Morgunblaðið - 28.05.2003, Blaðsíða 53
MARGIR hugsa um The Incredible String Band sem
„erkihippabandið“ og er annað hægt þegar önnur plat-
an, sem út kom 1967, heitir 5000 Spirits or the Layers of
the Onion? En ISB var miklu meira en ímynd hins síð-
hærða, leitandi og andans þenkjandi mussuhippa. Því á
sjöunda áratugnum var sveitin eitt helsta „költ“-band
Bretlandseyja, sveit sem menn eins John Lennon, Mick
Jagger og Robert Plant vísuðu allir í sem mikinn áhrifa-
vald. Byltingarkennd samsuða þeirra á ólíkri þjóðlaga-
tónlist og einstakt næmi fyrir fallegum lagasmíðum var
mörgum innblástur og hefur haldið nafni þeirra á lofti æ
síðan innan raða tónlistaráhugamanna. Árið 2000 settu
svo höfuðpaurarnir, þeir Mike Heron og Robin William-
son, sveitina saman á ný og
hófu að leika á tónleikum.
Eftirspurnin var vonum
framar en fljótlega sagði
Williamson sig úr bandinu
og vildi frekar einbeita sér
að eigin verkum. Heron rek-
ur því sveitina einn í dag,
sem nefnist nú incredible-
stringband2003, og sló
blaðamaður á þráðinn til
hans þar sem hann var við
það að klára að pakka.
Þið einbeitið ykkur að
gamla efninu er það ekki rétt?
„Jú, þetta er aðallega af fyrstu fimm plötunum, efnið
sem við sömdum á sjöunda áratugnum. Þetta gamla
góða! (hlær).“
Hvers vegna ákváðuð þið að stilla saman strengi á nýj-
an leik?
„Það var nú þannig að Clive (Palmer sem er nú í band-
inu, en sagði skilið snemma við ISB á sínum tíma) og
Robin voru eitthvað að dútla saman og svo ákváðum við
þrír að koma saman í Edinborg árið 2000. Á síðasta ári
fórum við svo í nokkuð langan túr og þá nennti Robin
þessu ekki lengur. Hann á enda nýja konu og ungt barn
og þarf að sinna fjölskyldunni.“
Og hvernig var nú það að vinna og starfa á sjöunda ára-
tugnum?
„Sko, við byrjuðum sem frekar hefðbundnir þjóðlaga-
spilarar. Svo komumst við í kynni við upptökustjórann Joe
Boyd og hann kom okkur á Elektra-merkið í Bandaríkj-
unum. Enn fremur kom hann okkur inn í svala klúbba í
London eins og UFO, þar sem Pink Floyd voru að spila, og
við tengdumst mjög fljótlega senunni sem var í gangi þar.
Við erum frá Skotlandi
þannig að við komum dálítið
bláeygir inn í þetta. Við vor-
um aðallega að spila tónlist sem okkur þótti flott, við vor-
um ekki að elta einhverja tískustrauma. En andinn í Lond-
on var sannarlega okkur í hag.“
Svo gliðnaði bandið í sundur á áttunda áratugnum...
„Já, við snöruðum upp þrettán plötum á milli ’66 og ’74
sem er nú bara harla gott! (hlær). Robin hætti um miðjan
Bandaríkjatúr og þá var þetta búið ... í bili alltént.“
En hvað eruð þið að vilja til Íslands?
„Það er nú það ... það hljómaði bara spennandi. Við
fórum til Noregs fyrir stuttu og það var mjög gaman. Er
ekki líka við hæfi að sveit eins og ISB kíkji til lands sem
er rómað fyrir mikinn andans kraft og náttúrufegurð?“
Mikið nafn –
mikil tónlist
TENGLAR
..................................................................................
www.incrediblestringband.com
arnart@mbl.is
Frá kl. 13 á föstudag verður hægt að festa sér miða á tón-
leikana í afgreiðslu Íslensku óperunnar þar sem tónleik-
arnir fara fram um kvöldið. Forsala er annars í Tólf tónum
og Skífunni. Miðaverð er kr. 3.900.
The Incredible String Band með hljómleika á föstudaginn í Íslensku óperunni
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT Rás 2 KVIKMYNDIR.IS
„Grípandi og gefandi með
óborganlega bardaga“
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12. / Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 / Sýnd kl. 5.40 og 10. B.i.12. / Sýnd kl. 8 og 11. B.i. 12.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05, 10.10 og 11.15. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30.
Frumsýning
Allt sem
hann þurfti
að vita um
lífið lærði hún
í fangelsi!
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 2003 53
www.casa.is
ÓÐUR til Ellyar heitir ný plata þar
sem Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona
og útvarpskona, flytur mörg af ástsæl-
ustu sönglögum Ellyar Vilhjálms sem
lést 1995.
„Elly hefur alltaf borið af og ég held
að hún sé í uppáhaldi hjá flestum ís-
lenskum söngkonum,“ sagði Guðrún
Gunnarsdóttir í samtali. „Ég kynntist
henni lítillega þegar við unnum saman
á Ríkisútvarpinu þar sem hún hvatti
mig til dáða í sönginum. Frá því hún
lést hef ég gengið með þá hugmynd í
maganum að halda henni minningar-
tónleika. Þeir voru haldnir í nóvember
og stóð til að hafa þá aðeins þetta eina
skipti, en nú er komið að fjórðu tón-
leiknum,“ sagði Guðrún, en í kvöld
verða tónleikarnir endurteknir í Saln-
um í Kópavogi og eru aðeins örfá sæti
eftir óseld.
„Í upphafi stóð ekki endilega til að
gera plötu. Ég lét taka tónleikana upp
og hugsaði það mest fyrir sjálfa mig,
en síðan leyfði ég öðrum að hlýða á
upptökuna og þeir voru svo hrifnir að
úr varð að gefa þetta út á diski og
skapa þannig áþreifanlega minningu
sem kalla má þakklætisvott til Ellyar,
meistaranna sem útsettu fyrir hana og
tónlistarmannanna sem færðu okkur
þessa flottu tónlist.“
Guðrún fékk til liðs við sig marga
hæfa tónlistarmenn – meðal annarra
Stefán Hilmarsson, en hann hefur
löngum haldið upp á Vilhjálm Vil-
hjálmsson, og syngja þau Guðrún
meðal annars dúetta sem þau systk-
inin Vilhjálmsbörn sungu á árum áður.
Á hljóðfæri leika Eyþór Gunnarsson,
Sigurður Flosason, Birgir Bragason,
Erik Qvick og Eyjólfur Kristjánsson
og bakraddir syngja Andrea Gylfa-
dóttir, Berglind Björk Jónasdóttir og
Ellen Kristjánsdóttir. Auk einvalaliðs
tónlistarmanna fékk Guðrún liðsinni
Jónatans Garðarssonar sem annast
hefur sagnfræðilega úrvinnslu auk
þess að hún hlaut styrk úr menning-
arsjóði FÍH. Guðrún mun flytja tón-
leikadagskrána á Sauðárkróki 19. júní
og einnig sem opnunartónleika lista-
sumars á Akureyri 20. júní.
Elly Vilhjálms hefur alltaf verið
í uppáhaldi hjá Guðrúnu Gunn-
arsdóttur.
Guðrún Gunnarsdóttir syngur
Í minningu söngkonu
Óður til Ellyar er kominn út. Útgef-
andi er Dimma ehf. og dreifing í
höndum Eddu hf.
Elly Vilhjálms til heiðurs á nýjum diski