Morgunblaðið - 28.05.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEINT INNHERJASVIK
Grunur leikur á að sex ein-
staklingar hafi notfært sér trúnaðar-
upplýsingar, sem þeir bjuggu yfir
um kaup Kaupþings banka á hluta-
bréfum í sænska bankanum JP
Nordiska á síðasta ári, til að hagnast
um sem samsvarar rúmlega 45 millj-
ónum íslenskra króna. Gerð var hús-
leit á heimilum og skrifstofum í
fimm löndum að frumkvæði efna-
hagsbrotadeildar sænsku lögregl-
unnar í gær, þ.m.t. hjá Kaupþingi á
Íslandi og í höfuðstöðvum Bakka-
varar Group í London.
Öflugur eftirskjálfti
Þrír létust og um 200 slösuðust í
jarðskjálfta sem reið yfir norður-
hluta Alsír í gær. Skjálftinn mældist
5,5 á Richter-kvarða og voru upptök
hans í Zemmoria, skammt frá Al-
geirsborg. Fyrir viku olli jarðskjálfti
upp á 6,8 á Richter því að meira en
2.200 Alsírbúa týndu lífi.
Uppsagnir hjá ÍE og Eddu
Tuttugu og átta starfsmönnum Ís-
lenskrar erfðagreiningar var sagt
upp störfum í gær, en flestir störf-
uðu þeir í tölvu- og hugbúnaðardeild
fyrirtækisins. Þá var átján manns
sagt upp hjá Eddu útgáfu hf.
Davíð flytur stefnuræðu
Davíð Oddsson forsætisráðherra
flutti stefnuræðu sína á Alþingi í
gærkvöld og fóru í kjölfarið fram
umræður um hana. Síðar í gærkvöld
var þingi frestað og kemur það næst
saman í haust.
Ólafur hitti Persson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, átti fund með Göran Pers-
son, forsætisráðherra Svíþjóðar, í
Stokkhólmi í gær en í dag verður Ís-
lendingadagurinn haldinn hátíðleg-
ur þar í borg. Í dag snæða þau Ólaf-
ur Ragnar og eiginkona hans, Dorrit
Moussaieff, hádegisverð í boði
sænsku konungshjónanna.
Ráðist á Bandaríkjamenn
Tveir bandarískir hermenn féllu
og níu særðust í árás á eftirlitsstöð
bandaríska hersins við bæinn Fall-
ujah í Írak í gær. Árásarmennirnir
tveir voru felldir af liðsmönnum
Bandaríkjahers. Röð árása hefur
verið gerð á bandaríska hermenn í
Írak undanfarna daga.
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
K IA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
Ný og glæsileg hljómtækjalína frá Alpine
Ný
árge
rð
Flottar græjur!
JEPPAHORNIÐ
BÍLSKÚRAFLÓRA
S60 REYNSLUEKIÐ
2 FAST 2 FURIOUS
RALLIÐ
TORFÆRAN
LEXUS – REYNSLUAKSTUR
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 13/14 Minningar 32/38
Erlent 15/17 Bréf 40
Höfuðborgin 18 Kirkjustarf 41
Akureyri 19 Dagbók 42/43
Suðurnes 20 Sport 45/47
Landið 21 Fólk 48/53
Listir 22/24 Bíó 50/53
Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
VERKTAKAFYRIRTÆKIN
Impregilo og Arnarfell starfa nú af
fullum krafti við undirbúning
stíflugerðar og borun aðrennslis-
ganga Kárahnjúkavirkjunar. Byrj-
að var í síðustu viku að bora tvenn
hjáveitugöng við enda rampsins
niður í Hafrahvammagljúfur og
stefnt á að ljúka því verki í lok
október. Verður Jökulsá á Dal þá
veitt um þessi göng til að stíflu-
gerðin geti farið fram óhindruð.
Að sögn Sigurðar St. Arnalds,
byggingaverkfræðings hjá Lands-
virkjun, sem sér um almanna-
tengsl vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar, byrja þessar framkvæmdir við
hjáveitugöngin þar sem frá var
horfið hjá Íslenskum aðalverktök-
um. Impregilo hefur útvegað tvo
svonefnda borvagna í verkefnið.
