Morgunblaðið - 28.05.2003, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, hvatti
stjórnendur og starfsmenn RARIK
til að líta á ný orkulög sem tækifæri
fremur en ógnun, á ársfundi fyrir-
tækisins sem haldinn var á Egils-
stöðum núverið.
Þá sagði hún í ávarpi sínu fyrir-
liggjandi að lögfesta ætti breytingar
á lögum um Orkustofnun, þannig að
skilið væri á milli stjórnsýslusviðs
stofnunarinnar og þess eftirlitshlut-
verks sem henni er falið samkvæmt
nýjum raforkulögum. Sveinn Þórar-
insson stjórnarformaður ræddi m.a.
um raforkulögin og áhrif þeirra og
áréttaði að enn ætti eftir að útkljá
fyrirkomulag raforkuflutninga og
verðjöfnunar í flutningi og dreifingu
raforku. Í máli hans kom fram að
það verður ekki fyrr en 1. janúar ár-
ið 2007, sem öll ákvæði laganna eru
virk. Vegna mismunandi sjónarmiða
hagsmunaaðila er jafnframt frestað
til 1. júlí 2004 gildistöku kaflans um
flutning raforku og 19 manna nefnd,
sem ráðherra hefur skipað, er falið
að fjalla um þann þátt, þ.m.t. um
stærð flutningskerfisins og hvernig
rekstri þess skuli háttað þannig að
öryggi, skilvirkni og hagkvæmni
verði sem best tryggð. Þá skal
nefndin móta tillögur um uppbygg-
ingu gjaldskrár fyrir raforkuflutn-
ing og um með hvaða hætti jafna eigi
kostnað vegna flutnings og dreifing-
ar. Á nefndin að skila tillögum sínum
í formi lagafrumvarpa fyrir árslok.
Í skýrslu Kristjáns Jónssonar raf-
magnsveitustjóra, kom m.a. fram að
enn væri ósamþykkt frá Alþingi
frumvarp til laga um að breyta
rekstrarformi fyrirtækisins í hluta-
félag, en gert er ráð fyrir að það
verði lagt öðru sinni fyrir Alþingi í
haust. Knúið hefur verið á um að
RARIK verði skipt upp og hvatti
Kristján stjórnmálamenn og aðra þá
sem bera hag landsbyggðar fyrir
brjósti að standa dyggan vörð um
fyrirtækið og gera því kleift að
standa jafnfætis stóru orkufyrir-
tækjunum á Suðvesturlandi. Fram
kom að hugsanlega mun RARIK
ráðast í að þrefalda afköst Lagar-
fossvirkjunar í kjölfar þess að
vatnsbúskapur hennar jafnast til
muna með tilkomu Kárahnjúka-
virkjunar. Þá var komið inn á þrífös-
unarvæðingu landsins og líklegar
lausnir í því sambandi, en það mun
kosta um 10 milljarða að koma slíku
kerfi á.
Metár í framleiðslu
RARIK-virkjana
Þá var í tengslum við ársfundinn
undirritað samkomulag milli
RARIK og Menningarráðs Austur-
lands um að fyrirtækið gerist mátt-
arstólpi menningar á Austurlandi og
leggi fram hið minnsta eina milljón
kr. árlega næstu þrjú árin. Fénu
skal varið til að efla menningarlíf og
metnaðarfull menningarverkefni á
Austurlandi.
Afkoma RARIK hefur batnað frá í
fyrra og voru tekjur ársins 5,8 millj-
arðar, þar af tekjur vegna orkusölu
5,3 milljarðar. Rekstrargjöld án af-
skrifta voru 4,6 milljarðar, þar af var
liðurinn aðkeypt raforka langhæst-
ur, eða um 3,0 milljarðar, sem sam-
svarar tveimur þriðju af rekstrar-
gjöldum. Hagnaður ársins var 110
m.kr. sem skýrist að mestu af mikl-
um gengishagnaði og hagræðingu í
rekstri.
Orkuöflun RARIK jókst um 10%
milli ára og nam í heild 1.169 GWh.
Af því er aðkeypt orka 1.005 GWh.
Orkusmásala ársins var 864 GWh,
en þar af er raforkusmásalan 815
GWh. Heildsala raforku nam 219
GWh. Eigin orkuvinnsla nam 164
GWh, en þar af var raforkuvinnsla í
virkjunum RARIK 136 GWh, sem er
metár í framleiðslu þeirra.
