Morgunblaðið - 28.05.2003, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 21
Ljósmynd: Frækileg björgun, Alfons Finnsson í Ólafsvík.
LANDSMENN Í LINSUNNI
LJÓSMYNDASÝNING
MORGUNBLAÐSINS Í ÓLAFSVÍK
Í Pakkhúsinu í Ólafsvík stendur yfir sýning á verð-
launamyndum úr ljósmyndasamkeppni sem
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins á
landsbyggðinni, og Morgunblaðið efndu til í vetur.
Á myndunum má sjá fjölbreytt viðfangsefni frétta-
ritara Morgunblaðsins sem starfa um allt land.
Fólk er í brennidepli linsunnar hjá þeim.
Sýningin stendur til fimmtudagsins 5. júní.
Myndirnar eru til sölu í Myndasafni
Morgunblaðsins á mbl.is
UM hálf milljón króna safnaðist á
söngskemmtun sem haldin var í síð-
ustu viku á Sauðárkróki til styrktar
Rúnari Birni Þorkelssyni og fjöl-
skyldu hans. Að auki barst fjöldi
gjafa frá fyrirtækjum.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu lamaðist Rúnar Björn
fyrir neðan háls er hann féll úr
ljósastaur á Sauðárkróki síðustu ný-
ársnótt. Hefur hann verið í end-
urhæfingu á Grensásdeild í Reykja-
vík og öðlast þar eilítinn mátt í
upphandleggjum. Aðstæður fjöl-
skyldu Rúnars Björns eru erfiðar
en fyrir á hann fjölfatlaðan bróður,
sem einnig er bundinn við hjólastól,
og von er á barni í fjölskyldunni í
næsta mánuði. Af þessum sökum
efndu vinir og aðstandendur til
söfnunar til styrktar fjölskyldunni,
stofnuðu reikning í Búnaðarbank-
anum á Sauðárkróki og skipulögðu
söngskemmtun.
Fullt var út úr dyrum í Bóknáms-
húsi Fjölbrauta-
skóla Norður-
lands vestra á
Sauðárkróki þar
sem skagfirskir
listamenn lögðu
fram krafta sína.
Mætti Rúnar
Björn óvænt á
samkomuna að
frumkvæði
sjúkraþjálfara
síns og aðstoðarkonu á Grensás-
deild.
Reikningur áfram opinn
Fjölskylda Rúnars Björns vill
koma á framfæri innilegu þakklæti
fyrir allan stuðninginn og vinir Rún-
ars Björns vilja ennfremur minna á
að söfnunarreikningurinn verður
áfram opinn. Númer reikningsins er
0310-13-850056 og kt. 080582-4209.
Fjármunir munu renna óskertir í
sjóð sem varið verður til kaupa á
hjálpartækjum og öðrum nauðsynj-
um fyrir Rúnar Björn í framtíðinni.
Hálf milljón safnaðist
og fjöldi gjafa barst
Rúnar Björn
Þorkelsson
Sauðárkrókur
MIKILL áhugi er fyrir því í
Stykkishólmi að bjóða upp á fjar-
nám frá Háskólanum á Akureyri
næsta vetur. Bæjarstjórn stóð fyrir
kynningarfundi fyrir skömmu þar
sem kynntir voru möguleikar á
fjarnámi við Háskólann á Akureyri.
Á fundinn mættu fulltrúar frá
Háskólanum á Akureyri. Erlendur
Steinar Friðriksson, verkefnastjóri
fjarnáms, kynnti framkvæmd og
skipulag fjarnáms við Háskólann
og Margrét J. Þorvaldsdóttir,
brautarstjóri leikskólabrautar,
kynnti leikskólafræðin. Inga Sig-
urðardóttir frá Símenntunarmið-
stöð Vesturlands sagði frá náms-
framboði við Háskóla Íslands.
Á fundinn komu tæplega 40
manns og vöknuðu margar spurn-
ingar sem fyrirlesarar svöruðu og
sköpuðust fjörugar umræður.
Greinilegt er að áhugi er fyrir því
að nýta sér þá miklu tækni sem
felst í því að geta stundað há-
skólanám í sinni heimabyggð með
fjarfundabúnaði sem er þegar til
staðar.
