Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 27
af ásetningi eða gáleysi, varða refs-
ingu.“
Í 18. grein segir: „Hafi jarðrask
orðið við mannvirkjagerð, mal-
arnám, sandnám, grjótnám, gjall-
nám eða á annan hátt af manna-
völdum, skal þeim, er valdið hefur,
skylt að ganga frá því á snyrtilegan
hátt.“
Í 24. grein segir: „Landsvæði,
sem mikilvægt er að varðveita sak-
ir sérstaks landslags, gróðurfars
eða dýralífs, getur Náttúruvernd-
arráð friðað í heild, og nefnast þau
landsvæði friðlönd. Má þar ekki
raska náttúrufari né gera mann-
virki, sem spilla svip landsins.“
Árið 1988 lét Náttúruverndarráð
gera kort af „Friðlýstum svæðum
og náttúruminjum á Íslandi.“ Þau
reyndust vera 272. Meðal þeirra
hér um slóðir, sem ekki má raska,
eru: Kerhóll við Seyðishóla, Kerið,
Neðra-Sog, Hraunbollar undir Ölf-
usárbrú á Selfossi, Bæjarvatn við
Gaulverjabæ, Fjörur við Stokks-
eyri, Hengilssvæðið, Varmá, Ölfus-
forir, Hafnarnes við Þorlákshöfn,
og Fjörumörk við Hjalla.
Það vekur furðu, að Ingólfsfjall
með sínar fögru og áberandi skrið-
ur og kletta skuli ekki vera á þess-
ari skrá. Það er brýnna nú en
nokkru sinni áður. Því vil ég ein-
dregið mælast til þess, að réttar
stofnanir þjóðfélagsins og áhuga-
menn taki nú þegar höndum saman
um að stöðva frekari skemmd-
arverk á Ingólfsfjalli og fái það
friðlýst.
Góðar malarnámur eru hér
margar í næsta nágrenni. Rækt-
unarsamband Flóa og Skeiða er
með miklar malargryfjur í Hróars-
holti með ágætu efni. Þar er um-
gengni til fyrirmyndar. Þegar möl-
in er uppurin á ákveðnu svæði, er
gengið snyrtilega frá því og það
aftur gert að túni. Þá er mikið sótt
í malarnámur við Súluholt, Önund-
arholt, Oddgeirshóla og Bíldsfell og
Hlíð í Grafningi.
Ég heiti á umhverfisráðherra,
Náttúruvernd ríkisins, Náttúru-
verndarsamtök Íslands og Land-
vernd og alla þá, sem unna fögru
landi að stöðva nú þegar þau her-
virki, sem verið er að vinna á Ing-
ólfsfjalli og friði það.
Höfundur er fyrrverandi féhirðir í
Landsbankanum á Selfossi.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 27
FÉLÖGUM í Leikfélagi Reykja-
víkur barst fyrir nokkru sending
með pósti sem innihélt boð á aðal-
fund félagsins, til-
lögur að breytingum
á samþykktum fé-
lagsins ásamt rök-
stuðningi fyrir til-
lögunum og lýkur
með „vinsemd og
virðingu og einlægri
von um stuðning ykkar, Stjórn
Leikfélags Reykjavíkur“. Ætla
mætti því að þetta væru tillögur
stjórnar Leikfélags Reykjavíkur en
þeir sem rétt eiga á að sitja stjórn-
arfundi og hafa aðgang að fund-
argerðum kannast ekki við að þess-
ar tillögur hafi verið afgreiddar af
stjórninni – a.m.k. ekki áður en þær
voru sendar út. Ekki er þess getið
hver eða hverjir séu höfundar þess-
ara tillagna en vitað er að í vetur
var sett nefnd til að endurskoða
samþykktirnar. Í besta falli má því
álykta að þetta séu tillögur þeirra
þriggja einstaklinga sem nú sitja í
aðalstjórn félagins.
