Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
IB Árnason Riis, gagnnjósnari Breta á Íslandi í síð-
ari heimsstyrjöldinni, heldur því fram í bók Ásgeirs
Guðmundssonar, Gagnnjósnari Breta á Íslandi,
sem út kom árið 1991, að breska flotastjórnin hafi af
ráðnum hug skipað verndarskipum að snúa við sem
leiddi til þess að 24 flutningaskip urðu kafbátum og
flugvélum þýska hersins auðveld bráð undan norð-
urströnd Rússlands sumarið 1942. 153 týndu lífi í
árásinni.
Ib segist ekki þeirrar skoðunar, eins og fram að
þeim tíma hafi verið haldið fram, að bresku flota-
stjórninni hafi orðið á herfileg og óskiljanleg mis-
tök. Ákvörðunin um að skipa verndarskipunum að
snúa við hafi verið af ráðnum hug. Í Sunday Times
sl. sunnudag segir að gögn úr Þjóðskjalasafninu í
Lundúnum sýni að Ib hafi verið fenginn til að koma
upplýsingum til Þjóðverja um ferðir 35 skipa á leið
yfir hafið frá Bandaríkjunum og var ætlunin fá
Þjóðverja til að halda að skipalestin nyti lítillar sem
engrar herverndar og lokka þá til að senda orustu-
skip sitt Tirpitz á staðinn. Var ætlun breska flotans
að ráðast gegn Tirpitz. Af gögnum megi hins vegar
ráða að Ib hafi sagt Þjóðverjum of mikið um ferðir
skipalestarinnar. Tirpitz hafi haldið aftur til hafnar
og fljótlega hafi skipalestin ekki lengur notið
verndar breska flotans. Undan norðurströnd Rúss-
lands hafi skipin hins vegar orðið fyrir árásum
þýskra kafbáta og flugvéla, sem fyrr segir.
Í samtali í Morgublaðinu á mánudag hafnaði Ib
því alfarið að hafa látið Þjóðverjum í té of miklar
upplýsingar, hann hafi enga hugmynd haft um efni
skeytisins sem hann var látinn síma Þjóðverjum á
sínum tíma.
Þjóðverjar tækju hann
trúanlegan í eitt skipti fyrir öll
Í bókinni „Gagnnjósnari Breta á Íslandi“ segir Ib
hins vegar: „Ég er sannfæður um, að í skeytinu,
sem ég sendi, hafi verið upplýsingar um brottfar-
ardag skipalestarinnar PQ-17 og að verndarskip
hennar hafi verið kölluð til baka af ráðnum hug, svo
að Þjóðverjar tækju mig trúanlegan sem njósnara í
eitt skipti fyrir öll. Til þess að þeir gerðu það varð
ég að láta þeim í té upplýsingar, sem þá munaði um
og þeir gætu sannreynt, að væru réttar. Um þetta
snerust atvik í sambandi við skipalestina PQ-17 að
mínu mati, þó að ég geti ekki fært skjallegar sönnur
á þessa sannfæringu mína. Þess er heldur ekki að
vænta að breska leyniþjónustan muni nokkurn tím-
ann viðurkenna, að máli þessu hafi verið háttað á þá
leið, sem ég er sannfærður um,“ segir Ib Árnason
Riis.
Í bókinni segist Ib hafa sent upplýsingar til Þjóð-
verja um ferðir skipalesta sem sigldu frá Íslandi til
Murmansk og Arkangelsk og að þær hafi aðallega
verið lognar. Megintilgangurinn hafi verið að reyna
að rugla Þjóðverja í ríminu. Oftast nær hafi yfir-
menn Ibs látið hann sjálfan um að snúa skeytunum
á dulmál en nokkrum sinnum hafi þeir séð sjálfir
um það og afhent honum þau tilbúin til sendingar.
Fyrsta skeytið af þessu tagi sendi hann nokkru eftir
að hann tók til starfa. „Að sjálfsögðu hafði ég ekki
hugmynd um efni þess, en nokkru seinna barst mér
skeyti frá Þjóðverjum, þar sem þeir þökkuðu mér
mikillega fyrir upplýsingarnar, sem ég hafði sent,
og sögðu, að þær hefðu verið svo mikilvægar, að
þeir myndu greiða aukaþóknun inn á reikning föður
míns.
