Morgunblaðið - 31.05.2003, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GOÐSÖGNIN
er á þá leið að með-
limir Hudson
Wayne hafi verið
þeir meðlimir Kim-
ono sem nenntu að
spila saman í þynnkunni á sunnudög-
um. Hvað sem því líður þá er ég þakk-
látur fyrir Hudson Wayne því þessi
plata hér er hreint út sagt framúr-
skarandi góð. Fyrsta plata þeirra fé-
laga, hin fimm laga Slightly out of
Hank, var ójöfn og kannski full af-
slöppuð, kæruleysið meira skemm-
andi en hitt en verkið var engu að síð-
ur mjög lofandi. Og nú er þetta orðið
„alvöru“ – okkur og sveitinni til heilla.
Á I’m a Fox – í gegnum sex lög – ná
Hudson-liðar nefnilega að móta sann-
færandi og sérstæðan stíl sem vissu-
lega er þó bundinn angurværri og
myrkri sveitanýbylgju að hætti Red
House Painters, Will Oldham, Mark
Eitzel, Mark Lanegan, Galaxie 500,
Cowboy Junkies o.s.frv. En gæði
lagasmíðanna og flutningurinn á þeim
hífir Hudson Wayne upp yfir „hermi-
kráku“-girðinguna og skapar þeim
eigin bás. Þannig er söngurinn hér
drafandi og draumkenndur og tónlist-
in í bakgrunninum hreint fyrirtak,
melódísk og lágstemmd – viðkvæmn-
isleg og falleg. Sólbakað gítargutl,
dramatískar og stingandi ballöður og
frábær hljóðupptaka gera Hljóðheim-
inn hér ekkert minna en heillandi.
Það sem aðgreinir svo þessa plötu
klárlega frá þeirra fyrri er að nú er
tónlistin þeirra, hún er ekki lengur
bundin á klafa áhrifavaldanna.
Framfarirnar eru miklar og afurð-
in af því frábær. Vel af sér vikið,
strákar.
Tónlist
Refur sem
bragð er að
(en þó enginn
bragðarefur)
Hudson Wayne
I’m A Fox
mineur-aggressif
I’m A Fox er eftir Þráin Óskarsson. Platan
er útsett og flutt af Hudson Wayne.
Hljóðritað af Hudson Wayne og Alex
MacNeil. Hljóðblandað af Þráni og Helga
Alexander. Alex MacNeil hljómjafnaði.
Arnar Eggert Thoroddsen
Hudson Wayne á hljómleikum.
ÞESSI fyrsta breiðskífa Worm is
Green er sumpart nokkuð misjöfn
smíð. Sveitin virðist á báðum áttum,
hvort ætti að gera poppvæna raftón-
listarplötu eða keyra alveg á til-
raunatónunum.
Reynt er að fara þá
leið að hafa þetta
bland í poka, sem
er svosem lenska,
en sú samþætting
gengur ekki vel og
heildarmyndin líður nokkuð fyrir
þetta. Súrari lögin eru til að mynda
til muna betri en þessi sungnu og
„aðgengilegu“. Fæst þeirra ná að
rísa ofan meðalmennskunnar og
raddir, hvort sem um er að ræða
kvenmanns- eða karla- eru mestan
part úti að aka. Veikar og fráhrind-
andi en ég geri því skóna að þær hafi
átt að vera „afslappaðar“. Það er
hins vegar gengið heldur langt í þá
átt. Tilætluð reisn og svalleiki, sem
hægt er að ná út úr slíkum æfingum,
eru einfaldlega ekki að gera sig.
Plötunni er það þó til tekna að
Árni Teitur Ásgeirsson, sem semur
mestanpart efnisins, á það til að
hitta á eiturgóðar melódíur, eins og
hann gerir t.a.m. í fyrstu tveimur
lögunum. Og þegar poppnuddi
sleppir og ormurinn skríður eftir
óræðari miðum er hann að gera það
ágætt. Lagið „Drive thru“ er gott
dæmi þar um.
Á heildina litið skortir þessa plötu
þó tilfinnanlega séreinkenni og
sjarma. Of margt minnir á eitthvað
sem gert hefur verið áður, og þá bet-
ur. Sumir sprettirnir virðast líka
vera dálítið á eftir tímanum. Þó
vissulega sé efnið hérna frambæri-
legra en margt það sem iðkað er við
þröngan kost í heimilistölvum nær
hún síst að slaga upp í gerðarlegri
gripi, sömu ættar.
Automagic er því svona allt í lagi.
En ekki mikið meira en það.
Tónlist
Allt í lagi
Worm is Green
Automagic
Thule/TMT
Automagic er fyrsta breiðskífa Worm is
Green. Sveitina skipa þau Árni Teitur Ás-
geirsson (forritun og hljóðgervill), Bjarni
Þór Hannesson (hljóðsmali og hljóð-
gervill), Þorsteinn Hannesson (tromm-
ur), Vilberg Hafsteinn Jónsson (bassi) og
Guðríður Ringsted (söngur). Einnig koma
Ragnar Kjartansson, Birgir Hilmarsson,
Gulli og Jón Þór við sögu. Lög eftir Árna
en Vilberg, Bjarni, Þorsteinn og Birgir
áttu einnig hlut að máli í þeim efnum.
Upptökustjórn var í höndum Árna en
Bjarni og Þorsteinn voru til aðstoðar í
þremur þeirra. Hljóðblöndun og hljóm-
jöfnun var í höndum Equalizer Axels.
Arnar Eggert Thoroddsen
Meðlimir Worm is Green njóta náttúrunnar.
www.casa.is
lau 31. maí, ZÜRICH í SVISS; frumsýning
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15, júní kl. 21, Hótel Borgarnes
Forsala á Akureyri fer fram í Pennanum
Eymundsson Glerártorg.
Forsala á Blöndósi í Byggingav. KH, Húnabraut
Forsala í Borgarnesi í versluninni
Fínu fólki, Borgarbraut
www.sellofon.is
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Í kvöld kl. 20.
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Mi 4/6 kl 20, Fi 5/6 kl 20, Fö 6/6 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Sunnudaginn 1/6 kl 20 - AUKASÝNING
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
15:15 TÓNLEIKAR - POULENC HÓPURINN
Í dag kl 15:15 Ferðalög: Bergmál Finnlands
NÚLLSJÖ NÚLLSEX 2003
Dansleikhúskeppni LR og ÍD
Lau 7/6 kl 20
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Su 1/6 kl 20, Fö 6/6 kl 20, Fö 13/6 kl 20
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Í kvöld kl 20
ATH: SÍÐASTA SÝNING
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús: Börn, 12 ára og yngri, fá frítt
í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ
BÍBÍ OG BLAKAN - ÓPERUÞYKKNI
eftir Ármann Guðmundsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason
í samvinnu við HUGLEIK
Í kvöld kl 20:00 -
LOKASÝNING
TVÖ HÚS eftir Lorca
sun. 1. júní kl. 20
fim. 5. júní kl. 20
fös. 6. júní kl. 20 Síðasta sýning
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
552 1971 - nemendaleikhus@lhi.is
VÖLUSPÁ
eftir Þórarin Eldjárn
150. sýning sunnudag 1. júní kl. 20.
Einstakt tækifæri til að sjá þessa
rómuðu sýningu.
10. júní hefst 3ja vikna leikhúsnám-
skeið fyrir 9-12 ára börn.
Enn eru nokkur pláss laus.
Netfang: ml@islandia.is
www.islandia.is/ml