Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 23
GRADUALEKÓR Langholts-
kirkju, undir stjórn Jóns Stefánsson-
ar, hefur fyrir löngu tekið sér stöðu
sem einn besti söngflokkurinn í kóra-
samfélagi okkar Íslendinga og þegar
hafa nokkrir félagar í kórnum stefnt
á að verða einsöngvarar og á þessum
tónleikum bar það til tíðinda að ein
stúlkan úr kórnum, Þóra Sif Frið-
riksdóttir, tók stigapróf upp í Söng-
skólann í Reykjavík með þá kunnáttu
sem hún hafði aflað sér með starfi og
námi sínu í Gradualekórnum. Þetta
eru töluverð tíðindi er munu trúlega
hafa mikil áhrif á starfssvið barna-
og unglingakóra í framtíðinni.
Tónleikar Gradualekórs Lang-
holtskirkju sl. sunnudagskvöld hóf-
ust á Ísland farsælda Frón og þar
næst komu tvær útsetningar á ís-
lenskum þjóðlögum, Krummi krunk-
ar úti og Móðir mín í kví, kví og síðan
hið undurfagra lag og kvæði er sam-
an eiga Jakob Hallgrímsson og Þor-
steinn Valdimarsson en þessum
hluta efnisskrár lauk með frábæru
söngverki eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, við ljóðið Móðir blómanna,
eftir Sigrúnu Ísleifsdóttur, er syngur
í kórnum. Öll þessi lög voru fallega
sungin svo sem vænta mátti af svo
góðum kór sem Gradualekórinn er.
Þóra Sif Friðriksdóttir lauk end-
anlega sínu söngprófi inn í Söngskól-
ann með því að syngja þrjú lög sem
voru Kirkjuhvoll, eftir Árna Thor-
steinsson, Smaladrengurinn, eftir
Skúla Halldórsson og Þú ert, eftir
Þórarin Guðmundsson. Það hefur
ekki verið venja
að fjalla um söng
eða tónflutning
nemenda en það
má þó segja að vel
hefur verið vand-
að til þjálfunar
stúlknanna í
Gradualekórnum
því að söngur
Þóru var einstak-
lega fagur og þokkafullur.
Lokaverk tónleikanna var páska-
tónlist eftir John Høybye sem hann
nefnir Von og fjallar um krossfest-
inguna og upprisuna þetta er í þeim
anda sem einkennt hefur nýbylgjuna
í kirkjutónlist þar sem ofið er saman
djass- og popptónlist, af hófstilltari
gerðinni, sem eins konar leið til að
færa trúariðkun nær veruleika unga
fólksins. Þetta er í raun það sama og
Ambrosíus kirkjufaðir gerði fyrir
rúmum sextán öldum er hann tók
vinsæl alþýðulög, setti við þau trúar-
lega texta og helgaði þar með lögin
kirkjunni til eignar. Þetta sama gerði
Marteinn Lúther þegar hinn alþýð-
legi kórall var tekinn upp af lúth-
ersku kirkjunni og söngurinn færður
alþýðunni til virkrar þátttöku í
kirkjulegum athöfnum.
Tónverkið Von er í átta þáttum,
sem hvað form snertir eru allir eins,
lagrænir með einstaka innslagi
hljóðfæraleiks, þar sem laglínan er
aðalatriðið, en útfærslan aðeins
hljómræn og á stundum hrynræn,
þ.e. „jazzy“. Gradualekórinn og Ei-
vør Pálsdóttir skiptu með sér laglín-
unum og Sigurður Flosason greip
stundum inn í tónaleikinn með fal-
lega leiknum tónlínum. Sagt er að
saxófónninn hafi allt að því mannleg-
an tón og víst er að söngur kórsins og
saxófónleikurinn féllu ákaflega vel
saman. Einstaka forspil og undirleik-
ur var ýmist leikinn á orgel af Guð-
mundi Sigurðssyni eða á píanó af
Kjartani Valdemarssyni og með í því
að skapa hljómnum sérstaka dýpt
var leikur Gunnars Hrafnssonar á
kontrabassa mikilvægur en hryn-
verkið var svo í höndum Péturs Grét-
arssonar.
Í heild var flutningurinn frekar
daufur og kaflarnir allir einum of
jafnir í hraða eða með öðrum orðum,
það vantaði „kikkið“ í flutninginn
sem að öðru leyti var í heild áferð-
arfallegur, sérstaklega söngurinn og
samspil Sigurðar Flosasonar á saxó-
fóninn þar sem stundum örlaði á
kontrapunktísku samspili hans við
söngraddirnar.
Það er svo með megnið af popp-
tónlist að formskipanin er einum of
einlit, er röð af kórusum þar sem nær
alltaf er aðeins unnið úr laglínu, með
undirleik hljóma og hryns og þegar
allt er í gangi, með fullum styrk, án
nokkurra litbrigða í blæ eða tilbrigða
í styrk og hraða. Þetta er samkenni
popptónlistar og einum of ráðandi
varðandi „rútínulegar“ vinnuaðferðir
svo að lögin verða í raun öll eins. Það
fer einfaldlega allt í gang og lögin eru
húðbarin áfram þar sem ekkert
hljómrými er fyrir neitt annað en há-
vaða og þungbarinn og ómúsíkalskan
„rytma“. Segja má að tónsmíðin Von,
eftir John Høybye, sé ekkert öðru-
vísi en önnur popptónlist þótt þar
megi merkja tilraun til að nota and-
stæður í styrk og þá aðeins með því
að sleppa á stundum hrynundirleikn-
um án þess í raun að breyta form-
skipaninni. Að þessu leyti, þ.e. er
hvað varðar vinnuaðferðir og form-
skipan, er Von sem tónsmíð ákaflega
fábrotin í formi og vinnuaðferðum og
vart meira en að vera áheyrilegur
hefðbundinn popptónaleikur með
laglínu þar sem hljómar og hrynur er
aðeins fylgispakur undirleikur.
TÓNLIST
Langholtskirkja
Gradualekór Langholtskirkju, tvær ungar
söngkonur, Þóra Sif Friðriksdóttir og Ei-
vør Pálsdóttir, og hljóðfæraleikararnir
Sigurður Flosason, Guðmundur Sigurðs-
son, Kjartan Valdimarsson, Gunnar
Hrafnsson og Pétur Grétarsson, undir
stjórn Jóns Stefánssonar, fluttu íslensk
kór- og einsöngslög og páskahugleið-
inguna Von, eftir John Høybye.
Sunnudagurinn 25. maí 2003.
SÖNGTÓNLEIKAR
Jón Stefánsson
Jón Ásgeirsson
Laglína, hljómar og hrynur
SÖNGHÓPARNIR Veirurnar og
Raddbandafélag Reykjavíkur halda
sameiginlega tónleika í Hveragerð-
iskirkju kl. 17 á morgun, fimmtudag.
Veirurnar eru 16 manna blandaður
sönghópur og Raddbandafélag
Reykjavíkur samanstendur af 11
karlmönnum. Á efnisskrá er m.a. að
finna erlend þjóðlög, sænskar þjóð-
vísur, íslensk og erlend sönglög og
erlend dægurlög í léttri sveiflu.
Stjórnandi Veiranna er Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Raddbandafélagi
Reykjavíkur stjórnar Sigrún Gren-
dal og á píanóið leikur Jónas Sen.
Sönghópar
í Hvera-
gerðiskirkju
KÓR Flensborgarskólans heldur tón-
leika í Eskifjarðarkirkju í kvöld kl. 20
og í Egilsstaðakirkju kl. 17 á morgun.
Einnig syngur kórinn í Sparkaupum
á Seyðisfirði í dag kl. 15.15.
Dagskrá kórsins er fjölbreytt og
koma einsöngvarar og hljóðfæraleik-
arar úr röðum kórfélaga. Stjórnandi
er Hrafnhildur Blomsterberg.
Skólakór á
faraldsfæti
SKÁLDSAGAN
Tár paradísar-
fuglsins eftir Ein-
ar Örn Gunnars-
son, sem út kom
hjá Ormstungu
árið 1998, hefur
nú verið gefin út
hjá litháíska for-
laginu Arlila.
Jurgita Marija
Abraityté, sem
kennir íslensku við háskólann í Viln-
íus, þýddi og nefnist sagan Rojaus
Taukšèio Ašaros.
Bókmenntakynningarsjóður
styrkti útgáfuna sem rekur rætur
sínar til Bókmenntahraðlestarinnar,
ferðar ungra evrópskra höfunda um
Evrópu sumarið 2000. Þar hitti höf-
undurinn þýðandann. Þau kynni
hafa nú borið þennan ávöxt.
Í umfjöllun gagnrýnanda World
Literatur Today segir m.a.: „Með
Tári paradísarfuglsins hefur Einar
Örn Gunnarsson skrifað röð sér-
kennilegra, dularfullra og á köflum
ógnvekjandi bréfa sem eignuð eru
manni sem er líkamlega, andlega og
tilfinningalega skaðaður … Bréfin
lýsa annars vegar skelfilegri mar-
traðartilveru, draumkenndri veröld
á valdi kafkaískra uppákoma og
óhugnaðar sem nær langt út fyrir
mörk ímyndunaflsins og hins vegar
lýsa þau lokuðum listrænum heimi
sem samanstendur af framandlegum
málverkum og skissum en einnig
leyndardómsfullri bók sögupersón-
unnar sem utanaðkomandi fá ekki
skilið. …Tár paradísarfuglsins er
margslungin, hrollvekjandi og
spennandi lesning.“
Tár para-
dísarfuglsins
til Litháen
Einar Örn
Gunnarsson
Vorhátíð LHÍ í Listasafni Reykja-
víkur – Hafnarhúsi kl. 14 Upp-
skeran – lokadagur útskriftarsýn-
ingar. Verk ýmissa listamanna boðin
upp til að styrkja ferð myndlist-
arnema á Feneyjatvíæringinn.
Nemendaleikhúsið, Sölvhólsgötu
13 kl. 20: Leikritið Tvö hús.
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Á MORGUN
♦ ♦ ♦
RAFVÉLA
VERKSTÆÐI
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3