði verið frá
ráðningarsamningum við um 20
starfsmenn sem koma frá Bún-
aðarbankanum. Ekki sé hægt að
gefa upp hvenær þeir hefji störf.
Í gær var gengið frá tímabund-
inni ráðningu Friðriks Halldórs-
sonar í starf framkvæmdastjóra
verðbréfasviðs Búnaðarbankans.
Friðrik starfaði áður sem forstöðu-
maður verðbréfasviðs bankans eða
frá 1993–1996 og sem forstöðu-
maður fjárstýringar frá 1996 til
ársins 1999. Frá janúar 2002 hefur
Friðrik starfað sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri einstaklingssviðs
bankans.
Þrír af fimm framkvæmda-
stjórum farnir
Samkvæmt skipuriti Búnaðar-
bankans frá 7. febrúar sl. skiptist
starfsemi bankans í fimm svið og
er framkvæmdastjóri yfir hverju
sviði. Framkvæmdastjórar á fyr-
irtækjasviði, verðbréfasviði og
rekstrarsviði eru allir komnir yfir
til Landsbanka Íslands. Flestir
þeirra sem sagt hafa upp störfuðu
á verðbréfasviði. Alls hafa fimm af
tíu forstöðumönnum verðbréfa-
sviðs, sem nafngreindir eru á
skipuritinu, sagt upp. Þá hafa þrír
forstöðumenn rekstrarsviðs sagt
upp auk forstöðumanns lögfræði-
deildar.
Alls hafa þrettán manns sagt
upp störfum á verðbréfasviði Bún-
aðarbanka. Framkvæmdastjóri
sviðsins, Yngvi Örn Kristinsson,
sagði upp störfum og fór yfir til
Landsbankans. Hið sama gerðu
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningar og rannsókna,
Guðmundur Guðmundsson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar,
Ívar Guðjónsson, forstöðumaður
eigin fjárfestingar, og Jón Þor-
steinn Oddleifsson, forstöðumaður
fjárstýringar. Fimmti forstöðu-
maðurinn á verðbréfasviði sem
sagt hefur upp er Steinþór Gunn-
arsson. Hann sagði upp nokkru
fyrr en hinir en mun starfa hjá
Landsbankanum nú. Sjö starfs-
menn til viðbótar hafa sagt upp á
verðbréfasviði en þar störfuðu um
90 manns.
Á rekstrarsviði Búnaðarbankans
hættu fjórir, auk framkvæmda-
stjórans, Sigurjóns Árnasonar,
sem nú er annar bankastjóra
Landsbankans. Atli Atlason, for-
stöðumaður starfsmannahalds, Jó-
hann Þór Sigfússon, forstöðumað-
ur upplýsingatækni, og Viggó
Ásgeirsson, forstöðumaður vef-
deildar, sögðu allir upp og einn
starfsmaður sviðsins til viðbótar.
Elín Sigfúsdóttir, framkvæmda-
stjóri fyrirtækjasviðs Búnaðar-
banka, hefur sagt upp störfum og
fer yfir til Landsbanka. Tveir
starfsmenn að auki hafa sagt upp
á fyrirtækjasviði.
Forstöðumaður lögfræðideildar,
Ársæll Hafsteinsson, er farinn yfir
til Landsbanka og einn starfsmað-
ur deildarinnar að auki.
Flestar uppsagnir
á verðbréfasviði
!" #
!
"
$%& #$%
$%& &'
'& #
()!*
!%&
+,%&
%
( &
- &
)*+&&
" % & .
,
--
/ , &
01
" ",%
&
2%&*!*
# ,.&
.
/
)3*!*
-%& ,
"
/+
*
4
, &
(
0 4%
"
#(
2%
,/+
#
%&
( !,%& *
&&+
&0&
%
/ 1&
%
!"
#
$
%
%
#
%
%
$
0
*
# 2&&+
3+
(
4
.
" %
,&(
5
#
/
! (
5 -
/
! (
6
5
# " -
" % %
%
%
# &&
4
,
' &
%
7-
/
1 #
2
"
%
8
&
Tuttugu og tveir færa sig úr Búnaðarbanka í Landsbanka
PÓST- OG fjarskiptastofnun hefur
gert Landssíma Íslands hf. að lækka
heildsöluverð inn í GSM-farsímanet
sitt um 15% að meðaltali frá og með
1. júní nk. Heildsöluverð hjá Lands-
símanum lækki því úr 11 krónum á
dagtaxta og úr 10 krónum á nætur-
taxta í eitt verð, 8,92 krónur.
