Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 56
56 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"#
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
OFT hefur maður heyrt og séð van-
hugsaðar og heimskulegar tillögur
um stjórnun fiskveiða, en tillögur
Vinstri grænna
sem birtust í
grein þingmann-
anna Jóns
Bjarnasonar og
Árna Steinars
Jóhannssonar í
Morgunblaðinu
15. apríl sl. taka
þó öllu fram í
þeim efnum, ef
undanskilin er
núverandi fiskveiðistefna ríkis-
stjórnarinnar.
Þeir skrifa um að aflaheimildir
verði afskrifaðar um 5% á ári frá
núverandi kvótahöfum og þeim
skilað þjóðinnni á 20 árum. Það er
að sjálfsögðu réttmæt krafa að lög-
mætur eigandi fiskveiðiheimilda,
íslenska þjóðin, fái aftur eign sína
til baka. Það þarf ekki að rekja
stærstu eignaupptöku Íslandssög-
unnar á sameign þjóðarinnar fisk-
inum, sem núverandi ríkisstjórnar-
flokkar bera alla ábyrgð á.
Tillögur Vinstri grænna um
skiptingu afskrifta eru á þá leið að
endurheimtum veiðiheimildum 5%
á ári verði skipt í þrennt.
l. Einn hluti l,67% verði færður til
byggðanna og þeim verði í sjálfs-
vald sett hvort þau leigja þann
hluta eða deila honum út eftir
öðrum reglum.
2. l,67% verði boðin út til leigu á
landsmarkaði til sex ára í senn og
útgerðum og vinnslustöðum
heimilt að vera leigutakar.
3. Og svo kemur rúsínan í pylsu-
endanum að l,67% verði endur-
leigð með sérstökum samningi til
þeirra kvótaeigenda sem fyrnt
var frá.
Þá vita sjávarbyggðirnar hvers
þær mega vænta af Vinstri græn-
um. l,67% koma í þeirra hlut á ári.
Greinarhöfundar telja að tillögur
þeirra tryggi rétt og öryggi sjáv-
arbyggðanna, stöðugleika og fulla
hagkvæmni í rekstri útgerðar og
fiskvinnslu svo notuð séu þeirra
orð. Þeir geta þess sérstaklega að
umræddar tillögur séu grundvall-
aðar á mikilli sanngirni, varfærni
og festu.
Halda greinarhöfundar að þeir
geti blásið lífi í sjávarbyggðir með
slíkum tillögum sem þegar eru bún-
ar að missa nánast allar fiskveiði-
heimildir og standa uppi með verð-
lausar eignir. Fólkið streymir frá
þessum byggðarlögum og það snýr
ekki til baka fyrir l,67% árlega
aukningu veiðiheimilda.
Við lestur þessarar greinar varð
ég undrandi og sár að heyra svona
vanburða og flónslega skilgreingu á
úrlausn stærsta vandamáls þjóðar-
innar.
Það er reyndar með ólíkindum að
flokkur Vinstri grænna sem stend-
ur fyrir mörgum góðum málefnum
skuli láta frá sér fara annað eins
rugl. Kannski er þarna kominn
a.m.k. hluti af skýringu þess hvað
flokkurinn mælist lítill í könnunum.
Væri ekki vænlegra að leita til
frændþjóðar okkar og vina í Fær-
eyjum um lausn þessara mála.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fv. deildarstjóri.
Tillögur vinstri
Vinstri grænna í
fiskveiðistjórnun
Frá Kristjáni Péturssyni
Kristján Pétursson
HANS Kristján Árnason skrifar í
Mogga 20/4 og spyr Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttir hvort hún sé sú
sem hún segist vera og sú sem hann
heldur að hún sé, sannorð og heið-
arleg, fulltrúi fólksins, sem stendur
við það sem hún segir. Hans hefur
greinilega ekki horft á sjónvarpið
fyrir kosningar til borgarstjórnar á
síðasta ári. Þá sagði hún oftar en
einu sinni að hún ætlaði að vera
borgarstjóri í Reykjavík í 4 ár, „því
mættu Reykvíkingar trúa“. Sá
sannleikur entist ekki út árið því
hún var hlaupin vestur á Granda á
jólaföstu og lýsti því yfir að hún
væri að fara í framboð fyrir krata og
yrði næsti forsætisráðherra. For-
sætisráðherra-framboð hefur aldrei
verið fyrr á Íslandi. Það er skrítið ef
Hans hefur ekki fylgst neitt með
öllu þessu, en veit þó að „allir hafa
svikið öll loforð eftir kosningar“ (og
er þó nokkuð til í því) og tek ég und-
ir það. Þessvegna finnst mér skrítið
ef honum finnst Ingibjörg Sólrún
sérstaklega trúverðug eftir borgar-
stjórnarkosningarnar á síðasta ári
og hversu mikið var að marka yf-
irlýsingar þær sem hún gaf… Hann
Björn var bara svo lyginn að hann
bjó þessa sögu til... „en hún ætlaði
að vera borgarstjóri næstu 4 ár, því
mættu Reykvíkingar trúa“. Nú fer
hún margar ferðir upp í Borgarnes
til að hella úr skálum reiði sinnar og
þylur upp allskonar sögur í Leitis-
Gróu stíl. Er það að draga taum
þeirra sem Össur skrifaði svo mik-
inn óhróður um á síðasta ári og varð
að skrifa þeim afsökunarbréf. Nú
kemur Össur hvergi fram, situr
bara eins og Skotta á feldinum þeg-
ar Ingibjörg Sólrún leggur land
undir fót og fer um landið. Ekki veit
ég hvað fólkið í Borgarnesi hefur
gert til þess að verðskulda það að
allar sögur byrji þar. Hans ætti að
skoða málið upp á nýtt og kanna
gildi þess, að hafa skal það sem
sannara reynist.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Hafa skal það sem
sannara reynist
Frá Guðmundi Bergssyni