Morgunblaðið - 26.04.2003, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 67
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Traust, svik og blekkingar
Í heimi leyniþjónustunnar er ekki allt sem sýnist.
Frábær spennumynd sem fór
beintá toppinn í Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 8. B.i 12
HK DV
Kvikmyndir.com
SV MBL
HJ MBL
HK DVKvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8. B.i 12.
HOURS
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12.
ÓSKARSVERÐLAUN
www.regnboginn.is
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
GAMLE MÆND I NYE BILER
sýnd kl. 6. ísl. texti.
PINOCCHIO
sýnd kl. 4. ísl. texti.
GOOD GIRL
sýnd kl. 10.20. ísl. texti.
ELSKER DIG FOR EVIGT
sýnd kl. 4. ísl. texti.
28 DAYS LATER
sýnd kl. 4. enskt tal.
KLASS FESTEN
sýnd kl. 6. ísl. texti.
SPIDER
sýnd kl. 6. ísl. texti.
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO
sýnd kl. 10.20. enskur texti.
BOWLING FOR COLUMBINE
sýnd kl. 8 og 10.10. ísl. texti.
ATH SÍÐUSTU SÝNINGARDAGAR 101 KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Forsala hafin á h imsfrumsýningu X-Men 2
BESTA HEIMILDARMYNDIN
400
kr
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Þetta
var hin
fullkomna
brúðkaups-
ferð...
þangað til
hún
byrjaði!
Þrælfyndin og skemmtileg mynd með
Ashton Kutcher úr Dude Where´s
My Car og Brittany Murphy úr 8 Mile.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. 400 kr.
Sýnd kl. 3.30, 5.45 og 8.
www.laugarasbio.is
Sex vinir hafa komist að hryðjuverkaáætlun.
Nú hafa þeir sólarhring til að vara heiminn við
áður en hryllingurinn verður að veruleika.
Brjálaður hasar og
geggjuð áhættuatriði.
400
kr
Forsala hafin á heimsfrumsýningu X-Men 2
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 400 kr.
SMÁRALIND • S. 555 7878
ATH
SÍÐUSTU
SÝNINGARDAGAR
101 KVIKMYNDAHÁTÍÐ
JÁ, þeir eru aldeilis heppnir fé-
lagarnir þrír Abrax, Brabax og
Kalifax sem saman kalla sig Abra-
fax. Þeir fara nefnilega á safn og
finna þar dularfullan gulldisk, en við
snertingu sendir hann drengina þrjá
aftur í upphaf átjándu aldar, beint í
flasið á frægustu sjóræningjum sög-
unnar, Önnu Bonny og Svartskeggi.
Og auðvitað lenda þeir í rosalegum
ævintýrum og mikilli spennu.
Það er alltaf gaman þegar öðrum
en Bandaríkjamönnum tekst vel upp
við teiknimyndagerð. Þótt Abrafax
sé þýsk mynd, er hún mjög áþekk
þeim bandarísku, þá bæði hvað
varðar stíl teikninganna og upp-
byggingu handrits, og jafnvel per-
sónusköpun. Myndin var helst til of
dimm yfir heildina, en það geta ver-
ið mistök hjá kvikmyndahúsinu.
Annars er hér farið eftir vissum
leiðum sem ekki hafa klikkað hingað
til. Og er það vel.
Mér fannst mjög sniðugt að senda
nútímakrakka aftur í tímann,
krakka sem líkjast áhorfendunum
og þeir geta tengt við. Á móti sakn-
aði ég þess mjög að í upphafi voru
heimur, langanir þeirra og persónur
ekki kynntar nógu vel, til þess að
fyrrnefnd tenging gæti átt sér stað.
Margir skrautlegir karakterar
prýða myndina og er Anna Bonny
sterk og flott persóna. Gaman væri
að vita hvort hún hefur verið eitt-
hvað lík þessu í raunveruleikanum,
en það skiptir kannski engu máli í
mynd þar sem sögunni er breytt eft-
ir hentugleikum.
Ævintýri sögunnar
KVIKMYNDIR
Smárabíó og
Laugarásbíó
Leikstjórn: Gerhard Hahn og
Tony Power. Handrit: Richard
Everett og Lona Rietschel. Ísl.
leikstj: Jakob Þór Einarsson.
