Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 64

Morgunblaðið - 26.04.2003, Side 64
FÓLK Í FRÉTTUM 64 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ lau 26/4 Örfá sæti mið 30/4 Sellófon 1. árs Örfá sæti Í tilefni afmælis Sellófon er miðaverð kr. 1600 30/4. föst 2/5 Örfá sæti lau 3/5 Nokkur sæti föst 9/5 Laus sæti nýr vefur www.sellofon.is opnar um helgina Stóra svið ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield FRUMSÝNING su 27/4 kl 20 - UPPSELT Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800 Fö 2/5 kL 20, Lau 10/5 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht í kvöld kl 20, Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20 SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Lau 3/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20 Fö 23/5 kl 20, Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20 ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR Nýja svið Þriðja hæðin Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Lau 3/5 kl 20 Su 11/5 kl 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Su 27/4 kl 20, Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT Fö 2/5 kl 20, Mi 7/5 kl 20 - UPPSELT STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Í dag kl 14, Lau 3/5 kl14, Lau 10/5 kl. 14 GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Su 11/5 kl 20 Su 18/5 kl 20 Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana "MANSTU EKK´ EFTIR MÉR" dagskrá Kringlusafns í lok bókaviku ætluð börnum 10-12 ára Rithöfundar koma í heimsókn, spilað og sungið Þri 29/4 kl 11- ÓKEYPIS AÐGANGUR SJÖ BRÆÐUR e. Aleksis Kivi Gestaleiksýning Mars frá Finnlandi Mi 7/5 kl 20 - AÐEINS EIN SÝNING SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn Í kvöld kl 20, Su 27/4 kl 20, Fö 2/5 kl 20, Su 4/5 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fi 1/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20,. Fö 16/5 kl 20 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Lau 3/5 kl 20 SÍÐASTA SÝNING Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Lau 26. apríl kl 20 Sun 27. apríl kl 20 Fös 2. maí kl 20 Fös 9. maí kl 20 Lau 10. maí kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM Hugleikur sýnir: „Þetta mánaðarlega“ í kvöld lau. 26. apríl kl. 20.00 sun. 27. apríl kl. 20.00 Ljúffengur málsverður fyrir alla kvöldviðburði MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16 má.-fö. Símsvari á öðrum tímum. Lab Loki sýnir barnaleikritið: Listasafni Reykjavíkur Kjarvalsstöðum lau. 26. apríl. kl.14 lau. 3.maí. kl.14 sun.25.maí kl.16 sun. 1. júní kl.16 Miðaverð: 1.200 kr. Pantanir í síma 5526131 kl.10-17 miðasala opin klukkutíma fyrir sýningu. Guðbrandsmessa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur í Langholtskirkju sunnud. 27. apríl kl. 20 Flytjendur: Kór Langholtskirkju Kammersveit Langholtskirkju Ólöf Kolbrún Harðard., sópran Marta Hrafnsdóttir, alt Björn Jónsson, tenór Eiríkur Hreinn Helgason, bassi Stjórnandi: Jón Stefánsson Pantanir í síma 520 1300 og klang@kirkjan.is Miðasala í Langholtskirkju og við innganginn. ÞAÐ er mikill heiður að fá að fjalla um þessa sýningu í fjölmiðli þar sem helst má ekki minnast á hráefnið sem hér er notað í skúlpt- úra réttu nafni, hvað þá birta af því mynd. En þá er bara að skrifa smekklega í kringum hlutina. T.d. mætti nefna að japanska orðið „origami“, sem notað er í undirheiti sýningarinnar, er skv. ensk-íslenskri orðabók listgrein sem felst í því að brjóta saman pappír á ýmsa vegu þannig að úr verði alls kyns skraut- munir. Aðstandendur þessarar sýn- ingar nota aftur á móti engan pappír