Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 24
LISTIR
24 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BARNALEIKRITIÐ Dýrin í Hálsa-
skógi eftir Thorbjörn Egner verður
sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í
september og kom leikhópurinn
saman til fyrstu æfingar á dögunum.
„Leikrit Thorbjörns Egners hafa
notið gífurlegra vinsælda á Íslandi
allt frá því Kardemommubærinn var
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu árið
1960,“ segir Melkorka Tekla Ólafs-
dóttir leiklistarráðunautur Þjóðleik-
hússins. „Sú hefð hefur skapast að
gefa sem næst hverri kynslóð ís-
lenskra barna kost á því að sjá á
sviði tvö vinsælustu verk Egners,
Dýrin í Hálsaskógi og Karde-
mommubæinn, og segja má að bæði
verkin hafi öðlast sess sem sígild
barnaleikrit á íslensku leiksviði.
Dýrin í Hálsaskógi var fyrst sýnt í
Þjóðleikhúsinu árið 1962 og er nú
sviðsett í fjórða sinn.“
Að þessu sinni er það Þröstur Leó
Gunnarsson sem fer með hlutverk
hins sísvanga Mikka refs og Atli
Rafn Sigurðarson leikur hinn snjalla
og söngglaða Lilla klifurmús. Kjart-
an Guðjónsson leikur Martein skóg-
armús, Pálmi Gestsson fer með hlut-
verk Hérastubbs bakara og
bakaradrenginn leikur Friðrik Frið-
riksson. Bangsapabbi og bangsam-
amma eru þau Örn Árnason og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, en Örn kem-
ur nú aftur til starfa við Þjóðleik-
húsið eftir nokkurt hlé. Ragnheiður
Steindórsdóttir leikur ömmu skóg-
armús, sem víðfræg er fyrir flug sitt
á regnhlíf. Húsamúsina leika þær
Brynhildur Guðjónsdóttir og Arn-
björg Hlíf Valsdóttir til skiptis.
Manninn og konuna á bænum leika
Randver Þorláksson og Anna Krist-
ín Arngrímsdóttir. Björgvin Franz
Gíslason leikur Patta broddgölt og
hundinn Hannibal. Margrét Guð-
mundsdóttir leikur krákuna og Sig-
ríður Þorvaldsdóttir ugluna. Auk
þess munu nokkur börn taka þátt í
sýningunni.
Tónlistin í Dýrunum í Hálsaskógi
er eftir Thorbjörn Egner og Christ-
ian Hartmann. Þýðandi verksins er
Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá
Djúpalæk þýddi ljóðin. Um dansa og
sviðshreyfingar sér Ástrós Gunn-
arsdóttir, lýsingu annast Halldór
Örn Óskarsson, búninga gerir Þór-
unn María Jónsdóttir og höfundur
leikmyndar er Brian Pilkington.
Hljómsveitarstjóri er Jóhann G. Jó-
hannsson og leikstjóri er Sigurður
Sigurjónsson.
Dýrin í Hálsaskógi á fjölum
Þjóðleikhússins næsta vetur
Morgunblaðið/Jim Smart
Leikarar og aðstandendur sýningarinnar Dýrin í Hálsaskógi tóku sér hlé frá samlestrinum fyrir ljósmyndara.
ÞRÍTUGASTA starfsári Söngskól-
ans í Reykjavík er nú að ljúka. Um
180 nemendur hafa stundað nám við
skólann í vetur og luku 158 stigpróf-
um í söng, þar af luku 15. nemendur
8. stigi, lokaprófi úr almennri deild. 7
nemendur tóku lokapróf úr fram-
haldsdeildum einsöngvara og söng-
kennara.
34 kennarar; söngkennarar, pí-
anóleikarar og kjarnagreinakennar-
ar eru starfandi við skólann, skóla-
stjóri er Garðar Cortes. Söngskólinn
fær árlega prófdómara á vegum
„The Associated Board of the Royal
Schools of Music“ í London. Að
þessu sinni dæmdi prof. Timothy
Barratt prófárangur nemenda. Auk
prófdómarastarfa fyrir ABRSM er
hann prófessor við „The Royal Aca-
demy of Music“ í London
Skólaslit og afhending prófskír-
teina fara fram á morgun, fimmtu-
daginn kl. 14.30 í Tónlistarhúsinu
Ými v. Skógarhlíð. Að skólaslitum
loknum, kl. 16 eru lokatónleikar
skólans, þar sem fram koma nem-
endur á efri stigum námsins ásamt
píanóleikurum skólans. Efnisskráin
er fjölbreytt, íslensk og erlend söng-
lög, lög úr söngleikjum og atriði úr
óperum.
Á myndinni eru lokaprófs-nem-
endur úr Söngskólanum. Aftasta röð
f.v.: María Jónsdóttir, Bentína Sig-
rún Tryggvadóttir, Ásgerður
Júníusdóttir, Hafsteinn Þórólfsson,
Lárus S. Lárusson, Svanlaug Árna-
dóttir, Hlín Leifsdóttir. Miðröð:
Hulda Dögg Proppé, Regína Unnur
Ólafsdóttir, Áslaug Helga Hálfdán-
ardóttir, Garðar Cortes skólastjóri,
Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, Elísa-
bet Ólafsdóttir, Hanna Björk Guð-
jónsdóttir. Fremsta röð: Sibylle
Köll, Lára Bryndís Eggertsdóttir,
Ida Heinrich, Erna Hlín Guðjóns-
dóttir, Gunnhildur Júlíusdóttir.
Fjarverandi voru: Bylgja Dís
Gunnarsdóttir, Hólmfríður Jóhann-
esdóttir, Helga Magnúsdóttir og
Ólafur Þ. Þorsteinsson.