Ísl. raddir: Þórhallur Sigurðsson
Guðmundur Felixsson, Alex-
ander Briem, Óskar Völund-
arson, Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir, Hallur Helgason og
Sigurður Sigurjónsson. 70 mín.
Þýskaland. UIP 2001.
ABRAFAX OG
SJÓRÆNINGJARNIR Krakkarnir í Abrafax lenda í „rosalegum
ævintýrum og mikilli spennu“.
Hildur Loftsdóttir
HRESSILEG og klass-
ísk rokklög munu
hljóma í kvöld, þegar
Garðar Guðmundsson,
(kallaður hinn íslenski
Tommy Steele) í slag-
togi við marga af ást-
sælustu rokkarum
landsins, stígur á svið í
Ásbyrgi á Broadway.
Um nokkurt skeið hefur hópur
söngvara komið saman og haldið
viðlíka sýningu, fyrst ’83 og ’84
og seinna ’93 og ’98, og koma nú
loks saman aftur. Nú skipa hóp-
inn, auk Garðars, þau Þorsteinn
Eggertsson, Sigurdór Sig-
urdórsson, Sigurður Johnny,
Mjöll Hólm, Kolbrún Sveinbjörns-
dóttir, Einar Júlíusson, Bertha
Biering og Anna Vilhjálms, en
undir spilar hljómsveitin Heið-
ursmenn.
Sýningin kallast „American
Graffiti“ og er kennd við sam-
nefnda kvikmynd Georges Lucas,
oft kölluð formóðir allra ung-
lingamynda, sem kom út 1973 og
er þekkt fyrir nostalgíska mynd
af lífi og tónlist ung-
linga á árunum kring-
um 1960.
Höfðar til allra
Að sögn Garðars
verður skemmtunin öll
í þeim stíl: „Við syngj-
um meira og minna
lög sem tengjast mynd-
inni, og lög frá sama tíma. Meðal
laga sem verða tekin eru „Móna
Lísa“, „La Bamba“, „Blueberry
Hill“, „Rock Around the Clock“ og
fleiri eftirminnilegir slagarar.“
Garðar segir að þessi tónlist
virðist höfða til allra: „Það er auð-
vitað fólkið „okkar“, sem er fimm-
tugt og eldra, sem fílar þetta í
botn. En svo finnst unga fólkinu
þetta mjög skemmtilegt. Á
rokkhátíðunum á Broadway hefur
verið fólk alveg niður í 18 ára sem
hefur ekki minna gaman af þessu,
enda stuðmúsík.“
Tónlistardagskráin hefst um kl.
22, en að henni lokinni verður ball
þar sem gestir geta dansað fram
eftir nóttu.
Ljósmynd/Sigurdór
Þegar poppið var létt og sætt: Garðar Guðmundsson, Mjöll
Hólm, Þorsteinn Eggertsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður
Johnny, Einar Júlíusson, Bertha Biering og Kolbrún Svein-
björnsdóttir munu skemmta gestum í Ásbyrgi.
Gömlu góðu rokklögin úr myndinni American Graffiti á Broadway
Ferðast fjóra ára-
tugi aftur í tímann
Hnefaleika-
keppni fer fram í
Stapanum
Reykjanesbæ í
kvöld. Þrír ís-
lenskir kappar
mæta þá jafn-
mörgum sænsk-
um. Sænsku gest-
irnir eru allir
hinir fræknustu;
Gebriel Ruthenskiöld, Svíþjóðar-
meistari byrjenda, Oskar Thorin,
sem er sjöundi á sænska styrkleika-
listanum, og John-Erik Käck,
ríkjandi sænskur meistari í boxi. Á
móti Ruthenskiöld verður Þórður
„Doddy“ Sævarsson, á móti Thorin
verður Skúli Ármannson, og Skúli
„Tyson“ Vilbergsson etur kappi við
Käck.
Upphitunarbardagar verða milli
íslenskra hnefaleikakappa, þar af
einn kvennabardagi.
Slegist í Stapa
Þórður Sævarsson