Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
TÓMAS Ingi Olrich mennta-
málaráðherra og Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði,
undirrituðu í gær í gamla hér-
aðssjúkrahúsinu á Ísafirði sam-
komulag um endurbyggingu
þriggja menningarhúsa á Ísa-
firði.
Þessi hús eru gamla sjúkra-
húsið, Edinborgarhúsið og salur
tónlistarskólans.
Samkomulagið sem nú liggur
fyrir hefur grundvallarþýðingu
fyrir það menningarstarf sem
unnið hefur verið að á Ísafirði,
að sögn Jóns Sigurpálssonar,
stjórnarformanns Edinborg-
arhússins.
„Þetta hefur þá þýðingu að
við höldum uppbyggingunni
áfram og sjáum fram á að ljúka
þessari hugmynd um menning-
armiðstöð í Edinborgarhúsinu,“
segir Jón.
Grundvöllur samningsins er
ákvörðun ríkisstjórnar frá árinu
1999 um að veita stofnstyrki til
uppbyggingar fimm menningar-
húsa utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Ríkisstjórnin ákvað síðast-
liðinn þriðjudag að leggja fram
251 milljón króna til þessara
þriggja verkefna við endurbygg-
ingu þriggja menningarhúsa á
Ísafirði.
Verður gamla héraðssjúkra-
húsinu ætlað það hlutverk að
vera bóka- og listasafn, salur
Tónlistarskóla Ísafjarðar verður
nýttur til tónleikahalds og
margs konar listastarfsemi, m.a.
sviðslistir, mun fara fram í Ed-
inborgarhúsinu.
Fjölnota salur
fyrir 280 manns
Framkvæmdir við húsin hafa
staðið yfir um nokkurt skeið.
Endurbygging Edinborgarhúss-
ins er stórt og viðamikið verk-
efni að sögn Jóns Sigurpáls-
sonar. Gera grófar áætlanir ráð
fyrir að heildarkostnaður vegna
þessa verkefnis geti numið ná-
lægt 150 milljónum króna.
„Við sjáum fram á það núna
að hefja vinnu þar sem frá var
horfið við þennan stóra fjölnota
sal og munum hefja það verk á
næstu vikum,“ sagði Jón.
Salurinn mun taka um 280
manns í sæti og er að öllum lík-
indum stærsti salur sem byggð-
ur hefur verið á Vestfjörðum.
„Við sjáum fram á að nýta hann
undir sviðslist, tónlist og aðra
listastarfsemi, auk þess að hann
muni þjóna svæðinu sem fjöl-
nota salur,“ segir hann.
Eru bundnar vonir við að tak-
ast muni að ljúka fram-
kvæmdum við leikhúsið og fjöl-
nota salinn í Edinborgarhúsinu
á næsta ári.
Samkomulag um enduruppbyggingu þriggja menningarhúsa á Ísafirði
„Hefur grundvallarþýðingu
fyrir menningarstarfið“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Sigríður Björk Guðjónsdóttir sýslumaður kemur í safnahúsið á Ísafirði
til að vera viðstödd undirritun samnings sem þar fór fram í gær.
LÖGREGLUDAGURINN verður haldinn
hátíðlegur í dag og verður opið hús á lög-
reglustöðvum víða um land. Í gær minntu
lögreglumenn í Reykjavík með áberandi
hætti á daginn og óku hring um borgina á
bifhjólum og bílum. Lögregludagurinn er
haldinn í tilefni 200 ára afmælis hinnar ein-
kennisklæddu lögreglu 15. apríl sl.
Morgunblaðið/Júlíus
Haldið upp
á afmælið
Með lögum skal/30–31
VILHELM Þorsteinsson EA, fjölveiði-
skip Samherja, var væntanlegur til
hafnar í Reykjavík nú í morgunsárið
með fullfermi af úthafskarfa af Reykja-
neshrygg eftir 14 daga veiðiferð. Aflinn
er hausaður og frystur um borð og er
afli upp úr sjó um 750 tonn og afurðir
um 410 tonn. Aflaverðmæti skipsins er
um 50 milljónir króna.
Hér er um mjög mikinn afla að ræða
á ekki lengri tíma. Guðmundur Jónsson
skipstjóri sagði að úthafskarfaveiðin
færi vel af stað og að vonandi yrði
framhald á en síðustu þrjá til fjóra
veiðidagana var aflinn um 350 tonn.
„Við erum með mikla frystigetu um
borð og ég er ekki viss um að þeir séu
margir sem hafa komið með 20.000
kassa að landi eftir 14 daga veiðiferð,“
sagði hann.
Þetta var fyrsti túrinn á Reykjanes-
hrygginn og Guðmundur sagði að Vil-
helm Þorsteinsson hefði verið fyrsta ís-
lenska skipið á miðin en þar væru nú
um 15 íslensk skip.
