Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR George W. Bush var rík-
isstjóri Texas spurðu gestir hans í
jólaveislu í ríkisstjórasetrinu í
Austin hvenær hann hygðist fara til
Washington og taka við embætti
Bandaríkjaforseta. Hann virti fyrir
sér veislugestina, er snæddu
mexíkanskan mat í sal sem skreytt-
ur var með mexíkóhöttum og kú-
rekastígvélum, og svaraði: „Mér
liggur ekkert á. Ég hef megnustu
óbeit á veislum.“
Frá því að Harry S. Truman spil-
aði póker við vini sína í stað þess að
sækja veislur yfirstéttarinnar í
Washington hefur enginn banda-
rískur forseti haft jafnmegna fyr-
irlitningu á samkvæmislífinu í
bandarísku höfuðborginni. Hann
fer á fætur við sólarupprás og í
rúmið klukkan 9.30 flest kvöld og
tekur notalegan kvöldverð með
vinum og nánustu samstarfs-
mönnum fram yfir virðuleg sam-
kvæmi til styrktar góðgerð-
arstarfsemi.
Washington-búar sem vilja kom-
ast í snertingu við valdið þurfa því
að láta sér nægja að vera endrum
og eins boðið að taka á móti þyrlu
forsetans á grasflötinni við Hvíta
húsið eða sækja athöfn í Rósa-
garðinum í tilefni af skattalækk-
unum eða öðrum ákvörðunum.
Og þegar Bush heldur veislur fer
hann oftast út í sveit og heldur þær
í Camp David, sveitasetri forsetans
í Maryland, eða búgarði hans í
Crawford í Texas þar sem hann tók
á móti Junichiro Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans, í vikunni sem
leið.
Þetta fer ekki framhjá yfirstétt-
inni í Washington. Sumir eru
reyndar svo óánægðir að þeir nota
orðið „félagsskítur“. Nokkrir eru
svo sárir við forsetann út af því að
hann hefur ekki boðið þeim í Hvíta
húsið eða þegið heimboð þeirra að
þeir eru farnir að skrifa um það
greinar í glanstímarit. „Þar sem
það er ekkert samkvæmislíf í Hvíta
húsinu, ekkert samkvæmislíf í
Washington, er höfuðborgin, eins
og við þekkjum hana, liðin undir
lok,“ skrifaði Sally Quinn, eig-
inkona Bens Bradlee, fyrrverandi
ritstjóra Washington Post, í
kvenna- og tískublaðið W. „Sam-
kvæmislífið í Washington hefur
snarstöðvast með ískrandi bremsu-
hljóði.“
„Eru svo mikil á borði
sem þau eru í orði“
Vinir og aðdáendur Bush segja
hins vegar að þessi nýi stíll Bush –
útigrillveislur í Crawford-
búgarðinum fremur en viðhafn-
arveislur í Hvíta húsinu – sé vel við
hæfi nú um stundir. Viðhafnarmikil
veisluhöld séu óviðeigandi á tímum
hryðjuverka og efnahagsörð-
ugleika.
Þeir sem þekkja Bush best segja
að þótt friður og mikil hagsæld
ríkti í heiminum myndi hann miklu
fremur vilja eiga notalega stund
með nánum vinum sínum en að
taka þátt í samkvæmislífinu í Wash-
ington. Hann drekkur ekki lengur
áfengi, stundar líkamsrækt á hverj-
um degi og gætir þess að borða
hollan mat.
„Bush-hjónin eru í mjög nánu
sambandi við vini sína og njóta þess
að vera með fjölskyldunni,“ sagði
Noelia Rodriguez, fjölmiðlafulltrúi
forsetafrúarinnar, Lauru Bush.
„Þetta hefur alltaf verið þeirra
stíll. Þau tala um gildi vináttunnar
og eru svo mikil á borði sem þau
eru í orði.“
Dansað án forsetahjónanna
Forsetinn reynir að komast eins
Veislufælni
forsetans erg-
ir yfirstéttina
AP
Bush ekur forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, í pallbíl sínum á búgarði forsetans í Crawford í Texas.
Washington. Los Angeles Times.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, og Mahmud Abbas, for-
sætisráðherra Palestínumanna,
frestuðu í gær fyrirhuguðum fundi
sínum í dag þar sem ræða átti hinn
svonefnda vegvísi að friði í Mið-
austurlöndum, áður en forsætisráð-
herrarnir hitta George W. Bush
Bandaríkjaforseta í næstu viku.
Fundinum var frestað „af tækni-
legum ástæðum“ og verður haldinn
„innan tveggja sólarhringa“, að því
er haft var eftir palestínskum
heimildarmönnum. Að sögn ísr-
aelskra yfirvalda voru það Palest-
ínumenn sem frestuðu fundinum
vegna skipulagsvandkvæða í
tengslum við heimsókn utanríkis-
ráðherra Spánar.
