Morgunblaðið - 28.05.2003, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 17
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
PV
2
11
08
05
/2
00
3
hjá okkur
Vertu
Sérhver viðskiptavinur og allt
sem tengist fjármálum hans hefur meira
vægi hjá SPV en hjá stórum fjármála-
stofnunum.
Njóttu þess að vera viðskiptavinur
hjá SPV, öflugri fjármálastofnun sem
stendur þétt að baki þér og veitir al-
hliða og persónulega fjármála þjónustu.
Komdu til okkar og ræddu málin.
Vertu með í hópi ánægðustu viðskipta-
vina fjármálafyrirtækja á Íslandi*.
Það er ekkert einfaldara en að flytja öll
bankaviðskipti yfir til okkar. Þú tekur
ákvörðun og við sjáum um flutninginn.
* Skv. mælingum Íslensku ánægjuvogarinnar,
en að henni standa Gæðastjórnunarfélag Íslands,
Samtök iðnaðarins og Gallup.
SPV - Borgartúni 18, Hraunbæ 119, Síðumúla 1; Þjónustuver, sími 5754100
oft og hann getur frá höfuðborg-
inni. Frá því að hann varð forseti
fyrir tveimur og hálfu ári hefur
hann farið að minnsta kosti tuttugu
sinnum á búgarð sinn í Texas og
um 60 sinnum dvalið í Camp David.
Margir Washington-búar minn-
ast með söknuði veisluhalda Ron-
alds Reagans, sem naut þess að
blanda geði við kvikmyndastjörnur
og auðjöfra í viðhafnarveislum sín-
um í Hvíta húsinu. „Það leikur
töfraljómi um forseta og forsetafrú
Bandaríkjanna og Reagan-hjónin
eru besta dæmið um það,“ sagði
Roxanne Roberts, sem skrifar um
tísku í Washington Post. „Þetta er
okkar konunglega hirð og þegar
við erum svipt henni hverfur
ákveðinn töfraljómi.“
Mörgum Washington-búum þótti
hins vegar Bill Clinton ganga of
langt með því að færa viðhafn-
arveislurnar úr aðalborðstofu
Hvíta hússins, þar sem hægt er að
taka á móti 130 manns, í stórt tjald
á grasflötinni til að geta boðið allt
að 650 manns.
Bush-hjónin buðu nýlega 130
manns í veislu til heiðurs forseta
Filippseyja, Gloriu Macapagal
Arroyo, og var það aðeins þriðja
viðhafnarveislan sem þau hafa
haldið í Hvíta húsinu. Reagan-
hjónin héldu oft eina slíka veislu á
mánuði.
Eftir borðhaldið var veislugest-
unum boðið að dansa í anddyri
Hvíta hússins – án forsetahjónanna.
„Við erum vön því að fara snemma
í háttinn hér í Hvíta húsinu,“ út-
skýrði Bush þegar forsetahjónin
kvöddu til að taka á sig náðir.
’ Við erum vön þvíað fara snemma í
háttinn hér í Hvíta
húsinu. ‘
HÆGRIMENN í ítalska
stjórnarflokknum Forza
Italia biðu mikinn ósigur í
héraðs- og sveitarstjórnar-
kosningum sem fram fóru í
Róm og 11 öðrum héruðum
Ítalíu á sunnudag og mánu-
dag.
Þegar úrslit lágu fyrir í
gær varð ljóst að kosninga-
bandalag vinstriflokka hlaut
53,5% atkvæða í Róm en
Forza Italia 43,7%. Misstu
þar með samherjar Silvios
Berlusconi forsætisráðherra
stjórnartauma höfuðborgar-
innar úr höndum sér.
Í öðrum héruðum hélzt
Forza Italia aftur á móti
nokkuð vel á fylgi sínu, þrátt
fyrir óvinsældir stefnu ríkis-
stjórnarinnar í Íraksdeilunni
og þá neikvæðu umfjöllun
sem forsætisráðherrann hef-
ur fengið að undanförnu
vegna spillingarréttarhalda
þar sem hann er meðal sak-
borninga.
Í fjölmiðlum var tap höf-
uðborgarinnar í hendur
stjórnarandstæðinga metið
sem áfall fyrir stjórnina –
sem nú býst til að taka við
formennsku í Evrópusam-
bandinu síðari helming ársins
– en þar sem stjórnarflokk-
arnir gætu vel við úrslitin un-
að í öðrum héruðum væri
áfallið takmarkað.
Hægri-
menn
tapa Róm
Róm. AFP.
FLUGVÉLIN sem fórst í Tyrk-
landi á mánudag með 74 menn inn-
anborðs hafði áður flutt norska her-
menn til og frá Afganistan. Margir
þeirra kvörtuðu yfir lélegu ástandi
vélarinnar að því er fram kemur á
fréttavef norska ríkisútvarpsins
NRK.
Að því er haft er eftir Eivind
Vindenes, liðsforingja í norska
hernum, sem var farþegi um borð í
umræddri flugvél sl. haust, gerðu
farþegar þá athugasemd við ástand
flugvélarinnar. „Við bentum áhöfn-
inni á að plötur utan á vélinni væru
lausar og að olía læki úr hreyfl-
inum,“ sagði hann og bætti við að
áhöfnin hefði viðurkennt að líklega
hefði þurft að skipta um hreyfil áð-
ur en haldið var af stað. Að sögn
Vindenes voru margir norsku her-
mennirnir mjög hræddir um líf sitt í
flugferðunum. „Það var flugið heim
sem var kvíðvænlegt. Það sem
gerðist í Afganistan kom þar á eft-
ir.“
62 spænskir friðargæsluliðar og
tólf manna úkraínsk áhöfn fórst
með flugvélinni er hún hrapaði í
norðvesturhluta Tyrklands á mánu-
dag. Friðargæsluliðarnir voru á leið
heim frá Afganistan eftir að hafa
starfað þar á vegum alþjóðlegs frið-
argæsluliðs í umboði öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Haft var eftir ráðherra landvarn-
armála í spænsku stjórninni á
mánudag að flugvélin sem fórst,
sem var af gerðinni Jak-42, hefði
verið í ágætu ástandi.
Flugslysið í Tyrklandi
Norskir her-
menn kvörtuðu
yfir vélinni
STJÓRN George W. Bush Banda-
ríkjaforseta ákvað um miðjan des-
ember að heyja stríð í Írak þótt hún
segði á þeim tíma að reynt yrði til
þrautar að leysa Íraksdeiluna á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna (SÞ), að
sögn Financial Times í gær.
Blaðið sagði að Bandaríkjastjórn
hefði komist að þeirri niðurstöðu að
stríð væri óhjákvæmilegt nokkrum
dögum eftir að stjórn Saddams
Husseins afhenti SÞ skýrslu um
vopn sín 8. desember.
„Menn höfðu á tilfinningunni að
Bandaríkjaforseti væri hafður að
spotti,“ hafði Financial Times eftir
heimildarmanni sem hafði náið sam-
starf við Þjóðaröryggisráð Banda-
ríkjanna. „Ómerkilegur einræðis-
herra spottaði forsetann. Þetta vakti
reiði í Hvíta húsinu. Eftir það var
engin von um friðsamlega lausn.“
Stríðið í Írak hófst þremur mán-
uðum síðar, 20. mars, eftir að tilraun
Bandaríkjamanna og Breta til að
tryggja stuðning öryggisráðs SÞ við
hernað leiddi til harkalegrar deilu
við Frakka, Þjóðverja og Rússa.
Hernaðurinn
löngu ákveðinn?
London. AFP.