Pálmi Jónsson lætur nú af stjórn-
arsetu hjá RARIK eftir tæplega 30
ára starf og einnig gengur Einar
Oddur Kristjánsson úr stjórn. Hana
skipa nú Sveinn Þórarinsson, for-
maður, Benóný Arnórsson, Ingi-
björg Sigmundsdóttir, Stefán Guð-
mundsson, Sveinn Ingvarsson og
nýir stjórnarmenn eru Arnbjörg
Sveinsdóttir og Guðjón Guðmunds-
son.
Orkulög rædd á fundi RARIK
Egilsstöðum. Morgunblaðið. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kristján Jónsson rafmagns-
veitustjóri.
PÉTUR Óskarsson, forstjóri Kötlu
Travel, segir að margar ástæður
hafi orðið til þess að fyrirtækið
flutti höfuðstöðvar sínar til Íslands
frá Þýskalandi nýverið. Þeirra á
meðal eru lægri laun og launatengd
gjöld á Íslandi. Þetta kom fram í er-
indi sem Pétur flutti á ráðstefnu
sem AX-hugbúnaðarhús stóð fyrir í
gær um rekstur fyrirtækis í al-
þjóðaumhverfi.
Katla Travel GmbH var stofnað í
Þýskalandi árið 1997 og þá voru
gerðir samningar við ferðaskrif-
stofurnar Troll Tours og Necker-
mann um sölu á Íslandsferðum.
Fyrirtækið sérhæfir sig í ferðum til
Íslands frá þýskumælandi svæðum
Evrópu og rekur skrifstofur í
Reykjavík og München.
Í Kötlu Travel-samstæðunni eru
þrjú félög, Katla Travel GmbH, sem
sérhæfir sig í markaðs- og sölu-
starfsemi í Þýskalandi, Katla DMI
ehf., sem sér um skipulagningu
hóp- og einstaklingsferða á Íslandi,
og sumarhúsamiðlunin Viator ehf.
Meiri gengisáhætta
með krónunni en evru
Að sögn Péturs er launakostn-
aður mun lægri á Íslandi en Þýska-
landi. Jafnframt greiði fyrirtæki á
Íslandi mun lægri tekjuskatt en í
Þýskalandi. Katla Travel er með
mikil umsvif á Íslandi og sam-
göngur góðar á milli landana. Eins
hafi þróun í upplýsinga- og sam-
skiptakerfum haft sitt að segja og
ekki síst persónulegar ástæður. Eft-
ir að hafa búið í 14 ár í Þýskalandi
hafi verið komið að þeim tíma-
punkti að ákveða hvar hann vildi
setjast að.
Pétur segir að þrátt fyrir að fyr-
irtækið sé með höfuðstöðvar á Ís-
landi þá sé evran sá gjaldmiðill sem
það noti mest. Um 99% af tekjum
þess séu í evrum og um 66% af út-
gjöldum. Hann segir að þeir ís-
lensku ferðaþjónustuaðilar sem
Katla Travel skipti við hafi ekki sett
sig upp á móti því að viðskipti við
Kötlu séu í evrum. Enda mun minni
gengisáhætta fylgjandi henni. Eins
séu vextir mun lægri í evruríkjum.
Hann segir að það gangi ekki upp
fyrir ferðaþjónustufyrirtæki að
eiga eingöngu viðskipti í íslenskum
krónum og að dæmi séu um það að
fyrirtæki hafi orðið gjaldþrota þess
vegna.
Höfuðstöðvar á Íslandi
en gjaldmiðillinn evra
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Óskarsson, forstjóri Kötlu Travel, fjallaði um evru sem grunngjald-
eyri í rekstri á ráðstefnu um rekstur fyrirtækja í alþjóðaumhverfi.
HAGNAÐUR af rekstri Tanga hf. á
Vopnafirði nam 51,8 milljónum króna
á fyrstu þremur mánuðum ársins. Af-
koman er ekki viðunandi að mati
stjórnenda og eru endaslepp loðnu-
vertíð og hátt gengi íslensku krón-
unnar sagðar helstu ástæður. Á sama
tímabili í fyrra nam hagnaður 221,2
milljónum króna. Hagnaður félagsins
dróst því saman um 78% á milli tíma-
bila, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá félaginu.
Tekjur Tanga drógust saman um
33,5% frá sama tíma í fyrra og námu
486,7 milljónum króna. Í tilkynningu
kemur fram að einungis var tekið á
móti 26 þúsund tonnum af loðnu á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs
miðað við 44 þúsund tonn á sama
tíma 2002. Tekjur fiskimjölsverk-
smiðju Tanga minnkuðu um 45%
vegna þessa. Rekstrargjöld námu
427,2 milljónum króna en námu 530,5
milljónum króna á sama tíma í fyrra
og drógust saman um 19,5%.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) nam 59,6 millj-
ónum króna en nam 201,5 á fyrstu
þremur mánuðum 2002.
