Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
sér í þau sæti sem þeim hafði verið
úthlutað. Sá fundur stóð yfir í hálf-
tíma en um kvöldið var þriðji fund-
HLUTAÐ var um sæti þingmanna á
Alþingi síðdegis í gær eftir að geng-
ið hafði verið frá kosningu í forsæt-
isnefnd, fastanefndir og alþjóða-
nefndir. Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, gerði það reyndar að til-
lögu sinni að ekki yrði hlutað um
sæti þingmanna að þessu sinni þar
sem gert væri ráð fyrir því að þessu
sumarþingi myndi ljúka síðar um
kvöldið. Hluta á um sæti þingmanna
við setningu hvers nýs löggjaf-
arþings, skv. þingsköpum Alþingis.
Nokkrir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gerðu hins vegar at-
hugasemdir við tillögu Halldórs og
því fór sætaúthlutunin fram. Út-
hlutunin fór þannig fram að þing-
menn komu upp að forsetaborðinu
og drógu sér númer sætisins.
Sætaúthlutunin tók um það bil
hálftíma en eftir það var fundi slit-
ið. Næsti fundur var síðan haldinn
um það bil einum og hálfum tíma
síðar þar sem þingmenn gátu raðað
ur dagsins haldinn, þar sem fram
fóru umræður um stefnuræðu for-
sætisráðherra. Sumarþinginu lauk
síðar um kvöldið. Þar með hafði
verið hlutað um sæti þingmanna
fyrir hálfan dag.
Hlutað
um þing-
sæti fyrir
hálfan dag
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hlutað var um sæti þingmanna á Alþingi í gær. Á myndinni sitja nýju þingmennirnir Birgir Ármannsson, Sjálf-
stæðisflokki, og Ágúst Ólafur Ágústsson, Samfylkingu.
Halldór
Blöndal kjör-
inn forseti
þingsins
HALLDÓR Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, var á þing-
fundi Alþingis í gær kjörinn forseti
Alþingis. Gert er ráð fyrir því að
Sólveig Pétursdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, verði kjörin
forseti Alþingis haustið 2005.
Eftir að Hall-
dór hafði verið
kjörinn tók hann
við fundarstjórn
af Halldóri Ás-
grímssyni, for-
manni Fram-
sóknarflokksins
og starfsald-
ursforseta þings-
ins. „Ég þakka háttvirtum alþing-
ismönnum það traust sem þeir hafa
sýnt mér með því að kjósa mig á ný
forseta Alþingis. Ég met það traust
mikils,“ sagði Halldór. „Ég býð nýja
alþingismenn velkomna til starfa á
Alþingi. Þeir eru átján að þessu
sinni eða rúmlega fjórðungur þing-
heims.“ Halldór óskaði jafnframt
nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störf-
um.
Guðmundur Árni
fyrsti varaforseti
Þá voru í gær kosnir sex varafor-
setar þingsins, en saman mynda
þeir ásamt forseta þingsins, forsæt-
isnefnd Alþingis. Guðmundur Árni
Stefánsson var kjörinn 1. varafor-
seti, Jónína Bjartmarz var kjörin 2.
varaforseti, Sólveig Pétursdóttir
var kjörin 3. varaforseti, Jóhanna
Sigurðardóttir var kjörin 4. vara-
forseti, Þuríður Backman var kjör-
in 5. varaforseti og Birgir Ármanns-
son var kjörinn 6. varaforseti.
Auk þess var á þingfundi í gær
gengið frá kjöri í fastanefndir
þingsins og alþjóðanefndir.
Halldór Blöndal
Kosið í banka-
ráð Seðla-
bankans og
útvarpsráð
ALÞINGI kaus í gær fulltrúa í
stjórnir, nefndir og ráð utan þings,
til næstu fjögurra ára. Í útvarpsráð
voru kjörnir, sem aðalmenn: Gunn-
laugur S. Gunnlaugsson, Páll Magn-
ússon, Anna K. Jónsdóttir, Andri
Óttarson, Svanfríður Jónasdóttir,
Ingvar Sverrisson og Sigurður Ingi
Jónsson. Sem varamenn voru kjörn-
ir: Laufey Jóhannsdóttir, Pétur
Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason,
Rúna Malmquist, Lára Stefáns-
dóttir, Andrés Jónsson og Kjartan
Eggertsson.
