Morgunblaðið - 26.04.2003, Síða 60
ÍÞRÓTTIR
60 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
PAOLO di Canio, hinn reyndi
ítalski sóknarmaður, verður líklega
kallaður inn í lið West Ham á ný í
lokaleikjum liðsins í ensku úrvals-
deildinni. Di Canio hefur ekki spilað
undanfarna tvo mánuði eftir að hann
lenti upp á kant við Glenn Roeder,
knattspyrnustjóra félagsins. Trevor
Brooking, sem stýrir liðinu í síðustu
leikjunum vegna veikinda Roeders,
hefur hins vegar hug á að nýta sér
krafta Ítalans.
DI CANIO, sem var fyrirliði þegar
Roeder kippti honum út úr liðinu
fyrir tveimur mánuðum, verður þó
ekki með gegn Manchester City á
morgun þar sem hann er veikur.
West Ham gæti þurft að vinna alla
þrjá leiki sína til að halda sér í deild-
inni.
NIJTAP Geremi, kamerúnski
landsliðsmaðurinn sem Middles-
brough er með í láni frá Real
Madrid, segir að ekkert sé til í frétt-
um um að hann sé á leiðinni til Man-
chester United. Geremi segir að
enginn hafi rætt við sig eða umboðs-
mann sinn um þetta mál og því sé að-
eins um vangaveltur fjölmiðla að
ræða.
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton,
verður á sínum stað í vörn liðsins
þegar það tekur á móti Arsenal í úr-
valsdeildinni í dag. Sam Allardyce,
knattspyrnustjóri Bolton, teflir
væntanlega fram sama liði og gerði
jafntefli við Blackburn á útivelli á
annan í páskum.
DAVID Seaman verður líklega í
marki Arsenal á ný þar sem hann
hefur náð sér eftir veikindi, og Mart-
in Keown kemur að öllum líkindum
aftur inn í vörnina en hann var ekki
með gegn Middlesbrough um síð-
ustu helgi vegna tognunar. Patrick
Vieira, Francis Jeffers og Edu verða
ekki með Arsenal vegna meiðsla.
EIÐUR Smári Guðjohnsen heldur
væntanlega sæti sínu í byrjunarliði
Chelsea sem tekur á móti nágrönn-
um sínum í Fulham í dag. Þess má
geta að heimavöllur Chelsea, Stam-
ford Bridge, stendur við Fulham
Road svo þetta er alvöru nágrannas-
lagur.
ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, vill ekki
aðeins sigur gegn Tottenham á
White Hart Lane á morgun, hann vill
fá mörg mörk. „Það er nauðsynlegt
að við höldum okkar striki og skor-
um mikið af mörkum því þau geta
ráðið úrslitum þegar upp er staðið,“
sagði Ferguson í gær en lið hans hef-
ur gert 23 mörk í síðustu 7 leikjum
sínum.
PAUL Scholes, miðjumaðurinn
sterki, sem hefur verið á skotskón-
um að undanförnu, kemur inn í lið
Manchester United á ný. Hann hef-
ur skorað 5 mörk í tveimur síðustu
deildarleikjum liðsins en missti af
viðureigninni við Real Madrid á mið-
vikudag þar sem hann tók út bann.
FÓLK
SOL Campbell, hinn öflugi varn-
armaður Arsenal og enska
landsliðsins í knattspyrnu, leik-
ur í dag sinn síðasta leik á þessu
keppnistímabili. Campbell hefur
verið úrskurðaður í fjögurra
leikja bann og missir því af
þremur síðustu deildarleikjum
Arsenal og úrslitaleik bikar-
keppninnar.
Arsenal áfrýjaði rauða spjald-
inu sem Campbell fékk í leik
liðsins gegn Manchester United
á dögunum en aganefnd enska
knattspyrnusambandsins ákvað
í gær að úrskurðurinn skyldi
standa. Þetta er mikið áfall fyrir
Arsenal, ekki síst vegna þess að
ljóst er að Patrick Vieira, fyrir-
liði, missir að minnsta kosti af
tveimur næstu leikjum, gegn
Bolton og Leeds, vegna meiðsla.
