Morgunblaðið - 28.05.2003, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 49
ELTON John og sambýlismaður
hans, David Furnish, hafa komið
enn einni stjörnunni til hjálpar en
parið er þekkt fyrir hjálpsemi við
kollega sína.
John og Furnish hafa boðið
bresku leikkonunni Sadie Frost
að dvelja á sveitasetri sínu á
frönsku Rivierunni ásamt börn-
unum Finlay, Rafferty, Iris og
Rudy en Frost er sögð niður-
brotin vegna skilnaðar hennar og
leikarans Jude Law.
Elton bauð sem kunnugt er fyr-
irsætunni Liz Hurley að dvelja á
heimili sínu á Englandi á meðan
hún jafnaði sig eftir fæðingu son-
arins Damians. Þá buðu þeir írska
söngvaranum Stephen Gately að
dvelja á heimili sínu í Frakklandi
eftir að útgáfusamningi hans var
rift á svipuðum tíma og kærastinn
Eloy De Jong yfirgaf hann.
Elton kemur til hjálpar
ReutersElton sér um sína!
HALIFAX er mekka hiphopsins í
Kanada og þaðan kom mikið af
forvitnilegasta hiphopinu sem ég
heyrði á síðasta ári. Buck 65, Sixtoo
(Sebutones), Greymatter, Taichichi,
Kunga 219 og Josh Martinez svo
dæmi séu tekin. Buck 65, Richard
Tefry, er þar fremstur meðal jafn-
ingja, sá listamannanna sem hefur
verið iðnastur við að senda frá sér
plötur þó erfitt hafi
verið að koma
höndum yfir þær
hér á landi í það
minnsta. Fyrir
skemmstu gerði
Buck 65 síðan út-
gáfusamning við Warner-útgáfuna í
Kanada sem veit vonandi á gott
varðandi dreifingu á plötum hans í
Evrópu. Samstarfið hófst með því að
gömlu plöturnar hans voru endurút-
gefnar auk þess sem platan Square
kom út með nýrri tónlist. Square er
fjórða platan sem Buck 65 gefur út í
Language Arts seríunni og að því
hann segir sú síðasta. Hún er
óvenjuleg að því leyti að á henni eru
aðeins fjögur „lög“, „Square“ 1, 2, 3
og 4, nánast jafn löng. Þó lögin séu
aðeins fjögur skiptir eyrað hverju
lagi upp í hluta, því þó ákveðið leiði-
stef sé í hverju lagi eru þar líka
kaflaskipti, ólík stemning og texta-
stíll. Segja má að Buck 65 sé betri
taktsmiður en texta-, enda er hann
með fremstu taktsmiðum/upptöku-
stjórum og fer víða á kostum á plöt-
um sínum. Hann er þó með betri
rímnamönnum eins og heyra má á
Square, ekki síst eftir því sem orðin
ljúka upp fyrir áheyranda hugsun-
inni á plötunni og heildarverkið, ævi-
sagan, kemur í ljós. Um eldri verk
Buck 65 má segja að þau verði æv-
intýralegri og geggjaðri er ferillinn
er skoðaður aftur í tímann. Þannig
hefur hann smám saman verið að
slípa tónmálið, verið að ná betri tök-
um á því sem hann hefur að segja,
náð betri stjórn á hljóðaheiminum.
Hann hefur sagt að hann vilji ekki
læsast í því að vera hiphopari, hann
vilji ekki síður ná til þeirra sem
hlusta á Sparklehorse, Johnny Cash
eða Vic Chestnut og Square er vissu-
lega skref í þá átt að því leyti að hún
er ekki hefðbundin hiphopskífa en
höfðar þó líklega helst til þeirra sem
hafa gaman af framsæknu hiphopi
og pælingaplötum, enda er þetta
plata sem hægt er að hlusta á dögum
saman.
Tónlist
Sannkölluð
pælinga-
plata
Buck 65
Square
Árni Matthíasson