Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð sjálfstæð og listræn
og njótið ykkar best þegar
sköpunargleði ykkar fær að
njóta sín.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það reynir á þig í samstarfi
við vinnufélagana. Sýndu
þolinmæði og þá mun allt
leysast farsællega.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú rekur þig á að það er
misjafn sauður í mörgu fé.
Láttu það ekki koma þér úr
jafnvægi heldur auka þér
styrk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er mikil hætta á mis-
skilningi í dag. Reyndu að
koma hugmyndum þínum á
framfæri með sem skýr-
ustum hætti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Reyndu að missa ekki stjórn
á þér þótt það séu ekki allir
á þínu máli. Reyndu að
komast að samkomulagi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur verið þreytandi
að hlusta stöðugt á ráðlegg-
ingar annarra en reyndu að
sýna þolinmæði og minna
þig á að fólkið í kringum þig
vill þér vel.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekkert er dýrmætara en
heilsan og því skaltu varast
að ofbjóða þér á sál eða lík-
ama. Það er ákveðin list að
þræða hinn gullna meðalveg
á milli sérhlífni og of mik-
illar fórnfýsi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður að nýta tímann
vel og halda þér við efnið
svo að þú náir að standa við
gefin loforð. Láttu ekkert
trufla þig á meðan.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ættingi þinn réttir þér
hjálparhönd í minniháttar
vandamáli. Þiggðu aðstoð-
ina þótt þú vitir að þú sért
fær um að leysa málið upp á
eigin spýtur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Lánið virðist leika við þig
þessa dagana. Njóttu þess
þótt þú eigir von á því að
um stundafyrirbæri sé að
ræða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Snúðu ekki baki við þeim
sem þarfnast athygli þinnar
jafnvel þótt þér sé ekki mik-
ið um þá gefið. Þú munt fá
umbun fyrir góðverk þín.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Varastu að vera stöðugt
kvartandi út af öllum sköp-
uðum hlutum. Snúðu við
blaðinu áður en þú eyði-
leggur líf þitt með nei-
kvæðninni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það kemst enginn hjá því að
mæta örlögum sínum þegar
þau berja að dyrum. Mundu
að hver er sinnar gæfu
smiður.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SIGUR er margrætt hug-
tak. Norðmenn stóðu
vissulega uppi sem sigur-
vegarar opna flokksins á
Norðurlandamótinu í Fær-
eyjum, en það var aðeins
einn sigur af mörgum.
Heimamenn unnu ýmsa
sigra. Þeir frændur Jóann-
es og Hedin Mouritsen
urðu til dæmis í fjórða sæti
í fjölsveitaútreikningi
mótsins. Þá unnu Fær-
eyingar Ísland 17-13 í fyrri
umferð og Norðmenn í
fyrsta sinn í sögunni, 17-
13. Loks vann einn litrík-
asti spilari Færeyinga,
Bogi Simonsen, frækinn
sagnsigur í síðasta spili
mótsins gegn Norðmönn-
um. Þessu hér:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ Á986
♥ G
♦ ÁDG82
♣D97
Vestur Austur
♠ 53 ♠ G10
♥ K1098764 ♥ Á52
♦ 106 ♦ 953
♣ÁG ♣K10632
Suður
♠ KD742
♥ D3
♦ K74
♣854
Bogi var í vestur og
makker hans Rói A Rógvu
Joensen í austur, en í NS
voru Geir Helgemo og Per
Erik Austberg, sem urðu
efstir í fjölsveit mótsins:
Vestur Norður Austur Suður
Bogi Geir Rói Per Erik
-- -- Pass Pass
1 spaði ! 2 tíglar 2 spaðar ! 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Eftir að austur og suður
höfðu sagt pass í upphafi
sá Bogi sér leik á borði og
vakti á einum spaða á tví-
litinn! Hvergi smeykur.
Geir Helgemo kom inn á
tígulsögn og Rói tók þátt í
leiknum með því að styðja
spaðann á tvílit! Þar með
var spaðinn endanlega úr
sögunni sem tromplitur
fyrir NS, en Norðmenn-
irnir áttu góða fyrirstöðu í
litnum og reyndu þrjú
grönd á þeirri forsendu.
En útspilið var ekki spaði,
heldur hjarta, og vörnin
tók fyrstu níu slagina.
Bogi hélt þessa sýningu í
opna salnum og áhorfendur
skemmtu sér hið besta, en
ágóðinn var minni en efni
stóðu til, því á hinu borðinu
fóru NS einn niður í fjórum
spöðum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5
e6 7. Df3 h6 8. Bh4 Be7 9. O-
O-O Dc7 10. Be2 Rbd7 11.
Bg3 O-O 12. Kb1 Hb8 13. a4
Rc5 14. De3 e5 15. Rf5 Bxf5
16. exf5 Hfc8 17. Hc1 Dd7
18. f4 e4 19. Bh4 Rxa4 20.
Rxa4 Dxa4 21. Hhd1 Hc5
22. Hd4 Dc6 23. g4
Staðan kom upp á ung-
verska meistaramótinu sem
lauk fyrir skömmu. Ferenc
Berkes (2578) hafði svart
gegn Sang Cao (2531). 23...
