Morgunblaðið - 28.05.2003, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
Sýnd kl. 8. B.i.14.
Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10. B. i. 12 ára.Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15.
Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
ÓHT Rás 2
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 7.
Sýnd kl. 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
kl. 4. ísl. tal. / kl. 5.30. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Frábær
rómantísk
gamanmynd
sem hefur
allstaðar
slegið
í gegn.
KVIKMYNDIR.COM ÓHT Rás 2
GLATT var á hjalla við Síðumúla
12 á föstudag, en þá var opnuð sýn-
ing Femínistafélags Íslands, Af-
brigði af fegurð, þar sem sýndar
eru svipmyndir af áróðri gegn hlut-
gervingu líkama og fegurðar í
gegnum árin. Sýningin var opnuð
samhliða keppninni um titilinn
Ungfrú Ísland, en við sama tæki-
færi fjölmenntu femínistar að
Broadway þar sem dreift var bæk-
lingum og gerð var tilraun til að
gefa þátttakendum í fegurð-
arsamkeppninni boli femínista-
félagsins.
Um helgina var sýningin flutt á
veitingahúsið Prikið, neðst á
Laugaveginum, og mun sýningin
standa þar næstu vikurnar á efri
hæð hússins.
Þær Auður Magndís
Leiknisdóttir, Elísabet
Ronaldsdóttir, Sóley
Stefánsdóttir og Katrín
Anna Guðmundsdóttir,
glaðbeittar á opnunar-
degi sýningarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Gestir á sýning-
unni virða fyrir
sér verk, sem
kynnir kvenna-
ræktarráðunauta
til sögunnar.
Úrval af áróðri
Femínistafélagið hélt sýningu
á áróðri gegn fegurðarsamkeppnum
SANNKALLAÐ rafstuð verður á
Grandrokki næstu tvö kvöld á tvenn-
um tónleikum, að sögn Arnviðs
Snorrasonar, sem er betur þekktur
undir nafninu Exos, en hann skipu-
leggur tónleikana.
Hann segist sjálfur ætla að verða
með „teknósett í harðari kantinum“
en hugmyndin hafi verið að sameina
eins margar raftónlistarstefnur og
hægt væri á einu kvöldi.
Hugmyndin virðist hafa gengið
upp en í kvöld spila auk Exos, Worm
is green, Funk Harmony Park, Ísar
Logi Arnarsson, DJ Richard og
Haukur.
Arnviður segir að vel hafi gengið
að stefna tónlistarfólkinu saman.
Hann neitar því að miklir fordómar
séu milli stefna heldur frekar leynist
þeir á milli sveita. Hann segir snið-
ugt að ota fólki saman svo það kynn-
ist og „geti jafnvel unnið meira sam-
an í framtíðinni,“ en tilgangurinn er
líka að hleypa lífi í raftónlistarsen-
una.
Hann hefur áhuga á að halda
áfram að blanda saman tónlistar-
stefnum á einu tónleikakvöldi.
„Jafnvel að blanda saman rokk-
tónleikum og teknótónleikum, alla-
vega sjá hvernig það kemur út.“
Fyrstu tónleikarnir í tvö ár
Á tónleikunum á fimmtudaginn
spila Adrone, Sk/um, Ruxpin og Ex-
os. Þetta eru útgáfutónleikar hjá
bæði Ruxpin og Sk/um.
Ruxpin, eða Jónas Þór Guð-
mundsson eins og hann heitir, var að
gefa út sína þriðju breiðskífu,
Magrathea, hjá Mikrolux, undirfyr-
irtæki Elektrolux. „Ég er hjá þýsku
dreififyrirtæki og er aðallega að
starfa þar en það koma nokkur ein-
tök af plötunni í 12 tóna,“ segir hann.
Jónas Þór segist ætla að blanda
saman nýju og gömlu efni á tónleik-
unum á fimmtudagskvöld en þetta
eru fyrstu tónleikar hans hérlendis í
um tvö ár.
Nafnið á plötunni er komið úr
þeirri merku bók The Hitch-hiker’s
Guide to the Galaxy eftir Douglas
Adams. „Þar er það pláneta sem býr
til aðrar plánetur,“ segir hann en í
lok sumars er von á annarri plötu
eftir Ruxpin, Avalon, „eina af þeim
plánetum, sem Magrathea er að búa
til“.
Hann segir að tónlist sín hafi tekið
nokkrum breytingum. „Á fyrstu
tveimur plötunum voru þetta meiri
tölvupælingar, núna er maður farinn
að fást meira við tónlistina sjálfa.“
Þess má geta að tónleikarnir hjá
Ruxpin verða teknir upp og verður
þeim útvarpað í Þýskalandi innan
tíðar.
Gerum alla tónlistina saman
Hljómsveitin Sk/um sam-
anstendur af tónlistarmönnunum
Jóhanni Ómarssyni og Þorsteini
Konráði Ólafssyni, sem eru betur
þekktir sem Skurken og Prince Val-
ium. Heldur hún einnig útgáfu-
tónleika sína á fimmtudagskvöld í
tilefni þess að út er komin platan Í
þágu fallsins hjá útgáfufyrirtækinu
Resonant í Bretlandi.
Eins og hjá Ruxpin er plötunni
„aðallega dreift í útlöndunum en við
erum með einhver nokkur eintök
hérna sem við erum að selja í búð-
um, 12 tónum og Japis,“ segir Jó-
hann.
Þetta er fyrsta plata Sk/um. „Við
gerum alla tónlistina saman,“ segir
hann. „Við höfum þekkst lengi og
mikið spilað á sömu stöðunum. Þetta
æxlaðist bara svona,“ segir Jóhann
um upphaf samstarfsins.
Á tónleikunum á fimmtudaginn
hyggjast Sk/um spila lög af plötunni
og einnig eitthvert nýtt efni. „Við er-
um komnir með einhver tíu ný lög,“
segir hann.
Upprisuhátíð raftónlistar og útgáfutónleikar Ruxpin og Sk/um
Raftónlist-
armenn
allra
tegunda
sameinist
Raftónlistarmaðurinn Ruxpin gaf nýlega út plötuna Magrathea og spilar af
því tilefni á Grandrokki á fimmtudagskvöldið ásamt fleirum. Fleiri sveitir
koma fram í kvöld.
TENGLAR
.....................................................
this.is/funkhp
Ísar Logi Arnarsson, Worm is green,
Funk Harmony Park, DJ Richard,
Exos og Haukur á Grandrokki í
kvöld. Útgáfutónleikar Ruxpin og
Sk/um auk Adrone og Exos á Grand-
rokki fimmtudagskvöld.