Morgunblaðið - 28.05.2003, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORELDRARÁÐ Seljaskóla, Selja-
ráð, hlaut á dögunum Fjöregg
Samfoks, Sambands foreldrafélaga
og foreldraráða í skólum Reykja-
víkur á grunnskólastigi. Þá hlaut
ráðið einnig hvatningarverðlaun
Heimilis og skóla fyrir árið 2003.
Segir í fréttatilkynningu að
Fjöreggið sé veitt þeim sem hefur
að mati stjórnar Samfoks unnið
frábært starf í þágu grunnskóla-
barna í Reykjavík. Foreldraráð
Seljaskóla hafi sýnt sérlega vönd-
uð vinnubrögð og lagt sig fram um
að vera hvetjandi í öllu starfi.
Verðlaun Heimilis og skóla voru
hins vegar veitt ráðinu fyrir að
hafa unnið mjög markvisst starf í
þágu skólasamfélagsins og að hafa
með vinnubrögðum sínum markað
sér sérstöðu meðal foreldraráða.
Á myndinni má sjá Sigrúnu
Gunnarsdóttur afhenda fulltrúum
ráðsins, þeim Guðrúnu Þórsdóttur,
Guðlaugu Gísladóttur, Bryndísi
Helgu Jónsdóttur og Valgerði
Magnúsdóttur fjöregg Samfoks
sem listakonan Kogga hannaði.
Seljaráð heiðrað tvisvar sinnum
Breiðholt
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að hafist verði strax
handa við frekari stækkun kirkju-
garðs bæjarins. Formaður stjórnar
kirkjugarðsins segir stefna í hreint
ófremdarástand vegna plássleysis í
garðinum og óttast að loka verði
honum um mitt næsta ár.
Í bréfi formannsins til bæjar-
verkfræðings segir að stjórn kirkju-
garðsins hafi ítrekað óskað eftir því
að framkvæmdum við jarðvegsfyll-
ingu vegna stækkunar garðsins til
suðvesturs yrði hraðað. Búið sé að
fylla og slétta tvo reiti sem séu um
1⁄3 hluti þess svæðis sem áætlað sé
að garðurinn stækki um í fyrsta
áfanga.
Sá hluti sé þó engan veginn tilbú-
inn til grafartöku auk þess sem
hann sé það lítill að hann dugi
sennilega ekki nema í um tvö ár til
viðbótar þegar hann verði loks
tilbúinn til notkunar. „Staðan er því
orðin mjög alvarleg,“ segir formað-
urinn í bréfi sínu.
Dugar eingöngu
í eitt ár í viðbót
Engar framkvæmdir hafi verið
síðan síðastliðið haust og það hafi
komið stjórnarmönnum kirkju-
garðsins mjög á óvart að ekki hafi
verið gert ráð fyrir sérstöku fram-
kvæmdafé í fjárhagsáætlun bæjar-
ins á þessu ári til áframhaldandi
jarðvegsfyllingar. Síðasti grafar-
tæki reiturinn sem garðurinn hafi
yfir að ráða muni eingöngu duga í
ár til viðbótar.
„Stjórn KH hefur miklar áhyggj-
ur af því að loka verði garðinum um
óákveðinn tíma frá og með miðju
næsta ári,“ segir í bréfinu orðrétt.
Er því farið fram á að þegar verði
hafist handa við jarðvegsfyllingu á
þeim 2⁄3 hluta sem eftir er af stækk-
un garðsins.
Samkvæmt kostnaðaráætlun
bæjarverkfræðings mun fylling
þess sem eftir er að kirkjugarðs-
stæði vestan við núverandi garð
kosta um 8,2 milljónir króna. Sam-
þykkti bæjarráðs sem fyrr segir að
ráðast strax í umbeðnar fram-
kvæmdir og vísaði málinu til endur-
skoðunar fjárhagsáætlunar bæjar-
ins.
Stefnir í ófremdarástand í kirkjugarði bæjarins
Óttast lokun á næsta ári
Morgunblaðið/Ásdís
Síðasti grafartæki reiturinn sem kirkjugarðurinn hefur yfir að ráða mun
einungis duga í eitt ár til viðbótar að mati formanns stjórnar kirkjugarðsins.
