Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 54
FRÉTTIR
54 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURBJÖRN Björnsson getur
verið ágætlega sáttur við árangur
sinn á opna Neckar-skákmótinu um
páskana eins og fram hefur komið í
skákþættinum. Hátt í
600 skákmenn frá 26
löndum tóku þátt í
mótinu. Sigurbjörn
segir það sérstakt
ánægjuefni hversu vel
honum gekk gegn hin-
um stigalægri í mótinu,
þar sem hann hefur oft
átt í erfiðleikum með
þá. Aftur kom í ljós
beinn árangur af heim-
sóknum skákþjálfara
hingað til lands, sem
Helgi Áss Grétarsson
hefur staðið fyrir, en
nýlega hélt Emil Sut-
ovsky afar gagnlegt
námskeið fyrir ís-
lenska skákmenn. Hann er „skelfi-
lega“ sterkur skákmaður, eins og
einn þátttakenda á námskeiðinu
orðaði það. Hann greindi flóknar
stöður með bakið í skýringaborðið
og sá venjulega lengra en þeir sem
sátu í salnum og höfðu borðið fyrir
framan sig. Sigurbjörn segir að oft á
tíðum hafi hann náð að klára skák-
irnar með því sem Sutovsky kallaði
„direct approach“ og sýndi fjölmörg
dæmi um á námskeiðinu. Gerðist
það í þremur skákum á mótinu, að
andstæðingar Sigurbjörns náðu
ekki að hrókera þar sem þeir léku
ónákvæmt í byrjuninni. Í öllum til-
fellum náði Sigurbjörn óstöðvandi
sókn í kjölfarið. Ein skák stendur þó
upp úr að hans mati, en það er skák
sem hann tefldi í fjórðu umferð.
Hann beitti Grunfeld-vörn að hætti
Sutovskys og fórnaði liði til að halda
kóngnum á miðborðinu og ná öflugu
frumkvæði.
Hvítt: Wiertzema (2.159)
Svart: Sigurbjörn Björnsson
(2.296)
Grünfeldsvörn
1.d4 Rf6 2.c4 g6 3.Rc3 d5 4.Rf3
Bg7 5.Db3 dxc4 6.Dxc4 0–0 7.e4
Ra6 8.e5 --
Algengast er að leika hér 8.Be2 c5
9.d5 e6 10.0–0 exd5 11.exd5 Rb4
o.s.frv.
8...Rd7 9.e6 fxe6 10.Dxe6+ --
Eftir 10.Be3 Rb6 11.Db3 Rd5
stendur svartur vel, t.d. 12.Bxa6
bxa6 13.0–0 Dd6 14.Hfe1 Bb7
15.Rg5 Rxc3 16.bxc3 Bd5 17.c4
Hab8 18.Dc2 Dc6 19.Hac1 Bxg2
20.f4 h6 21.Rxe6 Dxe6 22.Dxg2 Df5
23.Kh1 Hb4 24.Bg1 e6 25.De4
Dxe4+ 26.Hxe4, og skákinni lauk
með jafntefli 17 leikjum síðar
(Tukmakov-Krasenk-
ow, Oviedo 1991).
10...Kh8 11.Db3 c5
Önnur leið er
11...e5, t.d. 12.d5 Rac5
13.Da3 e4 14.Rg5 Bd4
15.f3 exf3 16.Rxf3 Re5
17.Be2 Rxf3+ 18.gxf3
He8 19.h4 Rd3+
20.Kf1 Dd7 21.Be3
Bxe3 22.Bxd3 Dh3+
23.Hxh3 Bxh3+
24.Ke2 Bc5+ 25.Be4
Bxa3 og hvítur gafst
upp
(Vinje Gulbrand-
sen-Toro Solis de
Ovando, bréfskák
1999).
12.d5 --
Sjá stöðumynd I.
12...Hxf3!?
Sigurbjörn teflir af miklum
krafti. Skiptamunarfórnin er ný af
nálinni, en þekkt er 12...Rb6 13.Be3
Bg4 14.Rg5 Hc8 15.h3 Bf5 16.Bxa6
bxa6 17.0–0 c4 18.Da3 Rxd5
19.Had1 Bxc3 20.bxc3 h6 21.Rf3
Kh7 22.Hd4 e6 23.Re5 Dc7 24.Rxc4
Bd3 25.Hxd3 Dxc4 26.Hfd1 Hf7
27.Bd4 Rf4 28.H3d2 Re2+ 29.Kh2,
jafntefli (Matousek-Zacek, bréf-
skák 1999).