Söngskóla
Reykjavíkur
slitið í 30. sinnNÚ geta strákar áaldrinum 11–13 ára
farið að leggja drög
að því að komast í
karlakór síðarmeir,
og stelpur á sama
aldri geta að sama
skapi farið að vinna
að raddþjálfun sinni.
Söngskólinn í Reykja-
vík býður nefnilega
frá og með hausti upp
á nám fyrir þennan
aldurshóp í stúlkna-
deild og drengjadeild.
Sérþjálfaðir kennarar
sem unnið hafa með
barnaraddir annast
kennsluna, en í náminu verður boð-
ið upp á raddþjálfun einn tíma í
viku í fimm manna hópi, eina og
hálfa klukkustund á viku í sam-
söng, og klukkustund á viku í tón-
fræðum. Margrét Bóasdóttir hefur
haft skipulagningu deildarinnar
með höndum, en hún kom einnig á
fót unglingadeild fyrir eldri krakka
við skólann fyrir nokkrum árum.
„Það er talsverður munur á því
að barn syngi eða leiki á hljóð-
færi,“ segir Margrét.
„Ef þú lærir á hljóð-
færi verðurðu að æfa
þig reglulega, en það
að æfa sig í söng er
öðruvísi. Barn sem
hefur gaman af því að
syngja syngur meira
og lærir fleiri lög, en
er ekki endilega að
stilla sér upp með nót-
ur á sama hátt og
krakkinn í hljóðfæra-
námi. Það er svolítið
önnur upplifun að
syngja en að læra á
hljóðfæri. Þessi náms-
braut er hugsuð sem
kostur fyrir börn á þessum aldri,
sem langar að syngja, en hafa ekki
vettvang til þess.“
Margrét segir að börnin verði
ekki látin syngja óperuaríur eða
neitt þvíumlíkt, heldur bara hvers-
dagsleg lög sem fólk kann, eins og
Öxar við ána og Blátt lítið blóm eitt
er, svo dæmi séu tekin. „Reynslan
úr unglingadeildinni hefur kennt
okkur að krökkunum þykir mjög
gaman að syngja þessi lög sem
ekki hafa verið sungin mikið síð-
ustu ár, af því að þau hafa verið af-
skrifuð sem gamaldags og púkó.
Þau eru það ekki. Við syngjum því
ekki Metallica-lög eða Led Zeppel-
in, en leggjum þeim mun meiri
áherslu á að börnin njóti þess að
syngja saman í hópi. Það sem okk-
ur liggur líka á hjarta er að strákar
hafa nánast verið fyrirfram dæmd-
ir í boltann, – það er aðeins einn
drengjakór á landinu og því fá
tækifæri fyrir stráka að iðka söng.
Mér finnst það skipta miklu máli
að drengjum sé boðið upp á það að
syngja. Þeir geta auðvitað verið í
boltanum líka.“
Líkaminn myndar gleðiefni
Margrét segir reynsluna úr
kórastarfi benda til þess að strákar
á þessum aldri vilji síður syngja
með stelpum, aðeins örfáir harki af
sér í kórum sem eru að miklum
meirihluta skipaðir stelpum. „Það
er mikil útrás sem fólk fær út úr
því að syngja og mikil gleði, og það
er margsannað mál að líkaminn
myndar gleðiefnið endorfín við
söng.“
Söngskólinn stofnar deild-
ir fyrir 11–13 ára börn
Margrét Bóasdóttir
HOLLENSKA myndlistarkon-
an Dorine van Delft hefur dval-
ið í gestavinnustofu SÍM og
Listasafns Reykjavíkur nú í
maí og hefur opnað sýningu í
SÍM-húsinu, Hafnarstræti 16.
Sýninguna nefnir hún: Will
Hydrogen Effect You?
Sýningin er opin alla daga,
nema uppstigningardag, kl. 10–
16 og lýkur á föstudag.
Myndlistar-
sýning í
SÍM-húsinu
BÓKASALUR Þjóðmenningarhúss-
ins er helgaður ritmenningu Íslend-
inga. Í bókasalnum hefur nú verið
sett upp sumarsýning sem ber yf-
irskriftina Íslendingasögur á er-
lendum málum. Sýningunni er ætl-
að að gefa gestum innsýn í
bókmenntaarfinn um leið og athygli
þeirra er vakin á því að fjölmargar
útgáfur Íslendingasagna eru til á
erlendum málum.
Sumarsýningin er samvinnuverk-
efni Þjóðmenningarhúss og Lands-
bókasafns Íslands – Háskólabóka-
safns, sem setur upp sýninguna í
bókasal Þjóðmenningarhúss.
Sýningin rímar vel við tvær meg-
insýningar hússins sem eru Hand-
ritin og Landnám og Vínlandsferð-
ir.
Sumarsýningin stendur út ágúst-
mánuð.
Sumarsýning opn-
uð í bókasal Þjóð-
menningarhússins
STAÐARLISTAMAÐUR í
Skálholti árið 2003 er Björg
Þorsteinsdóttir og stendur
nú yfir sýning á verkum
hennar í matsal og á göngum
skólans. Þar eru um tuttugu
akrýl- og vatnslitamyndir,
flest eru verkin frá síðasta
ári.
Björg stundaði myndlistar-
nám í Reykjavík, Stuttgart
og París. Hún hefur haldið
fjölda einkasýninga og tekið
þátt í samsýningum hér
heima og erlendis. Verk eftir
Björgu eru í eigu helstu
listasafna hér á landi.
Verkin í Skálholti eru öll
til sölu og stendur sýningin
fram í september nk.
Sýning á
verkum
staðar-
listamanns
Verk eftir Björgu.