[...] Á þeim tíma, sem liðinn er frá þessum at-
burði, hefur mér oft orðið hugsað um dulmálsskeyt-
ið og hvert hafi verið efni þess. Miðað við tímann,
þegar skeytið var sent, getur ekki hafa verið um
aðra skipalest að ræða en PQ-17, sem sigldi af stað
úr Hvalfirði 27. júní 1942. Í henni voru 35 skip, að-
allega bresk og amerísk, sem fluttu dýrmætan
farm, bæði hergögn, mat og fatnað, handa Rússum,
sem áttu í vök að verjast fyrir þýska hernum. En af
ástæðum, sem aldrei hefur fengist fullnægjandi
skýring á, skipaði breska flotastjórnin herskipun-
um, sem voru skipalestinni til verndar, að snúa við,
þegar skipin nálguðust Noreg.“
Ib Árnason Riis í „Gagnnjósnari Breta á Íslandi“ um ákvörðun breska flotans
Verndarskipum skipað að
snúa við af ráðnum hug
JÓN Snædal, varafor-
maður Læknafélags Ís-
lands, var kjörinn for-
maður siðfræðinefndar
Alþjóðasamtaka lækna,
WMA, á fundi samtak-
anna í Divonne-
Les-Bains í Frakklandi
fyrir helgi. Jón hefur
verið stjórnarmaður í
samtökunum síðastliðin
tvö ár. Hann segir þrjár
fastanefndir starfrækt-
ar á vegum Alþjóða-
samtakanna. Auk sið-
fræðinefndarinnar
fjallar önnur nefnd um
læknisfræði- og fé-
lagsmál almennt og sú þriðja um
skipulags- og fjármál samtakanna.
Að sögn hans tekur siðfræðinefnd-
in fyrir siðfræðileg málefni. T.d.
hvernig fara skuli að þegar fólk tekur
þátt í rannsóknum, og
nefnir hann Helsinki-
yfirlýsinguna sem
dæmi um árangur sem
hafi fengist í þessu
starfi, en hún sé notuð
um heim allan sem við-
mið í slíkum rannsókn-
um. „Síðan hefur verið
skoðað efni eins og
notkun á líffræðilegum
vopnum. Við höfum
einnig verið að skoða að
hvaða leyti fólk gerir
ráðstafanir fyrirfram
um meðferð og lífslok
og að hvaða leyti það
getur stangast á við lög
og reglur og til hvers á að taka mest
tillit,“ segir hann og bætir við að þar
sem nefndarmenn komi alls staðar að
séu viðhorfin misjöfn í ýmsum mál-
efnum, jafnvel þeim sem okkur finnist
sjálfsögð. Það kosti því oft dálítinn
tíma og fundarhöld að komast að nið-
urstöðu.
Jón segir að fastanefndirnar hittist
tvisvar á ári og þær vinni álit fyrir
stjórn og aðalfund samtakanna. „Ein-
stök félög geta leitað til samtakanna
ef það koma upp mál í þeirra löndum
sem þau vilja fá aðstoð með. Við létum
taka upp málefni gagnagrunnsins á
sínum tíma og það var afgreitt síðasta
haust, en það er dæmi um mál sem
hefur snúið að siðfræðinefndinni,“
leggur hann áherslu á.
Hann segir að meðal mála sem
nefndin sé að fjalla um þessa dagana
séu nýsamþykkt lög í Belgíu er heim-
ila líknardráp. Hann bendir á að lögin
séu í líkingu við þau sem hafi verið
sett í Hollandi en munurinn sé sá að
Belgíska læknafélagið sé á móti laga-
setningunni. Þarna stangist því á
siðfræðiálit lækna og læknafélaga
annars vegar og lögin hins vegar.
Aðspurður um upphafið að þessari
stjórnarsetu segir Jón að Læknafélag
Íslands hafi fengið fulltrúa í stjórn Al-
þjóðasamtaka lækna fyrir tveimur ár-
um og hann hafi tekið að sér að vera
sá fulltrúi. „Síðan ákveður hver
stjórnarmaður í hvaða nefnd hann sit-
ur og nefndirnar kjósa sér formann.