13.gxf3 Re5 14.Re4 --
Eftir 14.Be2 Rb4 15.0–0 Bf5
16.Be3 Bc2 17.Da3 b6 18.f4 Red3
19.Bf3 Dd7, ásamt 20. -- Hf8 á svart-
ur góða stöðu, m.a. vegna þess, hve
hvíta drottningin er illa stödd.
14...Rb4 15.Be2 --
Sjá stöðumynd II.
15...Rbd3+! 16.Bxd3 Rxf3+
17.Kd1 Rd4 18.Dc4 Bg4+ 19.Ke1
b5! 20.Dxc5 Hc8
Sjá stöðumynd III.
21.Dxc8 --
Jafngildir uppgjöf, en svartur
virðist standa mun betur, eftir
21.Rg5 Df8!? (21...Rf3+ 22.Kf1
Rxg5 23.Dxb5 Bh3+ 24.Ke2 Bg4+
25.Kf1 Bh3+, jafnt) 22.Da3
Hxc1+!? 23.Hxc1 Df4, t.d. 24.b4
Dxg5 25.Be4 Bh6! 26.De3 De5!
27.Dxh6 (27.f4 Bxf4 28.Dd3 Bxc1
29.Kf2 Bf5 30.Bxf5 Rxf5 31.a3 Be3)
27...Dxe4+ 28.Kd2 Rf3+ 29.Kc3
Dc4+ 30.Kb2 Dxb4+ 31.Ka1 Dd4+
32.Kb1 Rd2+ 33.Kc2 Bf5+ 34.Kd1
Rf3+ 35.Ke2 Dd3+ mát.
21...Dxc8 22.Be3 Rc2+ 23.Kd2 --
Eða 23.Bxc2 Dxc2 24.Rg3 Bxb2
og svartur vinnur. Lokin þarfnast
ekki skýringa.
23...Rxa1 24.Hxa1 Dd8 25.Kc2
Dxd5 26.Rc3 Bxc3 27.bxc3 Bf5
28.Bxf5 Dxf5+ 29.Kb2 a5 30.Hd1
Dh5 31.Hd8+ Kg7 32.Ha8 De2+
33.Ka3 a4 34.h4 Kf7 35.Ha7 Dc4
36.Bd4 b4+ 37.Kb2 a3+ og hvítur
gafst upp.
Þrettán krakkar
náðu jafntefli í fjöltefli
Í tengslum við hverfishátíð Tóna-
bæjar á sumardaginn fyrsta fór
fram fjöltefli sem 37 börn og ung-
lingar tóku þátt í. Tveir af okkar
efnilegustu skákmönnum, þeir Arn-
ar Gunnarsson og Bragi Þorfinns-
son, tefldu við krakkana. Enginn
þeirra náði að sigra meistarana, en
engu að síður var árangurinn prýði-
legur og 13 krakkar náðu jafntefli.
Jafntefli við Braga Þorfinnsson
gerðu:
Benedikt Sigurleifsson, Laugarnesskóla
Bergsteinn Már Gunnarsson, Háteigsskóla
Guðni Fannar Kristjánsson, Laugarnes-
skóla
Ólafur Þórðarson, Fossvogsskóla
Einar Ólafsson, Laugarnesskóla
Berglind Jónsdóttir, Laugarnesskóla
Hrafnkell Ásgeirsson, Fossvogsskóla
Eftirtaldir náðu jafntefli við Arn-
ar Gunnarsson:
Einar Sigurðsson, Laugarnesskóla
Róbert Eyþórsson, Laugarnesskóla
Ari Þór Magnússon, Hlíðaskóla
Ragnar Þór Kjartansson, Álftamýrarskóla
Vilhjálmur Pálmason, Laugarnesskóla
Arnór Bragi Elvarsson, Fossvogsskóla
Arnar vann því 11 skákir en gerði
6 jafntefli.
Börn og unglingar úr tíu skólum
sem eiga aðild að Tónabæ tóku þátt
í fjölteflinu, en þeir eru: Álftamýr-
arskóli, Breiðagerðisskóli, Foss-
vogsskóli, Háteigsskóli, Hlíðaskóli,
Hvassaleitisskóli, Langholtsskóli,
Laugalækjarskóli, Laugarnesskóli
og Vogaskóli.
Teflt var hjá Taflfélagi Reykja-
víkur. Mótsstjóri fyrir hönd Tóna-
bæjar var Sigríður A. Jóhannsdótt-
ir, en skákstjóri fyrir hönd TR var
Torfi Leósson.