Verðmæti eigna Tanga hf. var
2.818 milljónir króna í lok tímabilsins
en var 2.730 milljónir við lok þriðja
ársfjórðungs 2002. Eigið fé nam 888
milljónum króna samanborið við 849
milljónir króna í fyrra. Eiginfjárhlut-
fall félagsins var 31,2% þann 31. mars
sl. en var 28,6% í fyrra. Veltufé frá
rekstri á fyrsta fjórðungi ársins nam
43,7 milljónum króna en nam 184
milljónum á sama tíma síðasta árs.
Í tilkynningu frá Tanga segir að
framtíðarhorfur séu „ekki nægilega
góðar“ og að þegar hafi verið gripið
til aðgerða til að hagræða í rekstr-
inum.
Verri afkoma hjá Tanga
SAMKAUP hefur keypt verslunina
Grund á Flúðum og tók við rekstr-
inum föstudaginn 9. maí sl.
Samkaup keypti verslunina af Sól-
veigu Ólafsdóttir kaupmanni sem
hafði þá rekið verslunina í hátt á
fjórða áratug. Verslunin er nú í 300
fermetra húsnæði sem fyrirhugað er
að gera nokkrar breytingar á og
stækka, einnig er ætlunin að endur-
nýja innréttingar og tæki verslunar-
innar nú í júní.
Samkaup
kaupa Grund
á Flúðum
KAUPÞING Búnaðarbanki
hf. tók til starfa í gær með
tilskildu samþykki Fjármála-
eftirlitsins. Sameinaður banki
er stærsti banki landsins,
með 433 milljarða heildareign
í árslok 2002. Kaupþing Bún-
aðarbanki er í hópi 10
stærstu banka á Norðurlönd-
um. Starfsmenn bankans eru
um 1.300 á níu starfssvæðum
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Óbreytt lánshæfismat
hjá Moody’s
Alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service
birti í gær lánshæfismat
Kaupþings Búnaðarbanka hf.
og er það samhljóða því mati
sem Búnaðarbanki Íslands
hafði áður hjá Moody’s. Sam-
kvæmt því er langtímaein-
kunn A3, fjárhagslegur styrk-
leiki er C og útlit jákvætt.
Skammtímaeinkunn Moody’s
er P-1 sem er hæsta einkunn
sem gefin er af matsfyrirtæk-
inu, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Kaupþingi Búnaðar-
banka.
FME sam-
þykkir
samruna
bankanna
Kaupþing
Búnaðarbanki hf.
HAGNAÐUR Vaka-DNG nam 38
milljónum króna fyrstu þrjá mánuði
ársins. Á sama tímabili í fyrra nam
tap félagsins 8 milljónum króna.
Hagnaður samstæðunnar fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
nam 16,5 milljónum króna að með-
töldum söluhagnaði rekstrarfjár-
muna en hefði verið um 4 milljónir
að honum undanskildum. Eiginfjár-
hlutfall hækkaði úr 16,6% um síð-
ustu áramót í 29% í lok mars sl.
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands kemur fram að ástand á helstu
mörkuðum Vaka DNG hafi verið
erfitt, sérstaklega á fiskeldismörk-
uðum þar sem ástandið hefur verið
mjög slæmt vegna offramboðs sem
endurspeglast í lágu verði til fram-
leiðenda og tregðu þeirra til að fjár-
festa m.a. í vörum eins og Vaki DNG
býður. Þá hefur styrking krónunnar
verið félaginu mjög óhagstæð eins
og öðrum útflutningsfyrirtækjum.
Á miðjum síðasta ársfjórðungi var
gripið til aðgerða til að mæta nið-
ursveiflunni á mörkuðum sem félag-
ið vinnur á. Dregið var verulega úr
starfsemi dótturfélags í Noregi,
starfsmönnum fækkað og dregið úr
kostnaði víða í rekstrinum.
Horfur á helstu mörkuðum eru
áfram dræmar, að Chile þó undan-
skildu en þar hefur rekstur dótt-
urfélags farið vel af stað. Starfs-
menn Vaka og dótturfélaga eru nú
16 en voru 30 um síðastliðin áramót.
Níu starfsmenn sem áður voru hjá
Vaka DNG eru nú starfsmenn DNG
ehf.
Umskipti
hjá Vaka-
DNG
♦ ♦ ♦