Það eru 15 nefndarmenn í siðfræði-
nefndinni,“ bætir hann við og bendir á
að það sé mikilvægt fyrir íslenska
lækna að fá að taka þátt í þessu starfi.
Það sé því töluverður áfangi að ná
þessu markmiði sem stefnt var að.
Jón Snædal lauk læknaprófi frá
Háskóla Íslands 1976, hann varð sér-
fræðingur í öldrunarlækningum 1984
og starfar nú sem yfirlæknir á öldr-
unarlækningadeild Landspítala-há-
skólasjúkrahúss Landakoti. Hann
hefur verið varaformaður Lækna-
félags Íslands frá 1996.
Kjörinn formaður siðfræðinefndar WMA
Jón Snædal
ÍSLENDINGAR munu eiga 48 kepp-
endur á Alþjóðaleikum þroskaheftra
í Dublin á Írlandi í sumar, en leik-
arnir eru nefndir Special Olympics á
ensku. Íslensku keppendurnir munu
taka þátt í 10 greinum keppninar en
þeir keppa meðal annars í fyrsta
sinn í handbolta og golfi.
Leikarnir hefjast 21. júní og
standa til 29. júní en keppendur
munu halda út nokkrum dögum áð-
ur ásamt fjölmennu fylgdarliði, 16
fararstjórum og yfir 40 aðstand-
endum. Hópurinn mun dvelja í vina-
bæ Íslands, Newry á Norður-Írlandi,
dagana 16. til 20. júní en þar verður
meðal annars haldin hátíð í tilefni af
17. júní, þjóðhátíðardegi Íslendinga.
Sjöþúsund keppendur frá 166 þjóð-
um taka þátt í leikunum í sumar sem
verða í fyrsta sinn haldnir utan
Bandaríkjanna en þar var stofnað til
þeirra árið 1968. Leikarnir eru
haldnir fjórða hvert ár en Íslend-
ingar hafa tekið þátt síðan árið 1989
þegar Íþróttasamband fatlaðra
gerðist aðili að alþjóðasamtökum
Special Olympics og hafa fjölmargir
Íslendingar átt þess kost að taka
þátt í leikunum síðan þá.
Þessi glæsilegi hópur er á leið til Írlands í sumar að taka þátt í Alþjóðaleikum þroskaheftra.
Íslendingar á leið á
Alþjóðaleika þroskaheftra
MATTHÍAS Þórólfsson lauk í
febrúar síðastliðnum doktorsprófi í
lífefnafræði frá háskólanum í Björg-
vin í Noregi.
Doktorsritgerð
Matthíasar ber
heitið „Biophys-
ical studies on
human phenylal-
anine hydrox-
ylase. Stability
and regulation by
L-Phenylalanine“.
Leiðbeinandi
hans í dokt-
orsnáminu var
prófessor Aurora Martínez við há-
skólann í Björgvin. Andmælendur
voru dr. Bent W. Sigurskjold prófess-
or við Kaupmannahafnarháskóla og
dr. Arne O. Smalås prófessor við há-
skólann í Tromsø.
Rannsóknir Matthíasar hafa beinst
að mikilvægu ensími í efnaskiptum
líkamans, fenýlalanínhýdroxýlasi
(PAH). Þetta ensím hvatar umbreyt-
ingu amínósýrunnar fenýlalaníns í
týrósín sem er fyrsta skrefið í nið-
urbroti fenýlaníns. Líkaminn verður
að stjórna styrk fenýlalaníns í blóðinu
mjög nákvæmlega því þessi am-
ínósýra er nauðsynleg fyrir smíði
nýrra próteina, en í of háum styrk
veldur fenýlalanín truflunum í mið-
taugakerfi líkamans. Meðfæddar
stökkbreytingar í geninu sem tjáir
PAH veldur myndun gallaðs ensíms
sem vinnur ekki á fenýlalaníni. Þetta
leiðir til óeðlilegrar hækkunar á styrk
fenýlalaníns sem er orsök erfðasjúk-
dómsins fenýlketonúríu (PKU).