Í Þingvallanefnd voru kjörnir
þeir Björn Bjarnason, Guðni Ágústs-
son og Össur Skarphéðinsson.
Kosið í bankaráð Seðlabankans
Í bankaráð Seðlabanka Íslands
voru kjörnir sem aðalmenn: Ólafur
G. Einarsson, Helgi S. Guðmunds-
son, Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson, Jón Sigurðsson, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, Sigríður Stef-
ánsdóttir og Ragnar Arnalds.
Sem varamenn í bankaráði voru
kjörin: Erna Gísladóttir, Sigfús I.
Sigfússon, Hilmar Gunnlaugsson,
Birna M. Olgeirsdóttir, Jón Þór
Sturluson, Kristrún Heimisdóttir og
Tryggvi Friðjónsson.
Fimm kjörnir í tryggingaráð
Eftirtaldir aðilar voru kjörnir
sem aðalmenn í tryggingaráð: Mar-
grét S. Einarsdóttir, Kristinn H.
Gunnarsson, Guðrún Inga Ingólfs-
dóttir, Karl V. Matthíasson og Sig-
ríður Jóhannesdóttir.
Sem varamenn voru kjörin: Svala
Árnadóttir, Elsa Ingjaldsdóttir, Ey-
rún I. Sigfúsdóttir, Signý Jóhann-
esdóttir og Bryndís Friðgeirsdóttir.
ALÞINGI samþykkti í gær kjör-
bréf þingmanna og varaþingmanna
en áður hafði verið felld tillaga
minnihluta kjörbréfanefndar um að
Alþingi frestaði því að kveða upp úr
um kjörbréf þingmanna og lögmæti
alþingiskosninganna þar til fengnar
hefðu verið skýrslur frá yfirkjör-
stjórnum allra kjördæma um með-
ferð kjörgagna og framkvæmd
kosninganna. Tillaga minnihluta
kjörbréfanefndar var felld með 30
atkvæðum gegn 25.
Þegar það lá fyrir lýstu Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, og Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, því yfir
að þingflokkar þeirra myndu greiða
atkvæði með samþykkt kjörbréf-
anna enda hefði þingið kveðið upp
sinn dóm um lögmæti þingkosning-
anna með því að fella áðurnefnda
tillögu minnihlutans. Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, sagði hins vegar að þing-
menn síns flokks myndu sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna um kjörbréf-
in. Atkvæðagreiðslan um þau fór
þannig að 51 þingmaður greiddi at-
kvæði með samþykkt kjörbréfanna
en 4 þingmenn sátu hjá.
Nokkrir þingmenn gerðu grein
fyrir atkvæðum sínum þegar greidd
voru atkvæði um fyrrnefnda tillögu
minnihluta kjörbréfanefndar. Einar
K. Guðfinnsson, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokksins og talsmað-
ur meirihluta kjörbréfanefndar,
sagði m.a. að yfirkjörstjórnir allra
kjördæma hefðu sent frá sér
skýrslur um kosningaúrslit í sínum
kjördæmum. Þá hefði kjörbréfa-
nefnd þingsins unnið sitt starf. Það
þýddi m.a. að allar upplýsingar sem
á þyrfti að halda til að taka ákvörð-
un um lögmæti kosninganna lægju
fyrir. Því væri tilefnislaust að sam-
þykkja tillögu minnihlutans.
Lúðvík Bergvinsson, talsmaður
minnihluta kjörbréfanefndar, sagði
á hinn bóginn að leidd hefðu verið
skýr rök fyrir því að misbrestur
hefði orðið á framkvæmd þingkosn-
inganna.
„Það liggur líka fyrir að lítill
munur var á því hvort menn næðu
inn sem þingmenn eða ekki. Það
liggur því fyrir mjög verulegur vafi
á því hvort þeir þingmenn sem hér
sitja séu allir löglega kosnir. Það er
því mikilvægt að öllum vafa verði
eytt.“
Málinu ekki lokið
Steingrímur J. tók til máls,
ásamt fleirum, við atkvæðagreiðsl-
una um samþykkt kjörbréfa þing-
manna og varaþingmanna. Þar tók
hann fram að þrátt fyrir að tillaga
minnihluta kjörbréfanefndar hefði
verið felld, og þar með tæmd þau
úrræði sem þingmenn hefðu til að
rannsaka lögmæti kosninganna,
væri málinu ekki lokið. „Ég hef
enga trú á öðru en að þeir ágallar
sem komu fram við framkvæmd
þessara alþingiskosninga eigi eftir
að hafa það í för með sér að þessi
mál verði rannsökuð.“ Sagði hann
að væntanlega yrði lögum breytt og
gerðar ýmsar ráðstafanir til að
betrumbæta framkvæmd alþingis-
kosninga.
