Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 47
HANDKNATTLEIKSSAMBAND
Íslands, HSÍ og Patrekur Jóhann-
esson sendu frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær þar sem fram kemur að
Patrekur muni ekki taka þátt í
næstu verkefnum landsliðsins.
Fréttatilkynningin er svohljóðandi:
„Forráðamenn Handknattleiks-
sambands Íslands og Patrekur
Jóhannesson hafa komist að sam-
eiginlegri niðurstöðu um að Pat-
rekur Jóhannesson taki ekki þátt í
næstu verkefnum landsliðsins.“ En
það er Einar Þorvarðarson fram-
kvæmdastjóri HSÍ sem skrifar und-
ir tilkynninguna.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur þýska hand-
knattleikssambandið úrskurðað
Patrek í sex mánaða keppnisbann.
Patrekur var útilokaður frá leik
Essen gegn Flensburg-Handewitt
sl. laugardag eftir aðeins tíu mín-
útna leik þar sem hann hrækti í átt
að dómara leiksins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur þýska handknatt-
leikssambandið ekki sent inn
skýrslu til Handknattleikssam-
bands Evrópu varðandi atvikið og
er Patrekur því ekki í formlegu
leikbanni með íslenska landsliðinu
að svo stöddu. Hann verður hins-
vegar ekki með í þeim sex leikjum
sem framundan eru hjá íslenska
landsliðinu á næstu tveimur vikum.
Íslendingar mæta Dönum í
tveimur leikjum um næstu helgi og
fara leikirnir fram hér á landi, á
föstudag og laugardag.
Patrekur ekki með lands-
liðinu í næstu verkefnum
HANDKNATTLEIKSKONAN Þór-
dís Brynjólfsdóttir er gengin til liðs
við FH á ný eftir að hafa verið tvö
undanfarin tímabil í röðum Gróttu/
KR. Þórdís, sem er 23 ára miðju-
maður, lék síðast með FH tímabilið
1999–2000 og var síðan eitt ár með
norska félaginu Sola. Hún missti
nær alveg af fyrra tímabili sínu hjá
Gróttu/KR þar sem hún sleit kross-
band en var síðan atkvæðamikil
með liðinu í vetur.
Þórdís aftur til FH
YFIRVÖLD í Manchester búast við
að um 50.000 Ítalir komi til borg-
arinnar vegna úrslitaleiksins í
Meistardeild Evrópu í knattspyrnu,
sem fer fram í kvöld. Fjölmargir
aðdáendur Juventus og AC Milan
koma til Manchester til að upplifa
stemninguna sem fylgir umstang-
inu í kringum leikinn, en uppselt
var á leikinn fyrir löngu.
Juventus er sigursælasta lið Ítal-
íu – vann sinn 27 meistaratitil á
dögunum. AC Milan hefur fagnað
oftar Evrópumeistaratitlinum,
fimm sinnu, en Juventus tvisvar.
Borgaryfirvöld í Manchester
gera margt til að halda aðdáendum
liðanna ánægðum og hafa sett upp
öfluga dagskrá til að skemmta gest-
unum í borginni.
Í kvöld munu þeir aðdáendur lið-
anna í Manchester, sem hafa ekki
miða á Old Trafford, geta horft á
leikinn á risaskjá í miðborginni, en
honum hefur verið komið upp svo
fylgismenn liðanna geti fylgst með
einum stærsta viðburði í sögu
ítalskrar knattspyrnu.
Sjá umsögn á bls. 45
Ítalir setja
mikinn
svip á Man-
chester AUÐUN Helgason var í byrjunar-
liði Landskrona í sænsku úrvals-
deildinni í gær þar sem liðið tapaði
3:1 gegn GIF Sundsvall á útivelli.
Auðun lék í 39 mínútur en fór af velli
vegna meiðsla.
VARNARMAÐURINN sterki,
Páll Þorvaldur Hjarðar hjá knatt-
spyrnuliði ÍBV er meiddur á hné og
er óvíst að hann geti leiki með liðinu í
sumar í Landsbankadeildinni. Við
rannsókn kom í ljós að krossband í
hnénu er illa farið og tognað. ÍBV
hefur tapað báðum leikjum sínum á
Íslandsmótinu til þessa en leikur
gegn Fylki í dag á heimavelli. Páll
hefur ekki leiki með liðinu á leiktíð-
inni til þessa.
JÓHANNES B. Jóhannesson,
Brynjar Valdimarsson, Lúðvík
Nordgulen, Gylfi Ingason og Pálmi
Einarsson taka þátt í Evrópumeist-
aramóti í snóker sem hefst í Bad
Wildungen í Þýskalandi á morgun.
Jóhannes hefur þrívegis komist í
átta manna úrslit á þessu móti, 1998,
1999 og 2000.
JÓHANNES og Brynjar keppa á
öðru móti í dag þar sem fjórir efstu
vinna sér þátttökurétt á áskorenda-
mótum, Challenge Tour, í Englandi.
