Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 20
SJÓMANNADAGSBLAÐ
Grindavíkur 2003 er komið út í
fimmtánda sinn. Blaðið er
óvenjustórt og efnismikið að
þessu sinni, 88 blaðsíður.
Efni blaðsins er með hefð-
bundnum hætti, eins og fram
kemur í ávarpi Hinriks Bergs-
sonar ritstjóra, „að leiða með
heimildum lesendum fyrir sjónir
hið liðna um leið og birt er efni
um það sem er að gerast hverju
sinni varðandi sjómenn og sjó-
mennsku“.
Í blaðinu er birt ljóðið Grind-
víkingur eftir Örn Arnarson.
Meðal annars efnis má nefna
grein sem nefnist Jaxlarnir á
Hafbergi GK 377 en þar skrifar
Jón Gauti Dagbjartsson um
skipsfélaga sína, viðtal Hjartar
Gíslasonar við Hilmar Helgason
skipstjóra, frásögn Guðjóns Ár-
manns Eyjólfssonar af reknet-
um fyrir meira en hálfri öld og
viðtal við Pétur Guðjónsson frá
Höfn.
Sjómannadagsráð Grindavík-
ur gefur blaðið út. Hinrik Bergs-
son hefur ákveðið að hætta að
standa að útgáfu blaðsins, til
þess að gefa öðrum tækifæri til
að sjá um það. Hann segir að
vissulega sé mikil vinna að sjá
um sjómannadagsblaðið, „en ég
hef haft mjög góða skrifara, allt-
af haft aðgang að mönnum sem
hafa viljað leggja því til efni. Það
er síðan mitt hlutverk að raða
þessu saman og taka ljósmynd-
irnar en til þess hef ég haft góða
aðstöðu hér við höfnina“.
Óvenju-
efnismikið
Sjómanna-
dagsblað
Grindavík
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ BLAÐINU Í DAG alltaf á miðvikudögum
Áhugaverðir bílskúrar,
reynsluakstur og
sportbílar í
16 síðna blaði
Á HVERJUM laugardagsmorgni
fyllist Sundlaug Njarðvíkur af
ungu sundfólki, sem bíður
óþreyjufullt eftir að komast ofan
í laugina og sprikla frjálst. Börn-
in eru ekki að æfa sundtökin,
enda öll innan við eða rétt um
eins árs, heldur að læra að bera
virðingu fyrir vatninu. Sumum
svelgist á í fyrstu dýfunum og
verða óttaslegin, önnur eru ef til
vill minnugri á níu mánaða dvöl-
ina í volgu legvatninu. Foreldr-
arnir virðast ekki síður spenntir
og ekki leynir sér stoltið yfir af-
rekum litlu krílanna.
María Jóhannesdóttir íþrótta-
kennari og eiginmaður hennar,
Jóhann Júlíusson, hafa haft um-
sjón með ungbarnasundi í Sund-
laug Njarðvíkur í tæp 12 ár.
Blaðamaður spurði Maríu um að-
dragandann. „Börnin og við, sem
var áhugafélag hér á Suður-
nesjum um brjóstagjöf, hafði
samband við mig til að kanna
hvort ég hefði áhuga á að læra
að kenna ungbarnasund. Áhuginn
var fyrir hendi og ég fór því,
ásamt Þórunni Magnúsdóttur, á
námskeið hjá Snorra Magnússyni
í Mosfellsbæ. Haustið 1991 byrj-
uðum við Þórunn svo með nám-
skeið og þau hafa verið óslitin
síðan. Að vísu var Þórunn aðeins
með mér í ár en þá gerðist Jó-
hann aðstoðarmaður minn. Hann
fór síðan á námskeið árið 1996,“
sagði María í samtali við Morg-
unblaðið.
Að sögn Maríu verða börnin að
vera orðin 10 vikna gömul til að
komast í ungbarnasund og a.m.k.
5 kíló. Ekki eru teknir inn byrj-
endur eldri en 6 mánaða gömul
og misjafnt er hversu lengi for-
eldrarnir eru með börn sín á
námskeiðum, þau sem lengst eru
eru þó ekki miklu eldri en 15
mánaða.