Stykkishólmsbær keypti í fyrra
Egilshús og er ætlunin að þetta
gamla hús fái nýtt hlutverk og
verði fræðasetur Hólmara í fram-
tíðinni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri,
Inga Sigurðardóttir frá Símennt-
unarmiðstöð Vesturlands, Erlendur
Steinar Friðriksson og Margrét
Þorvaldsdóttir frá Háskólanum á
Akureyri og Magnús Bæringsson,
formaður atvinnumálanefndar
Stykkishólms, fyrir framan Egils-
hús, en því húsi er ætlað að vera
fræðslumiðstöð Stykkishólms.
Boðið upp á
háskólanám
í Stykkishólmi
Stykkishólmur
FÖSTUDAGINN 23. maí var í
fyrsta sinn útskrifaður fatlaður
nemandi sem stundað hefur nám
á framhaldsskólastigi á Hólma-
vík. Það er María Lovísa Guð-
brandsdóttir frá Bassastöðum
sem lýkur nú námi af starfsbraut
III við Menntaskólann á Ísafirði.
María dvelur í skammtímavist á
Hólmavík virka daga en um helg-
ar heima á Bassastöðum í Kald-
rananeshreppi. Undanfarin ár
hefur Menntaskólinn á Ísafirði
ráðið starfsmann á Hólmavík til
að kenna Maríu u.þ.b. 24 stundir
á viku. Er þá m.a. fengist við
íþróttir, starfsþjálfun, matreiðslu,
heimsóknir á bókasafn, útivist og
margvísleg verkefni. Áður fylgdi
María Lovísa nemendum við
grunnskólann og naut þar einnig
sérkennslu, lengst af undir leið-
sögn Rögnu Þóru Karlsdóttur
þroskaþjálfa.
Morgnublaðið/Kristín Sigurrós
María Lovísa ásamt leiðbeinanda
sínum, Hildi Guðjónsdóttur.
Útskrifaðist
af starfs-
braut fatl-
aðra frá MÍ
Hólmavík
júní og verður opin um helgar frá kl.
14 til 22, en virka daga frá kl. 17 til
22.
ELFAR Guðni Þórðarson listmálari
var útnefndur menningarfrömuður
ársins í Árborg en viðurkenningin
var veitt í húsi Hólmarastar á
Stokkseyri á fimmtudagskvöld þar
sem fram fór hátíðardagskrá.
Elfar Guðni opnaði við þetta tæki-
færi sína árlegu hvítasunnusýningu
í salnum Svartakletti í Hólmarast-
arhúsinu. Sýningin stendur til 9.
Elfar Guðni
menningar-
frömuður
Árborgar
Árborg
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Elfar Guðni Þórðarson listmálari.
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bifröst
er nú að fara af stað með meistara-
nám við skólann. Undirbúningur hef-
ur staðið yfir í vetur en boðið verður
upp á tvær, leiðir annars vegar MS-
gráðu í viðskiptafræði og hins vegar
MA-gráðu í hagnýtum hagvísindum.
Magnús Árni Magnússon, aðstoð-
arrektor Viðskiptaháskólans á Bif-
röst, sagði að frá stofnun skólans árið
1918 hafi markmið hans verið að
mennta leiðtoga og stjórnendur fyrir
atvinnulíf og samfélag. Árið 1918
dugði að fara á nokkurra vikna nám-
skeið til að komast í þann ágæta hóp
og þá gátu menn orðið stjórnendur
fyrirtækja, alþingismenn eða ráð-
herrar svo dæmi sé tekið. Nú geri at-
vinnulífið í auknum mæli kröfu til
þess að fólk hafi meistarapróf.
„Skólinn hefur borið gæfu til að
fylgja kröfum tímans öll þessi ár,“
sagði Magnús. „Hann varð háskóli
fyrir 15 árum og hefur í auknum mæli
útskrifað fólk með BS-gráðu. Nú er
svo komið að nánast allir sem fara í
gegnum skólann útskrifast eru með
slíka gráðu. Til þess að halda áfram að
skila fólki í stjórnunarstöður í sam-
félaginu var því talið nauðsynlegt að
taka þetta skref.“
Tvær leiðir í meistaranáminu
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á
tvær leiðir í meistaranáminu. Annars
vegar MS-gráðu í viðskiptafræði, sem
er hugsuð fyrir þá sem eru með BS-
eða BA-próf í við-
skiptafræði,
rekstrarfræði eða
tengdum greinum
t.d. hagfræði.