Rxg4! Tryggir að hvítur fær
ekkert mótspil á meðan
svartur fær ráð-
rúm til að byggja
upp öfluga sókn.
24. Dxe4 Bxh4 25.
Bxg4 Bf6 26. Hb4
d5 27. Dg2 a5 28.
Hb3 a4 29. Ha3 b5
30. Bf3 b4 31. Hd3
a3 32. Bxd5 Dc7
33. He1 axb2 34.
Hde3 Dd7 35. He5
Bxe5 36. Hxe5
Da4 37. Ba2 b3 38.
cxb3 Hc1+ 39.
Kxb2 Dd4+ 40.
Kxc1 Hc8+ 41.
Dc2 Dxf4+ 42.
Kb1 Df1+ og hvít-
ur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Zoltan
Almasi (2676) 7 vinninga af
9 mögulegum. 2.-3. Robert
Ruck (2569) og Lajos Port-
isch (2583) 5½ v. 4. Gyula
Sax 5 v. 5.-6. Ferenc Berkes
(2578) og Peter Acs (2600)
4½ v. 7.-9. Zoltan Gyimesi
(2567), Sang Cao (2531) og
Zoltan Varga (2533) 3½ v.
10. Adam Horvath (2503)
2½ v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 28.
maí, er fimmtugur Páll
Pálsson, Mánastíg 6, Hafn-
arfirði. Hann tekur á móti
vinum og vandamönnum í
kvöld kl. 20 í frímúrarahús-
inu við Ljósutröð í Hafnar-
firði.
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.067
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Ágústa Björns-
dóttir og Vilborg Magnúsdóttir.
HLUTAVELTA
SVANASÖNGUR
Margt er manna bölið,
misjafnt drukkið ölið
lífs um tæpa tíð;
í dag byljir bíða,
bjart er loftið fríða,
á morgun hregg og hríð,
villtur er sá,
sem væntir á
stöðugt lengi
gleðinnar gengi,
gjörvöll hverfur blíða.
Eg var ungur maður,
alheill, fær og glaður,
lék við heimsins hátt,
lukkan lét í hæfi
langt fram eftir ævi,
féll til rauna fátt,
minn var þá
þankinn sá
þann veg enda
láta og lenda
lundblíð mundi gæfa.
– – –
Stefán Ólafsson
LJÓÐABROT
MEÐ MORGUNKAFFINU
Þú átt að vera einn í
klefa, heyrirðu það!
Og hvenær tókstu fyrst
eftir því að þú værir
ósýnilegur, Jónas?
FRÉTTIR
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband Ís-
lands hefur látið gera sérstaka
fræðslu- og hvatningarhandbók
sem send verður inn á öll heimili í
landinu, í dag, miðvikudaginn 28.
maí. Verkefnið er hluti af átaks-
verkefni ÍSÍ, Ísland á iði, sem er
fræðslu- og hvatningarverkefni
Íþrótta- og ólympíusambands Ís-
lands fyrir landsmenn á öllum aldri
til aukinnar hreyfingar og heilsu-
eflingar. Er það 32 síðna handbók
þar sem kynnt eru ýmis form hreyf-
ingar, svo sem ganga, hjólreiðar,
hlaup, sund, teygjuæfingar og hlé-
æfingar. Prentsmiðjan Oddi prent-
ar bæklinginn og Íslandspóstur
dreifir honum til allra heimila í
landinu. Með verkefninu Ísland á
iði vonast ÍSÍ til að ná til enn fleiri
íbúa landsins um mikilvægi hreyf-
ingar, næringar og hollustu.
Morgunblaðið/Sverrir
Þorgeir Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda, Ellert B. Schram,
forseti ÍSÍ, og Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslandspósts.
Hvatningarhandbók
til allra landsmanna
Slökun hjá stuðningshópi um
eggjastokkakrabbamein. Stuðn-
ingshópur kvenna sem fengið hafa
krabbamein í eggjastokka heldur
rabbfund í húsi Krabbameinsfélags-
ins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, í
dag, miðvikudaginn 28. maí, kl. 17.
Margrét Hákonardóttir, geðhjúkr-
unarfræðingur við þróunarskrif-
stofu hjúkrunarforstjóra LSH, verð-
ur gestur fundarins og fjallar um
slökun og mun jafnframt bjóða upp á
slökun. Margrét hefur sinnt slökun
og dáleiðslu sl. sex ár fyrir ein-
staklinga og hópa, sjúklinga sem og
starfsfólk sjúkrahússins.
Hjónanámskeið á Hótel Skógum.
Dagana 28.–30. maí verður haldið
hjónanámskeið á vegum MS-félags
Íslands á Hótel Skógum fyrir fé-
lagsmenn og maka þeirra. Mark-
miðið með námskeiðinu er að styrkja
ást og unað í hjónabandinu og bygg-
ist m.a. á fræðslu, afslöppun og
hvíld. Leiðbeinendur eru Margrét
Sigurðardóttir, félagsráðgjafi hjá
MS-félaginu, og Sigríður Anna Ein-
arsdóttir, félagsráðgjafi hjá Aðgát,
báðar með sérmenntun í hjóna- og
fjölskyldumeðferð, segir í frétta-
tilkynningu.