Burtséð frá því hvaðan þessar til-
lögur eru komnar eru þær allrar at-
hygli verðar en þó einkum útskýr-
ingarnar og rökstuðningurinn. Í
fyrsta lagi er gerð tillaga um „Að
opna félagið fyrir öllu áhugafólki
um leiklist og leikhúsrekstur í
Borgarleikhúsi“ og verður ekki gert
að sérstöku umfjöllunarefni hér
nema hvað í rökstuðningi segir að
þetta eigi að vera til að leyfa „lýð-
ræðinu að blómstra“.
Í öðru lagi er gerð tillaga um „Að
stjórn Leikfélagsins verði ekki skip-
uð starfsmönnum/launþegum fé-
lagsins“ og m.a. getið í útskýringum
að það „form „atvinnu-lýðræðis,“ að
starfsmenn sitji í stjórn ... sé ekki
hið besta fyrirkomulag á atvinnu-
rekstri.“ Það er semsagt ekki nema
ákveðinn hluti lýðræðisins sem
bréfritarar vilja að blómstri.
Kaldar kveðjur
Tilefni þessarar greinar er eink-
um þetta: Úr útskýringum og rök-
stuðningi með tillögunum má lesa
það álit núverandi stjórnarmanna
LR að félagsmenn LR verði sjálf-
krafa óhæfir til að sitja í stjórn fé-
lagins og bera ábyrgð á leik-
húsrekstrinum um leið og þeir taka
að sér launuð störf hjá félaginu.
Burtséð frá þeim áfellisdómi sem
stjórnarmenn fella yfir sjálfum sér
verða þetta að teljast kaldar kveðj-
ur til allra annarra félagsmanna,
lífs og liðinna, sem setið hafa í
stjórn og leikhúsráði LR síðustu 40
árin eða frá því félagið var gert að
atvinnuleikhúsi með fastráðnum
listamönnum og leikhússtjóri ráð-
inn. Áfellisdómur núverandi stjórn-
armanna yfir sjálfum sér nær nefni-
lega líka til allra stjórnarmanna LR
síðustu 40 árin sem jafnframt hafa
verið í starfi hjá félaginu. Meðal
þeirra eru t.d. heiðursfélagarnir
Steindór Hjörleifsson, Jón Sig-
urbjörnsson og Steinþór Sigurðs-
son, auk annarra félagsmanna eins
og Guðrúnar Ásmundsdóttur, Sig-
ríðar Hagalín og Helga Skúlasonar,
svo aðeins nokkrir séu nefndir af
þeim fjölda félaga sem setið hafa í
stjórn félagsins.
Þó að núverandi stjórnarmenn
telji sig bæði vanhæfa og óhæfa til
að sitja í stjórn Leikfélags Reykja-
víkur og bera ábyrgð á rekstri þess
– álit sem fjölmargir félagsmenn
geta tekið undir – verður það að
teljast óþarfi, óviðeigandi og
ósmekklegt af þeim að senda öllum
fyrirrennurum sínum slíkar kveðj-
ur.
Vanhæfir
stjórnarmenn á flótta
Augljóst er að þessir stjórn-
armenn Leikfélags Reykjavíkur
hafa gefist upp fyrir verkefni sínu
og í stað þess að viðurkenna það og
segja af sér reyna þeir að forða sér
út um bakdyrnar með því að breyta
samþykktum félagsins þannig að
þeir geti hætt vegna „vanhæfis“.
Undirrituðum – og mörgum öðrum
félögum LR – væri engin eftirsjá að
þeim núverandi stjórnarmönnum
sem m.a. bera ábyrgð á mesta
hallarekstri í 108 ára sögu félagsins.
En algjör fásinna væri að leyfa
þeim að taka með sér á flóttanum
alla aðra félaga Leikfélags Reykja-
víkur, sem kynnu að taka að sér
launuð störf fyrir félagið í nútíð og
framtíð, og banna þeim með lögum
að koma nálægt leikhúsrekstrinum.