Í doktorsverkefni sínu kannaði
Matthías byggingu PAH og hvernig
einingar í ensíminu hafa samskipti sín
á milli til að stjórna virkni ensímsins.
Hann einbeitti sér að áhrifum fenýlal-
aníns á þessi samskipti og að því að
ákvarða feril örvunarinnar sem fen-
ýlalanin veldur. Til að ákvarða skipu-
lagningu eininganna og byggingu
þeirra beitti Matthías innrauðri lit-
rófsgreiningu. Hitastöðuleiki ensíms-
ins var m.a. kannaður með varma-
mælingum. Auk þess voru útbúin
afbrigði af ensíminu þar sem skipt
var út einstökum amínósýrum. Þessi
afbrigði voru borin saman við frum-
gerð ensímsins í tölvuhermi til að
finna þá hluta PAH sem stjórna
emsímvirkninni. Niðurstöðurnar hafa
skýrt gang svipmótunar ensímsins
auk þess að varpa ljósi á það hvernig
fenýlalanin örvar PAH og hvaða og
amínósýrur eru þátttakendur í ferl-
inu.
Matthías Þórólfsson fæddist í
Hafnarfirði 1970. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Flensborgarskólanum
1990, stundaði nám í lífefnafræði við
Háskóla Íslands og lauk BS-prófi árið
1995. Matthías starfaði við rann-
sóknir á Raunvísindastofnun Háskól-
ans, undir stjórn Bjarna Ásgeirs-
sonar dósents, með lífefnafræði-
náminu og fram til haustsins 1996 er
hann fluttist til Björgvinjar í Noregi
og hóf framhaldsnám í lífefnafræði
við háskólann þar. Hann lauk cand.
scient prófi árið 1998 og hóf síðan
doktorsnám árið eftir við sama skóla
með styrk frá Rannsóknarráði Nor-
egs. Matthías vinnur nú við áfram-
haldandi rannsóknir við háskólann í
Björgvin.
Doktor í
lífefnafræði
Matthías
Þórólfsson
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
nú borist tillaga Landsvirkjunar
að matsáætlun vegna mats á
umhverfisáhrifum Bjarnar-
flagsvirkjunar í Mývatnssveit
og Bjarnarflagslínu 1. Þurfa at-
hugasemdir við tillöguna að hafa
borist Skipulagsstofnun fyrir 6.
júní nk. og ákvörðunar stofnun-
arinnar er að vænta 20. júní.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu áformar Lands-
virkjun að reisa 90 MW jarð-
varmavirkjun í Bjarnarflagi í
áföngum. Samkvæmt tillögu að
matsáætlun er þessum fram-
kvæmdum ætlað að mæta auk-
inni raforkuþörf á almennum
markaði og vegna áforma um
aukna sölu á raforku til stóriðju
á næstu árum. Leggja þarf
Bjarnarflagslínu 1 til að tengja
virkjunina við flutningskerfi
Landsvirkjunar.
Skipulagsstofnun hefur leitað
umsagnar Skútustaðahrepps,
Ferðamálaráðs Íslands, Forn-
leifaverndar ríkisins, Heilbrigð-
iseftirlits Norðurlands eystra,
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis-
ins, Orkustofnunar, Umhverfis-
stofnunar og veiðimálastjóra.
Umsagna
leitað vegna
Bjarnarflags-
virkjunar
ELDUR kom upp í spennistöð Rarik
í Grundarfirði klukkan 12.30 í gær
en spennistöðin er áföst við fisk-
vinnslu Guðmundar Runólfssonar.
Rafmagn fór af hluta bæjarins.
Slökkvilið var komið á staðinn eft-
ir örskamma stund og slökkti eldinn
með duftækjum. Skemmdir urðu á
einum spenniskáp af fjórum og fljót-
lega eftir að slökkviliðið hafði reyk-
ræst spennistöðina voru starfsmenn
Rarik komnir til að huga að
skemmdum. Rafmagn var aftur
komið á upp úr kl. 13.
Eldur í
spennistöð
♦ ♦ ♦