Einnig munu Ítalirnir byrja fljót-
lega á því að grafa fyrir stíflunni
og hreinsa jarðveg ofan af berg-
inu. Hefst þetta verk um miðjan
júní.
Starfsmenn Arnarfells eru að
koma upp steypustöð á svæðinu
sem mun í upphafi framleiða
steypu í undirstöður fyrir vinnu-
búðirnar. Arnarfell er einnig að
vinna við gerð tveggja svonefndra
aðganga fyrir aðrennslisgöngin
þar sem borvélarnar risastóru frá
Impregilo verða settar saman. Er
önnur borvélin væntanleg til
landsins frá Bandaríkjunum í lok
október nk. og að sögn Sigurðar er
stefnt að því að vélin hefji borun
aðrennslisganga frá Glúmsstaða-
dal, fyrir ofan Hrafnkelsdal, í lok
janúar á næsta ári. Vegagerð að
aðgöngum í Glúmsstaðadal er ein-
mitt að hefjast um þessar mundir.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Starfsmenn verktakafyrirtækisins Arnarfells eru að setja upp steypustöð á Kárahnjúkasvæðinu.
Aftur byrjað á hjáveitu-
göngum við Kárahnjúka
NÚ liggur fyrir hjá ráðning-
arfyrirtækjunum Mannafli og
Vinnu.is að alls 889 einstaklingar
voru að baki þeim 2.762 umsókn-
um sem bárust um störf við
Kárahnjúkavirkjun. Í boði voru
nærri 200 störf fyrir Impregilo,
aðallega við stjórnun vinnuvéla
en einnig mörg störf sem ekki
krefjast fagmenntunar. Sam-
kvæmt þessu má ljóst vera að
hver einstaklingur hafi að með-
altali sótt um þrjú störf.
Að sögn Ingibjargar Óðins-
dóttur, ráðgjafa hjá Mannafli,
tafði það úrvinnslu umsóknanna
að mörg eyðublöð umsækjenda
voru ekki nægjanlega vel útfyllt.
Hefjast nú viðtöl við umsækj-
endur í samráði við Impregilo og
stefnt að því að ljúka ráðningum
sem fyrst.
Umsóknir frá 889 manns
DAGVINNULAUN opinberra
starfsmanna hækkuðu um rúm
11% milli áranna 2001 og 2002 og
námu að meðaltali rúmum 198
þúsund krónum á mánuði. Heild-
arlaun opinberra starfsmanna
hækkuðu nokkru minna eða um
tæp 9% á sama tímabili og námu
rúmum 275 þúsund krónum að
meðaltali.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýju fréttariti Kjararannsóknar-
nefndar opinberra starfsmanna,
KOS, yfir launaþróun opinberra
starfsmanna ríkis og Reykjavík-
urborgar á síðari hluta ársins
2002.
Þegar launaþróun opinberra
starfsmanna er skoðuð aftur í tím-
ann kemur fram að laun þeirra
hafa hækkað jafnt og þétt á und-
anförnum árum. Þannig hækkuðu
dagvinnulaun opinberra starfs-
manna um 15% árið 2001, um 7%
árið 2000, um 10% árið 1999 og um
rúm 24% árið 1998.
Heildarlaun opinberra starfs-
manna hafa einnig hækkað veru-
lega á sama tímabili en þó nokkru
minna en dagvinnulaunin. Þannig
hækkuðu heildarlaunin um 18%
1998, 9% 1999, 8% árið 2000, 13%
árið 2001 og tæp 9% í fyrra eins
og áður sagði.
Kaupmáttur dagvinnulauna og
opinberra starfsmanna hefur einn-
ig vaxið jafnt og þétt í takt við
þessar launahækkanir á ofan-
greindu tímabili. Raunar hefur
kaupmátturinn vaxið allt frá árinu
1993 en það er einkum síðustu ár-
in eða frá árinu 1997 sem hann
hefur vaxið hröðum skrefum.
Þannig var vísitala kaupmáttar
dagvinnulauna opinberra starfs-
manna, sem sett var 100 árið 1990,
99,93 stig árið 1993. Hún var tæp
114 stig árið 1997 en hefur síðan
hækkað jafnt og þétt og var tæp
173 stig í fyrra.