FÓLK
KR-ingar hófu leikinn af miklumkrafti og markið lá í loftinu. Á
23. mínútu skoraði Ásthildur Helga-
dóttir með góðum
skalla eftir horn-
spyrnu Ernu Er-
lendsdóttur. Eflaust
eiga Vesturbæing-
arnir eftir að skora mörg mörk úr
föstum leikatriðum það sem eftir lifir í
sumar því yfirburðir Ásthildar í loft-
inu eru algjörir. Á 29. mínútu tók
Þóra B. Helgadóttir, markvörður KR,
langt útspark. Í stað þess að koma
boltanum frá gerðu Blikar sig seka
um byrjendamistök, þegar boltinn
skoppaði fyrir framan varnarlínuna. Í
stað þess að skalla boltann frá marki
myndaðist barningur við vítateig
Breiðabliks sem lauk með því að Ást-
hildur slapp innfyrir vörnina og lagði
boltann laglega framhjá Dúfu í marki
Breiðabliks. Staðan var 2:0 í hálfleik.
Í síðari hálfleik gerðu KR-ingar út
um leikinn á fyrsta stundarfjórðungi
hálfleiksins. Fyrst fullkomnaði Ást-
hildur þrennu sína eftir lipran sam-
leik við Hrefnu Jóhannesdóttur. Síð-
an skoraði Sólveig Þórarinsdóttir, 4:0,
og aftur var það Hrefna Jóhannes-
dóttir sem átti lokasendinguna. Það
sem eftir lifði leiks áttu bæði lið sín
færi en leikur Breiðabliks breyttist
mjög til batnaðar eftir að Bjarnveig
Birgisdóttir kom inná þegar rúmar 20
mínútur voru eftir. Þá fór Bjarnveig í
framlínuna og Margrét Ólafsdóttir
fór á miðjuna. Þessa breytingu hefði
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari
Breiðabliks, átt að gera miklu fyrr og
í raun hefði Margrét átt að byrja á
miðjunni þar sem hún hefur ætíð leik-
ið.
Hjá Blikum var fátt um fína drætti.
Það var helst að Gréta Mjöll Sam-
úelsdóttir hafi glatt augað með hraða
sínum. Þá varði Dúfa Ásbjörnsdóttir
nokkrum sinnum ágætlega.
Hjá KR-ingum var Þóra örugg í
markinu, Guðrún Sóley spilaði vörn-
ina vel og Hrefna Jóhannesdóttir var
með gott auga fyrir sendingum á
samherja sína.
En inni á vellinum var leikmaður
sem bar höfuð og herðar yfir aðra
leikmenn, Ásthildur Helgadóttir.
Með hana innanborðs er líklegt að Ís-
landsbikarinn verði áfram í Frosta-
skjólinu.
„Í rauninni kom það mér á óvart
hversu auðveldur þessi sigur var.
Vissulega komu mörkin á góðum
tíma, sérstaklega var það gott að
skora þessi mörk í upphafi síðari hálf-
leiks, þau voru mikilvæg.“ Aðspurð
hvort hún hafi einhvern tímann verið í
betra líkamsástandi svaraði Ásthild-
ur: „Ég hef líklega aldrei æft betur og
ég held að ég geti þakkað það þessum
nýju knattspyrnuhöllum og einn-
igæfði ég aðeins með strákunum
(meistaraflokki karla í KR) í vetur og
það gerði mér mjög gott.“
Fyrstu stig Stjörnunnar
Stjarnan lagði Þrótt/Hauka að
velli,4:0, í Hafnarfirði. Elva Björk Er-
lingsdóttir skoraði tvívegis í leiknum,
en Lilja Karlsdóttir og Guðrún Halla
Finnsdóttir bættu við mörkum fyrir
Stjörnuna. Staðan í hálfleik var 2:0 en
Þróttur/Haukar nálægt því að skora
fyrsta mark leiksins beint úr horn-
spyrnu, en liðinu hefur skorað eitt
mark til þessa.
Morgunblaðið/Kristinn
Barátta um knöttinn, með augun lokuð. KR-ingurinn Katrín Ómarsdóttir og Silja Þórarinsdóttir úr
liði Breiðabliks misstu sjónar á knettinum eitt augnablik í Kópavoginum í gær.
Ásthildur er
í sérflokki
STÓRLEIKUR þriðju umferðar í úrvalsdeild kvenna fór fram á Kópa-
vogsvelli í gærkvöld. Þar mættust tvö sigursælustu félög kvenna-
knattspyrnunnar undanfarinna ára Breiðablik og KR. Það er
skemmst frá því að segja að Íslands- og bikarmeistarar KR unnu
auðveldan 4:0-sigur á Blikum, þar sem Ásthildur Helgadóttir skor-
aði þrennu. Í Hafnarfirði lagði Stjarnan lið Þróttar/Hauka, 4:0.
Hjörvar
Hafliðason
skrifar