Morgunblaðið - 26.04.2003, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 69
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16. kl. 2 og 4. ísl. tal / kl. 6. ísl. tal / kl. 2. ísl. tal. Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 2.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem engin má
missa af!
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 2. ísl. tal.
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 og 4. / Sýnd kl. 4. / Sýnd kl. 4
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 11. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 14. / kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.15. / kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 6, 8 og 10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Tilboðkr. 500
Radio X
Kvikmyndir.is
Sjónvarpsferill
Monicu Lew-
insky virðist
ætla að fara vel
af stað. Veru-
leikaþátturinn
sem hún
stjórnar og
heitir Herra
persónuleiki
hóf göngu sína
á mánudag og var áhorf vel yfir
meðallagi. Þátturinn er í anda
Piparmeyjarinnar, að því breyttu að
herramennirnir sem piparmeyjan
þarf að velja úr eru allir með grímur
fyrir andlitinu – sem skýrir nafn
þáttanna, hún neyðist til að velja út
frá persónuleika en ekki útliti …
Írska söngkonan Sinead O’Connor
hefur ákveðið að segja skilið við tón-
listarbransann og setjast í helgan
stein. Í orðsendingu sem hún sendi
aðdáendasetri sínu á Netinu segir
hún þessa ákvörðun sína byggða á
því að hún hafi ekkert lengur fram
að færa. Plötufyrirtæki hennar hef-
ur síðan rennt
stoðum undir
þessi tíðindi. Í yf-
irlýsingunni seg-
ist O’Connor ætla
að þreifa fyrir sér
á öðrum miðum,
en fer ekkert
nánar út í hvar
það verður. „Frá
og með júlí næstkomandi bið ég vin-
samlegast um að endurheimta
einkalíf mitt, því ég vil ekki lengur
vera álitin fræg og óska þess að geta
lifað eðlilegu lífi.“ Fjölmiðlar í Eng-
landi hafa sett þann varnagla við
þetta nýjasta útspil söngkonunnar
uppátækjasömu að hún hafi marg-
sinnis áður lýst yfir að hún sé hætt
öllum afskiptum af tónlist, og nú séu
12 ár liðin síðan hún gerði það í
fyrsta sinn. Síðastu upptökurnar
sem hún segist ætla að senda frá sér
verða lag á plötu tileinkaðri sveita-
söngkonunni Dolly Parton og ann-
að sem verður á plötu söngkonunnar
Sharon Shannon …Fjórir foxillir
aðdáendur bandarísku rokksveit-
arinnar Creed hafa höfðað mál gegn
sveitinni og farið fram á 150 millj-
óna króna skaðabætur vegna þess
að þeir vilja meina að söngvarinn
Scott Stapp hafi verið ofurölvi á
tónleikum sem sveitin hélt í ná-
grenni Chicago 29. desember síð-
astliðinn. Aðdáendurnir fullyrða að
Stapp hafi verið svo drukkinn á tón-
leikunum að hann hafi verið ófær
um að syngja hvað þá muna texta
sína. Hinir sannkristnu Creed-liðar
hafa þegar birt skriflega afsök-
unarbeiðni á vefsetri sínu vegna
framferðisins á umræddum tón-
leikum, þar sem þeir segjast miður
sín yfir að hafa valdið aðdáendum
sínum svo sárum vonbrigðum. Þeir
segja tónleikana hafa verið eins-
dæmi í sögu sveitarinnar og skella
skuldinni á rokklífstílinn. Fjór-
menningarnir sem kært hafa Stapp
og sveitina segja að hann hafi ýmist
verið utan sviðs eða velst um á svið-
inu hálfrænulaus, að virtist. Aðdá-
endurnir fjórir fara því fram á að fá
endurgreiddar þær 17 þúsund krón-
ur sem þeir segjast hafa lagt út fyrir
ferðinni á tónleikana, í ferðakostnað
og fyrir miða inn á tónleikana. Hin
háa skaðabótaupphæð sem form-
lega er höfðuð gegn umboðsmanni
sveitarinnar og miðasölufyrirtækinu
Ticketmaster, segja þeir ætlaða til
að endurgreiða öllum 15 þúsund
áhorfendum á tónleikunum.
Creed er ein allra vinsælasta hljóm-
sveit heims og hafa plötur hennar
selst í á annan tug milljóna eintaka
og sveitin leikið fyrir meira en 4
milljónir tónleikagesta um heim all-
an. Sveitin byrjaði sem kristileg
rokksveit en virðist hafa verið að
reyna að hrista af sér þann stimpil
undanfarið - og gengur bara ágæt-
lega …Kelly Clarkson, sigurveg-
arinn í fyrstu stjörnuleitar-
keppninni
American Idol
fór beint á topp
bandaríska plötu-
sölulistans með
sinni fyrstu plötu.
Platan heitir
Thankful og seld-
ist í 297 þúsund
eintökum. Fyrsta
lagið hennar kom út í fyrra. Það
heitir „A Moment Like This“ og hef-
ur selst í yfir 600 þúsund eintök-
um …
FÓLK Ífréttum