Helgi Ólafsson sigraði
á afmælismóti Haraldar
Hermannssonar
Helgi Ólafsson sigraði af öryggi á
afmælismóti Haraldar Her-
mannssonar sem fór fram á Sauð-
árkróki um páskana. Hann leyfði
aðeins eitt jafntefli, við Sigurð Ei-
ríksson frá Akureyri. Helgi Áss
Grétarsson varð annar með 6 vinn-
inga og í þriðja sæti varð Akureyr-
ingurinn Guðmundur Gíslason með
5 vinninga. Bragi Halldórsson varð
fjórði með 4½ vinning og í kjölfarið
fylgdu Gylfi Þórhallsson, Lenka
Ptácníková, Sigurður Eiríksson,
Örn Þórarinsson, Ari Friðfinnsson
og Jón Arnljótsson, öll með fjóra
vinninga.
Þátttakendur voru 22 í þessu vel
skipaða skákmóti þar sem meðal-
stig þátttakenda voru tæplega
2.000.
Fjórða Karpov-skákmótið
Það er sjaldgæft að haldin séu
skákmót sem í virðingarskyni bera
nafn lifandi skákmanna, hvað þá að
þau séu nefnd eftir skákmanni sem
enn er í fullu fjöri sem keppnismað-
ur. Auk Haraldar Hermannssonar
hefur Anatoly Karpov þó hlotnast
þessi heiður og ekki bara einu sinni
heldur stendur nú yfir í Poikovsky í
Rússlandi fjórða Karpov-skákmót-
ið. Þátttakendur eru 9 stórmeistar-
ar með yfir 2.600 skákstig og svo
einn alþjóðlegur meistari. Staðan
eftir fimm umferðir er þessi:
1.-3. Peter Svidler (2.713), Alex-
ander Onischuk (2.647), Joel Laut-
ier (2.666) 3½ v.
4.-5. Viktor Bologan (2.663), Giov-
anni Vescovi (2.615) 3 v.
6. Vadim Zvjaginsev (2.664) 2½ v.
7. Sergei Rublevsky (2.670) 2 v.
8.-9. Yannick Pelletier (2.623),
Smbat Lputian (2.638) 1½ v.
10. Andrei Obodchuk (2.417) 1 v.
Það er hins vegar af Karpov sjálf-
um að frétta, að hann heldur áfram
að hrella sterkustu skákmeistara
heims og er skemmst að minnast
einvígissigurs hans gegn Kasparov í
New York. Þann 7.-10. apríl mætti
hann Evrópumeistaranum Bartlo-
miej Macieja (2.634). Bartolomiej er
26 ára gamall pólskur stórmeistari,
sem hefur unnið marga góða sigra á
sínum ferli. Hápunkturinn var samt
þegar hann var krýndur Evrópu-
meistari í Batumi 2002. Macieja
reyndist hins vegar engin fyrirstaða
fyrir Karpov, sem sigraði með yf-
irburðum, hlaut sex vinninga gegn
tveimur. Tefldar voru atskákir.
Kasparov-Ponomariov
frestað?
Samkvæmt grein sem birtist í
argentínska blaðinu La Nacion
verður einvígi þeirra Kasparov og
Ponomariov frestað frá júní til nóv-
ember. Hitt einvígi sameiningar-
ferlisins“, einvígi Kramnik gegn
Leko, verður líklega haldið í Búda-
pest í júní.
Fetað í fótspor Sutovsky
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Stöðumynd III.
Stöðumynd I.
Stöðumynd II.
Sigurbjörn Björnsson
SKÁK
Deizisau, Þýskalandi
VII. NECKAR-SKÁKMÓTIÐ
17. – 24. apríl 2003
dadi@vks.is
ALCAN á Íslandi afhenti á dögun-
um Jöklarannsóknafélagi Íslands
styrk, sem félagið hyggst nota til að
stórbæta aðstöðu sína á Vatnajökli.
Styrkurinn nam einni milljón króna
og veitti Magnús Tumi Guðmunds-
son, formaður Jöklarannsókna-
félagsins, honum viðtöku.
Jöklarannsóknafélagið hyggst
koma upp rafstöð við rannsókna-
setur félagsins á Grímsfjalli í sum-
ar, en með slíkri rafvæðingu verður
frumúrvinnsla gagna og eftirlit
með tækjum auðveldara en áður.
Hægt verður að raflýsa skálana á
fjallinu, sem auka mun öryggi
jöklafara þar sem ekki þarf að
treysta á gas til lýsingar þegar raf-
stöðin er kominn í gagnið. Mögu-
leikinn á notkun raftækja mun
greiða fyrir viðhaldi og viðgerðum
af ýmsu tagi og rafstöðin mun
skapa möguleika á bættum fjar-
skiptum á Vatnajökli, með uppsetn-
ingu senda og endurvarpa fyrir
síma eða önnur fjarskiptakerfi.
