Morgunblaðið - 26.04.2003, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.Sýnd kl. 6 og 10.10. B.i. 16.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
KRINGLAN
Radio X
Kvikmyndir.is
HL MBL
Kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Óskarsverðlaun Besti leikari í
aukahlutverki Chris Cooper
Sýnd kl. 4. ísl. tal.Sýnd kl. 3,50. Tiboð 500 kr.
Fyrst var það Mr Bean.
Nú er það Johnny English.
Grín og fjör alla leið.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10. B.i.14 ára.
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Radíó X
H.K. DV
1/2 HL Mbl
Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.05. B.i. 14.
Mögnuð hrollvekja
frá Stephen King
sem engin má missa af!
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Kvikmyndir.com
HJ MBL ÓHT RÁS 2
Radio X
3
Besti leikari
í
aðalhlutverk
Adrien Brody
Besti
leikstjóri
Roman
Polanski
Besta
handritÓSKARS-
VERÐLAUN
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs
hefst 30 apríl.
Sýnd kl. 5 og 8. Sýnd kl. 8.
SMÁRALIND • S. 555 7878
UNDANFARIÐ eitt og hálft ár eða
svo hafa íslenskir dægurtónlistar-
menn tekið að sýna frændum vorum í
Færeyjum aukna eftirtekt. Ástæðan
er einföld: Í þessu 50.000 manna þjóð-
félagi er virkni og sköpunarkraftur í
þessum efnum í sögulegu hámarki
um þessar mundir og sætir næsta
furðu hversu rík tónlistarmenningin
er þar nú. Hér á landi hefur sömuleið-
is verið mikill vaxtarbroddur í dæg-
urtónlist í rúman áratug og þetta
gleðilega ástand í Færeyjum því við-
líka smáþjóð kunnuglegt. Þetta skýr-
ir ábyggilega þennan vaxandi áhuga
Frónbúans á hvað „litli“ bróðir er að
aðhafast.
Það má segja að „færeyska bylgj-
an“, ef svo má að orði komast, hafi
byrjað með innrás þungarokkaranna
í Tý sem hittu Íslendinga einhverra
hluta vegna í hjartastað með lagi sínu
„Ormurin langi“ sem var spilað von
úr viti á Rás 2 í upphafi síðasta árs.
Stuttu síðar flutti einn allra hæfi-
leikaríkasti tónlistarmaður eyjanna,
Eivør Pálsdóttir, búferlum hingað og
iðkar hún sína list nú með íslenskum
tónlistarmönnum. Síðasta haust kom
svo hingað drjúgur slatti af tónlist-
armönnum til spilamennsku, m.a.
rokksveitin Clickhaze, sigurvegari
síðustu Prix keppninnar. Poppstjörn-
unni Brandi Enni (hin íslenska Jó-
hanna Guðrún) hefur þá brugðið
nokkuð fyrir í fjölmiðlum og svo má
telja.
Kreppa til góðs
Umrædd listræn athafnasemi á
rætur að rekja til voveiflegra atburða
í færeyskri samtímasögu. Haustið
1992 reið gríðarleg kreppa yfir landið
þar sem það varð bókstaflega gjald-
þrota. Ríflega 7.000 manns flúðu land
í kjölfarið vegna þessara hamfara. En
í stað þess að keyra þjóðarsál Fær-
eyinga niður í moldina styrktist hún.
Allt í einu varð lýð ljóst að öryggisnet
Danmerkur var kannski ekki eins
öruggt og menn höfðu haldið. Fær-
eyingar yrðu að sýna og sanna að þeir
gætu staðið á eigin fótum. Upp úr
þessu hefur listalíf í landinu staðið í
miklum blóma, hálfgerð þjóðarvakn-
ing átt sér stað og í raun má segja að
pattstaða sé kominn upp í sjálfstæð-
ismálum þar sem um helmingur þjóð-
arinnar vill slíta tengslin við Dan-
mörku að fullu, líkt og við
Íslendingar. Fyrir kreppu var það
mikill minnihluti sem það vildi. Og
nær allir hinna brottfluttu eru komn-
ir aftur heim.