Arsenal mætir Bolton á úti-
velli í dag og síðan Leeds, South-
ampton og Sunderland í þremur
síðustu leikjum sínum í úrvals-
deildinni, og Southampton í úr-
slitaleik bikarkeppninnar hinn
17. maí. Arsenal berst hat-
rammri baráttu við Manchester
United um enska meistaratitil-
inn og þar getur hvert einasta
mark sem skorað verður héðan í
frá ráðið úrslitum.
Síðasti leikurinn hjá
Sol Campbell
Sol Campbell
SIGFÚS Sigurðsson skoraði sex mörk, öll í síðari hálfleik, og þótti
standa sig vel þegar Magdeburg vann Eisenach, 30:28, á heimavelli í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Ólafur Stefánsson skor-
aði eitt mark fyrir Magdeburg en hann og Ólafur eru að jafna sig eftir
flensu. Magdeburg er sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar með 45 stig að
loknum 29 leikjum, einu stigi á eftir Flensburg, en lemgo hefur svogott
sem tryggt sér þýska meistaratitilinn. „Við ætlum okkur annað sætið,“
sagði Sigfús í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Julian Róbert Duranona var markahæstur hjá Wetzlar, skoraði 8
mörk, þegar liðið vann mikilvægan sigur, 22:21, á Wilhelmshavener á
heimavelli. Róbert Sighvatsson skoraði í þrígang fyrir Wetzlar og Gylfi
Gylfason skoraði tvisvar sinnum fyrir Wilhelmshavener.
Með sigrinum færðist Wetzlar upp í 11. sæti 1. deildar, hefur 24 stig
að loknum 29 leikjum og er að mestu úr fallhættu, a.m.k. að sinni. Wil-
helmshavener er hins vegar í veikri stöðu í 14. sæti af átján liðum í
deildinni, með 20 stig og má lítið út af bera á lokasprettinum svo það
falli ekki í 2. deild en stutt er í neðstu liðin.
Sigfús með sex mörk
fyrir Magdeburg
INGI Höjsted, efnilegasti knatt-
spyrnumaður Færeyja sem leikur
með unglingaliði Arsenal, hefur
verið kallaður í A-landsliðshóp
Færeyinga sem mætir Kazakhstan í
tveimur vináttuleikjum á heima-
velli á næstu dögum. Fyrri leikur-
inn er á morgun og sá síðari á
þriðjudag. Dómarar leikjanna
verða Bragi Bergmann og Kristinn
Jakobsson.
Ingi er aðeins 16 ára gamall en
hann gekk til liðs við Arsenal í
fyrra og þykir geysilega efnilegur
miðjumaður.
Færeyingar eru næstu andstæð-
ingar Íslendinga í undankeppni EM
en grannþjóðirnar mætast á Laug-
ardalsvellinum 7. júní. Henrik Lar-
sen, hinn danski þjálfari Fær-
eyinga, valdi 24 leikmenn fyrir
leikina gegn Kazakhstan. Fimm
þeirra leika erlendis en auk Inga
eru það Jón Rói Jacobsen frá
Bröndby, markvörðurinn Jákup
Mikkelsen frá Molde, Christian H.
Jacobsen frá Vejle og Óli Johanne-
sen frá Hvidovre. Aðrir leikmenn
eru: Jens Martin Knudsen (NSÍ),
Bjarni Johansen (VB), Fróði
Hansen (B68), Fróði Benjaminsen
(B68), Jann Ingi Petersen (B68), Jó-
hannes Joensen (FS Vágar), Pól
Thorsteinsson (B36), Heðin á Lakj-
uni (B36), Julian Johnsson (B36),
Jákup á Borg (B36), John Petersen
(B36), Suni Olsen (GÍ), Símun
Samuelsen (GÍ), Atli Danielsen (KÍ),
Hjalgrím Elttör (KÍ), Allan Joensen
(KÍ), Jonhard Frederiksberg
(Skála), Andrew av Flötum (HB) og
Rógvi Jacobsen (HB).