Þannig nám mun
henta vel þeim
nemendum sem
hafa útskrifast frá
Bifröst og er m.a.
hugsað sem þjón-
usta við þá. Hins
vegar verður boðið upp á MA-gráðu í
hagnýtum hagvísindum. Inntökuskil-
yrði fyrir það er BA-, BS-, eða BEd-
gráða.
Innan beggja þessara leiða er boðið
upp á ákveðið val. Í MS-leiðinni er
boðið upp á sérhæfingu í fjármálum,
stjórnun og nýsköpunar- og frum-
kvöðlafræðum. Hægt verður að
blanda þessu þrennu saman og jafn-
vel kúrsum úr MA-náminu í svoköll-
uðu opnu vali. Þá velur fólk sér kúrsa
og sérhæfir sig í því sem það hefur
áhuga á með ritun rigerðar.
Í MA-leiðinni er boðið upp á enn
fjölbreyttara val. Þar er boðið upp á
hagfræðival, Evrópufræðival, stjórn-
sýslufræðival og í samvinnu við Land-
búnaðarháskólann á Hvanneyri verð-
ur boðið upp á umhverfis- og auð-
lindahagfræðival og svæðafræðival.
Þær greinar verða kenndar í náinni
samvinnu við Hvanneyri.
Námið er hugsað fyrir fólk sem
stundar vinnu. Hægt er að taka kúrsa
upp á 7,5 einingar á önn, haustönn og
vorönn í fjarnámi auk tveggja sum-
aranna í 5 vikna samþjöppuðu stað-
námi í júlí og ágúst á Bifröst, þar sem
nemendum verður boðið upp á hús-
næði fyrir sig og fjölskyldu sína á
staðnum. Að þessu loknu er skrifuð
ritgerð annaðhvort 15 eða 30 eining-
ar. Einnig er hægt að vera í þessu í
fullu námi og skrifa ritgerðina sam-
hliða námskeiðunum. Ef fólk ákveður
að taka 7,5 einingar á önn með vinnu
ætti að vera hægt að ljúka 45 eininga
meistaragráðu á tveimur árum.
Magnús gerir ráð fyrir að einhverjir
muni þó reyna að flýta fyrir sér með
því að skrifa ritgerðina jafnhliða.
„Við munum reyna að gefa þeim
sem hafa hug á að skrifa 30 eininga
ritgerð kost á að starfa sem aðstoð-
arkennarar á Bifröst. Það væri fyrst
og fremst hugsað fyrir þá sem eru í
fullu námi og hafa hug á áframhald-
andi námi.“
Kynnt á fundi í dag
Magnús segir að viðbrögðin hafa
verið býsna góð. Umsóknir hafa þeg-
ar borist og margar fyrirspurnir. Um-
sóknarfrestur er til 10. júlí og er mið-
að við að um 30 nemendur komist að.
Hann vill hvetja alla sem hafa
áhuga á náminu að koma á kynning-
arfund sem haldinn verður í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6 í
Reykjavík, í dag, miðvikudaginn 28.
maí, kl. 17.
Viðskiptaháskólinn á Bifröst býður upp á meistaranám
Atvinnulífið gerir í auknum
mæli kröfu um meistaranám
Magnús Árni
Magnússon
Borgarfjörður
www.casa.is
SJÁLFSBJÖRG í
A-Húnavatnssýslu af-
henti á dögunum
bingóspjöld og kúlu-
vél til félagsstarfs
aldraðra og fatlaðra í
A-Húnavatnssýslu.
Sigríður Bjarkadóttir
sagði að Sjálfsbjörg í
A-Hún. hefði reynst
þessu félagsstarfi
ákaflega vel í gegn
um tíðina og ekki
væri langt síðan Sjálfsbjörg hefði
fært félagsstarfinu vandaða
saumavél. Eins og áður hefur
komið fram í fréttum er Sjálfs-
björg í A-Hún. eitt fjölmennasta
félag innan landsamtaka Sjálfs-
bjargar og lætur nærri að um 12%
íbúa héraðsins séu skráðir fé-
lagar. Á myndinni eru frá vinsti
Sigríður Bjarkadóttir, Ingunn
María Björnsdóttir formaður
Sjálfsbjargar A-Hún., Guðfinna
Einarsdóttir og Sigríður Ingi-
mundardóttir.
Gáfu bingóspjöld
Blönduós