Alþingi samþykkir kjörbréf þingmanna
Tillaga um rannsókn á
framkvæmd kosninga felld
♦ ♦ ♦
ÁRNI Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði m.a. í umræðum um
stefnuræðu forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar, sem fram fóru á Alþingi í
gærkvöld, að hann hygðist á komandi
þingi leggja fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um áætlun í jafnrétt-
ismálum kynjanna. Hann sagði að
enn væri margt óunnið á sviði jafn-
réttismála karla og kvenna og að for-
gangsmálið á kjörtímabilinu væri að
eyða mun á launum karla og kvenna.
Hann sagði að í boðaðri þingsályktun-
artillögu yrði gerð grein fyrir fyrir-
ætlunum ríkisstjórnarinnar.
Árni fór í ræðu sinni yfir nokkur
þau málefni sem hann hygðist beita
sér fyrir á komandi kjörtímabili og
sagði að hann myndi beita sér fyrir
því, nú í upphafi kjörtímabilsins, að
gerð verði könnun á húsnæðismark-
aðnum í því skyni að fá heildaryfirlit
yfir stöðuna og undirbúa frekari
stefnumótun.
Davíð Oddsson fór í stefnuræðu
sinni einkum yfir nýsamþykktan
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Áður en hann hóf umfjöllun um sátt-
málann vék hann þó að kosningabar-
áttunni í vor. Hann sagði að hún hefði
verið allhörð. Við því hefði mátt búast
að tekist yrði á um menn og málefni,
en því væri ekki að neita að ýmislegt í
þeirri baráttu hefði ekki endilega ver-
ið til vegsauka þeim sem hvað harðast
hefðu gengið fram í persónulegum
árásum. „Það er von mín að það megi
draga þann lærdóm af kosningabar-
áttunni að affarasælast sé að halda sig
við málefnin; deila hart um þau og
takast á um skoðanir og sannfæringu.
Þannig fullnægjum við stjórnmála-
menn skyldum okkar gagnvart lýð-
ræðinu.“
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi m.a.
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Hann sagði m.a. að þar væri ekkert
markvert að finna. Hann sagði einnig
að það eina sem breyttist með nýrri
ríkisstjórn væri að skipt væri um
nokkra ráðherra enda snerist ríkis-
stjórnin um stólaskipti og valdakapal.
Lítið nýtt á ferðinni
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, gagnrýndi eins og Össur
stjórnarsáttmálann og sagði þar lítið
nýtt á ferðinni. Hann sagði að Sjálf-
stæðisflokkurinn réði ferðinni; verið
væri að framkvæma hans stefnu, m.a.
í skattamálum.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, sagðist í
sinni ræðu m.a. ánægður með sína
liðsmenn á þingi og að þeir væru vík-
ingar til verka. „Það er ánægjulegt að
enn skuli vera hægt að koma skoð-
unum á framfæri í íslensku þjóðfélagi
án þess að vaða í peningum og hafa
óheftan aðgang að fjölmiðlum,“ sagði
hann. Guðjón lofaði því að flokkur
hans myndi vinna vel á kjörtíma-
bilinu. „Við trúum því að eftir fjögur
ár muni valdaferli þessarar ríkis-
stjórnar vera lokið og það muni vara
um langan tíma þar á eftir.“
Í umræðunum fluttu sjö nýir þing-
menn fyrstu ræðu sína, svokallaða
jómfrúræðu. Það voru auk Árna
Magnússonar, félagsmálaráðherra,
þau Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu,
Dagný Jónsdóttir og Birkir Jónsson,
Framsóknarflokki, Magnús Þór Haf-
steinsson, Sigurjón Þórðarson og
Gunnar Örlygsson, Frjálslynda
flokknum.
Affarasælast sé að halda sig
við málefni í kosningabaráttu
Morgunblaðið/Arnaldur
Davíð Oddsson flytur stefnuræðu.
Umræður um stefnuræðu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra