Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Niðurtalningin er hafin, minn tími mun koma.
Fyrirlestur um skipulagsmál
Nýjar leiðir í
skipulagi borga
HÉR á landi er nústaddur belgískurprófessor í arkí-
tektúr og skipulagsfræð-
um, Jean Francois Le-
jeune, og mun hann halda
fyrirlestur í Norræna hús-
inu í kvöld klukkan 20.
Fyrirlesturinn hreyfir við
nýstárlegum hugmyndum
um borgarskipulag sem
hafa verið að ryðja sér til
rúms hin síðari ár, en eru
eigi að síður bæði erfið og
umdeild. Morgunblaðið
lagði nokkrar spurningar
fyrir Lejeune.
– Hvernig ber heimsókn
þína hingað að?
„Gamall nemandi minn,
Einar Ólafsson, bauð mér
að koma hingað til lands,
kynna mér land og þjóð og
halda fyrirlestur.“
– Um hvað ætlar þú að tala?
„Það er tvískipt. Fyrst ætla ég
að tala um málefni sem ég kalla
„Dynamic city“ og snýst um nýja
hreyfingu og þróun í borgarskipu-
lagi sem hófst í Bandaríkjunum á
miðjum áttunda áratugnum og
hefur vaxið talsvert fiskur um
hrygg. Stefnan heitir „New urb-
anism“ og í henni er þess freistað
að finna nýjar leiðir til að skipu-
leggja borgir, ýmist heilu hverfin
upp á nýtt eða jafnóðum og byggð
breiðist út. Byggja það að ein-
hverju leyti á fortíðinni, fyrir tíma
bíla og annarra stórvirkra sam-
göngutækja. Það er leitað eftir
umhverfis- og samskiptavænum
leiðum, svo og fjárhagslega hag-
stæðum leiðum til að opna hverfi.
Gera götur og hverfi þannig úr
garði að minni þörf sé t.d. fyrir
bíla og umhverfið verði opnara og
vænna fyrir gangandi vegfarend-
ur.“
– Hvar er þessi stefna upprunn-
in og hversu sterk er hún orðin?
„Hún er upprunnin í Flórída og
það voru arkítektarnir Andres
Duany og Elisabeth Plater
Zyberk sem eru höfundar hennar.
Stefnan er í góðri sókn, einkum í
Bandaríkjunum, margvísleg stað-
bundin smærri hverfaverkefni
hafa farið vel og nú teygir stefnan
anga sína í vaxandi mæli inn í mið-
borgirnar. Haldin er fjölmenn
ráðstefna um stefnuna á ári
hverju og er hún jafnan vel sótt og
uppfull af skemmtilegum nýjung-
um í faginu. Það hafa verið að
mæta 1500 manns á ráðstefnuna
síðustu árin, en næst verður hún
haldin í Washington í næsta mán-
uði.“
– Er þetta ekki nánast óvinn-
andi vígi, þar sem fyrir eru mót-
aðar og grónar miðborgir?
„Jú, það er óhætt að segja að
þetta sé umdeild stefna. Menn eru
tregir að breyta og stjórnvöld
hafa tilhneigingu til að fylgja tíð-
arandanum í þeim efnum. Samt
sem áður hefur tekist að ljúka
ýmsum verkum á það farsælan
máta að menn vilja gjarnan sjá
meira.“
– Hvað heldur þú um
þessi mál hér?
„Ég hafði ekkert fyr-
ir mér um ástand
skipulagsmála séð frá
þessum sjónarhóli þeg-
ar ég þáði boðið að
koma hingað og halda fyrirlestur.
Eftir að hafa bæði gengið og ekið
frá Keflavík til Reykjavíkur hef
ég þó tekið eftir því að það er ekki
jafn úti í hött og ég hefði mögu-
lega gert mér í hugarlund.