Slíkt myndi auka mjög öryggi allra
sem fara um svæðið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rannveig Rist afhendir Magnúsi Tuma Guðmundssyni styrkinn.
Alcan á Íslandi styrkir
Jöklarannsóknafélagið KARLAKÓR Akureyrar – Geysirverður með söngskemmtun á Hótel
Húsavík í dag, laugardaginn 26. apríl
kl. 21.
Efnisskrá er tvískipt. Fyrri hlut-
inn er hefðbundin dagskrá þar sem
flutt verða ýmis karlakórslög inn-
lend og erlend. Seinni hlutinn er Hæ
Hopsa Sí sem eru írsk lög með text-
um eftir Jónas Árnason með leik-
rænu ívafi og kráarstemmningu.
Söngstjórar eru Erla Þórólfsdóttir
og Guðmundur Þorsteinsson. Píanó-
leikari er Sólveig Anna Jónsdóttir.
Snorri Guðvarðarson hefur umsjón
með tónlistarflutningi í seinni hluta
dagskrárinnar.
Karlakór með
söngskemmtun
á Húsavík
SAMTÖK skólamanna um bindind-
isfræðslu hafa ályktað eftirfarandi
gegn áfengisauglýsingum og sölu
áfengis í matvöruverslunum:
„Aðalfundur Samtaka skólamanna
um bindindisfræðslu, haldinn í
Reykjavík 15. apríl 2003, varar
sterklega við afleiðingum þess að
leyfa sölu áfengis í matvöruverslun-
um, svo sem nú er knúið á um. Telur
fundurinn einsýnt að sú breyting
hefði í för með sér enn aukna áfeng-
isneyslu í landinu og gengi þannig
gegn viðleitni þeirra sem vinna að
forvörnum. Nær væri í ljósi þróun-
arinnar síðustu árin að sporna hér
við fótum.
Vaxandi skeytingarleysi
Einnig lýsir fundurinn yfir furðu
og vanþóknun vegna síaukinna
áfengisauglýsinga, beinna og
óbeinna, í fjölmiðlum og á almanna-
færi í trássi við ákvæði í áfengislög-
um um algert bann við slíkum aug-
lýsingum.
Fundurinn telur að þetta sé hvort
tveggja til marks um vaxandi skeyt-
ingarleysi um skuggahliðar áfengis-
neyslunnar og vera unglingum og
ungu fólki slakur vegvísir í um-
gengni við vímuefnið áfengi.“
Lýsa furðu á
endurteknum
auglýsingum
um áfengi
EMERALD EHF. hefur hafið inn-
flutning á nýrri tegund öryggis-
ljósa, svokölluðum SOS Öryggis-
ljósum sem gerð eru úr ljósdíóðum.
Í tilkynningu frá innflutningsaðila
segir að ljósin séu ný uppfinning
og að þau henti vel til lýsingar á
slysavettvangi.
Í hverju ljósi eru 20 ljósdíóður
en líftími ljósdíóðu er 100 þúsund
klst. Ljósin eru höggheld og vatns-
held, ganga fyrir venjulegum raf-
hlöðum og sjást mjög vel úr mikill
fjarlægð.
Að sögn Gunnlaugs Gestssonar,
framkvæmdastjóra Emerald ehf.,
hafa ljósin verið kynnt forsvars-
aðilum björgunarsveita og lögreglu
hér á landi að undanförnu. Að hans
sögn eru ljósin víða staðalbúnaður í
borgum í Ástralíu og Bandaríkj-
unum.
Ný tegund
öryggisljósa
á markað
ÞING Bandalags kvenna í Reykja-
vík var haldið á Hótel Loftleiðum
fyrir skömmu. Formaður BKR,
Hildur G. Eyþórsdóttir, flutti
skýrslu stjórnar og skýrslu stjórn-
ar Hallveigarstaða. Þá voru fluttar
og ræddar skýrslur einstakra
nefnda.
Kosin var ný stjórn og er hún
þannig skipuð: Hildur G. Eyþórs-
dóttir formaður, Hvítabandinu,
Margrét K. Sigurðardóttir varafor-
maður, Kvenstúdentafélagi Ís-
lands, Kristín Zoëga ritari, Thor-
valdsensfélaginu, Ragnhildur
Jónasdóttir gjaldkeri, Hvítaband-
inu, Ríkey Rikharðsdóttir vararit-
ari, Sjálfstæðiskvennafélaginu
Hvöt, Sigurborg Bragadóttir með-
stjórnandi, Kvenfélagi Fríkirkj-
unnar og Sigríður Ásgeirsdóttir
meðstjórnandi, Kvenfélagi Hall-
grímskirkju.
Ný stjórn
Bandalags
kvenna