Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 44
MESSUR Á UPPSTIGNINGARDAG
44 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Dagur aldraðra. Guðsþjónusta
kl. 14. Kór Áskirkju syngur. Organisti Kári
Þormar. Samvera í safnaðarheimili Ás-
kirkju að guðsþjónustu lokinni. Kirkjubíll-
inn ekur. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á
degi aldraðra, uppstigningardegi. Lára
Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavík-
urborgar, prédikar. Glæðurnar, kór Kven-
félags Bústaðakirkju syngur. Stjórnandi
Sigurbjörg Hólmgrímsdóttir. Organisti
Guðmundur Sigurðsson. Messukaffi og
sýning á munum úr starfi vetrarins. Aldr-
aðir eru sérstaklega boðnir velkomnir til
messunnar. Yngra fólk er hvatt til þess að
fylgja þeim eldri til kirkjunnar. Prestur sr.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Dagur aldraðra. Guðsþjón-
usta kl. 14. Jóhannes Bergsveinsson, fv.
yfirlæknir, prédikar. Sesselja Kristjáns-
dóttir syngur einsöng. Dómkórinn syngur
undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar org-
anista og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
þjónar fyrir altari. Eftir guðsþjónustu verð-
ur kaffiboð fyrir eldri borgara Dómkirkj-
unnar í Iðnó.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Málsverður á 20 kr.
að lokinni guðsþjónustu. Ólafur Jóhanns-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Setningarathöfn
Kirkjulistahátíðar. Hátíðarmessa kl. 11
með listflutningi á uppstigningardag.
Schola cantorum frumflytur guðspjalls-
mótettu fyrir uppstigningardag eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar. Ólöf Ingólfsdóttir frumsýnir
frumsamið dansverk. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Sigurði Pálssyni, sr. Kristjáni Val
Ingólfssyni og sr. Sigurði Árna Þórðarsyni.
Myndlistarsýning Guðjóns Ketilssonar
opnuð.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Í mess-
unni verður tekinn í notkun kertastjaki fyrir
bænaljós og það tendrað í fyrsta sinn. Eft-
ir messu verður borin fram súpa og með-
læti í safnaðarheimilinu. Undir borðum
mun Barnakór Háteigskirkju syngja undir
stjórn Julians Isaacs, barnakórstjóra.
Hrefna Guðmundsdóttir syngur gaman-
vísur við undirleik Sigríðar Norðkvist. Upp-
lestur. Nokkrir félagar úr Félagi harmon-
ikuleikara leika nokkur lög. Samsætinu
lýkur um kl. 13.30. Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI háskólasjúkrahús: Grens-
ás: Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Sigfinnur Þor-
leifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 14 – athugið
tímann. Eldri borgurum sérstaklega boðið
til guðsþjónustunnar. Lena Rós Matthías-
dóttir guðfræðingur flytur hugvekju. Eiríkur
Hreinn Helgason syngur einsöng. Organ-
isti Helgi Bragason. Kvenfélagið býður til
kaffidrykkju á eftir. Boðið verður upp á að
þeir sem ekki komast annars til guðsþjón-
ustunnar verði sóttir í leigubíl og eru við-
komandi beðnir um að láta vita daginn áð-
ur kl. 10–12 í síma 520 1300.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14 á degi aldraðra. Kór Laugarneskirkju
syngur undir stjórn Gunnars Gunnars-
sonar. Fulltrúar þjónustuhóps kirkjunnar
flytja texta, Sigurbjörn Þorkelsson er með-
hjálpari og sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir
altari. Að messu lokinni er boðið til kaffi-
samsætis í safnaðarheimilinu.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór
eldri borgara syngur undir stjórn Ingu J.
Backman. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar fyrir
altari og organisti er Viera Manasek. Arna
Grétarsdóttir guðfræðingur prédikar. Eftir
stundina er boðið upp á léttar veitingar í
safnaðarheimili kirkjunnar. Þar mun Arna
Grétarsdóttir stjórna almennum söng. Ver-
ið öll hjartanlega velkomin.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Leikmanna-
messa klukkan 14. Ása Björk Ólafsdóttir
guðfræðinemi flytur hugleiðingu. Messu-
kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu. Allir
velkomnir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Tómas Guðmundsson fyrrverandi pró-
fastur prédikar. Prestar safnaðarins þjóna
fyrir altari. Sr. Óskar Ingi Ingason sem
þjónað hefur í Árbæjarsöfnuði í afleys-
ingum í vetur kveður. Hjörleifur Valsson
leikur á fiðlu og Hjalti Eyþór söngnemi
syngur einsöng. Organisti er Krisztina
Kalló Szklenár og hún stjórnar einnig
kirkjukórnum sem leiðir sönginn. Kaffi-
veitingar í boði Soroptimistakvenna að
guðsþjónustu lokinni. Sýning á hannyrð-
um sem unnar hafa verið í opna húsinu í
vetur. Prestarnir.