Í gær voru einnig 43 erlendir togarar
að veiðum við lögsögumörkin á Reykja-
neshrygg skv. athugun Landhelgisgæsl-
unnar. Þar af var 31 togari frá aðild-
arlöndum Norður-Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar (NEAFC). Fleiri togarar
voru á svæðinu frá löndum sem ekki
eiga aðild að NEAFC, þ.e. frá svo-
nefndum utansamningsþjóðum, þar á
meðal fimm togarar frá Litháen, eitt
skip frá Belís og fimm skráð í Dóm-
iníska lýðveldinu, en skv. upplýsingum
stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar er
ekki vitað til þess að fiskiskip skráð í
Dóminíska lýðveldinu hafi áður verið á
úthafskarfamiðunum á Reykjanes-
hrygg.
Með 750 tonn af
karfa eftir 14 daga
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA kemur drekkhlaðið að landi.
EKKERT hefði forðað banaslysi
ef tveir 17 ára piltar, sem óku
kraftmiklum sportbílum á 190
km/klst. hraða niður Ártúns-
brekkuna í fyrrakvöld, hefðu
misst stjórn á bílunum og hafnað
á kyrrstæðum bíl, ljósastaur eða
vegriði. Hefðu þeir ekið aftan á
bíl sem ekið var á löglegum hraða
er einnig ljóst að stórslys hefði
orðið.
Þetta er niðurstaða Magnúsar
Þórs Jónssonar, prófessors í
véla- og iðnaðarverkfræði við
Háskóla Íslands, en hann hefur
sett upp líkan sem sýnir beyglun
á bílum við árekstur.
Sportbílunum tveimur, öðrum
bandarískum en hinum japönsk-
um, var ekið nánast samsíða nið-
ur brekkuna á þessum ógnar-
hraða rétt fyrir klukkan ellefu
um kvöldið. Varðstjóri hjá lög-
reglunni sem mældi bílana í rad-
ar segist aldrei hafa séð slíkan
hraða áður, hvort sem er utan-
eða innanbæjar.
Piltarnir sprengdu
sektarskalann
Hámarkshraði á þessum slóð-
um er 80 km/klst. og óku piltarnir
því 110 km hraðar en leyfilegt er.
Með þessu sprengdu þeir sekt-
arskalann. Reglugerðarákvæði
um sektir fyrir hraðakstur, þar
sem hámarkshraði er 80 km/klst.,
nær ekki hærra en upp í 160 km/
klst. Við því liggur 70.000 króna
sekt og þriggja mánaða svipting
á ökuréttindum. Máli sem þessu
lýkur þó ekki með sekt heldur
ákæru og dómi. Lögfræðingur
hjá lögreglustjóranum í Reykja-
vík telur ólíklegt að sektin verði
minni en 100.000 krónur og öku-
réttindasvipting í sex mánuði.
Þess má geta að ekki er hægt
að öðlast réttindi til að stjórna
öflugustu mótorhjólum nema við-
komandi hafi náð 19 ára aldri og
hafi tveggja ára reynslu af því að
aka minni mótorhjólum. Engin
slík skilyrði eru um ökuréttindi á
bifreiðum.
Hefur reiknað út afleiðingar 190 km/klst. ofsaaksturs
Banaslys er óhjá-
kvæmilegt í árekstri
Mesti hraði/6
VIÐBÚNAÐUR vegna hugsan-
legs tilfellis bráðalungnabólgu
hérlendis er nú eitt brýnasta
verkefni hjá landlæknisembætt-
inu og er mikil áhersla lögð á
rétt viðbrögð þegar og ef smit
berst hingað.
Landlæknir hefur útbúið við-
bragðanet um land allt og er
sjónum í fyrsta lagi beint að
millilandaflugvélum. Hefur upp-
lýsingum um einkenni veikinnar
verið dreift til farþega og hvert
þeir eigi að snúa sér ef grunur
er um smit. Einnig hafa verið
sendar leiðbeiningar til allra
heilsugæslustofnana í landinu.
Guðrún Sigmundsdóttir smit-
sjúkdómalæknir segir aðgerð-
irnar miðast að réttum við-
brögðum á viðkomandi stað þar
sem tilfelli kann að greinast.
Komi upp tilfelli þarf tafarlaust
að hafa samband við Landspít-
alann og sjá til þess að sjúkling-
ur verði fluttur þangað. Einnig
miðast viðbúnaðurinn við að ná
til þeirra sem gætu hafa smitast
af einhverjum sem sannanlega
hefur fengið lungnabólguna.
Landlæknir útbýr við-
bragðanet um land allt