Eitt af því sem rekja má til allra
þessara láta er umrædd keppni, Prix
Føroyar. Þeir sem að henni standa
eru Norðurlandahúsið í Føroyum,
Undirhaldstónleikarafelagið (FUT),
Útvarp Føroya og Sjónvarp Føroya.
Keppnin var fyrst haldin árið 1995 og
síðan á tveggja ára fresti eftir það.
Tilgangurinn var og er að stuðla að
auðugra tónlistarlífi á eyjunum og
gera sveitum kleift að komast utan til
spilamennsku.
Sigurvegarar í gegnum árin hafa
verið eftirfarandi: Moira (’95), Mark
No Limits (’97), Taxi (’99) og svo loks
Clickhaze (’01).
Keppnin send út „beinleiðis“
Færeyingar hafa mikinn metnað
fyrir keppninni í ár og er umfangið
stærra en nokkru sinni. Undan-
keppni hófst þegar í janúar og er fyr-
irkomulagið þannig að fimm þannig
keppnir eru haldnar þar sem sigur-
vegarinn í hverri þeirra fer áfram til
úrslita. Sjötta undankeppnin er svo
skipuð þeim sveitum sem höfnuðu í
öðru sæti í hinum fimm. Sigurvegar-
inn úr þeirri keppni fer svo áfram til
úrslita, þannig að samtals sex sveitir
keppa í lokin. Undankeppnirnar í ár
voru haldnar í Mentanarhúsinu í
Fuglafirði en lokakvöldið verður í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn. Hana
senda bæði færeyska sjónvarpið og
útvarpið „beinleiðis“.
Áhuginn í ár hefur verið gríðarleg-
ur. 29 sveitir hafa keppt (til saman-
burðar má geta þess að um 60 sveitir
kepptu í Músíktilraunum í ár) og
4.000 manns sóttu undankeppnirnar
sem er met. Tíu manna dómnefnd sá
um dómgæslu í undankeppnum en í
úrslitunum verður hún stækkuð til
muna og eru þá 28 manns í dómnefnd,
sumir þeirra erlendir fagmenn.
Þær sveitir sem keppa til úrslita í
ár eru Déjá Vu, MC Hár, Hate-
speech, Gestir, Braquet og Makrel.
MC Hár og Hatespeech eru reynd
stríðshross en hinar sveitirnar eru
yngri og til gamans má geta að
Makrel hafnaði í þriðja sæti Músíktil-
rauna í fyrra og var það í fyrsta sinn
sem útlend sveit tók þátt í tilraun-
unum.
Vinningar eru flestir í formi tilboða
um spilamennsku á hinum ýmsu tón-
leikahátíðum í Skandinavíu. Sigur-
vegararnir fá aukinheldur vikuað-
gang að Lundgaardhljóðverinu í
Danmörku.
Úrslit Prix Føroyar fara fram í kvöld
Keppt í færeysk-
um „tónleik“
Í kvöld fara fram úrslit í fimmtu Prix
Føroyar-keppninni, hljómsveitarkeppni sem
lýtur svipuðum lögmálum og Músíktilraunir.
Arnar Eggert Thoroddsen er staddur ytra
til að fylgjast með framganginum og greinir
hér frá inntaki og sögu keppninnar.
Eivör Pálsdóttir á sviði þegar Clickhaze sigraði í Prix Føroyar árið 2001.
TENGLAR
.....................................................
-www.nlh.fo
-www.pop.fo
arnart@mbl.is
Blaðamaðurinn
Martin Bashir,
sem gerði hina
umdeildu mynd
um Michael
Jackson, hefur
verið ávíttur af
BSC – siðanefnd
breskra ljós-
vakamiðla. Ekki
þó vegna Jackson-myndarinnar,
heldur vegna annars viðtals sem
hann tók við föður undrabarnsins
Sufiah Yusof. Þessi 15 ára stúlka
komst í fréttirnar er hún hvarf í
tvær vikur frá Oxford-háskólanum
þar sem hún nam stærðfræði. Bash-
ir var fyrsti blaðamaðurinn til að fá
aðgang að fjölskyldunni. Síðar
ljóstraði faðirinn því upp að Bashir
hefði komist á snoðir um hvar dótt-
irin væri niðurkomin og boðið upp-
lýsingar að launum fyrir viðtalið.
FÓLK Ífréttum