Morgunblaðið - 26.04.2003, Síða 22
AKUREYRI
22 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Lögregludagurinn
26. apríl 2003
Kynning á lögreglunni - lögreglustöðvar opnar
Í tilefni af 200 ára afmæli hinnar einkennisklæddu lögreglu verður
laugardagurinn 26. apríl haldinn hátíðlegur hjá lögreglu um allt land.
Verða lögreglustöðvar opnar almenningi og störf lögreglu kynnt og ýmiss búnaður hennar.
Sérstöku afmælismerki lögreglunnar verður dreift til barna.
Lögregludagurinn hefst kl. 11.00 með ávarpi dómsmálaráðherra, frú Sólveigar Pétursdóttur,
í húsakynnum Sögusýningar lögreglunnar á Skúlagötu 21, Reykjavík.
Að loknu ávarpi ráðherrans mun sérsveit Ríkislögreglustjórans vera með sýningu
í samvinnu við lögregluna í Reykjavík og Landhelgisgæsluna.
Opið hús
Umdæmi lögreglustjóra
Akranes 13.00-17.00
Akureyri 11.00-17.00 Vegna breytinga á húsnæði verður lögreglustöðin ekki opin
en kynning og sögusýning lögreglu verður á Glerártorgi.
Sérstök dagskrá fyrir ungt fólk o.fl.
Blönduós 13.00-16.00
Bolungarvík 13.00-16.00
Borgarnes 11.00-17.00
Búðardalur 13.00-16.00
Eskifjörður 13.30-16.00 Fáskrúðsfjörður, Djúpivogur, Neskaupstaður og Eskifjörður.
Hafnarfjörður 11.00-17.00
Hólmavík 11.00-17.00
Húsavík 11.00-17.00
Hvolsvöllur 13.00-16.00
Höfn 11.00-17.00
Ísafjörður 11.00-17.00
Keflavík 11.00-17.00 Lögreglustöðin í Grindavík verður einnig opin frá 13.00-16.00
Keflavíkurflugvöllur 11.00-17.00 Lögreglustöðin við Leifsstöð.
Kópavogur 11.00-17.00
Lögreglusk. ríkisins 13.00-16.30 Skipulögð dagskrá með íþróttakeppni, kynningu, sýningu o.fl.
Ólafsfjörður 13.00-17.00
Patreksfjörður 13.00-15.00
Reykjavík 11.00-17.00 Aðallögreglustöðin og hverfalögreglustöðvar í Reykjavík,
Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, nema Miðborgarstöðin við
Tryggvagötu þaðan sem haldið er úti löggæslu.
Ríkislögreglustjórinn 11.00-17.00 Sögusýning lögreglunnar,
kynning á sérsveit og umferðardeild Ríkislögreglustjórans.
Sauðárkrókur 13.00-16.00
Selfoss 11.00-17.00
Seyðisfjörður 13.00-15.00 Egilsstaðir, Vopnafjörður og Seyðisfjörður.
Siglufjörður 13.00-17.00
Snæfellsnes 13.00-16.00 Stykkishólmur, Snæfellsbær og Grundarfjörður.
Vestmannaeyjar 11.00-17.00
Vík 11.00-15.00
Ríkislögreglustjóri hvetur almenning um allt land til að koma
á lögreglustöðvar og sýningar lögreglu, ræða við lögreglustjóra
og lögreglumenn og kynnast þannig starfsemi lögreglunnar. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
alþingiskosninga sem fram fara
laugardaginn 10. maí 2003 er hafin.
Kosið er frá kl. 9:00 til 21:00 á skrifstofu
embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri,
3. hæð, frá mánudegi til föstudags og
milli kl. 14:00 og 17:00 á laugardögum
og sunnudögum.
Á kjördag er opið frá kl. 10:00 til 21:00.
Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dalvík
er kosið milli kl. 9:00 og 15:00 frá mánudegi
til föstudags.
Kosið er hjá hreppstjórum í Grýtubakkahreppi
og Grímsey eftir samkomulagi við þá.
Sýslumaðurinn á Akureyri, 25. apríl 2003,
Björn Jósef Arnviðarson.