til þessara hluta og leiðréttist hér með leiður misskilningur í þessa veru í Fréttablaðinu nýverið. Fyrsti vísir að þessari sýningu var samnefnt dagatal sem Simon nokkur Morley, Ástrali með mikið ímynd- unarafl og þor til að framkvæma fá- ránlegustu hugdettur sínar, átti hugmyndina að og lét gefa út árið 1996. Sýningin var þróuð til að vekja athygli á og selja ofangreind daga- töl. Hann fékk David Friend sér til aðstoðar – en sá hafði haft framfæri af því að flíka leyndarlim sínum – og þeir héldu ótrauðir af stað að leggja heiminn að fótum sér. Með viðkomu á Grínhátíðinni í Melbourne í heimalandi sínu 1998, hringferð um sama heimaland og Jaðarleikhúshátíðinni í Edinborg í Skotlandi enduðu þeir loks í mekka allra ungra Ástrala, Lundúnaborg, þar sem þeir gerðu garðinn frægan í vesturenda borgarinnar um fimm mánaða skeið. Síðan hafa þeir stung- ið niður fæti vítt og breitt um Bret- landseyjar og hjá hinum herskáu frændum sínum í Norður-Ameríku í enn lengri tíma. Pétur Jóhann Sigfússon og Bryn- dís Ásmundsdóttir voru fengin til að setja þessa sýningu í samhengi við hérlendan þankagang. Pétur, sem hefur verið auðkenndur með viður- nefninu „Dingdong“, sem er vel við hæfi, setti efni sýningarinnar í sam- band við samfélagslega sýn íslenska karlmannsins á fyrirbærið. Það verður að taka fram að hann var á báðum áttum hvort hann ætti að grípa efniviðinn styrkum íslenskum höndum, en vegna eðlislægrar feimni ákvað hann að láta munnleg- ar lýsingar nægja þó að hann hótaði annað slagið að láta verða af því að renna niður buxnaklaufinni og leiða út grána sinn. Pétur var valinn fyndnasti maður landsins seint á síð- ustu öld og er nokkuð markaður því tímabili. Samt var innlegg hans nokkuð fræðandi en einlægur áhugi hans á barnungu kvenfólki sem skrýddi fremsta bekk vinstra megin vakti grun um að hann stefndi í að verða yngsti „dirty-old-man“ Ís- landssögunnar. Bryndís Ásmundsdóttir, sem kaus einhverra hluta vegna að koma fram undir nafninu „Beez“, er ný og fersk á þessum vettvangi, enda rétt óskriðin úr leiklistarnámi í Listahá- skólanum. Hennar sýn á þennan neðanþindarveruleika er sýn nýrrar aldar þó sárt vanti hana goðfjónina. Hún velti t.d. fyrir sér af hverju eng- um konum hefði dottið í hug að gera eitthvað svipað og gerði sitt besta til að ræða hjónabandsvandamál sín sem skapast hefðu vegna þátttöku hennar í sýningunni við áhorfendur. Að loknu endasleppu framlagi uppi- standara var gert örstutt hlé. Simon Morley og David Friend, frumkvöðlar fyðilföndursins, hafa nú skipt liði til að geta breitt fagnaðar- boðskap skökulsskúlptúrista sem víðast um heiminn. David Friend hefur fengið nafna hins, Simon Bradley, til að ljá sér lim, og stóðu þeir félagar sig vel við flannaföndrið. Þar sem ætla mætti að það gæti orð- ið þreytandi fyrir listamenn af þessu tagi að teygja og toga ákveðna lík- amsparta út í hið óendanlega var sýningin skiljanlega stutt í annan endann. Undirrituðum taldist til að föndrið hefði staðið yfir í rúman klukkutíma. En sú stund leið ótrú- lega fljótt, enda hefur hagnýtara föndur ekki borið fyrir augu undirrit- aðs síðan fylgst var með Stundinni okkar í árdaga sjónvörpun- ar hér á landi. Ann- ars var athyglisvert að kvenfólkið í saln- um skemmti sér áberandi betur en karláhorfendur; sennilega vegna þess að fátt í sýning- unni kom hinu sterk- ara kyni beint á óvart og að þær kon- ur sem hæst lét í og höfðu sig mest í frammi komu vel undirbúnar hvað áfengisneyslu varðar inn á sýninguna. Og hvað er hægt að föndra með teygj- anlegan koðra? Ja, t.d. litla fallhlíf, sem gæti komið sér vel við vissar aðstæður, kjúklinga- bita