Stjórnarseta listamanna
og starfsmanna LR
Allt frá því Leikfélag Reykjavík-
ur var stofnað hafa formenn þess
og aðrir stjórnarmenn komið úr
hópi starfandi félagsmanna. Frá því
að það varð atvinnuleikhús með
fastráðnum listamönnum og leik-
hússtjóra hefur meirihluti stjórnar
– oftast öll stjórnin – verið skipuð
fastráðnum listamönnum og starfs-
mönnum; þar til fyrir fjórum árum.
Formaður félagsins var líka nánast
óslitið úr hópi fastráðinna leikara;
þar til fyrir fimm árum.
Og hér er ekki úr vegi að skoða
hvernig til hefur tekist í rekstri fé-
lagsins þessi síðustu 4-5 ár. Á miðju
ári 1998 var höfuðstóll félagsins,
hrein eign, rúmar 110 miljónir kr.
eða á núvirði tæpar 137 miljónir kr.
(Eign sem hefði farið langt með að
tryggja áunninn eftirlaunarétt allra
eldri starfsmanna félagsins í 25 ár.
Eftir að öllum eignum félagsins hef-
ur nú verið sóað í ábyrgðarlausan
hallarekstur eru þessi réttindi í
stórhættu og gætu orðið að engu
fyrr en varir; um það verður ef til
vill fjallað nánar í annarri grein.)
Nú tæpum fimm árum síðar er eig-
infjárstaða félagsins orðin neikvæð,
Leikfélag Reykjavíkur er svo gott
sem gjaldþrota – þrátt fyrir 50 milj-
óna kr. neyðaraðstoð frá Reykjavík-
urborg á yfirstandandi leikári.
Vanhæfi og vanhæfni
núverandi stjórnar
Núverandi stjórnarmenn, sem í
raun hafa nú lýst sig vanhæfa til að
stjórna rekstrinum, hafa allir verið
meira og minna í launuðum störfum
hjá félaginu. Þeir biðja félagsmenn
nú um stuðning til að „losna undan“
þeirri „plikt“ að þurfa að takast á
við erfiðar ákvarðanir sem óhjá-
kvæmilega fylgja stjórnarsetu í
rekstri félags eins og Leikfélags
Reykjavíkur. Og þeim er ekki nóg
að losna sjálfir heldur vilja þeir líka
banna miklum hluta núverandi fé-
laga að axla ábyrgðina.
Fyrstu 35 ár atvinnuleikhúss
Leikfélags Reykjavíkur höfðu þeir
sem völdust til stjórnarstarfa fyrir
félagið jafnan þann dug sem þurfti
til að takast á við erfið úrlausn-
arefni, þar á meðal uppsagnir
starfsmanna, og töldu sig ekki
þurfa að óttast óvinsældir leik-
hússtjórans vegna skoðana sinna og
afstöðu.
En nú er öldin önnur og núver-
andi stjórnarmenn telja sig van-
hæfa til stjórnarsetu – og kannski
er það einmitt það sem þeir eru:
Þeir hafa vald til að stöðva gegnd-
arlausan hallarekstur núverandi
leikhússtjóra, sem hefur á tæpum
þremur árum sóað hátt í 125 milj-
ónum kr. á núvirði, en skortir kjark
og dug til að standa sína „plikt“.
Þeir eru með öðrum orðum van-
hæfir til að takast á við þann vanda
sem fylgir þeim ábyrgðarstöðum
sem þeir hafa sóst eftir og náð kjöri
til.
Þeir segjast vilja losna undan
sinni „plikt“ af því að stjórnin ræð-
ur leikhússtjórann og þá kemur
„upp sú staða að starfsmaður, und-
irmaður leikhússtjóra, verður yf-
irmaður hans í stjórn“ (eins og það
sé eitthvert einsdæmi í rekstri fyr-
irtækja) og nefna sérstaklega
„starfsmannahald“ sem vandamál –
sennilega með nýlegar uppsagnir í
huga sem óhjákvæmilega eru á
ábyrgð stjórnarinnar þó að þær séu
að tillögu leikhússtjóra og fram-
kvæmdastjóra (og stjórnin féllst á
athugasemdalaust). En vandamál
LR hefur aldrei verið það að leik-
hússtjórinn gæti ekki rekið lista-
menn og starfsmenn félagsins
vegna þess að fulltrúar þeirra sitja í
stjórn– vandamál félagsins er að
núverandi stjórnendur geta ekki
rekið leiklistarstarfsemi félagsins
sem þeir eru kjörnir og ráðnir til.