Þuríður Backman alþingismaður
sem skipar 2. sæti VG í Norðaust-
urkjördæmi er gestur á 15.
laugardagsfundi hjá Vinstrihreyf-
ingunni grænu framboði á Akureyri
í dag, laugardaginn 26. apríl kl. 11 í
kosningamiðstöðinni við Hafn-
arstræti 94. Þuríður ræðir heilbrigð-
ismál, umhverfismál og kosninga-
baráttuna vítt og breitt á þessum
fundi.
Í DAG
NÁMSKEIÐ um ítalska tónskáldið
Giuseppe Verdi og eitt frægasta
verk hans, Sálumessuna, verður
haldið á Akureyri í næstu viku. Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands í sam-
vinnu við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri og Símenntunarmiðstöð
Eyjafjarðar efnir til námskeiðsins.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
mun ráðast í það viðamikla verkefni
að flytja Sálumessu Verdis á tón-
leikum 11. maí næstkomandi og
munu Kristján Jóhannsson, Krist-
inn Sigmundsson og Björg Þór-
hallsdóttir verða í einsöngshlut-
verkum.
Námskeiðið verður kennt á
tveimur kvöldum og er hið fyrra
næstkomandi mánudagskvöld, 28.
apríl en þá verður fjallað um ævi og
stíl Verdis, sálumessuformið og
sögu þess. Síðara kvöldið, 30. apríl,
verður Sálumessan skoðuð og
skýrð. Námskeiðin standa frá kl. 20
til 21.30 en á þeim verður mikið
notast við viðeigandi tón- og mynd-
skeið. Námskeiðið er ætlað öllu
áhugafólki um tónlist og fer fram á
sal Tónlistarskólans á Akureyri við
Hafnarstræti 81. Þátttakendur fá
afslátt á hátíðartónleikana.
Námskeið um Verdi
og Sálumessuna
MÓTTÖKUATHÖFN verður á Ak-
ureyrarflugvelli næstkomandi
mánudagsmorgun í tilefni af því að
þá hefst áætlunarflug flugfélagsins
Air Greenland milli Akureyrar og
Kaupmannahafnar. Flutt verða
ávörp og boðið upp á veitingar. Þeir
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á
Akureyri og Peter Grönvold Sam-
uelsen stjórnarformaður Air Green-
land munu svo með táknrænum
hætti opna hina nýju flugleið milli Ís-
lands og Danmerkur.
Fulltrúar grænlensku heima-
stjórnarinnar, stjórnendur Air
Greenland auk bæjarstjórans á Ak-
ureyri verða í þessu fyrsta flugi fé-
lagsins til Akureyrar. Flogið verður
tvisvar í viku framvegis, á mánudög-
um og fimmtudögum. Sett hefur ver-
ið upp ný heimasíða á Netinu á slóð-
inni www.airgreenland.is þar sem
tiltækar eru allar nauðsynlegar upp-
lýsingar um flugið, þjónustu sem í
boði er á flugleiðinni, tollfrjálsan
varning og ýmislegt fleira.
Áætlunarflug Air
Greenland að hefjast
Móttöku-
athöfn á
Akureyr-
arflugvelli
VORKOMA menningarmála-
nefndar Akureyrarbæjar var haldin
í Ketilhúsinu á sumardaginn fyrsta.
Þar var tilkynnt um starfslaun lista-
manna næsta starfsár, auk þess sem
veittar voru viðurkenningar menn-
ingar- og húsfriðunarsjóðs. Jónas
Viðar Sveinsson myndlistarmaður
hlýtur starfslaun listamanna til 9
mánaða og Jóhann Árelíuz rithöf-
undur hlýtur starslaun til þriggja
mánaða.
Þá var í fyrsta sinn veittur sér-
stakur nýsköpunarstyrkur menn-
ingarsjóðs Akureyrar. Yean Fee
Quay hlaut þennan fyrsta nýsköp-
unarstyrk Menningarsjóðs. Ágúst
Hafsteinsson arkitekt hlaut við-
urkenningu fyrir byggingalist,
Anna Guðný Sigurgeirsdóttir hlaut
viðurkenningu Húsverndarsjóðs og
Jón S. Arnþórsson hlaut viðurkenn-
ingu Menningarsjóðs.