14% af fjölda vinnandi manna
Fram kemur að launaupplýsing-
arnar ná til rúmlega 20 þúsund
einstaklinga í starfi hjá ríki og
Reykjavíkurborg í nóvember síð-
astliðnum en það jafngildir um
14% af fjölda vinnandi manna á Ís-
landi.
Konur eru talsvert fleiri en karl-
mennirnir eða tæplega 13 þúsund
samanborið við tæplega 8 þúsund
karlmenn.
Dagvinnulaun 11% hærri
BÓLUSETNING við heila-
himnubólgu hefur gengið mjög
vel og er langt komin sam-
kvæmt upplýsingum landlækn-
isembættisins. Er gert ráð fyrir
að bólusetningunni ljúki fyrir
sumarið, en hún hófst í fyrra-
haust. Mun færri tilfelli af þeirri
tegund heilahimnubólgu sem
bólusett er fyrir hafa greinst í
vetur en áður var.
Þórólfur Guðnason, yfirlækn-
ir hjá sóttvarnarlækni, sagði að
bólusetningin hefði gengið vel.
Upprunalega hefði verið að því
stefnt að ljúka bólusetningunni
innan árs, en þeir gerðu sér von-
ir um að henni lyki fyrir sumarið
og sér sýndist að það ætlaði að
ganga upp.
84 þúsund bólusettir
Alls er ætlunin að bólusetja
um 84 þúsund einstaklinga,
þ.e.a.s. öll börn og unglinga á
aldrinum 6 mánaða til og með 19
ára, en það eru einkum börn og
unglingar sem smitast. Síðan
verður bólusetningin hluti af
ungbarnabólusetningu.
Þórólfur sagði að bólusetn-
ingin hefði hafist 15. október sl.
og síðan hefðu greinst þrjú til-
felli heilahimnubólgu af völdum
meningokokka. Þar af hefðu tvö
verið af c-stofni, sem bólusett er
fyrir, og eitt af b-stofni. Öll til-
fellin hefðu verið í óbólusettum
einstaklingum, en á undanförn-
um árum hefðu verið 10–15 til-
felli árlega af heilahimnubólgu
af c-stofni. Þótt of snemmt væri
að segja um árangur af bólu-
setningunni lofaði þetta að
minnsta kosti mjög góðu.
Aðeins tvö tilvik
af heilahimnu-
bólgu í vetur
Bólusetn-
ing langt
komin
MENNTASKÓLINN við Hamra-
hlíð er með í athugun að þróa sér-
staka braut fyrir nemendur sem
hafa íslensku ekki að móðurmáli og
hafa jafnframt litla kunnáttu í
ensku.
Sigurborg Matthíasdóttir kon-
rektor segir að gert sé ráð fyrir að
námið taki tvö ár og aðaláherslan
verði lögð á að bæta kunnáttu í
ensku og íslensku auk þess sem
móðurmál nemenda verði styrkt
enda sé góð kunnátta í móðurmáli
talin grundvöllur góðs námsgengis.
Hún nefnir sem dæmi IB-braut
skólans, alþjóðlega braut með al-
þjóðlegu stúdentsprófi, sem nem-
endur með góðan grunn í ensku
geta farið í en þaðan útskrifuðust 24
nemendur í vor. Að sögn Sigurborg-
ar er hugmyndin að námsbrautinni
komin frá kennurum skólans.
„Okkur hefur fundist vanta lausn
fyrir nemendur sem ekki hafa verið
í íslenskum grunnskólum. Við höf-
um verið með nemendur sem við
finnum að eiga fullt erindi í bóklegt
nám en fóta sig illa í íslensku,“ segir
Sigurborg. Hún segir að í vetur
verði athugað hvernig best sé að
standa að brautinni og síðan tekin
ákvörðun í samráði við menntamála-
yfirvöld um hvenær hún verði sett á
stofn.
Ný námsbraut fyrir
útlendinga í bígerð
BÖRNIN á Brekkuborg vita allt um Jón Sigurðsson, Ráðhúsið, landvættina
og njósnara Noregskonungs sem þeir ku hafa hamlað landgöngu í fyrnd-
inni eftir lýðveldisfræðsluna sem staðið hefur yfir að undanförnu.
Með fyrsta Íslendingnum
Morgunblaðið/Kristinn