Palestínumaður drepinn
Ísraelskir hermenn skutu í gær
til bana palestínskan táning í
flóttamannabúðunum í Tulkarem á
Vesturbakkanum. Sögðu palest-
ínskir heimildarmenn að táningur-
inn hafi verið í hópi nokkurra
steinkastara sem hermennirnir hafi
skotið á er þeir réðust inn í búð-
irnar. Sjö ára palestínskur drengur
særðist.
Í þorpinu Beit Furik, austur af
Nablus, kom til svipaðra átaka með
þeim afleiðingum að þrjú palest-
ínsk ungmenni særðust, þar af eitt
alvarlega.
Sharon dregur í land
Sharon virtist í gær reyna að
bera í bætifláka fyrir að hafa í
fyrradag talað um að Palestínu-
menn væru undir „hernámsstjórn“
Ísraela, en það vakti gífurlega at-
hygli í flokki Sharons og meðal
ísraelsks almennings að Sharon
skyldi nota orðið „hernám“.
Í gær var haft eftir Sharon að
hann hefði verið „misskilinn“ er
hann talaði um þau neikvæðu áhrif
sem „hernám“ Ísraela á svæðum
Palestínumanna hefði og að hann
væri staðráðinn í að komast að
endanlegu friðarsamkomulagi við
þá. Sagði Sharon í gær að dóms-
málaráðherrann hefði staðfest í
samtali við sig að þau svæði sem
um væri að ræða væru opinberlega
sögð „umdeild“. Talsmaður ísr-
aelska trúarflokksins, sem er
hlynntur landnámi gyðinga á um-
ræddum svæðum, sagði í gær að
sér liði betur eftir þessa útskýr-
ingu Sharons.
Fundi Abbas
og Sharons
frestað
Jerúsalem, Nablus. AFP.
UNGIR, bókstafstrúaðir gyðingar í Mea Sharin-
hverfinu í Jerúsalem fylgjast með mótmælum gegn
áætlunum ísraelskra yfirvalda um að draga úr fjár-
veitingum til samtaka strangtrúaðra. Þúsundir bók-
stafstrúaðra gyðinga komu saman til mótmælanna í
gær.
AP
Mótmæli í Jerúsalem
ÞESS er vænst að George W. Bush
Bandaríkjaforseti hitti forsætisráð-
herra Ísraela og Palestínumanna á
ráðstefnu í næstu viku og haldi aðra
ráðstefnu með nokkrum leiðtogum
arabaríkja. Utanríkisráðherra Pal-
estínumanna, Nabil Shaath, sagði á
Krít í gær að Bush myndi hitta
arabaleiðtogana á sérstakri ráð-
stefnu, öðru hvoru megin við fund
með Mahmud Abbas og Ariel Shar-
on, forsætisráðherrum Ísraela og
Palestínumanna.
Shaath sagði ennfremur að ráð-
stefnurnar yrðu annaðhvort haldnar
á egypska ferðamannastaðnum
Sharm el-Sheikh eða jórdönsku
hafnarborginni Aqaba, en báðir
þessir staðir eru við Rauðahafið.
Haft var eftir ýmsum stjórnarerind-
rekum í gær að ráðstefnurnar yrðu
haldnar eftir að Bush situr G-8 ráð-
stefnu auðugustu ríkja heims í Evian
í Frakklandi 1. til 3. júní.
Egypska ríkisútvarpið greindi frá
því að Bush myndi að líkindum funda
með arabaleiðtogunum í Egypta-
landi fjórða júní og daginn eftir
myndi hann hitta Abbas og Sharon í
Jórdaníu. Ekki lægi fyrir opinber
staðfesting á þessu, en í raun væri
búið að ákveða að Hosni Mubarak
Egyptalandsforseti stjórni ráðstefnu
Bush og arabaleiðtoganna í Sharm
el-Sheikh 4. júní.
Ísraelskur embættismaður sagði í
Jerúsalem í gær að þess væri vænst
að Bush hitti Sharon og Abbas í
Aqaba á miðvikudag eða fimmtudag
í næstu viku og myndi Abdullah
Jórdaníukonungur einnig sitja fund-
inn. Staðfestu Jórdanir þetta í gær.
Sagði ísraelski embættismaðurinn
ennfremur að Bush myndi ef til vill
líka fara til Egyptalands til viðræðna
við Mubarak og aðra arabaleiðtoga.
Markmiði væri að tryggja almennan
stuðning araba við svonefndan veg-
vísi að friði, friðaráætlun Banda-
ríkjamanna, Rússa, Evrópusam-
bandsins og Sameinuðu þjóðanna
fyrir Miðausturlönd.
Bush hittir Sharon og Abbas
auk nokkurra arabaleiðtoga
Kaíró, Amman. AFP.