Sú nýbreytni var viðhöfð um
starfslaun listamanna að auglýst
var eftir umsóknum um tvenn
starfslaun, til níu og þriggja mán-
aða. Mikill áhugi var á meðal lista-
manna í bænum og bárust 25 um-
sóknir um starfslaun. Jónas Viðar
myndlistarmaður er atvinnumaður
í sinni list og hefur nær eingöngu
unnið að myndlist um þriggja ára
skeið. Jónas Viðar lauk fjögurra
ára námi frá Myndlistarskólanum á
Akureyri og fjögurra ára há-
skólanámi í myndlist á Ítalíu og
hlaut hann viðurkenningar frá báð-
um skólum fyrir góðan náms-
árangur. Frá námslokum hefur
hann sýnt á tugum einka- og sam-
sýninga heima og erlendis og á
þessu og næsta ári eru fyrirhug-
aðar sýningar og listkynningar hér-
lendis og erlendis.
Jóhann Árelíuz rithöfundur hef-
ur menntað sig bæði hér heima og í
Svíþjóð. Hann hefur gefið út nokkr-
ar ljóðabækur og fyrir eina þeirra,
Tehús ágústmánans, fékk hann
fyrstu verðlaun í Bókmennta-
samkeppni Almenna bókafélagsins
árið 1991. Væntanleg er í Svíþjóð
ljóðabók með ljóðum Jóhanns á ís-
lensku og sænsku. Þá hefur Jóhann
haft í smíðum verk sem gengur
undir nafninu „Akureyrarbókin“ og
hefur hann í hyggju að nýta starfs-
launin til að koma fyrstu hlutum
þess verks til útgáfu.
Byggingarlistaverðlaun bæjarins
eru veitt fyrir ákveðin heildarsvip
sem einkenna verk Ágústar Haf-
steinssonar á síðustu árum. Sér-
staklega er litið til viðbyggingar við
Oddeyrarskóla, einbýlishúsa við
Miðteig og Mosateig og fjölbýlis-
húsa við Mýrarveg. Anna Guðný
Sigurgeirsdóttir fær viðurkenningu
Húsverndarsjóðs vegna endurbóta
á gömlu húsi sínu við Aðalstæti 50.
Húsið er einnar hæðar timburhús
með risi og lágum steinhlöðnum
grunni og undir húsinu er að hluta
til lítill kjallari. Þær endurbætur
sem Anna Guðný hefur staðið fyrir
hafa miðast við að færa húsið sem
næst því útliti og gerð sem var í
upphafi. Húsið er svo gott sem kom-
ið í endanlegt horf að utan en enn
standa yfir endurbætur innan dyra.
Jón S. Arnþórsson hlaut við-
urkenningu Menningarsjóðs fyrir
framlag til menningarmála í bæn-
um en hann vann um árabil að
stofnun Iðnaðarsafnsins á Akureyri
af mikilli þrautseigju. Safnið var
opnað 17. júní 1998 og hefur Jón
verið safnstjóri allar götur síðan. Ef
ekki hefði komið til frumkvæði Jóns
hefðu mikilvægir kaflar úr sögu
Akureyrar á 20. öld getað glatast.
Yean Fee Quay hefur starfað sem
sýningarstjóri bæði í New York og
Singapore en þaðan fluttist hún til
Akureyrar. Hún hefur í hyggju að
þróa þjónustu á sviði safnafræðslu
fyrir söfn af ýmsum toga á landinu.
Tilraunaverkefni hennar hefur ver-
ið unnið í samvinnu við Listasafnið
á Akureyri og má sjá hluta af af-
rakstri þess á heimasíðu safnsins.
Vorkoma menningarmálanefndar Akureyrarbæjar í Ketilhúsinu
Jónas Viðar og Jóhann
Árelíuz hlutu starfs-
laun listamanna
Morgunblaðið/Kristján
Einstaklingarnir sem fengu viðurkenningar og starfslaun á vorkomu
menningarmálanefndar. Fremri röð f.v.: Jóhann Árelíuz, Anna Guðný Sig-
urgeirsdóttir og Yean Fee Quay. Aftari röð f.v.: Ágúst Hafsteinsson, Jónas
Viðar Sveinsson og Jón S. Arnþórsson.