úr vissum skyndibitastöðum sem kenndur er við ákveðið ríki Bandaríkjanna. Og ef hreðjarnar eru teknar með má t.d. búa til nokk- uð trúverðugt líkan af mannsheila. Ef hvort tveggja er notað með trítl- inum sjálfum má forma eftirlíkingar af fleiri tegundum skyndibita, t.d. hamborgara í brauði eða pylsu með öllu. Föndrararnir flinku léku sér einnig að því að nota brúsa sína til að skapa dýr eins ólík og svanga fugls- unga, Loch Ness-skrímslið ógur- lega, kengúruunga og sæfífla. Hvað hið síðasttalda snertir stórefar und- irritaður að margir í salnum hafi skilið út á hvað grínið gekk, enda hefði annaðhvort þurft að aðlaga textann, sem fluttur var á áströlsku talmáli, íslenskum áhorfendum eða einfaldlega fá snjallan og líflegan þýðanda á svið. En hinar óteljandi uppstillingar sem handverksmennirnir hnoðuðu saman úr félögum sínum nægðu ekki til að fylla upp í gap tímans. Stærst- ur hluti þeirra framlags var kynn- ingar á skúlptúrum í mótun og ann- ars sem yfir vofði áhorfendum, svo sem hlaup þeirra um salinn í hunds- líki eða krafa um að sjálfboðaliði að- stoðaði þá á sviðinu. Allt þetta reyndist á endanum saklaus skemmtun, þó að vissulega færu áhorfendur af vettvangi nokkru fróðari um teygjanleika slát- urs flytjenda og iðuðu án efa í skinn- inu að halda heim og hefja tilraunir annaðhvort í einrúmi eða hvað veik- ara kynið snertir í hlýju hjónasæng- ur. Leikbrúðuland lendaspjótanna SKEMMTANIR Prom.is í Austurbæ Leikstjóri sýningarinnar í London: Tim Fountain. Ljósahönnun: Janey Rainey. Stjórn skjávörpunarmyndavélar: Darren Male. Upphitunaruppistand: Bryndís „Beez“ Ásmundsdóttir og Pétur Jóhann „Dingdong“ Sigfússon. Gjörningamenn: David Friend og Simon Bradley. Miðviku- dagur 23. apríl. Puppetry of the Penis: The Ancient Australian Art of Genital Origami Leikhúslimirnir David Friend og Simon Bradley fullklæddir með Sigurstein Halldórsson á milli sín. Sveinn Haraldsson Morgunblaðið/Jón Svavarsson BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði er alltaf í sparifötunum á laugardögum. Þá dregur það upp úr pússi sínu þess- ar líka fínu kvikmyndir og margar hverjar teljast til helstu perlna kvikmyndasögunnar. Í dag er það myndin Le Loca- taire eða Leigjandinn eftir pólska kvikmyndaleikstjórann Roman Polanski, en hann fékk einmitt Óskarverðlaunin fyir nýjustu mynd sína, Píanistann, sem enn má sjá í kvikmyndahúsum borgarinnar um þessar mundir. Handritshöfund- urinn er Gérard Brach, hans helsti samstarfsmaður í Frakklandi. Gérard hefur einnig skrifað hand- rit að flestum mynda leikstjórans Jean-Jacques Annaud og á að baki stórglæstan feril. Myndin Leigjandinn er sál- fræðihrollvekja frá árinu 1976 og gerist í Frakklandi. Polanski – sem lærði leiklist áður en hann sneri sér að kvikmyndaleikstjórn – leik- ur sjálfur aðalhlutverkið; mann sem tekur íbúð á leigu en fyrrum leigjandi íbúðarinnar svipti sig lífi. Fljótlega fer manninn að gruna að nágrannar hans og leigusali séu í samsæri gegn sér og vonist jafnvel til þess að hann fremji sjálfsmorð. Ásamt Polanski má sjá nokkra af vinsælli leikurum Frakka einsog Isabelle Adjani, Josiane Balasko og Michel Blanc í myndinni. Leigandinn er af mörgum talin vera mjög vanmetin mynd sem vel þoli samanburð við þekktari mynd- ir leikstjórans. Myndin var m.a. til- nefnd til Gullpálmans í Cannes, en tapaði fyrir ekki minni mynd en Leigubílstjóranum (Taxi Driver) eftir Martin Scorsese. Vanmetin sálfræðihrollvekja Sýningarnar fara fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði, og hefjast kl. 16. Miðaverð er 500 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.