Lækkun þessi gefur fjarskiptafyr-
irtækjunum svigrúm til þess að
lækka verð til neytenda á símaþjón-
ustu sem tengist farsímakerfi
Landssíma Íslands.
Heildsöluverð í GSM-netum er
það verð sem fjarskiptafyrirtæki
greiða til að viðskiptavinir þeirra
geti hringt í notendur annarra GSM-
farsímakerfa.
Sambærileg heildsöluverð hjá Og
Vodafone (áður Íslandssími) eru nú
13,50 krónur og er verðmunur á
heildsöluverði félaganna því 2,50
krónur á dagtaxta fyrir ákvörðun
þessa.
Þróun heildsöluverðs erlendis er
með svipuðum hætti. Í Noregi og
Svíþjóð hafa systurstofnanir Póst-
og fjarskiptastofnunar gert farsíma-
fyrirtækjum með umtalsverða mark-
aðshlutdeild að lækka heildsöluverð.
Sambærilegt verð í Noregi og Sví-
þjóð eru um ISK 8, en það er lægsta
heildsöluverð í Evrópu nú. Í Bret-
landi er heildsöluverð á dagtaxta um
15 krónur og mun lækka í um 9 krón-
ur árið 2005 í þremur 15% skrefum.
Póst- og fjarskiptastofnun mun í
framhaldi af ákvörðun þessari kanna
markaðsstöðu Og Vodafone í þeim
tilgangi að kanna hvort fyrirtækið
hafi umtalsverða markaðshlutdeild í
skilningi fjarskiptalaga. Reynist svo
vera getur Póst- og fjarskiptastofn-
un m.a. lagt þá kvöð á fyrirtækið að
það verði að bjóða heildsöluverð inn í
net sitt á kostnaðargrundvelli eins
og Landssíma Íslands er skylt að
gera.
Landssímanum
gert að lækka
heildsöluverð
NEMENDUR 7. bekkjar grunn-
skólanna á Egilsstöðum og Hall-
ormsstað hafa opnað nýja heimasíðu
um Færeyjar.
Heimasíðan er hluti af verkefninu
Fitur, sem efla á samvinnu milli ís-
lenskra og færeyskra skólabarna og
er hér um að ræða samstarf barna í
Rúnavík og á Austur-Héraði.
Heimasíðan var unnin á rúmum
mánuði og inniheldur greinargott
yfirlit yfir mannlíf og atvinnuvegi í
Færeyjum, auk myndefnis.
Nemendaskipti eru hluti verkefn-
isins og munu nemendur frá Rúna-
vík koma austur í vor og íslensku
krakkarnir fara til Færeyja í haust.
Eiríkur Bj. Björgvinsson opnaði
heimasíðuna formlega að viðstödd-
um nemendunum sem útbjuggu
hana, ásamt kennurum og skóla-
stjórum.
Slóð Færeyjasíðunnar er www.eg-
ilsstadir.is/faereyjar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Bæjarstjóri A-Héraðs opnaði nýja heimasíðu um Færeyjar, en nemendur í
7. bekk grunnskólanna á Egilsstöðum og Eiðum unnu hana.
Íslensk og færeysk
skólabörn í samstarfi
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
STJÓRNENDUR Landsbankans
og ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo hafa skrifað undir
samninga um verklokaábyrgð,
ábyrgð vegna fyrirframgreiðslu
og almenn bankaviðskipti vegna
framkvæmda við Kárahnjúka-
virkjun. Landsbanki Íslands, aðal-
viðskiptabanki Impregilo á Ís-
landi, í samvinnu við innlendar
fjármálastofnanir og ítalska
banka, stendur á bak við verkloka-
ábyrgð og ábyrgð vegna fyrir-
framgreiðslu til Landsvirkjunar.
Ábyrgðirnar eru bæði vegna
stíflu- og aðrennslisganga Kára-
hnjúkavirkjunar og gilda meðan á
framkvæmdum stendur.
LÍ og Impregilo
semja um ábyrgðir