Það er vinsæl aðferð að kenna
starfsreglum og stjórnarfyrir-
komulagi um vanda ýmissa fyr-
irtækja og stofnana en í flestum til-
fellum – eins og hjá Leikfélagi
Reykjavíkur – er ekki við reglurnar
og formið að sakast, heldur þá ein-
staklinga sem veljast til trúnaðar-
og ábyrgðarstarfa en reynast síðan
vanhæfir þegar á reynir.
Vanhæfir
stjórnendur
hjá Leikfélagi
Reykjavíkur?
Eftir Sigurð Karlsson
Höfundur er fyrrv. formaður Leik-
félags Reykjavíkur og núverandi
varaformaður.
uð sé umgjörð þjálfunar og keppni
í samræmi við stefnuyfirlýsingu
ÍSÍ um barna- og unglingaíþróttir.
Þá er lögð áhersla á fjár-
málastjórnun, aukna þjálfara-
menntun og almennt félagsstarf.
Að lokum er lagt upp með að fé-
lögin greini markmið og stefnu
með foreldrastarfi, fræðslu- og
forvarnarstarfi, jafnréttismálum
innan félagsins og umhverfisstarfi.
Þá er sett upp ákveðið viðurkenn-
ingaferli.
Í erli dagsins í dag, þar sem frí-
tíminn er orðinn afar dýrmætur og
erfiðara reynist að fá sjálfboðaliða
til starfa í þessari stærstu fjölda-
hreyfingu landsins, er gríðarlega
mikilvægt að allir sambandsaðilar
ÍSÍ, 24 sérsambönd, 27 íþrótta-
bandalög og héraðssambönd, 440
íþrótta- og ungmennafélög og um
400 deildir þeirra, leggist á eitt við
að setja í gang innri vinnu til að
efla og skilgreina starfsemi sína
betur. Sú vinna og það starf mun
taka einhvern tíma en ég er þess
fullviss um að uppskeran verður
góð. Með vel skilgreindu starfi er
auðveldara fyrir þá aðila sem
koma nýir inn í starf félaga eða
deilda að ganga að upplýsingum
og ferli í stað þess að finna upp
hjólið sjálfir. Rétt er að leggja
áherslu á að þessa vinnu er ekki
hægt að vinna ofan frá heldur
verða forystumenn á öllum stigum
íþróttahreyfingarinnar að leggja
sitt af mörkum í endurskipulagn-
ingu sambandsaðila með bættu
gæðastarfi. ÍSÍ hefur ákveðið að
ráða sérstakan verkefnisstjóra
sem tekur til starfa í lok sumars
og verður verkefni hans að kynna
verkefnið og hvetja félög og deild-
ir til að setja í gang gæðavinnu.
Höfundur er
framkvæmdastjóri ÍSÍ.
SKOÐUN
Ríkharður Jósafatsson
Austurlensk læknisfræði
Nálastungur og nuddfræði
Fellsmúla 24
108 Reykjavík
553 0073
GSM: 863 0180
nalastungur@simnet.is
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
RAFSTÖÐ
m/HONDA MÓTOR
Ágætu Norðvestlendingar
þið sem kusuð Samfylkinguna einkum og sérílagi vinir,
kunniningjar, frændfólk og aðrir þeir sem lögðu á sig mikla
fyrirhöfn til þess að ég næði að halda sæti á Alþingi.
Ég þakka innilega stuðninginn og vinnuna fyrir mig
persónulega og pólitískt óska ykkur og landsmönnum
alls hins besta.
Kær kveðja
Gísli S. Einarsson, Akranesi.
Laugavegi 63 • sími 5512040
Túlipani
Vönduðu silkiblómin
fást í