Félagsfundur Menntar verður
haldinn í dag, miðvikudaginn 28. maí
kl. 13–16, í Háskóla Íslands, stofu
201 í Odda. Erindi halda: Alda Sig-
urðardóttir stjórnarformaður
Menntar, Áslaug Björt Guðmundar-
dóttir framkvæmdastjóri Menntar,
Þóranna Jónsdóttir forstöðumaður
BSc náms í Háskólanum í Reykja-
vík, Jón Sigurðsson stjórnarformað-
ur FA, Björg Birgisdóttir forstöðu-
maður námsráðgjafar og alþjóða-
tengsla við Háskólann í Reykjavík,
Helgi Baldursson aðjúnkt við Við-
skiptaháskólann á Bifröst og Teitur
Lárusson starfsmannastjóri
Kaupáss.
Í DAG
Sjóarahátíð í Bolungarvík. Sjóara-
hátíð í Bolungarvík 2003 verður
haldin í fyrsta sinn dagana 29. maí –
1. júní. Það er nýstofnað fyrirtæki
þeirra Soffíu Vagnsdóttur, Önnu
Sigríðar Jörundsdóttur og Önnu
Guðrúnar Edvardsdóttur YSJA,
sem stendur að hátíðinni í samvinnu
við Menningarráð Bolungarvíkur,
Finnabæ, Náttúrustofu Vestfjarða,
sjómenn og fleiri aðila.
Fjöldi dagskrárliða verður á hátíð-
inni m.a. ljósmyndasýning sjó-
manna, veiðarfærasýning, söngvara-
keppni 9–12 ára barna og vígður
verður minnisvarði um Stanley,
fyrsta íslenska vélbátinn. Hátíðin
„Það er rok, rok, ég ræ ekki“ verður
á laugardagskvöldið þar sem boðið
verður uppá skemmtiatriði og hátíð-
arkvöldverð í umjón SKG veitinga
og hljómsveitin Sixties leikur. Á
sunnudag verður sjómannadagurinn
haldinn hátíðlegur og verða tón-
leikar með Ríó Tríó ásamt þeim
Gunnari Þórðarsyni og Birni Thor-
oddsen í Víkurbæ að kvöldi sjó-
mannadagsins.
Upplýsingar um Sjóarahátíð 2003 er
að finna á heimasíðu hátíðarinnar
www.bolungarvik.is/tonlistarskoli/
sjoarinn.html
Aðalfundur og bingó. Aðalfundur
Önfirðingafélagsins í Reykjavík
verður haldinn á morgun, fimmtu-
daginn 29. maí kl 14, í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14, Reykjavík. Að
loknum aðalfundi kl. 16 verður spil-
að bingó í Breiðfirðingabúð. Allir
velkomnir.
Ferðafélag Íslands með ferða-
kynningu á morgun, fimmtudaginn
29. maí kl. 12–16, í FÍ-salnum í
Mörkinni 6. Kynntar verða ferðir
sem félagið býður upp á í sumar sem
eru af öllum gerðum, stuttar og
langar, erfiðar og léttar. Sýndar
verða myndir úr ferðum, ferðalýs-
ingar liggja fyrir og ferðafélagar
verða á staðnum og svara spurning-
um og veita upplýsingar. Árbækur
og fræðslurit FÍ fást á tilboðsverði.
Á MORGUN
10 ára afmælishátíð Rimaskóla
verður haldin hátíðleg laugardaginn
31. maí kl. 12–15. Skólinn var stofn-
aður 21. apríl 1993, skólastjóri
Rimaskóla frá upphafi er Helgi
Árnason.
Á afmælishátíðinni verður boðið upp
á skemmtidagskrá. Þórólfur Árna-
son borgarstjóri verður heiðurs-
gestur og Steinn Ármann Magnús-
son leikari verður kynnir.
Rimaskóli hefur í samstarfi við Bún-
aðarbankann í Grafarvogi staðið fyr-
ir tveimur samkeppnum meðal nem-
enda á afmælisárinu. Um er að ræða
samkeppni um hönnun á nýju leik-
tæki á skólalóð og tillögu að skóla-
söng fyrir Rimaskóla. Úrslit verða
tilkynnt á hátíðinni og verðlaun af-
hent sigurvegurum. Skólasöngurinn
nýi verður formlega sunginn fyrsta
sinni en Torfi Ólafsson lagahöfundur
og kennari við Rimaskóla samdi lag
við verðlaunatextann.
Taflfélagið Hrókurinn efnir til fjöl-
teflis á hátíðinni og mun Stefán
Kristjánsson alþjóðlegur meistari,
tefla við afmælisgesti. Foreldrafélag
Rimaskóla stendur fyrir Rimaskóla-
hlaupi. Í tilefni tímamótanna er gefið
út afmælisblað skólans tileinkað
sögu hans í máli og myndum. Einnig
verður sýning á vinnu nemenda og
sögu skólans.
Á NÆSTUNNI