Hafnarfjörður
Sumarferðir
2003
MEÐ BLAÐINU Á MORGUN
Með Morgunblaðinu á
morgun fylgir
60 síðna blað
um ferðalög
Allir kaupendur Morgunblaðsins fá blaðaukann.
Auk þess verður blaðaukanum dreift á upplýsinga-
miðstöðvar um land allt og á bensínstöðvar Skeljungs
á höfuðborgarsvæðinu.
Athugið!
KÆRANDI lóðaúthlutana í Vatns-
enda segir óviðunandi að ekki sé
gripið til aðgerða til að tryggja að
lóðaúthlutanir sveitarfélaga fari
fram með réttlátum hætti þrátt fyr-
ir að félagsmálaráðuneytið úrskurði
æ ofan í æ að þær séu ámælisverð-
ar. Hann segir að þrátt fyrir að
Kópavogsbær hafi útbúið reglur um
hvernig staðið skuli að úthlutunum
séu þær þannig úr garði gerðar að
bæjaryfirvöld hafi enn svigrúm til
að haga úthlutunum eftir eigin geð-
þótta.
Axel Ingi Eiríksson kærði úthlut-
anir Kópavogsbæjar á lóðum í
Vatnsenda á síðasta ári til félags-
málaráðuneytisins þar sem hann
taldi reglur hafa skort við úthlut-
anirnar. Í síðustu viku kvað ráðu-
neytið upp úrskurð sinn sem var á
þá leið að Kópavogsbær hafi brotið í
veigamiklum atriðum gegn megin-
reglum stjórnsýsluréttar um rann-
sóknarskyldu stjórnvalds, jafnræði
aðila, meðalhóf og leiðbeiningar-
skyldu þegar lóðunum var úthlutað.
Engu að síður telur ráðuneytið ekki
unnt að ógilda þessar úthlutanir
vegna hagsmuna þeirra sem fengu
lóðirnar.
Reglur bjóða upp
á huglægt mat
Axel segir afar einkennilegt
hvernig tekið sé á slíkum málum.
„Þetta er önnur stjórnsýslukæran
mín vegna lóðaúthlutana því ég
kærði Mosfellsbæ fyrir nokkrum ár-
um. Síðan er búið að úrskurða
vegna úthlutana í Garðabæ og
Hafnarfirði og þessir úrskurðir eru
allir á sama veg: lóðaúthlutunarmál
eru í ólestri, það er illa að þeim
staðið og þær eru ámælisverðar en
það er ekkert gert til að laga
ástandið. Það hefur ekkert breyst.“
Hann segir úthlutunarreglur í 14
liðum, sem bæjaryfirvöld hafi sam-
þykkt eftir að hann kærði fyrri út-
hlutun lóða í Vatnsenda, ekki hafa
breytt neinu. Tólf liðanna séu eðli-
legir en þar sem síðustu tveir lið-
irnir bjóði upp á huglægt mat við
val á lóðarhöfum geti sveitarstjórn-
armenn í raun enn hagað úthlut-
unum að vild.
Inntur eftir því hvort hann muni
una úrskurðinum segist Axel ekki
búinn að taka afstöðu til þess. Hann
vilji kynna sér ítarlegar úrskurðinn
í heild sinni áður en hann taki slíka
ákvörðun.
Kærandi lóðaúthlutana í Vatnsenda
segir úrskurð ráðuneytis óviðunandi
„Ekkert gert til
að laga ástandið“
Kópavogur
♦ ♦ ♦
INNRITUN í skólagarða hefst á
næstu dögum en starfsemi þeirra er
á átta stöðum í borginni. Garðarnir
eru ætlaðir 8 til 12 ára börnum en
einnig geta eldri borgarar innritað
sig ef rými leyfir.
Garðarnir eru staðsettir við Holta-
veg í Laugardal, í Árbæ vestan Ár-
bæjarsafns, í Fossvogi við Bjarma-
land, við Jaðarsel og Stekkjabakka í
Breiðholti, við Þorragötu í Skerja-
firði, í Foldahverfi austan Logafold-
ar og Gorvík í Víkurhverfi.
Innritunin fer fram í hverjum
garði fyrir sig dagana 30. maí og 2. –
3. júní næstkomandi og er þátttöku-
gjald 2500 krónur fyrir hvern gróð-
urreit.
Innritun í
skólagarða
að hefjast
Reykjavík