DIGRANESKIRKJA: Uppstigningadagur,
Dagur aldraðra. Guðsþjónusta kl. 14 með
þátttöku aldraðra. Söngvinir syngja og
leiða safnaðarsöng.Organisti Kjartan Sig-
urjónsson. Prestar Digranes-, Hjalla- og
Lindasókna þjóna. (Sjá nánar: www.digra-
neskirkja.is.)
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Fimmtudaginn
29. maí, uppstigningardag – kirkjudag
aldraðra, er ekki messað í Fella- og Hóla-
kirkju heldur verður farið í kirkjuferð til
Keflavíkurkirkju. Kaffiveitingar í boði sókn-
arnefndar Keflavíkurkirkju eftir guðsþjón-
ustu. Skoðunarferð um Keflavík og Njarð-
víkur eftir kaffið. Lagt af stað kl. 12.45 og
komið til baka um kl. 18.
GRAFARVOGSKIRKJA: Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Séra Bragi Friðriksson fyrrver-
andi prófastur prédikar. Séra Vigfús Þór
Árnason þjónar fyrir altari ásamt séra
Bjarna Þór Bjarnasyni. Lögreglukórinn
syngur ásamt Kór Grafarvogskirkju.
Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson. Opnuð
verður handavinnusýning eldri borgara.
Umsjón: Unnur Malmquist og Edda Jóns-
dóttir. Kaffi og veitingar á vegum Safn-
aðarfélagsins og sóknarnefndarinnar.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14
á uppstigningardag, kirkjudegi aldraðra.
Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safn-
aðarsöng undir stjórn Julians Hewlett org-
anista. Kvennakór Kópavogs kemur í
heimsókn og syngur nokkur lög að lokinni
predikun en kórnum stjórnar Natalia Chow
Hewlett. Að lokinni guðsþjónustu er boðið
upp á kaffi og samveru í safnaðarheimil-
inu Borgum. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Uppstigningardagur. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson
þjónar fyrir altari. Sr. Bolli Pétur Bollason
prédikar. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Þorgeir Andrésson syngur einsöng.
Eldri borgarar í Seljahverfi sérstaklega
boðnir velkomnir. Kaffi í boði kvenfélags-
ins. Samsöngur undir stjórn Þorvaldar
Halldórssonar.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
10. Mömmumorgunn. Samverustund með
foreldrum og börnum þeirra. Kaffisopi og
létt spjall. Kl. 14. Guðsþjónusta á degi
aldraðra. Fólk úr Félagi eldri borgara í
Vestmannaeyjum les ritningarlestra og
lokabæn. Sunnudagskaffi á eftir í Safn-
aðarheimilinu í boði Kvenfélags Landa-
kirkju. Vígt verður nýtt klæði á prédikunar-
stólinn í Landakirkju og sagt frá tákn-
myndum þess. Allir hjartanlega velkomnir.
Sr. Kristján Björnsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14, ath. breyttan messutíma. Eldri
borgurum boðið sérstaklega til kirkju.
Organisti: Antonía Hevesi. Félagar úr kór
Hafnarfjarðarkirkju leiða söng. Prestur: sr.
Þórhildur Ólafs. Eftir guðsþjónustu fer
fram veisla í Hásölum. Alda Ingibergs-
dóttir sópransöngkona syngur einsöng við
undirleik Antoníu Hevesi. Hjónin Ásthildur
Ólafsdóttir og Hörður Zóphaníasson lesa
upp. Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta sérstaklega tileinkuð eldri borg-
urum á uppstigningardag 29. maí, kl. 14.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson. Karla-
kórinn Kátir karlar og Barna- og unglinga-
kór Víðistaðakirkju syngja undir stjórn Úl-
riks Ólasonar og Áslaugar Bergsteins-
dóttur. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu
eftir messu. Rúta fer frá Hjallabraut 33 kl.
13.40 og frá Hrafnistu kl. 13.50. Allir vel-
komnir. Sóknarprestur.
STRANDARKIRKJA: Uppstigningardagur.
Messa sérstaklega tileinkuð eldri borg-
urum kl. 14. Ástríður Helga Sigurðardóttir
guðfræðingur prédikar. Sóknarprestur,
Baldur Kristjánsson, þjónar fyrir altari.