Aðlögunartími mislangur
Að sögn Maríu er bæði boðið
upp á byrjenda- og framhalds-
námskeið. „Á byrjendanámskeið-
unum eru foreldrunum kennd
grunntök í vatninu og ýmsar æf-
ingar og hreyfingar enda eru for-
eldrarnir hinir eiginlegu þjálf-
arar. Misjafnt er hvað börnin
þurfa langa vatnsaðlögun, svo
misjafnt er hvenær börnin fara í
fyrsta sinn í kaf en oftast er það í
öðrum eða þriðja tíma. Síðan fer
mestur tíminn í að gera foreldr-
ana örugga með börnin í vatninu
og að setja börnin í kaf. Nám-
skeiðið er tíu skipti. Á framhalds-
námskeiðunum sem einnig er tíu
skipti eru fleiri æfingar tengdar
köfun og hreyfingu. Kennsla ung-
barnasunds er einstaklingsbundin
og mjög mismunandi hversu hratt
börnin geta farið í æfingarnar og
síðan kemur dagsformið alltaf
inn í.“
Aðspurð sagði María að ekki
væri búið að framkvæma kann-
anir á færni í vatni síðar meir hjá
þeim börnum sem verið hafa á
ungbarnanámskeiðum en mark-
miðin með námskeiðunum eru
engu að síður skýr. „Markmiðið
er að viðhalda kafviðbragði og
gera það virkt eða lært. Nám-
skeiðunum er ætlað að stuðla að
auknum hreyfiþroska og auka
líkurnar á því að barnið geti
bjargað sér í vatni og ekki síst
læri að bera virðingu fyrir því.
Svo má ekki gleyma að samvera
eins og þessi eykur tengsl for-
eldra eða forráðamanna og
barns,“ sagði María að lokum.
Ungar drottningar og kóngar í sundi
Sumum svelgist á
í fyrstu dýfunum
Njarðvík
Verið er að æfa þennan snáða í því
að hanga í bakka laugarinnar. Mik-
ið er nú gott að vita af öruggum
höndum pabba í nálægð!
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hún virðist hvergi bangin þessi unga sunddrottning. María Jóhannesdóttir
íþróttakennari kennir henni tökin og stúlkan er fljót að læra.
TUTTUGU og tveir tóku þátt í vinnuvélanám-
skeiði sem Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja hélt á
dögunum. Var það fyrsta vinnuvélanámskeið
stofnunarinnar. Luku allir tilskildum tíma og
þreyttu próf í lokin.
Námskeiðið var haldið á daginn, dagana 5. til
16 maí. Ökuskóli Suðurlands ehf. annaðist
kennslu sem fram fór í félagsheimili Keflavíkur
við Hringbraut. Þátttakendur voru mjög ánægð-
ir með kennsluna og létu vel að aðstæðum, að
því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Svæð-
isvinnumiðluninni.
Þátttakendur fengu afhent skírteini í lok nám-
skeiðsins og var þá haft orð á því hversu hóp-
urinn var vel samstilltur, jákvæður og áhuga-
samur.
Luku vinnuvéla-
námskeiði
vinnumiðlunar
Suðurnes
Ljósmynd/Sævar Sævarsson
Tuttugu og tveir Suðurnesjamenn fengu vinnuvélaréttindi eftir námskeið Svæðisvinnumiðlunar.
SYSTRAFÉLAG Ytri-Njarðvíkur-
kirkju hefur fært sóknarnefndinni að
gjöf borðbúnað, kaffivél, dúka og
ýmsan annan búnað í eldhús kirkj-
unnar. Verðmæti gjafarinnar er um
530 þúsund krónur.
Frá árinu 1970 hafa konur í
Systrafélaginu gefið að jafnaði eina
til tvær gjafir á ári til kirkjunnar og
er verðmæti þeirra talið í milljónum
króna. Þetta fórnfúsa starf þeirra er
ein af undirstöðunum í kirkjulega
starfinu og verður seint fullþakkað,
segir í fréttatilkynningu.
Það var Hafdís Friðriksdóttir,
gjaldkeri félagsins, sem afhenti Ing-
ólfi Bárðarsyni, formanni sóknar-
nefndar, gjafabréfið á mæðradaginn.
Nú eru skráðar 28 konur í Systra-
félagið. Sigrún Alda Jensdóttir er
formaður og með þeim Hafdísi í
stjórn er Ólöf Viðarsdóttir ritari.
Aðal fjáröflun Systrafélagsins er
blómamarkaður sem haldinn er í lok
maí ár hvert. Að þessu sinni er
markaðurinn 29. maí til 1. júní.
Gefa búnað í eldhús
Njarðvík
Hafdís Friðriksdóttir, gjaldkeri Systrafélagsins, afhendir Ingólfi Bárðar-
syni, formanni sóknarnefndar, staðfestingu á gjöf félagsins.