Morgunblaðið - 28.05.2003, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MARGA setur hljóða þegar þeir
horfa upp á nýjasta sjónarspil
stjórnmálanna. Utanríkisráðherra
hefur oft sein-
ustu árin verið
sem einkaþjónn á
pólitísku heimili
forsætisráð-
herra. Nú er hon-
um sjálfum lofað
embætti for-
sætisráðherra en
nokkuð tóma-
hljóð er í þeirri
upphefð. Eftir það sem á undan er
gengið þá er væntanlegur titill for-
sætisráðherra hengdur á utanrík-
isráðherra líkt og fálkaorða sem
menn fá í ævilokin fyrir góða þjón-
ustu og vel unnin embættisstörf.
Innihald orðunnar er lítið og titill-
inn eða orðan oft hégómi og jafnvel
froða.
Bréfritari telur að þessu sé líkt
farið með þennan væntanlega for-
sætisráðherra. Engum dettur í hug
að þessum nýja titli eða fálkaorðu
fylgi aukin völd. Sjálfstæðisflokkur-
inn heldur sínu striki og það verður
óbreytt stefna áfram af hans hendi
eins og áður. Þótt einhver fram-
sóknarmaður kalli sig forsætisráð-
herra breytir það engu. Öll völd eru
hjá Sjálfstæðisflokknum áfram.
Bréfritari telur að fyrir þessu séu
einföld pólitísk rök. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur í dag rúmlega 30%
fast og öruggt kjörfylgi þegar kosið
er til Alþingis. Svo hefur flokkurinn
menn í öllum lykilstöðum bæði í
stjórnkerfinu og einkageiranum.
Þessu er öfugt farið með Fram-
sóknarflokkinn. Hann hefur afhent
öðrum eða lagt niður seinustu árin
margar valdastofnanir sem studdu
Framsóknarflokkinn áður. Þessu
hafa ráðherrar flokksins fórnað um
langt árabil til að geta sjálfir per-
sónulega haft valdastóla í ríkis-
stjórn. Foringjar Framsóknar-
flokks hafa því lítið eða ekkert fast
bakland lengur hjá kjósendum.
Bréfritari bendir máli sínu til
stuðnings á skoðanakannanir fyrir
seinustu kosningar. Þá var allt fast
fylgi Framsóknarflokksins í
Reykjavík horfið að mestu og vænt-
anlegur forsætisráðherra fallinn.
Þetta var sönn og raunsæ mynd af
ástandinu. Ekkert var eftir af föstu
fylgi sem heitið gat. Framsókn var
langt til horfin í Reykjavík.
Þá var brugðið á það ráð að
kaupa atkvæði handa Framsóknar-
flokknum með því að auglýsa eftir
þeim í sjónvarpi og blöðum. Þetta
dugði í bili en er einnota fylgi sem
keypt var með borguðum auglýs-
ingum. Þetta voru ekki trúir fram-
sóknarmenn heldur lausafylgi sem
hleypur þann daginn á þann flokk
sem auglýsir mest og skrumar
hæst.
Bréfritari spyr því sem lýðræð-
issinni og kjósandi hvar lýðræði í
landi okkar sé komið þegar hægt er
að kaupa sig inn á Alþingi með aug-
lýsingum þrátt fyrir nánast ekkert
fylgi og fall rétt fyrir kosningar
samkvæmt öllum skoðanakönnun-
um. Þeim bar öllum saman um fall
framsóknarformannsins.
Þegar inn á Alþingi er komið get-
ur þessi maður sem hefur nánast
ekki fylgi kjósenda í nýjum alþing-
iskosningum og alls ekki fast
flokksfylgi til að ná þingsæti keypt
sér væntanlegan titil forsætisráð-
herra með svipuðum verzlunar-
samningum og þegar menn selja
síld frá Hornafirði. Þetta er brot á
öllu siðgæði og lýðræðisreglum og
ber að stoppa í fæðingu.
Ef nokkur töggur er í minnihlut-
anum í þingflokki Framsóknar ættu
svona 3-5 að gera uppreisn sem
fyrst gegn þessu í nafni lýðræðis í
landinu og sameinast með stjórn-
arandstöðu í að samþykkja á Al-
þingi vantraust á ríkisstjórnina.
Hún þarf að falla. Er svikastjórn.
Betra er að stoppa þetta strax en
láta þetta enda með enn meiri skelf-
ingu.
LÚÐVÍK GIZURARSON,
Grenimel 20, 107 Reykjavík.
Er stjórnin feig?
Frá Lúðvík Gizurarsyni
hæstaréttarlögmanni
HAFNFIRÐINGAR, ungir sem
eldri!
Ætla ráðamenn bæjarins í raun
og veru að gera sig seka um annað
stórslys í bænum, með því að leyfa
byggingu 6 hæða blokkar við
Reykjavíkurveginn, við hliðina á
Nóatúni? Þetta er til umræðu hjá
bænum og hefur komið fram í blöð-
unum. Kristjánssynir sækja fast
enda peningar í spilinu. Engan bæj-
arbúa höfum við enn hitt að máli
sem ekki finnst kaupfélagsblokkin
svonefnda vera sjónmengun í um-
hverfinu. Vilja menn búa til annan
steinkumbalda sem stingur í stúf
við allar aðrar byggingar eftir
Reykjavíkurvegi endilöngum. Hús
upp á þrjár hæðir væri í samræmi
við umhverfið og mál til komið að
nýta lóðina, í stað skúra, gáma og
alls kyns drasls sem fokið hefur
þarna fram og til baka í 20 ár. Svo
er talað um að planta gamlingjun-
um í þetta hús. Aumingja þeir sem
eiga að búa við hliðina á bensínstöð
og þrem sjoppum þar sem ungling-
arnir „trylla um á túttunum“ svo
ískrar í dekkjum hálfu og heilu
næturnar.
Ætla menn að láta svona glap-
ræði yfir sig ganga möglunarlaust?
Hvar eru samráðin við bæjarbúa
um skipulagningu sem alltaf er lof-
að fyrir kosningar?
Umhverfisslys geta víðar átt sér
stað en á hálendinu.
Látið nú til ykkar taka í þessu
mikilvæga máli!
Fyrir hönd margra Hafnfirðinga
sem þykir vænt um bæinn sinn.
ÞÓRUNN S. ÓLAFSDÓTTIR,
Suðurvangi 3, Hafnarfirði.
Það yrði slys …
Frá Þórunni S. Ólafsdóttur