HB-mennirnir tveir verða ekki
með á morgun þar sem þeir leika þá
með liði sínu gegn KR.
Heimir segir að sigur ÍR-inga ífyrrakvöld hafi komið sér á
óvart, hann reiknaði með því að Vals-
menn myndu vinna.
„Valsliðið byggist
upp á mjög fáum en
góðum leikmönnum
og þar leikur Roland
Eradze markvörður stórt hlutverk.
Hann er einn þeirra manna sem get-
ur unnið leiki nærri því upp á eigin
spýtur. Ætli Valsmenn sér að snúa
taflinu við í næsta leik er ljóst að þeir
verða að bæta varnarleikinn veru-
lega og þar með fá Roland í gang,“
segir Heimir og bendir á að leik-
mannahópur ÍR sé fjölmennur, þar
séu nánast tveir leikmenn um hverja
stöðu. Þá sé hægri vængur sóknar-
leiksins afar sterkur, mun sterkari
en hjá Val, enda hafi ÍR-ingar úr
a.m.k. þremur góðum vinstrihandar
mönnum að spila sem gefi sóknar-
leiknum meiri fjölbreytileika á sama
tíma og þessi vængur sé vandamál
hjá Val eftir að Bjarki Sigurðsson
sleit krossband fyrir nokkrum vik-
um.
„Júlíus [Jónasson þjálfari] er
ómetanlegur fyrir ÍR-liðið. Hann
ásamt Fannari Þorbjörnssyni bind-
ur vörnina saman og rekur menn
áfram með slíkum myndarskap að
varnarleikurinn er afbragðsgóður
þegar vel tekst til. Þá má heldur ekki
gleyma því að að baki vörninni er
Hallgrímur Jónasson. Hann hefur
staðið sig ákaflega vel eftir að hann
hljóp í skarðið fyrir Hreiðar Guð-
mundsson.“
Heimir segir að þrátt fyrir allt sé
ómögulegt að spá fyrir um hvernig
rimma ÍR og Vals fari, ekki sé hægt
að slá neinu föstu þrátt fyrir að staða
ÍR-inga sé vissulega. „Fyrirfram
taldi ég möguleika Valsmanna vera
meiri en eftir tap þeirra í fyrsta
leiknum hafa möguleikar ÍR-inga
aukist að sama skapi og von Vals hef-
ur minnkað. ÍR er með pálmann í
höndunum og mannskapinn til að
vinna þessa rimmu, ekki vantar liðs-
menn heldur viljann.“
Heimir Ríkharðsson, þjálfari Fram, reiknar með oddaleik hjá ÍR og Val
Of snemmt að
afskrifa Valsmenn
„ÍR-INGAR eru í afar vænlegri
stöðu eftir sigurinn á Hlíðar-
enda, en það má aldrei afskrifa
Valsmenn, seiglan, baráttan er
svo gríðarlega mikil,“ segir
Heimir Ríkharðsson, þjálfari
Fram, spurður um hvort nú sé
tími ÍR-liðsins að renna upp,
hvort því takist að leggja Vals-
menn öðru sinni þegar liðin
mætast á morgun í annað skipt-
ið í undanúrslitum Íslandsmóts-
ins í handknattleik karla.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÍR-ingurinn Ingimundur Ingimundarson sækir að marki Vals í viðureign liðanna á Hlíðarenda á
fimmtudagskvöldið. Ragnar Ægisson, Valsmaður, er til varnar.
Sextán ára frá Arsenal í
færeyska landsliðshópnum