Söngfélag Þorlákshafnar syngur, organisti
Robert Darling. Sætaferðir frá Egilsbraut
9 Þorlákshöfn kl. 13. Staldrað við í T-bæ
eftir messu. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta uppstigningardag, fimmtudaginn 29.
apríl, kl. 11. Kórinn Eldey syngur undir
stjórn Alexöndra Pítak. Organisti Natalía
Chow Hewlett. Kaffi og kökur á eftir og eru
aldraðir sérstaklega boðnir velkomir því
dagurinn er sérstakur kirkjudagur þeirra.
Baldur Rafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Messuheimsókn eldri borgara í Fella-
og Hólasókn í Reykjavík. Gerðubergskór-
inn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar,
ásamt Eldey, kór eldri borgara á Suður-
nesjum. Sr. Svavar Stefánsson prédikar.
Sr. Sigfús Baldvin Ingvason þjónar fyrir alt-
ari ásamt Lilju Hallgrímsdóttur djákna.
Organisti: Hákon Leifsson. Meðhjálpari:
Björgvin Skarphéðinsson. Sóknarnefnd
býður til kaffidrykkju í Kirkjulundi eftir
messu.
AKRANESKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 14.
Hljómur, kór eldri borgara, syngur. Kaffi-
veitingar á eftir. Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta verður fyrir allt prestakallið í Möðru-
vallakirkju á uppstigningardag, 29. maí.
Guðsþjónustan hefst kl. 14 og er fyrir alla
aldurshópa, en aldraðir eru boðnir sér-
staklega velkomnir. Sr. Ólafur Skúlason,
fv. biskup Íslands, predikar og sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Kirkjukaffi með
söng á prestssetrinu á eftir. Mætum öll og
njótum samveru í húsi Guðs. Sóknar-
prestur.
AKUREYRARKIRKJA: Messa kl. 14. Sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Ræðumaður:
Halldóra Ingimarsdóttir. Kór aldraðra
syngur. Kaffi í Safnaðarheimili eftir
messu.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 14. Sr. Sig-
urður Guðmundsson vígslubiskup prédik-
ar. Karlakór Akureyrar Geysir syngur og
leiðir söng. Kaffiveitingar í safnaðarsal að
messu lokinni.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenilundur: Guðs-
þjónusta uppstigningardag, 29. maí, kl.
16. Grenivík: Guðsþjónusta við höfnina
laugardaginn 31. maí kl. 11.30 og minn-
ingarstund við minnisvarða látinna sjó-
manna að messu lokinni. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Fermingarmessa
uppstigningardag kl. 11.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa: Ferming á
uppstigningardag, 29. maí, kl. 14. Prest-
ur: sr. Kristinn Ág. Friðfinnsson. Organisti:
Ingi Heiðmar Jónsson.
Uppstigningardagur.
Dagur aldraðra.
Morgunblaðið/Sverrir
Grundarfjarðarkirkja í Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi.
Ferming í Laugardælakirkju í
Flóa á uppstigningardag kl.
14. Prestur sr. Kristinn Ág.
Friðfinnsson. Fermdur verð-
ur:
Hafsteinn B. Arason,
Lækjargarði, Árborg.
Ferming í Torfastaðakirkju á
uppstigningardag kl. 14.
Prestur sr. Egill Hallgríms-
son. Fermdur verður:
Sævar Örn Grímsson,
Syðri-Reykjum,
Biskupstungum.
Fermingar
DAGUR Arngrímsson sigraði á
tólfta meistaramóti Skákskóla Ís-
lands eftir að hafa verið í forystu
frá fjórðu umferð, en tefldar voru
sjö umferðir. Þetta er eitt
skemmtilegasta mót ársins og þar
mætast margir af okkar efnileg-
ustu skákmönnum svo hart er bar-
ist í hverri skák. Helsti keppinaut-
ur Dags á mótinu var Guðmundur
Kjartansson, sem missti af lestinni
eftir tap í síðustu umferð gegn
bróður sínum Ólafi Kjartanssyni.
Lokastaða efstu manna varð þessi:
1. Dagur Arngrímsson 6 v.
2.–5. Guðmundur Kjartansson,
Guðni Stefán Pétursson,
Ólafur Kjartansson og
Hilmar Þorsteinsson 5 v.
6.–7. Sigurður Páll Steindórsson
og Harpa Ingólfsdóttir
4½ vinning hvor.
8.–10. Birkir Örn Hreinsson,
Sverrir Þorgeirsson og Atli
Freyr Kristjánsson 4 v.
Fjölmörg verðlaun voru veitt
fyrir góðan árangur í hinum ýmsu
aldursflokkum, auk sérstakra
stúlkna- og kvennaverðlauna.
Í flokki 10 ára og yngri stóðu
eftirtalin sig best: 1. Hallgerður H.
Þorsteinsdóttir, 2. Svanberg Páls-
son, 3. Hjörvar Steinn Grétarsson
Í flokki 12 ára og yngri náði
Sverrir Þorgeirsson bestum ár-
angri.
Í flokki 14 ára og yngri: 1.
Sverrir Þorgeirsson, 2. Atli Freyr
Kistjánsson, 3. Arnar Sigurðsson.
Stúlknaverðlaun fengu: 1. Hall-
gerður H. Þorsteinsdóttir 2. Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir 3.
Röskva Vigfúsdóttir og kvenna-
verðlaunin komu í hlut Hörpu Ing-
ólfsdóttur, sem auk þess að vera
ein af okkar bestu skákkonum hef-
ur lagt drjúgt af mörkum við skák-
kennslu í skólum.
Sokolov efstur í Sarajevo
fyrir lokaumferðina
Ivan Sokolov er með hálfs vinn-
ings forystu á hinu gríðarlega
sterka skákmóti í Sarajevo, sem
nú er haldið í 33. sinn. Fyrir loka-
umferðina er staðan þessi:
1. Ivan Sokolov 6 v.
2. Rustam Kasimdzhanov 5½ v.
3.–4. Alexei Shirov,
Sergei Movsesian 5 v.
5.–6. Bojan Kurajica,
Teimour Radjabov 4½ v.
7. Evgeny Bareev 4 v.
8. Zdenko Kozul 2½ v.
9. Branko Damljanovic 2 v.
10. Emir Dizdarevic 1 v.
Svo skemmtilega vill til, að
tveir efstu menn, Sokolov og Kas-
imdzhanov, mætast í síðustu um-
ferðinni.
Shredder slær Fritz við
Skákforritið Fritz hefur um
langt skeið nánast einokað efsta
sætið á stigalista skákforrita. Á
síðustu tveimur stigalistum, en sá
nýjasti kom út 26. maí, hefur
Shredder 7 hins vegar náð foryst-
unni af Fritz 8. Shredder er nú
með 2.768 stig, en Fritz með
2.760, en yfirleitt munar örfáum
stigum á sterkustu forritunum.
Þessi stig eru hins vegar ekki
sambærileg við FIDE-stig skák-
manna.
Stigamót Hellis –
mótið fer fram
Taflfélagið Hellir ákvað fyrir
skömmu að halda svokallað stiga-
mót félagsins í annað sinn dagana
29. maí–1. júní. Mótshaldið var þó
háð því skilyrði að þátttaka yrði
nægjanleg. Nú hefur verið tekin
ákvörðun um að mótið fari fram.
Mótið er opið öllum skákmönnum
með a.m.k. 1.800 alþjóðleg eða ís-
lensk skákstig. Þátttökugjöld eru
kr. 3.000 fyrir alla og renna þau
alfarið til þeirra sem lenda í 1.–3.
sæti. Auk þess verða veitt vegleg
fegurðarverðlaun. Skráning fer
fram á www.hellir.is eða með
tölvupósti (hellir@hellir.is). Þar
er jafnfram hægt að fylgjast með
skráningu. Tefldar verða tvær
umferðir alla keppnisdagana
nema á föstudag.
Sumarskákmót fyrir
börn og unglinga
Taflfélag Reykjavíkur heldur
skákmót fyrir 15 ára og yngri
næstkomandi laugardag, 31. maí,
en mótið er öllum opið og þátttaka
er ókeypis. Teflt verður í félags-
heimili Taflfélagsins að Faxafeni
12.
Taflið hefst kl.14 og því lýkur
fyrir kl. 18. Boðið verður upp á
ókeypis pitsur og gos meðan á
mótinu stendur, en auk þess
verða vegleg verðlaun fyrir sig-
urvegarana.
Í almennum flokki (f. 1987 og
síðar) verða veitt þrenn verðlaun
(verðlaunapeningar og skákbæk-
ur, töfl og klukkur). Í barnaflokki
(f. 1993 og síðar) verða einnig
veitt þrenn sambærileg verðlaun.
Í stúlknaflokki verða síðan veitt
þrenn verðlaun, verðlaunapening-
ar og skákbækur, töfl og klukkur.
Verðlaunahafar á meistaramóti Skákskólans. Sverrir Þorgeirsson,
Atli Freyr Kristjánsson, Arnar Sigurðsson, Jóhanna Björg Jóhanns-
dóttir, Guðmundur Kjartansson, Röskva Vigfúsdóttir, Hilmar Þor-
steinsson, Svanberg Pálsson, Dagur Arngrímsson, Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir og Ólafur Kjartansson. Á myndina vantar Hörpu Ing-
ólfsdóttur og Hjörvar Stein Grétarsson.
Dagur Arn-
grímsson Skák-
skólameistari
SKÁK
BRETLAND
MEISTARAMÓT SKÁKSKÓLA ÍSLANDS
23.–25. maí 2003
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson