Morgunblaðið - 26.04.2003, Síða 28
HELSTU orkugjafar Íslend-
inga eru hitaveitur og vatns-
virkjanir. Þær eru í rauninni
ný fyrirbæri því að fram til
ársins 1973 notuðu 45% heim-
ila olíu sem orkugjafa bæði
fyrir rafmagn og hita. Síðan
voru byggðar vatnsvirkjanir
og hitaveitur og nú eru aðeins
2% heimila háð olíu sem orku-
gjafa. Þegar orkuframleiðslan
er skoðuð kemur á daginn að
Íslendingar eru meðal hrein-
legustu þjóða heims. Íslend-
ingar geta státað af því, en
samt sem áður þurfum við að
huga að okkar daglegu orku-
neyslu. Það er ódýrara og um-
hverfisvænna að nota eins lítið
rafmagn og við teljum okkur
komast af með; við þurfum
ekki að fórna öllu, heldur vera
vakandi fyrir óþarfa neyslu.
Orka
Dæmi um orkufrekustu tæk-
in á heimilinu eru meðal ann-
ars ísskápar og frystiskápar
og -kistur.
Vistvernd í verki – Ráð vikunnar
Kæli- og frystiskápar
– Hitastig kæliskápa á að
vera 4°C og -18°C í frystiskáp.
Gott er að þíða frystihólf öðru
hvoru.
– Mikilvægt er að það lofti
vel um tækin, drögum þau
fram og ryksugum að aftan
(einu sinni á ári).
– Höfum
allt í röð
og reglu í
ísskápnum
svo ekki
þurfi að hafa
hann opinn
lengi til að
leita að því sem mann van-
hagar um.
– Tóm frystigeymsla notar
næstum því jafn mikla orku og
full.
Hugleiðing vikunnar
Efastu aldrei um að lítill
hópur meðvitaðra og ákveð-
inna einstaklinga geti breytt
heiminum. Þeir eru þeir einu
sem hafa gert það.
NEYTENDUR
28 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
F R U M S
Nýr AVENSIS verður frumsýndur í sýningar -
sölum Toyota á Akureyri, Selfossi og í
Reykjanesbæ laugard. 26 apríl frá kl.12.00-
16.00 og sunnud. 27. apríl frá kl.13.00-16.00.
Nýr AVENSIS nýtur þess að vera af sterkum
stofni, hlaðinn fullkomnustu tækni frá Toyota.
Þú upplifir nýja fjöðrun og meira akstursöryggi,
öflugri og vandaðri vél og mun meiri munað
í allri innréttingu. Nýr AVENSIS er bæði
liprari og sterkari en áður og útlits hönnunin
er kraftmikil og fjaður mögnuð. Nýr Avensis
var kjörinn besti bíllinn í sínum flokki af hinu
kröfuharða bílatímiriti What Car í Bretlandi.
Vertu því viðbúin að allar þínar væntingar
verði uppfylltar. Það eru mörg einstök atriði
sem gera nýjan AVENSIS að fullkominni
gæðabifreið: sjálfvirkur regn skynjari á
þurrkum, tölvustýrð loftræsting í miðstöð,
klemmuvörn í rúðum, hágæða hljóm flutnings -
tækni og einn fullkomnasti fjöðrunar -,
hemlunar- og öryggisbúnaður sem fyrirfinnst
eru aðeins nokkur dæmi um þessi atriði.
Komdu og prófaðu. Komdu og upplifðu
nýjan AVENSIS. www.toyota.is
NÝR AVENSIS - Sannkallað meistaraverk
VERSLUNARKEÐJAN Sains-
bury’s hefur tekið höndum saman
við heilsugæsluna í Bretlandi um
fræðslu á fituinnihaldi matvæla.
Markmiðið er að reyna að fá sjúk-
linga til þess að velja hollari kost.
Næringarsérfræðingur verslunar-
innar, Kate Arthur, segir að matar-
ráðgjafar muni leiða fólk um versl-
unina og benda því á fituminni
útgáfur af uppáhaldsréttunum sín-
um. Sem dæmi má nefna að léttari
útgáfan af tilbúnum korma-kjúk-
lingarétti frá Sainsbury’s inniheldur
fjögur grömm af fitu, en hefðbund-
inn tilbúinn korma-kjúklingur frá
versluninni 38 grömm. Heilsuleið-
sögn verslunarinnar mun einnig fela
í sér aðstoð við val á ódýrari vöru-
flokkum, svo sem dósaávöxtum og
frosnu grænmeti.
Haft er eftir talsmanni offitusjúk-
linga, Ian Campbell lækni, að margir
skjólstæðinga hans vilji leggja allt í
sölurnar til þess að megra sig, en eigi
oft í vandræðum með að finna heilsu-
samlegt fæði í verslunum. Einnig
bendir hann á að breska heilsugæsl-
an, NHS, hafi ekki tök á því að að-
stoða þetta fólk.
Bílakúltúr og verðlagning
Tim Lang, prófessor í manneld-
ismarkmiðum við City University,
tekur undir það, að breska heilsu-
gæslan hafi ekki ráð á einstaklings-
ráðgjöf í matarinnkaupum, en telur
jafnframt að verslanir eigi að draga
úr framboði á fituríkum afurðum.
Einnig telur hann að stórmarkaðir
eigi að ráðast að félagslegum þáttum
offituvandans. „Stórverslanir á borð
við Sainsbury’s hafa gert sitt til þess
að tryggja að viðskiptavinir verði að
nota bíl við innkaupin. Markaðssetn-
ing, verðlagning og staðsetning hef-
ur lagt sitt af mörkum til þess að
gera Breta að feitabollum,“ segir
hann.
Patsy Calton, talsmaður frjáls-
lyndra demókrata í heilbrigðismál-
um, styður framtak Sainsbury’s.
„Heilbrigðisyfirvöld og almenningur
verða að átta sig á hættunni sem
felst í óhollum matarvenjum. Þessi
þjónusta er hugmyndarík viðleitni í
þá átt. Auðvitað má fólk borða fitu-
ríkan mat stöku sinnum. Stöðug
neysla á fituríkum afurðum leiðir
hins vegar ekki til annars en lang-
varandi heilsukvilla. Stjórnvöld
verða að setja heilbrigði almennings
framar í forgangsröðina og ráðherr-
um ber að gaumgæfa virka forvarn-
aráætlun í heilbrigðismálum. Hún á
ekki bara að fela í sér ráðgjöf heldur
hvatningu til hreyfingar og hollari
lífshátta.“
Heimild: London Press Service
Leiðsögn um heilsufæði
hjá breskri stórverslun
Reuters
Sainsbury’s er önnur stærsta verslunarkeðjan í Bretlandi.
FÉLAGAR í Lands-
sambandi bakara-
meistara eru að
hefja sölu á kaffi
sem framleitt er sér-
staklega fyrir félag-
ið. Kaffið er fram-
leitt hjá Kaffitári í
Njarðvík og pakkað
í sérhannaðar umbúðir undir
merkinu „Kaffi bakarans“, að því
er fram kemur í tilkynningu frá fé-
laginu. „Fyrst í stað koma á mark-
að tvær bragðtegundir, bragðmikið
kaffi með espresso-keim og með-
albrennt, bragðmildara kaffi. Lík-
legt er að bragðtegundum eigi eftir
að fjölga.
Kaffið verður eingöngu til sölu í
bakaríum félagsmanna Landssam-
bands bakarameistara,“ segir enn-
fremur.
NÝTT
Sérstakt bakarakaffi