Það eru afar athyglisverðar og
skemmtilegar götur og hverfi hér
þó ég taki það skýrt fram að ég er
ekki búinn að skoða mig jafn mik-
ið um og ég ætla mér að gera á
meðan á dvöl minni hér á landi
stendur. Ég get nefnt sem dæmi
aðalverslunargötuna í gamla mið-
bænum, Laugaveginn, alveg niður
að svæðinu í kringum Tjörnina og
líka hverfið í kring um kaþólsku
kirkjuna. Ég geri mér grein fyrir
því að þetta eru eldri hverfin í
borginni og mér finnst koma alveg
sérstaklega vel út breytileikinn í
húsunum. Þetta eru ýmist stein-
hús eða bárujárnsklædd timbur-
hús og í öllum mögulegum litum.
Yfir höfuð finnst mér húsin á
þessu svæði vera afskaplega
tengd götunum og ég finn lítið af
það sem ég kalla leiðinlegar götur.
Annars staðar eru hverfi þar sem
göturnar líta ekki út fyrir að vera
götur í þeim skilningi sem ég vil
leita eftir. Hér er um götur með
nýlegum húsum að ræða, en engu
er líkara en að hönnunin hafi mið-
ast við fjölskyldubílana og geri
varla ráð fyrir gangandi vegfar-
endum. Þá er yfirbragðið sums
staðar skipulagslítið.“
– Í ljósi þess að það er miklum
erfiðleikum bundið að fá stuðning
við stefnuna, hvað getur breytt
því?
„Eitt af því sem stendur stefn-
unni fyrir þrifum er í raun ein
helstu meðmælin með henni. Það
er líklegt að mjög oft, ef ekki oft-
ast, sé það kostnaðarmeira að
byggja, skipuleggja og/eða breyta
eftir hugmyndafræði þessarar
nýju stefnu. Hins vegar hefur ver-
ið látið á þetta reyna víða og út-
koman er sú, að þótt meiru sé til
kostað þá standa eftir
bæði eftirsóttari og þar
af leiðandi dýrari og
seljanlegri eignir.“
– En þú nefndir áðan
að fyrirlesturinn væri
tvískiptur…
„Já, seinni hlutinn fjallar um
stöðu mála þar sem World Trade
Center stóð í New York, en nú er
um eitt og hálft ár síðan atburð-
irnir þar áttu sér stað. Skipulagn-
ing á svæðinu stendur yfir og fjör-
leg umræða hefur átt sér stað um
hvað var gott við svæðið og hvað
lakara. Ég mun segja frá þessari
vinnu og skoðanaskiptum.“
Jean Francois Lejeune
Jean Francois Lejeune er
Belgi og búsettur í Miami á Flór-
ída þar sem hann er prófessor og
kennari í arkítektúr, borgar-
sagnfræði og skipulagsfræðum
við Háskólann í Miami. Hann
lærði við Háskólann í Liege í
Belgíu og starfaði síðan um tíu
ára skeið í Brussel. Hann flutti til
Bandaríkjanna árið 1986 og
kenndi um tíma í Portland í
Oregon. Hann hefur skrifað
bækur og tímaritsgreinar um
skipulagsmálin.
… geri varla
ráð fyrir gang-
andi vegfar-
endum
– sumartilboð á gæðaparketi
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
21
29
8
0
5/
20
03
Í maí er opið lengur í timbursölu Súðarvogi 3-5 og versluninni Skútuvogi.
Opið virka daga kl. 8.00-18.00 og laugardaga kl. 9.00-17.00.
Athugið!
Karelia Eik Robust
Vnr. 146563
Aðeins 2.790 kr./m2
Verðfall á nokkrum tegundum af parketi:
Lamella kirsuberjaviður, aðeins 4.390 kr./m2
Vnr. 146266
Lamella Merbau Klassic, aðeins 3.490 kr./m2
Vnr. 146276
Lamella Jatoba Klassic, aðeins 3.990 kr./m2
Vnr. 146286